Morgunblaðið - 08.08.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐit), LAUGAKDAGUR 8. aGUS'í 1987
5
Borgarráð:
Dagsekt-
ir sam-
þykktar
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sinum í gær ákvörðun bygginga-
nefndar um að beita 10.000
króna dagsektum, ef ekki verður
orðið við óskum nefndarinnar
um lagfæringar á Hamarshúsinu
við Tryggvagötu.
Bygginganefnd svipti Ólaf S.
Bjömsson leyfi til að starfa sem
húsasmíðameistari í Reylqavík
vegna alvarlegra brota á bygginga-
reglugerð við byggingu hússins.
Um leið var samþykkt að Ólafur
sæi til þess að ráðnir yrðu nýir
aðilar að verkinu og að því yrði
lokið fyrir 26. ágúst næstkomandi
að viðlögðum dagsektum. Þá sam-
þykkti borgarráð, að ávítur bygg-
inganefndar á pípulagningameist-
ara hússins verði teknar til
endurskoðunar.
Enskur hjarta-
skurðlæknir
á Islandi
ENSKI hjartaskurðlæknirinn
M. Paneth kemur tíl íslands
ásamt konu sinni á mánudaginn
10. ágúst n.k. í boði Landssam-
taka hjartasjúklinga og
Ríkisspítalanna.
Paneth hefur skorið upp fjölda
íslendinga á Brompton-sjúkrahús-
inu í London, en þangað fóru 3/4
af þeim íslendingum sem þurftu
á hjartaskurðaðgerð að haída áður
en slíkar aðgerðir hófust á íslensk-
um sjúkrahúsum. Enn mun vera
nokkuð um að íslendingar leiti til
Brompton, þó að hægt sé að jafn-
aði að anna tveimur hjartaskurð-
aðgerðum á viku hér á landi.
Paneth mun dvelja í viku hér á
landi, og mun hann m.a. fara í
heimsókn til Akureyrar. Hann
mun halda fund með hjartasjúkl-
ingum á Hótel Sögu á fímmtudag-
inn 13. ágúst kl. 20.00.
Athugasemd
vegna við-
tals um útflutn-
ing á hestum
GUNNAR Bjarnason ráðunautur
hefur beðið Morgunblaðið að
koma eftirfarandi athugasemd á
framfæri vegna viðtals við Reyni
Hjartarson bónda á Brávöllum
um útflutning á hestum til
Bandaríkjanna:
„Reynir Hjartarson talar eins og
hann sé sá eini sem hafi eitthvað
gert að gagni og leiðrétt misskilning
um íslenska hesta. Sérstaklega skil
ég ekki hvers vegna hann bendlar
Ameríkureiðinni við sögur um hvað
íslenskir hestar séu harðgerðir að
ekki þurfí að jáma þá. Slíkt eru
dylgjur.
Hann var heppinn að komast f
samband við gott fólk f Banda-
ríkjunum og hann má njóta þess.
En aðrir og ekki ómerkilegri menn
en Reynir hafa plægt akurinn þar
og herfað jarðveginn. Það má hann
vita.
Ég veit ekki betúr en Samband
íslenskra samvinnufélaga hafi flutt
hestana út og séð um flugvélaleigu
og pappírsvinnu. Það má enginn
bóndi halda að hann geti annast
útflutning á hestum í sfmanum
heima í eldhúsi".
LAUGARDAGUR 8. AGUST 1987.
VERÐHRUN AHAMBORGURUM
A GRILLSTÖÐUM
Tomma staðir auglýsa hamborgarann á 87 krónur! Verðið stendur frá 8. ágúst
til 5. september — Risaglas af Pepsí, getraunir og uppákomur
„Þetta er náttúrlega alger
geggjun/1 sagði Gissur Krist-
insson í Tomma borgurum
þegar TT leitaði skýringa á
þessari stórkostlegu vcrð-
Íækkun, „en þegar ég vaknaði
í inorgun var ég svo glaður að
mér fannst ég verða að gera
eitthvað fyrir þjóðina og land-
búnaðinn og allt það. Þcir
hafa verið að vcita einhverja
málamyndaafslætti kollegar
mínir i grillbransanum. En af
hverju þetta hálfkák, af hverju
að lækka þá ekki almcnni-
lega? Ég vil bara leggja mitt af
mörkum til að hamla gegn
verðbólgunni!11
Þetta sagði Gissur í Tomma
borgurum en TT tókst ekki að
ná sambandi við aðra grill-
staði. Þar virtist allt vera í
steik.
