Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
ICELAND1986 komin út á vegum Seðlabankans:
Alhliða upp-
lýsingarit um
land og þjóð
ÚT ER komin á vegum Seðlabanka íslands ný bók um ísland á
ensku, ICELAND 1986, sem er alhliða lýsing á landi og þjóð í
nútið og fortíð. Bókin skiptist í 11 kafla um ýmis málefni sem
varða jarðfræði, sögu, efnahagsmál, listir og bókmenntir. Þá eru
í bókinni 95 litljósmyndir og litprentuð kort, bæði hagræn og
söguleg. Greinar í bókinni eru eftir 48 höfunda og eru fimm
þeirra látnir, þeir Finnur Guðmundsson fuglafræðingur, Henrik
Sv. Björnsson sendiherra, Sigurður Nordal prófessor, Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur og Þorkell Jóhannesson prófessor.
Bókin ICELAND 1986 er aukin
og endurgerð útgáfa bókar sem
kom fyrst út fyrir 60 árum, er
Landsbanki íslands gaf út ICE-
LAND 1926 í tilefni af 40 ára
afmæli bankans og í kynningar-
skyni fyrir land og þjóð. Sú útgáfa
var endurprentuð lítið breytt í til-
efni Alþingishátíðar 1930 og enn
aftur árið 1936. Tíu árum síðar
kom út ný útgáfa með sama sniði
en stærri en áður. Seðlabanki fs-
lands tók síðan þetta verkefni að
sér með útgáfu ICELAND 1966
og árið 1974 birtist enn ný útgáfa
í tilefni af 1100 ára afmæli íslands-
byggðar.
Ritstjórar ICELAND 1986 eru
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
og Valdemar Kristinsson hagfræð-
ingur. í samtali við Morgunblaðið
sagði Jóhannes Nordal að reynt
væri að gefa þessa bók út á 10
ára fresti en auk þess hefði út-
gáfan borið upp á 25 ára afmæli
Seðlabankans á síðasta ári.
Jóhannes sagði að bókinni væri
ætlað að vera mjög alhliða upplýs-
ingarit um ísland, um náttúru
landsins, menningu og sögu og og
sérstök áhersla væri Iögð á ísland
nútímans og daglega lífíð. Jóhann-
es sagði að bókinni væri einnig
ætlað að vera gott og traust heim-
ildarrit fyrir þá sem vilja fá meiri
upplýsingar um ísland en hægt er
að fá í öðrum upplýsingaritum.
Jóhannes sagði að í þessa bók hefði
auk þess verið bætt mun meira
myndefni en áður hefði verið auk
sérstakra korta og skýringar-
mynda.
ICELAND 1986 er 428 + XIV
blaðsíður að stærð en auk þess eru
ljósmyndir og kort á 96 síðum.
Bókin skiptist í 11 meginkafla. í
þeim fyrsta, sem fjallar um landið
og þjóðina, eru greinar eftir eftir-
talda höfunda: Sigurð Þórarinsson
jarðfræðing, Ingvar Hallgrímsson
haffræðing, Þór Guðjónsson fyrr-
um veiðimálastjóra, Finn Guð-
mundsson fuglafræðing, Eyþór
Einarsson grasafræðing og Guðna
Baldursson tölfræðing. I öðrum
kaflanum sem fjallar um sögu og
menningararf eru greinar eftir
Þorkel Jóhannesson prófessor,
Hrein Benediktsson prófessor, Sig-
urð Nordal prófessor, Jónas Kristj-
ánsson forstöðumann Ámastofn-
unar, og Hörð Ágústsson
listfræðing.
Þriðji kaflinn fjallar um stjóm
og stjórnsýslu og eru þar greinar
eftir Þór Vilhjálmsson hæstarétt-
ardómara, Magnús E. Guðjónsson
framkvæmdastjóra og Sigurð
Líndal prófessor. Fjórði kaflinn
fjallar um samskipti við aðrar þjóð-
ir og eru þar greinar eftir Henrik
Sv. Bjömsson sendiherra og Hans
G. Andersen sendiherra.
Fimmti kaflinn fjallar um at-
vinnulíf og orkumál og eru þar
greinar eftir Þráinn Eggertsson
prófessor, Guðmund Sigþórsson
ráðuneytisstjóra Jónas Blöndal
skrifstofustjóra, Ólaf Davíðsson
forstjóra, Hjört Hjartar fram-
kvæmdastjóra, Garðar Ingvarsson
HANDQOOK PU8HSHE0 -8Y THE
C8NTKAL 8ANK OF ICEUN0
hagfræðing, Jóhann Má Maríusson
aðstoðarforstjóra, Sveinbjöm
Bjömsson prófessor, Klemens
Tryggvason fyrrum Hagstofu-
stjóra og Valdemar Kristjánsson
ritstjóra.
Sjötti kaflinn fjallar um efna-
hagsstefnu og fjármálalíf og eru
þar greinar eftir Jóhannes Nordal
seðlabankastjóra, Hallgrím
Snorrason Hagstofustjóra, Gunnar
H. Hall skrifstofustjóra, Magnús
Pétursson hagsýslustjóra og Eirík
Guðnason efnahagsráðgjafa.
Sjöundi kaflinn er um utanríkis-
viðskipti og greiðslustöðu og eru
þar greinar eftir Ólaf Tómasson
deildarstjóra og Þórhall Ásgeirsson
ráðuneytisstjóra. Áttundi kaflinn
er um félagsmál og skrifa þar
greinar Þráinn Eggertsson pró-
fessor, Guðrjón Hansen trygginga-
fræðingur, Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri og Hallgrímur
Snorrason Hagstofustjóri.
