Morgunblaðið - 08.08.1987, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.08.1987, Blaðsíða 48
4ð MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA KNATTSPYRNA / 2. FLOKKUR KVENNA KR-vömin brást ekki á lokamínútunum KR íslandsmeistari í 2. flokki kvenna Á ÞRIÐJUDAGINN mœttust KR og Breiðablik f úrslitalelk um íslandsmeistaratitilinn f 2. flokki kvenna. Þessi lið höfðu sigrað í riðlunum: KR- ingar með nokkrum yflrburð- um f sfnum riðli en Breiðablik eftir mikla baráttu við ÍA og Tý úr Vestmannaeyjum. Breiðablik varð íslandsmeist- ari í fyrra og hafði fullan hug á því að halda titlinum í Kópavogi áfram. En KR-ingar byijuðu leik- inn af miklum krafti og virkuðu Breiðabliksstúlkumar frekar taugaóstyrkar í byijun. KR spilaði með goluna í bakið og fljótlega skoraði Jóna Kristjánsdóttir mark beint úr aukaspymu fyrir þær. KR-stelpumar vom mun sterkari í fyrri hálfleik og náði Breiðablik ekki að ógna marki þeirra að neinu ráði. Jafnari leikur í sfðari hálflelk Leikurinn jafnaðist í seinni hálf- leik og skiptust liðin á að sækja. Það vom nú samt KR-stelpumar sem bættu við forskot sitt með glæsilegu marki Hjördísar Guð- mundsdóttur snemma í hálfleikn- um. KR-liðið dró sig nú aftar á völlinn og hugðist halda fengnum hlut en nú fór sókn Blikanna að þyngjast. Átta mínútum fyrir leikslok skoraði síðan Sara Hall- dórsdóttir mjög gott mark fyrir Breiðablik með hörkuskoti úr víta- teignum. Mikið mæddi á KR- vöminni síðustu fimm mínútumar og sóttu Blikamir af miklum krafti. En vömin hjá KR-stelpun- um stóð sig mjög vel og KR varð því íslandsmeistari f 2. flokki kvenna árið 1987. Sara Haraldsdóttir: „Vorum of seinar í gang“ Manni finnst auðvitað aldrei sanngjamt að tapa, sérs- taklega miðað við öll tækifærin sem við fengum undir lok leiks- ins, sagði Sara Haraldsdóttir, sem skoraði eina mark Breiðabliks í leiknum. „En við getum sjálfum okkur um kennt því við vomm of seinar f gang. Það sem tekur nú við er að einbeita sér að 1. deildarkeppninni því flestar stelp- umar í liðinu em líka í meistara- flokknum." Þó svo að Breiðablik hafi tapað þessum leik er ekki hægt að segja annað en bjart sé framundan hjá liðinu. í liðinu em margar mjög góðar knattspymukonur sem munu láta að sér kveða í framtí- ðinni, bæði í 1. deildinni og landsliðinu ef að lfkum lætur. Hulda og Sara Haraldsdóttir Kristrún Heimisdóttir fyrirliði KR. og Heiða Erlingsdóttir Kristrun Heimisdóttir, fyrirliði KR: „Sigurinn var aldreií etta var mjög ánægjulegur endir á góðu tímabili," sagði Kristrún Heimisdóttir fyrirliði KR eftir sigurinn á Breiðabliki. „Sig- urinn hjá okkur var aldrei f hættu nema e.t.v. síðustu fimm mínú- tumar. Við unnum alla leikina í undankeppninni ömgglega, en þetta er sá leikur sem við þurftum að hafa mest fyrir að vinna. Þetta var nú ekkert sérstaklega vel spil- hættu“ aður leikur hjá okkur en það vill stundum verða með svona úrslita- leiki". Kristrún sagði að þær væm tvær sem væra í liðinu í meistara- flokki, en 2—3 í viðbót sem væm í hópnum. Það sem væri framund- an hjá sumum þeirra væri að hefja landsliðsæfíngar, en nú í haust ætti að velja í fyrsta skipti lands- liðshóp undir 16 ára aldri. 2. flokkur kvenna: KR-stúlkur íslands- meistarar Efri röð f.v.: Ama Steinsen þj., Ásta Jónsdóttir liðsstj., Tinna K. Snæ- land, Elfn Jóhannsdóttir, Þóranna Ólafsdóttir, Hjördís Guðmundsdótt- ir, Hugrún Símonardóttir, Guðrún Rfna Þorsteinsdóttir, Björk Sigur- geirsdóttir, Svanhvít Jónsdóttir, Heiða Erlingsdóttir, Gunnar Guð- mundsson fr. knspd. KR. Fremri röð f.v.: Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Sara Smart, Sigríður Fanney Páls- dóttir, Kristrún Heimisdóttir, Kristfn Loftsdóttir, Ásta Sóley Haraldsdótt- ir, Sigríður Snorradóttir, Guðlaug Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.