Morgunblaðið - 08.08.1987, Side 30

Morgunblaðið - 08.08.1987, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987 Fiskmarkaður Norðurlands: Frumkvöðlar að þessari tegund Qarskiptamarkaðar - segir Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri FISKMARKAðUR Norðurlands hf. hefur nú gengið til samninga við tölvufyrirtœkið Streng um hönnun og uppsetningu tölvu- búnaðarins sem notaður verður á fjarskiptamarkaðnum á Akur- eyri. Að sögn Sigurðar P. Sigmundssonar, framkvæmda- stjóra markaðarins, er reiknað með að tölvubúnaðurinn verði prófaðaur 1. september og bjóst hann síðan við að markaðurinn yrði tekinn í notkun með eðlileg- nm hætti nm miðjan þann mánuð. „Heildarfyrirkomulagið á þessum Q arskiptamarkaði verður alveg með nýju sniði; hannað með tilliti til okkar þarfa, og veit ég ekki annað en að við séum frumkvöðlar að fyr- irkomulagi sem þessu í allri Vestur-Evrópu," sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í gær um fyrirkomulagið á fjarskiptamark- aðnum. Sagðist hann reikna með að kostnaður við að tengjast tölvubún- aði markaðarins yrði um 30-40 þúsund krónur, en gæti orðið um 100 þúsund ef notendur væru ekki tölvuvæddir fyrir. „Til að byija með verða líklega 10 aðilar tengdir stjómstöðinni, sem verður hér á Akureyri, og verða þessir notendur staðsettir allt vest- an frá Hvammstanga og austur að Þórshöfn. Það má búast við að til að byija með verði það stærri frysti- hús sem tengjast okkur, og gefí jafnframt smærri fískkaupendum tækifæri til að fylgjast með og bjóða í afla, en eftir því sem fram líða stundir á þessum notendum eftir að fjölga mikið. Hins vegar á eftir Rabbað um landsins gagn o g nauðsynjar Sólin er dýrkuð af öldnum sem ungum. Þessir þrir Akureyring- ar af eldri kynslóðinni tóku sér sæti á einum bekknum við Ráðhústorgið í gær og spjölluðu saman um landsins gagn og nauðsynjar, eða var það kannski um veðrið og vinnuna? að ganga frá samkomulagi um það hvaða aðilar það verða sem fyrst tengjast stjómstöðinni og verður rætt við þá stærstu á Norðurlandi næstu daga,“ sagði Sigurður. Hann benti á að tölvukerfið sem sett yrði upp byði upp á ótal mögu- leika aðra en þann að láta afla ganga kaupum og sölum hér Norð- anlands. „Auðvitað ætti að vera hægt að tengja saman aðra lands- hluta, og svo er tæknin orðin það mikil að við getum tengst gagna- neti Pósts og síma og þá bjóðast okkur alveg stórkostlegir möguleik- ar á því að tengjast tölvukerfum erlendis, sem geta sent okkur upp- lýsingar um fískverð alls staðar í Evrópu. Þeir sem okkur væru tengdir sæju þá um leið hvemig ástandið væri bæði hér á landi og erlendis og gætu samstundis gert ráðstafanir í samræmi við það. Til að byija með verður þetta þó allt saman með einfaldasta sniði því það tekur nokkum tíma að setja kerfíð í gang og þangað til það fær sína endanlegu mynd, en ætlunin er að notfæra sér þessa möguleika eftir því sem hægt er. Þetta tölvu- kerfi verður því ekki bara upp- boðskerfi heldur mun það sjá notendum fyrir upplýsingum af ýmsu tagi.“ Uppboðið á fjarskiptamarkaðn- um verður með þeim hætti að gefnar verða upplýsingar um teg- und afla, aldur og stærð, og hversu lengi tilboðin megi standa, og sagði Sigurður að til dæmis yrði látið bjóða í aflann með tilliti til þess hvar honum yrði landað. „Það skipt- ir auðvitað vemlegu máli hvort aflinn er á leið til Sauðárkróks eða Húsavíkur því kaupandinn þarf að sækja hann, en hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að kaupandi bjóði í afla og tiltaki þá sjálfur lönd- unarstað. Á sama hátt ætti einnig að vera hægt að bjóða í afla sem kominn er á land og fyrri kaupandi sér ekki fram á að geta unnið, þá ætti að vera hægt að bjóða þann afla upp og selja hæstbjóðanda," sagði Sigurður. Á fjarskiptamarkaði sem þessum er mikilvægt að allar upplýsingar um afla séu réttar og verða sérstak- ir úrskurðaraðilar fengnir til að