Morgunblaðið - 18.07.1987, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
62
foám
Símamynd/Reuter
Lykill að borginni!
Pat Cash hampar lyklinum að Melboume-borg eftir að hafa verið gerður að
heiðursborgara. Við hliða hans er borgarstjórinn, Trevor Huggard.
■ JORGE Sarmiento, mark-
vörður argentínska knattspymu-
landsliðsins, sem þátt tekur í
heimsleikum stúdenta í Zagreb í
Júgóslavíu, hefur verið útilokaður
frá frekari keppni á leikunum fyrir
að ráðast á dómara.
Sarmiento hefur ekki aðeins verið
útilokaður frá keppni á leikunum í
Zagreb því bannið nær einnig til
'heimsieikanna, sem haldnir verða í
Sao Paulo í Brazilíu árið 1989.
Sarmiento þoldi ekki að þurfa að
bíða ósigur fyrir brezka liðinu á
leikunum því hann rauk að dómar-
anum Gerald Losert frá Austurríki
að leik loknum og kýldi hann í and-
litið. Bretar unnu leikinn 1-0.
■ Breiðabliksmenn unnu Ein-
herja í döprum leik í 2. deildinni á
miðvikudaginn. Fátt bar til tíðinda
nema hvað einn fylgismanna Ein-
heija fór eitthvað í taugamar á
Kópavogsbúum. Hann hljóp með
hliðarlínunni eins og siður er úti á
landi þar sem ekki eru stúkur við
vellina. Einu sinni komst hann ansi
nærri því að fara inn á völlinn og
ræddi dómari leiksins þá við hann.
í leikhléi tók einhver Blikanna sig
til og hafði samband við lögregluna
og bað um að maðurinn yrði fjar-
lægður. Þegar lögreglan spurði um
ástæðu var svarið einfalt: „Við vilj-
um bara losna við hann.“ Hvers
vegna voru ekki allir stuðnings-
menn Einheija Qarlægðir — svona
til að nota ferðina?!
Annað atriði úr Kópavoginum. ÍR-
ingar léku þar ekki alls fyrir löngu
og í leikhléi báðu varamenn ÍR vall-
arstjóra um bolta til að æfa sig.
Ekki var það auðsótt og ÍR-ingum
var sagt að þeir mættu alls ekki
æfa á vellinum. Allt gott um það
að segja nema á sama tíma og
ÍR-ingum var bannað að vera á
vellinum í leikhléi, sem er sjaldgæft
á völlum landsins, léku varamenn
UBK sér af kappi þar!
■ Pat Cash, Astralinn sem sigr-
aði í einliðaleik karla á Wimbledon-
mótinu í tennis fyrir skömmu, hefur
nánast verið þjóðhetja í heimalandi
sínu síðan sigurinn vannst, enda
Ástralíubúar miklir tennisáhuga-
menn. Hefur honum hlotnast
ýmiskonar heiður og nú síðast var
hann gerður heiðursborgari í
Melboume. Borgarstjórinn, Trevor
Huggard, afhenti honum þá borgar-
lykilinn.
■ Sir Stanley Matthews, enski
knattspyrnukappinn gamalkunni,
hefur verið sæmdur heiðursnafnbót
við breska Keele-háskólann. Matt-
hews, sem nú er 72 ára að aldri,
lék tvívegis Englandi í úrslitakeppni
heimsmeistarakeppninnar, og hætti
ekki að spila í 1. deildinni með
Blackpool fyrr en fimmtugur. „Ég
var vel liðtækur til náms þegar ég
var yngri, en ég hafði ekki áhuga
á neinu öðru en að leika mér með
bolta ásamt félögunum," sagði
Matthews, sem hætti 14 ára í skóla,
við athöfnina er hann var heiðraður.
■ ROBERTO Fleitas, þjálfari
Uruguay, tilkynnti í vikunni að
hann mundi hætta með landsliðið í
desember til að gefa öðrum tæki-
færi til að spreyta sig.
