Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
LIU gaf Slysavarnaskola
sjómanna 12 flotbúninga
SLYSAVARNASKÓLA sjó-
manna var á mánudaginn gefið
12 flotbjörgunarbúningar til
notkunar um borð í kennsluskip-
inu Sæbjörgu. Það var Landsam-
band íslenskra útvegsmanna sem
gaf búningana í tilefni þess að
nýlega hófst dreifing slíkra bún-
INGA Jóna Þórðardóttir, við-
skiptafræðingur, var valin
formaður framkvæmdastjórnar
Sjálfstæðisflokksins á sameigin-
legum fundi þingflokks og
miðstjómar flokksins í gær.
Inga Jóna var framkvæmdastjóri
inga til skipshafna um land allt.
Landsamband íslenskra útvegs-
manna var fyrr á þessu ári falið
að sjá um kaup á flotbjörgunarbún-
ingum með það fyrir augum að
væða íslensk skip slíkum búningum.
Útboð var sent til allra sem fram-
leiða flotbjörgunarbúninga sem
fræðslu- og útbreiðslumála Sjálf-
stæðisflokksins 1980-83. Á árunum
1983-87 gegndi hún síðan stöðu
aðstoðarmanns menntamálaráð-
herra og síðar heilbrigðis- og
tryggingarmálaráðherra.
viðurkenndir eru hér á landi og í
því var gert ráð fyrir að Slysavama-
skóli sjómanna fengi 12 búninga
til notkunar um borð í Sæbjörgu.
Alls bárust 14 tilboð um samtals
19 búninga. Að sögn Gylfa Guð-
mundssonar framkvæmdastjóra
innkaupadeildar LIÚ voru tilboðin
könnuð með fulltrúum Slysavama-
félags íslands í samráði við sjómenn
og samtök yfirmanna sjómanna.
Lyktir urðu þær að ákveðið var að
taka tilboði Esbjergs Gummibád-
efabrik AS (Viking) í Esbjerg á
búningi þeirra Muskox 5002. I til-
boðinu fólst að LÍÚ myndi kaupa
allt að 5000 búninga, fyrst um sinn
3400 með möguleika á 1600 til við-
bótar innan ákveðins tíma. Sagði
Gylfi að alls yrðu keyptir um 4000
búningar fyrir samtals 60 milljónir
króna.
Afhending búninganna er þegar
hafin og hefur fyrstu 730 búningun-
um verið dreift til skipshafna.
Næstu 500 búningunum verður
dreift innan tíu daga og síðan 500
búningum á mánuði.
Sjálf stæðisflokkurinn:
Inga Jóna Þórðar-
dóttir formaður
framkvæmdastj órnar
VEÐURHORFUR í DAG, 8. 9. 87
YFIRLIT á hádegi I gær: Lægð er á leið austur fyrir sunnan land.
SPÁ: í dag verður hæg breytileg átt á landinu. Skýjað og sumstað-
ar þokuloft eða súld við ströndina. Hiti 10—13 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR: Austlæg átt og hiti svipaður og í gær. Skýjað
og víða rigning eða súld um sunnan- og austanvert landið en líklega
þurrt Norðvestanlands.
TÁKN:
Heiöskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
t * r * Slydda
/ * /
' * * *
*’ * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V
El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
j"7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hlti 14 10 veóur hálfskýjað úrk. f gr.
Bergen 10 skúr
Helsinki 11 rigning
Jan Mayen 7 skýjað
Kaupmannah. 14 skúr
Narssarssuaq 5 rfgning
Nuuk 5 úrkoma
Osló 16 skýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 11 skúr
Algarve 30 helðskfrt
Amsterdam 16 skýjað
Aþena 29 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Berlfn 20 skýjað
Chlcago 20 alskýjað
Feneyjar 25 skýjað
Frankfurt 18 skúr
Glasgow 16 skúr
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 25 rykmistur
London 17 skýjað
Los Angeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 16 rlgning og súld
Madrfd 30 heiðskfrt
Malaga 28 rykmlstur
Mallorca 28 léttskýjaö
Montreal 18 súld
NewYork vantar
Parfs 22 skýjað
Róm 28 léttskýjað
Vfn 23 skýjað
Washington 23 þokumóða
Winnipeg 10 léttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Höskuldur Einarsson og Þórir Gunnarsson leiðbeinendur í Slysa-
varnaskóla sjómanna brugðu sér í flotbjörgunarbúninga. Höskuldur
er lengst til vinstri. Við hlið hans stendur Ásgeir Þ. Oskarsson hjá
Gúmmíbátaþjónustunni, þá Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri,
Hannes Þ. Hafstein framkvæmdastjóri SVFÍ, Gylfi Guðmundsson
framkvæmdastjóri Innkaupadeildar LÍÚ, Haraldur Henrýsson for-
seti SVFÍ, Þorvaldur Axelsson deildarstjóri öryggisfræðslu SVFÍ og
Þórir Gunnarsson.
