Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
17
þegar vestari hópurinn kom í lögre-
glufylgd eftir þjóðveginum og inn
í rétt; en þeir sem höfðu smalað
| eystri hluta heiðarinnar lentu í
myrkri, og komu sínu fé ekki inn
fyrr en rétt um miðnættið.
Á sunnudaginn voru menn svo
komnir á stjá fyrir allar aldir að
draga í dilka, og blaðamanni taldist
til að það væru yfir 300 manns á
öllum aldri við réttina. Allir sem
vettlingi gátu valdið hjálpuðu til við
að draga, sumir varla mikið hærri
í loftinu en vænstu dilkar. Þær
Kristín frá Reykjum, 9 ára, og Lau-
fey frá Tannstaðabakka, 7 ára,
sögðu að það væri enginn vandi að
þekkja hvaðan lömbin væru: „mað-
ur skoðar bara hvað stendur á
eymalokkunum". Þó að atgangur-
inn við dilkadráttinn líktist stundum
ródeói í villta vestrinu, sögðu þær
að það væri ekkert erfitt að eiga
við íömbin, nema kannski Miðflarð-
arlömbin, sem væru auðþekkt á
óþægðinni. Hún Svava frá Hvamm-
stanga er aðeins 5 ára gömul, og
því full ung til að draga sjálf, en
hún hjálpaði mömmu sinni með því
að ýta á rassinn á Reykjarollunum.
Þau allrayngstu fengu síðan að fara
á „hestbak" á kindunum.
Sverrir Bjömsson, réttarstjóri,
giskaði á að það væm 5-6.000 fjár
í réttinni, og menn vom sammála
um að það hefði smalast furðanlega
vel miðað við allar aðstæður. Þó
væri of snemmt að segja til um
hvemig heimtur hefðu verið fyrr
en menn hefðu farið í eftirleitir og
talið allt saman.
Mönnum sýndust dilkarnir vera
í vænu meðallagi, en það getur
verið lítið á því að græða, því nýjar
kjötmatsreglur gera ráð fýrir allt
að 25% verðfellingu fyrir fitumikið
kjöt. „Þeir em allt of feitir," sagði
Þorsteinn Siguijónsson, fjallkóng-
ur, og hló, „þeir fara allir í núll-
flokk." Margir vom óhressir með
nýja kjötmatið, og einn bóndinn
sagði: „Árgæskan hjá landbúnaðin-
um hefur aldrei verið önnur eins,
en harðindin af mannavöldum hafa
heldur aldrei verið meiri.“
Um tíuleytið um morguninn var
kominn smásuddi, og menn tóku
sér hlé frá sauðfénu, og fóm inn i
bragga. Þar var boðið upp á kaffi
og meðþví, og sumir fengu sér að-
eins út í það, eins og gengur og
gerist í réttum. Við hittum þar fyr-
ir Bjöm Jónsson úr Reykjavík, sem
stjómaði miklum og góðum söng.
Bjöm sagðist hafa flust burt úr
Hrútafirðinum fyrir 44 ámm, en
hann hefði komið í réttir á nær
hveiju ári síðan. „Réttimar em
ómissandi," sagði hann, „og svo er
ég mikið fyrir að syngja, og menn
taka gjaman lagið í réttum." Menn
sungu „Hvað er svo glatt" og „Nú
er hlátur nývakinn", og vom rétt
að ljúka við síðasta erindið í „Fram
í heiðanna ró“ þegar við Morgun-
blaðsmenn kvöddum: „Þar er vistin
mér góð; aldrei heyrist þar hljóð;
þar er hiiiiiminninn heiður og blár.“
Himinninn var langt frá því að
vera heiður og blár þegar við rennd-
um úr hlaði; Hrútafjarðarþokan,
þessi „landsfrægi andskoti", huldi
sól og hlíðar, og var enn þéttari en
fyrri daginn, ef eitthvað var. En
menn létu þoku og kjötmatsreglur
ekki spilla gleði sinni í fýrstu réttum
haustsins. Þó að veðurguðir og bún-
aðarmálayfirvöld séu máttugar
höfuðskepnur, þá tekst þeim víst
seint að eyðileggja íslenska réttar-
stemningu. Hö
ÁRGERDIRNAR FRÁ
MITSUBISHI ERU KOMNAR
I bílunum frá MITSUBISHI þarf ekki að hafa áhyggjur af
„aukabúnaði". — Hann fylgir með í verðinu.
Hjá okkur fá allir bíl við sitt hæfi.
Það borgar sig að biða eftir bfl frá MlTSUBISHl
Laugavegi 170-172 Simi 695500
M. r ! a ífl á ol.
Nepal er sjálfstætt konungsríki undir stjórn Prithvi Narayan
shah hins mikla og er í hjarta Asíu.
Staðsett í hlíðum Himalayaijalla, býður það upp á
fjöldan allan af fallegum vötnum,
fjöllum, fossum, hofum, fornri menningu og grænum dölum.
Fararstjórn er í höndum
Sigurðar A. Magnússonar
rithöfundar sem
skrifaði m.a. bókina, Við elda
Indlands. 3 vikna ferð og brottför
6. febrúar.
íf
Ferdaskrifstofan
arandi
Vesturgotu 5. Reykjavik simi 622420