Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
53
Ferðin kring um landið tók alls
25 daga og voru áfangamir á bilinu
6-140 km langir. Allt gekk slysa-
laust fyrir sig og sprakk ekki á
dekki fyrr en eftir 1400 km. „Ég
var.nú ekki sérlega fyrirhyggjusöm
eða vel út búin“ sagði Auður. „Ég
keypti ekki bætur á dekkin fyrr en
á Höfn í Homafírði og regngalla
fékk ég mer ekki fyrr en á Stöðvar-
fírði. Mig langar til að taka það
fram að ég bað fyrir hvetjum degi
í ferðinni.
Lengsti áfangi ferðarinnar var
frá Stykkishólmi til Borgamess og
Hvanneyrarar í Borgarfírði, með
smá lengingu á leiðinni, og sá næst
lengsti, 130 km, var frá Möðmdal
að Holtakoti í Ljósavatnshreppi.
Vegimir em margir hveijir erfíðir
yfírferðar, einkum Mýrdalssandur
og Öræfí, og oft varð ég að teyma
hjólið. Til dæmis var ég í klukk-
utíma að baksa upp Víkurskarð
með vindinn í fangið en aðeins sjö
mínútur að fara niður hinum meg-
in. Merkingum er líka víða áfátt,
einkum við fjallvegi, ár, skóla og
prestssetur".
Auður Guðjónsdóttir hefur verið
búsett í Ontario í Kanada í eitt ár
þar sem eiginmaður hennar, sr.
Kristján Róbertsson er prestur. Hun
sagði að hugmyndin um að hjóla
hringveginn hefði fyrst fæðst fyrir
2-3 ámm þegar hún kenndi við
Oddeyrarskólann á Akureyri og lét
sér stundum detta í hug að gaman
gæti verið að hjóla suður.
Auður hjólaði hringinn í 25
áföngum og vom áfangastaðimir
sem hér segir: Frá Reykjavík til
Hveragerðis; Oddi á Rangaárvöll-
um, Holt undir Eyjafjöllum, Vík í
Mýrdal, Hrífunes, Kirkjubæjar-
klaustur, Skaftafell, Hali í Suður-
sveit, Höfn í Homafírði, Geithellar,
Heydalir, Breiðdalsvík, Kolfreyju-
staður, Egilsstaðir, Skjöldólfsstaðir,
Möðmdalur, Holtakot í Ljósavatns-
hreppi, Akureyri, að Löngumýri í
Skagafírði, Blönduós, Reykir í
Hrútafírði, Búðardalur, Stykkis-
hólmur og Hvanneyri í Borgarfírði.
Síðasta áfangan, 82 km, frá
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til
Reykjavíkur, hjólaði hún svo á
mánudaginn, 13. júní, með vindinn
í fangið talsverðan hluta leiðarinn-
ar.
„Þetta var yndisleg ferð, ég væri
tilbúin til að leggja af stað annan
hring strax á morgun. Mig langar
að nota tækifærið og þakka öllum
þeim sem opnuðu bæina sína fyrir
mér og gáfu mér kaffí og góðgerð-
ir og öllum öðmm sem sýndu mer
hlýhug og styrktu mig, bæði and-
lega og veraldlega" sagði Auður
að lokum.
Ríkey
sýnir í
Viðey
Ríkey Ingimundardóttir heldur
um þessar mundir sýningu á
leir- og postulínsmyndum í Viðey.
Sýningin er tileinkuð Halldóri Lax-
ness á 85 ára afmæii skáldsins og
hefur Ríkey af því tilefni gert tvær
leirstyttur af honum. Aðra styttuna
gaf hún þeim hjónum, Auði og
Halldóri Laxness og tók Auður við
henni við opnun sýningarinnar.
Sýningin í Viðey er haldin í nýj-
um skála sem Hafsteinn Jonsson
hefur látið byggja. Hún hófst
11 .júní s.l og stendur til 8.ágúst.
Ríkey sýnir þar aðallega upphleypt-
ar postulínsmyndir, unnar úr
hábrenndu postulíni, málaðar með-
kopar og kóbaltoxíð. Hún sagði að
þetta væri nýr stfll sem hún hefði
aðeins verið farin að prófa sig áfram
með á síðustu sýningu og hefði fólki
fallið myndimar mjög vel.
m -í4§Í» É&.
85 36 Góócm daginn!
OKKAR VERÐ
I Marineraðar|ænssne/(
I 548--kr. kg.
Marineruð rif
175-kr.kg.
Har>gikjötslæri
420-kr.kg.
Hangi^otsframparta^úrt
32l-kr. kg.
Han9*i»S'?r' Orbeinaa
568.-kr. kg.
Han9ikjöts frampartar
487-kr.kg.
Lambahamborgarhryggur
327-kr.kg.
Londonlamb
s,4-kr.ko.
KJÖTMjÐSTÖÐI N Laugalaek 2. s. 6865II
Ný lambalæri
383.-kr.kg.
Lambahryggur
372.-kr.kg.
Lambaslög
70.-kr.kg.
Lambaframpartar
292.-kr.kg.
Lambasúpukjöt
327.-kr.kg.
Lambakótilettur
372.-kr.kg.
Lambalærissneiðar
497.-kr.kg.
Lambagrillsneiðar
294.-kr.kg.
Lambasaltkjöt
345.-kr.kg.
Lambaskrokkar 1. flokkur j
264,50kr.kg.
lægra en hjá öðrum
í kvöld leikur
MICKEY DEAN
léttan blús frá
kl. 20-22
Velkomin á
Brasserie Borg