Fleitas leiddi landslið Uruguay til
sigurs í Suður-Ameríkubikamum á
dögunum og kemur ákvörðun hans
á óvart. í viðtali við blaðið E1 Diario
sagði hann vildi einnig með ákvörð-
un sinni létta raunir ýmissa blaða-
manna í Uruguay, sem hann félli
ekki í kramið hjá.
Fleitas hefur aldrei þjálfað neitt
stórfélag í heimalandi sínu og hann
sagði að nú myndu beztu þjálfarar
landsins fá tækifæri til að taka við
landsliðinu. Hann tók við Iiðinu í
fyrravor eftir að Argentínumenn
slóu það út úr átta-liða úrslitum
heimsmeistaramótsins í Mexíkó.
Uruguayar komu fram hefndum
með því að leggja Argentínumenn
að velli í Suður-Ameríkubikamum
í síðustu viku.
r SUND / BIKARKEPPNIN
Ragnheiður og Eðvarð með
nokkuð öragga forystu
BIKARKEPPNIN ísundi er nú
langt á veg komin og eru þau
Ragnheiður Runólfsdóttir og
Eðvarð Þór Eðvarðsson með
örugga forystu f flokki kvenna
Vog karla.
*
Asíðasta sundþingi var sam-
þykkt tillaga um að koma á
fót bikarkeppni einstaklinga er yrði
með þeim hætti að sundfólk skráði
sig í ákveðnar greinar fyrir allt
árið. Einnig skyldu félög tilkynna
eitt af sínum sundmótum sem stiga-
mót. 133 keppendur skráðu sig í
bikarkeppnina og koma þeir frá 11
félögum.
Megin tilgangur þessarar keppni
er að fá sundfólkið til að keppa f
fleiri greinum, sækja heim önnur
félög og keppa sem vfðast auk þess
að fá fjölhæfara sundfólk.
Búið er að keppa í átta mótum og
hú er aðeins eitt félagsmót eftir,
en hinsvegar nokkur mót á vegum
sundsambandsins. Má þar telja
deildarkeppnina, íslandsmót og
unglingameistaramót auk aldurs-
flokkameistaramóta.
Það er nokkuð misjafnt í hve mörg-
um greinum hver flokkur skal
keppa. Þannig skulu karlar, konur,
piltar og stúlkur keppa í 6 greinum,
en tíu ára sundfólk og yngra,
hnokkar og hnátur, keppa aðeins í
þremur greinum. Stig eru gefin
samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu.
Hér á eftir verður fjallað stuttlega
um hvem flokk og sfðan fylgir staða
efstu manna á eftir.
KARLAR:
Eðvarð hefur aðeins synt í 5 af 6
greinum og hefur jrfirburði sem
vænta mátti. Ólafur og Egill hafa
keppt í 6 greinum og ef þeir bæta
sig í einhverri þeirra greina geta
þeir fengið stig til viðbótar, Tómas
á eftir eina grein og Ingólfur tvær.
Því getur orðið talsverð keppni um
röð efstu manna á eftir Eðvarð.
Alls taka 9 keppendur þátt í karla-
flokki.
KONUR:
Sem vænta mátti er Ragnheiður
Runólfsdóttir frá Akranesi í efsta
sæti en hún hefur keppt í 6 grein-
um, og getur bætt sig um nokkur
stig ef hún bætir tfmann sinn. Hin-
ar, þær Helga, Þórunn, Martha og
Þuríður, eiga allar eftir eina grein
og geta því bætt sig um 500—800
stig. Alls taka 7 keppendur þátt í
kvennaflokki.
PILTAR:
Hannes Már Sigurðsson frá UMFB
er í efsta sæti, enda einn efnileg-
asti sundmaður landsins. Hannes,
Guðmundur og Kristján hafa aðeins
keppt f 5 greinum af 6 og eiga eft-
ir að bæta við sig milli 400—600
stigum og líklegt er að Svavar Þór
eigi eftir að blanda sér í baráttu
efstu manna. 19 keppendur eru
skráðir til keppni.
