Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 16

Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987 "11 Þau eru snögg og örugg handtökin hjá Þorsteini Sigurjónssyni, fjall- kóngi. Litið yfir Hrútatungurétt. Líf og fjör í fyrstu réttum haustsins ÞAÐ VAR mikið um að vera í Hrútatungurétt i Húnavatnssýslu núna á sunnudaginn, þar sem fjöldi manns var samankominn til að sjá fé og fólk í fyrstu rétt- um haustsins. Menn létu það ekkert á sig fá þó að veðrið væri kannski ekki upp á sitt besta - þoka og öriítill suddi öðru hvoru - og skemmtu sér hið besta við að draga í dilka og spjalla við náungann yfir kaffibolla eða ein- hveiju öðru. Það var líka þoka uppi á Tvídægru á laugardaginn, og hún tafði fyrir leitarmönnum þannig að þeir komust ekki af stað úr gangna- kofum fyrr en um hádegi, eða um 6 tímum seinna en venjulega. Við Morgunblaðsmenn ætluðum að sitja fyrir þeim uppi við Fosssel, þar sem hópur fólks var samankominn til að sjá fjársafnið rekið gegnum hlið- ið á heiðagirðingunni. Um kl. 6 létti aðeins til, og menn sáu til gangna- manna, en það var aftur skollinn á svartaþoka áður en hópurinn kom að hliðinu. „Þetta er landsfrægur andskoti, þessi Hrútafjarðarþoka“ sagði bóndi utan af Vatnsnesi, sem kominn var til að „sjá hvítagullið renna", en varð ekki að ósk sinni í þetta skiptið, því það var varla að menn gátu grillt í ystu endana á augnhárunum á sér. Þó að skyggnið hefði verið í lág- marki á heiðinni, komu samt allir leitarmenn aftur, en það mátti þó ekki tæpara standa að koma fénu til byggða. Það var rétt á mörkun- um að það væri ennþá sauðljóst OL 0 5 Nú gefst þér kostur á að upplifa Indland. Indland er lífsreynsla. Þú gætir orðið yfir þig hrifinn - sem þú vafalaust verður - eða borin(n) ofurliði af yfirþyrmandi fjölbreytileika landsins. Hvað sem verður, átt þú aldrei eftir að gleyma Indlandi. Því að Indland getur heillað þig með fegurð, töfrað þig með gestrisni, eða ruglað þig með andstæðum. En framar öllu — Indland umvefur þig duiúð sinni! ÍNDLHND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.