Gissur sagði að þessi tombólu-
prís á hamborgurum yrði frá
og með deginum í dag og allt
til laugardagsins 5. september
nk. Allir Tomma staðir á höf-
uðborgarsvæðinu selja ham-
borgarann á 87 krónur þennan
tíma. Auk þess verður hægt að
fá franskar á góðu verði og
risaglas af Pepsí fyrir sama
verð og lítið glas kostar venju-
lega. Tomma hamborgarar eru
á Grensásvegi 7, Hólma-
seli 4, Laugavegi 26,
Lækjartorgi og Reykja-
víkurvegi 68 Hafnarfirði.
Kunnur maður úr fjármála-
heiminum, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, tjáði TT að
þetta verð gæti einfaldlega
ekki staðist, Tomma hamborg-
arar hlytu að fara á hausinn.
Gissur var ekki sannnála þeg-
ar blaðið bar þetta undir hann.
„Þar fyrir utan eru Tomma
hamborgarar alveg jafn góðir
þótt þeir standi á haus,11 sagði
Gissur, „en við ætlum líka að
vera með getraun í gangi og
ýmsar uppákomur. M.a. höf-
um við fengið algjöran töfra-
mann til að heimsækja alla
Tomma staðina. Það er nú all-
ur galdurinn!11 Gissur vildi
ekki tjá sig nánar um þetta,
málið væri á viðkvæmu stigi,
en hann sagðist geta fullyrt að
verðlaunin í getrauninni yrðu
vegleg.
T.
BESTI BITINN í BÆNUM
segir Steini
TT hitti Steina blaðburðar-
strák á förnum vegi og spurði
hann hvað honum fyndist um
verðlækkunina á Tomma
hamborgurum. Hann sagði að
það skipti í sjálfu sér ekki
miklu máli fyrir hann, hann
borðaði hvort sem er alltaf
Tomma borgara þegar hann
borðaði á skyndibitastöðum á
annað borð.
„Mér finnst Tommi vera besti
bitinn í bænum,11 sagði hann,
„en það er auðvitað lofsvert
fordæmi að lækka svona verð-
ið. Þetta ættu allir að gera en
það verður bara að koma í.ljós
hvort þeir gera það.“ Þar með
var hann horfinn þessi ungi og
glaðbeitti athafnamaður.
100% ÍSLENSKT
NAUTAKJÖT!
Steini blaðburðarstrákur var
ekki í vafa um að Tomma ham-
borgarar væru beslir.
Tomma hamborgarar fást á Grensásvegi 7, Hólmaseli 4,
Laugavegi 26, Lækjartorgi og Reykjavíkurvegi 68 Hafnar-
firöi.
VERNIG ER
ÞETTA HÆGT?
Sjá leiðara á bls. 6
TT reyndi árangurslaust í gær
að ná sambandi við ráðherra í
ríkisstjórninni til aó heyra álit
þcirra á frumkvæði Tomma
hamborgara í efnahagsmál-
um. Starfsmaður i fjármála-
ráðuneytinu sagði að ráðherra
lægi undir feldi og kyrjaði
braggablús cn bað okkur í
guðanna bænum að hafa þetta
ekki eftir sér. Ónafngreindur
heimildamaður blaðsins sagði
hins vegar að ríkisstjórnin
hefði verið úti að aka í allan
gærdag og langt fram á nótt.
Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar vildi hvorki játa né neita
þegar þetta var boriö undir
hann seint í gærkvöldi.
Ekki tókst heldur að ná tali af
efnahagssérfræðingum, það
var engu líkara en jörðin hefði
gleypt þá. TT tókst þó að króa
Dr. Hagbarð Eiríksson hag-
fræðing af á einum Tomma
staðanna um kvöldmatarleyt-
ið í gær og spurningin var auð-
vitað: HVERNIG ER ÞETTA
HÆGT? „Þetta er enginn
vandi. Þaðer 100% ungnauta-
kjöt í Tomma hamborgurum
og engin aukaefni svo að þetta
er hreinasta lostæti sem rennur
ljúflega niður. Ekki er það
heldur verra að hafa franskar
og Pepsí með. Auðvitað dregur
þetta úr verðbólgu — það segir
sig sjálft. Hitt er svo annað
mál að hjöðnun á einum stað
hefur ævinlega í för með sér
þenslu á einhverjum öðrum
stað. En maður þarf þáekki að
herða sultarólina á meðan,11
sagði Dr. Hagbarður Eiríks-
son hagfræðingur.
T.
mldas auglýslngaþjónusta