STÚLKUR:
Hér verður eflaust mesta baráttan
um bikarinn milli Pálínu og Ingi-
bjargar, þær hafa keppt í sínum
greinum, þannig að aðeins bæting
í skráðum getur bætt þeirra stöðu.
Alls eru 17 stúlkur skráðar til leiks.
DRENGIR:
Þeir félagamir úr Bolungarvík
skipa tvö efstu sætin og má telja
að Guðmundur Amgrímsson hafí
betri möguleika til sigurs, enda frá-
bær og fjölhæfur sundmaður.
Vænta má keppni milli þeirra félaga
úr Vestrá, Hlyns og Halldórs um
3ja sætið. Aðeins 9 drengir eru
skráðir til leiks.
TELPUR:
Ama Þórey Sveinbjömsdóttir, Ægi,
hefur nokkra yfírburði, en þær
nöfnur úr Bolungarvík og Njarðvík
geta náð um 1200 stigum til við-
bótar og gert baráttuna um bikar-
inn skemmtilega, einnig ætti
Sigurlín að geta náð í 600—700
stig. 19 telpur em skráðar til leiks.
SVEINAR:
Þór Pétursson úr Vestra hefur flest
stig og á þó eftir að keppa f einni
grein. Benedikt Sigurðsson, UMFB,
og keppendi sem ekki er á meðal 5
efstu, Hlynur Þ. Auðunsson frá
Borgamesi, gætu komið til greina
sem sigurvegarar í þessum flokki
og hér em flestir í baráttu um bikar-
inn. 11 keppendur em skráðir til
leiks.
MEYJAR:
Kristianna Jessen frá Hvamms-
tanga hefur hér forystu, enda synt
allar sínar greinar, hinsvegar má
reikna með því að Ema Jónsdóttir
frá UMFB beri sigur úr býtum f
þessum flokki. Ema er aðeins 11
ára. Hér em flestir skráðir keppend-
ur eða alls 26, og því gæti röð fimm
efstu manna riðlast.
HNOKKAR:
Elvar og Jón Steinar hafa talsvert
forskot í bikarinn og má ekki á
milli sjá hvor hefur betur. Aldurs-
flokkamótið í júlí gæti skorið úr því
hvor verður bikarhafinn. 8 kepp-
endur em skráðir til leiks.
HNÁTUR:
Hrefna Sigurgeirsdóttir frá UMFB
hefur hér einn besta möguleikann
til sigurs, hinsvegar hafa aðeins
þijár af átta tekið þátt í keppninni.
Staða eftir átta sundmót
Kartar: Stig
Eðvarð Þór Eðvarðsson, UMFN (5) 4.449
Ólafur Einarsson, Ægi (6) 3.755
Egill Kr. Björnsson, Vestra (6) 3.373
Tómas Þráinsson, Ægi (5) 3.021
Ingólfur Arnarson, Vestra (4) 2.873
Konur:
Ragnheiður Runólfsdóttir, (A (6) 4.583
Helga Sigurðardóttir, Vestra (5) 3.378
Þórunn Kr. Guðmundsd., Ægi (5) 3.175
Martha Jörundsdóttir, Vestra (5) 2.894
Þuríður Pétursdóttir, Vestra (5) 2.807
PIKar:
Hannes M. Sigurðsson, UMFB (5) 3.292
Guömundur Reynisson, UMFB (5) 2.803
Kristján B. Árnason, Vestra (5) 2.374
Ottó KarlTúluníus, Öðni (6)2.354
Svavar Þór Guömundss., Óðni (4) 2.257
Stúlkur:
Pálína Björnsdóttir, Vestra (6) 3.739
Ingibjörg Arnardóttir, Ægi (6) 3.680
Margrét J. Magnúsd., Vestra (6) 2.597