Haraldur Henrýsson forseti
Slysavamafélags íslands sagði, er
hann þakkaði fulltrúum LÍU gjöf-
ina, að það væri mikið fagnaðarefni
að slíkir búningar yrðu almennt
notaðir um borð í íslenskum skipum.
Hann minnti á mikilvægi þess að
fá búninga um borð í Sæbjörgu þar
sem sjómönnum yrði kennt hvemig
best væri að geyma þá og nota
þegar tilefni væri til. Haraldur not-
aði jafnframt tækifærið og þakkaði
Ásgeiri Þ. Óskarssyni hjá Gúmmí-
bátaþjónustunni fyrir neyðarflug-
elda og neyðarhandblys sem hann
gaf skólanum.
Fastgengisstefnan
fallin ef launin hækka
- segir Víglundur Þorsteinsson,
formaður FII
„ÉG TEL fastgengisstef nuna
fallna ef launahækkanir í októ-
ber verða um 8% og þá erum við
komin aftur í sama gamla víta-
hringinn," sagði Viglundur
Þorsteinsson, formaður Félags
íslenskra iðnrekenda og bætti því
við að hann teldi enn rétt að
halda fast við fastgengisstefn-
una.
Víglundur sagði að allt frá 1983
hefðu íslendingar verið að vinna
að því að komast út úr þeim víta-
hring sem mál voru komin í með
síendurteknu gengissigi og geng-
isfellingu. „Kaupmáttur hefur
aukist vemlega á þessu ári um-
fram það sem gert var ráð fyrir
við síðustu kjarasamninga og hann
verður ekki aukinn meira. Það er
því skoðun okkar hjá Félagi
íslenskra iðnrekenda að það sé
alls ekki sjálfgert að til þessarar
8% hækkunar komi. Launanefndir
eiga að meta þessa kaupmáttar-
aukningu og þegar hún reynist
nú jafnvel meiri en samningar
gerðu ráð fyrir þá er ekki forsenda
fyrir hækkun umfram lögboðin
1,5%.“
Víglundur sagði að ef til þessar-
ar hækkunar kæmi í október væri
stutt í að verðbólgan yrði 40% á
ári og enginn gæti séð fyrir hvem-
ig síðar færi. „Það er því engin
kjarabót fyrir launþega að fá þessa
hækkun. Fólk ætti fremur að gera
sér grein fyrir að frá 1985 hefur
kaupmáttur aukist um 30%. Með
skynsemi og ró er hægt að hada
fastgengi, en verði þessar hækk-
anir þá höfum við glatað öllu sem
við höfum unnið undanfarin ár.“
Doktorsritgerð
um störf Alþingis
ÞORSTEINN Magnússon varði i
síðasta mánuði doktorsritgerð i
stjóramálafræði við University
of Exeter á Englandi. Viðfangs-
efni ritgerðarinnar, sem nefnist
„The Icelandic Althing and its
Standing Committees“ (Alþingi
og fastanefndir þess) er framlag
fastanefnda Alþingis til löggjaf-
arstarfsemi þingins.
í ritgerðinni, sem er um 700 bls.
að legnd, er fjallað um það að hvaða
leyti fastanefndir Alþingis styrkja
löggjafarhlutverk þingsins. Það er
m.a. rannsakað í ljósi starfsemi
þinga og þingnefnda í öðrum vest-
rænum lýðræðisrílq'um. Þá er í
ritgerðinni fjallað almennt um
tengsl Alþingis við aðrar pólitískar
stofnanir og aðila í íslenska stjóm-
kerfinu.
Ritgerð Þorsteins er umfangs-
mesta rannsókn á löggjafarstarfi
Alþingis síðan Réttarsaga Einars
Amórssonar og ritgerð Bjama
Benediktssonar, „Deildir Alþingis",
komu út fyrir um fjörutíu árum.
Þorsteinn Magnússon er fæddur
í Reykjavík árið 1952, sonur Magn-
úsar Þorsteinssonar læknis og konu
hans Guðrúnar Salóme Guðmunds-
Dr. Þorsteinn Magnússon
dóttur. Hann lauk BA-prófi í stjórn-
málafræði frá Háskóla ísFands árið
1978, starfaði sem blaðamaður um
nokkurt skeið og var aðstoðarmað-
ur menntamála og samgönguráð-
herra 1979. Hann er kvæntur Helgu
Gunnarsdóttur M.Phil. -