leysa úr vandamálum sem upp kunna að koma. „Við vonum bara að til slíks þurfí ekki að koma, seljendur gefí réttar upplýsingar; fj arskiptamarkaður verður ekki rekinn öðruvísi. Á gólf- Morgu nbl aðið/KJ S Sigurður P. Sigmundsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðar Norðurlands hf. mörkuðunum gegnir öðru máli; þar á enginn að þurfa að kaupa köttinn í sekknum. En fyrst minnst er á slíka markaði má geta þess að til er í dæminu að koma upp litlum gólf- markaði hér á Akureyri á næsta ári, en það mál á allt eftir að skýr- ast betur," sagði Sigurður. Sumartónleikar: Gítarleikur í þrem kirkjum GÍTARLEIKUR verður á dag- skránni í fjórðu sumartónleika- röðinni og er það Páll Eyjólfsson, gítarleikari, sem mun slá á „Iétta“ strengi. Páll er fæddur í Reykjavík árið 1958 og hóf hann tónlistamám sex árum seinna. Árið 1981 lauk hann einleikaraprófi frá Gítarskólanum, og var kennari hans Eyþór Þorláks- son. Páll hélt síðan til Spánar þar sem hann lagði stund á framhaldsnám í þijú ár og var leiðbeinandi hans þar Jose Luis Gonzalez. Síðan hefur hann sótt alþjóðleg námskeið, m.a. hjá John Williams, Benjamin Verd- ery og fleirum. Páll er nú starfandi sem gítar- kennari í Tónlistarskólanum í Reykjavík, Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Tónmennta- skóla Reykjavíkur. Sumartónleikamir verða, eins og að venju, í Akureyrarkirkju klukkan 17 á sunnudag, Húsavíkurkirkju klukkan 20.30 á mánudag og Reykjahlíðarkirkju klukkan 20.30 á þriðjudag. Á efnisskránni era m.a. verk eft- ir Mist Þorkelsdóttur, Eyþór Þor- láksson, Jönu Obrovsku og fleiri. Á milli verkanna mun Páll kynna þau hlustendum. Bræður synda yfir Eyjafjörð BRÆÐURNIR Armann og Sva- var Guðmundssynir, ætla sér annað og stærra hlutverk i dag en að Iiggja í leti því þeir hyggj- ast fá sér sundsprett yfir þveran Eyjafjörð. Þeir bræður, sem era 19 og 16 ára, ættu báðir að vera allsprækir sundmenn því báðir hafa þeir æft og keppt með sundfélaginu Óðni, og er annar þeirra, Svavar, ungl- ingalandsliðsmaður í sundi og á auk þess Qoldan allan af Akureyrarmet- um. Formaður Óðins, Gunnar Eiríks- son, sagði í samtali við Morgun- blaðið að þeir ætluðu sér að hefja sundið klukkan 10, þegar straumur væri hvað hagstæðastur, og synda frá Bátahúsinu neðan við Hallanda og koma upp í námunda við Torfu- nesbryggju. Sagði hann að nokkrir kappar hefðu áður orðið til að þreyta sund sem þetta, og sagði vegalengdina líklega vera um tvo kílómetra og bjóst við að þeir yrðu um 90 mínútur á leiðinni yfir fjörð- inn. Hraf nagilshreppur: íbúð óskast Óskum eftir 3-4ra herb. íbúð, raðhúsi eða einbýlis- húsi á Akureyri. Leigutími 1-2 ár. Upplýsingar í símum 96-27266 og 96-26255 á . daginn og í síma 96-27327 á kvöldin. Glerárgata30 600 Akureyri Island ® (9)6-26255 Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið Fæst í Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, í verslun- inni Jötu, Hátúni 2a, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Verð kr. 50.- Orð dagsins, Akureyri. Hitaveita lögð í íbúðahverfið Á NÆSTU dögum verður hafist handa við að leggja hitaveitu í íbúðahverfið við Hrafnagil. Að sögn Haralds Hannessonar, odd- vita Hrafnagilshrepps, er um þó nokkra framkvæmd að ræða fyr- ir hreppinn, þó svo að hitaveita hafi verið alla tíð í skólanum þar og félagsheimilinu. „Það era öll húsin, átta talsins, sem fá hitaveitu til sín og fáum við vatnið frá Hitaveitu Akureyrar en rekum okkar eigið dreifíngarkerfí," sagði Haraldur. Samningurinn við Hitaveitu Ak- ureyrar felur í sér að Hrafnagils- hreppur fær endurgjaldslaust það vatnsmagn sem talið er að hafí verið í Hrafnagilslaug áður en Hita- veita Akureyrar hófst handa um að bora og dæla vatni frammi í fírði á síðasta áratug. Það vatn sem á vantar til að sjá öllum fyrir nægi- legu magni er síðan keypt af Hitaveitu Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.