Sigrún Hreiðarsd., UMF Self. (5) 2.246
Bryndís Ernstsdóttir, Ægi (4) 2.234
Drengir:
Guðleifur Árnason, UMFB (5)2.203
Guðmundur Arngrlmss., UMFB (4) 2.088
HlynurTr. Magnússon, Vestra (4) 1.402
Halldór Sigurðarson, Vestra (4) 1.283
Tryggvi Ingason, Vestra (4) 997
Telpur:
Arna Þórey Sveinbjörnsd., Ægi (5) 2.806
Elsa Guðmundsdóttir, Óðni (5) 2.352
Sigurlín Garðarsd., UMF Self. (4) 2.027
Björg Hildur Daöadóttir, UMFB (3) 1.667
Björg Jónsdóttir, UMFN (3) 1.615
Sveinar:
Þór Pétursson, Vestra (4) 1.283
HlynurTúlinius, Óðni (5) 1.260
BenediktSigurðsson, UMFB (3) 957
ÓmarÁrnason, Óðni (3) 773
HalldórSveinsson, Vestra (3) 638
Meyjar:
Kristianna Jessen, USVH (5)1.639
ÁsthildurÓlafsdóttir, USVH (5) 1.513
•Erna Jónsdóttir, UMFB (3) 1.314
Linda B. Pálsdóttir, Vestra (3) 887
Lilja D. Pálsdóttir, Vestra (3) 885
Hnokkar:
Elvar Daníelsson, USVH (3) 657
Jón SteinarGuömundss., UMFB (2) 444
Börkur Þórðarson, ÍBV (2) 217
Vlðar Þorláksson, Vestra (2) 211
Bjarki Þorláksson, Vestra (2) 196
Hnátur:
Hrefna Sigurgeirsdóttir, UMFB (3) 848
Svava Magnúsdóttir, Óðni (1) 268
Ásmunda Baldursdóttir, Vestra (3) 211
Hákon Qunnarsson f leik með
Breiðablik.
GETRAUNIR
Hákon
Gunnars-
sonfram-
kvæmda-
stjóri
Ýmsar breyt-
ingarívændum
„ÞAÐ eru ýmsar breytingar
í vœndum í haust, en starfs-
ár íslenskra getrauna hefst
að þessu sinni 29. ágúst,11
sagAi Hákon Gunnarsson,
nýr framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins viA MorgunblaAiA
í gær.
Hákon er 27 ára gamall við-
skiptafræðingur og fyrrum
leikmaður UBK í knattspymu.
Hann hóf störf hjá Getraunum
fyrr f mánuðinum, og tekur al-
farið við stjóminni 1. september,
en þá hættir Bima Einarsdóttir,
sem hefur verið framkvæmda-
stjóri undanfarin ár.
Hákon sagði að nú yrði fyrsti
vinningur aðeins greiddur út
fyrir tólf rétta leiki og ef enginn
væri með tólf rétta flyttist vinn-
ingurinn yfír á næstu viku.
Úrslitaleikurinn í bikarkeppni
KSÍ verður á fyrsta seðlinum
og tvær síðustu umferðir í.
deildar verða á seðlinum í 2. og
3. viku.
LYFJAMÁL
Konur var-
aðar við
pillunni
ÍÞRÓTTAKONUR sem keppa á
vetrarólympíuleikunum í Calg-
ary næsta vetur hafa verið
varaðar við notkun ákveðinna
getnaðarvarnapilla þvf annars
gætu þær fallið á lyfjaprófi.
Við athuganir kom í ljós að svo
virtist sem þvagsýni kvenna
sem notuðu pillur, sem innihéldu
efnið norphisterone, innihéldu
óleyfílegt hormón. Útilokað var að
gera greinarmun á þvagsýnum
þessara kvenna og viðmiðunarsýn-
um manna, sem neytt höfðu óleyfí-
legra hormónalyfja.