Níundi kaflinn er um trúarbrögð
og menntun og eru þar greinar
eftir Þóri Kr. Þórðarson prófessor,
Braga Jósepsson aðstoðarprófess-
or og Halldór Guðjónsson kennslu-
stjóra. Tíundi kaflinn fjallar um
vísindi og listir og eru þar greinar
eftir Svein Skorra Höskuldsson
prófessor, Aðalstein Ingólfsson
listfræðing, Jón Þorarinsson tón-
skáld, Svein Einarsson leikhús-
fræðing, Erlend Sveinsson
kvikmyndagerðarmann, Áma Þór-
arinsson ritstjóra, Þór Magnússon
þjóðminjavörð og Vilhjálm
Lúðvíksson forstjóra. Að lokum er
kafli um tómstundir og eru þar
greinar eftir Sigurð A. Magnússon
rithöfund og Alan Boucher pró-
fessor.
Ljósmyndimar í bókinni eru
flestar teknar af Páli Stefánssyni
en einnig eiga myndir Sigurgeir
Jónasson, Eyþór Einarsson og Jó-
hanna Ólafsdóttir.
Upplag bókarinnar er 4000 ein-
tök og hefur Seðlabankinn falið
Iceland Rewiew dreifíngu bókar-
innar erlendis og í bókabúðir
hérlendis. ICELAND 1986 kostar
2.500 krónur út úr búð.
Morgunblaðið/Bj arni
Konur frá öllum Noröurlöndunum ætla aö hittast í Osló á næsta ári og halda þar Norræna kvennaráð-
stefnu. Hér sést hópurínn sem vinnur að undirbúningi ráðstefnunnar.
Um 7000 konur hitt-
ast á Norrænu kvenna-
þingi á næsta ári
NORRÆNT kvennaþing verður
haldið í Osló fyrstu viku ágúst-
mánaðar á næsta árí og er búist
við að um 7000 konur frá öllum
Norðurlöndunum safnist þar
saman. Hugmyndin að þingi
þessu kviknaði eftir þær ráð-
stefnur sem haldnar voru
samhliða kvennaráðstefnum
Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó-
borg, Kaupmannahöfn og Na-
irobi. Allar konur eru velkomnar
á þingið, sem er haldið á vegum
Norðurlandaráðs.
Á fundi sem undirbúningshópur
ráðstefnunnar hélt með blaðamönn-
um kom fram að þrátt fyrir að víða
um lönd væri litið svo á að jafn-
rétti væri í raun á Norðurlöndum
þá vantaði enn mikið á að svo væri.
Því hefðu konur í þessum löndum
ákveðið að hittast til að ræða sín
mál. „Á þessu þingi verður fjallað
um allt það sem snertir líf kvenna,“
sagði Grete Knudsen, formaður
undirbúningshópsins. „Við viljum
sýna veruleikann á bak við alla
umræðuna um jafnrétti á Norðurl-
öndum. Konur hafa lægri laun en
karlar og vinna verri störf. Fáar
konur eru í stjórnunarstörfum og
mér er til dæmis tjáð að á íslandi,
þar sem margir telja jafnrétti
ríkjandi, sé aðeins ein kona í ríkis-
stjórn. Hins vegar hefur vissulega
margt áunnist á Norðurlöndum og
við getum vísað veginn fram á við.“
Jytte Lindgárd, framkvæmda-
stjóri ráðstefnunnar, sagði að
dagskrá Norrænu kvennaráðstefn-
unnar yrði fjölbreytt. „Það verða
umræður, sýningar og uppákomur
af ýmsu tagi, en alls verða dag-
skráratriði um 800. Ráðstefnan
sjálf verður í háskólanum á Blind-
ern í Osló, en við munum í raun
leggja alla borgina undir okkur þá
daga sem ráðstefnan stendur.“
Það kom einnig fram á fundinum
að öllum konum er heimilt að koma
á Norræna kvennaþingið og verður
reynt að hafa ferðir til Osló ódýrar
og stilla dvalarkostnaði í hóf. Sú
hugmynd hefur komið upp að íslen-
skar og færeyskar konur fari með
Norröna. Hér á landi eru ýmis sam-
tök kvenna sem þátt taka í undir-
búningnum. Þær konur, sem áhuga
hafa á þátttöku, geta snúið sér til
Jafnréttisráðs, eða haft samband
við Guðrúnu Ágústsdóttur hjá
Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna eða Amdísi Steinþórsdóttur
hjá Kvenréttindafélagi íslands.
Fulltrúar frá kínversku ríkisferðaskrífstofunni, Kinversk islenska menningarfélaginu og Ferðaskkrif-
stofunni Sögu á fundi með fréttamönnum, þar sem Kinaferðirnar voru kynntar.
Ferðaskrifstofan Saga og KÍM:
Sólarferð til Kína
KÍNVERJAR eru nú að opna
baðstrendur á eyjunni Hainan,
þar sem byggð hefur verið upp
fyrsta flokks aðstaða fyrirferða-
menn og fer fyrsti hópur íslend-
inga þangað um miðjan október
á vegum Ferðaskrifstofunnar
Sögu og Kínversk-islenska menn-
ingarfélagsins. Dvalið verður á
Hainan i viku auk þess sem skoð-
aðar verða sögufrægar borgir í
Kínaveldi og siglt niður Yangtze
fljót.
Tveir fulltrúar kínversku ríkis-
ferðaskrifstofunnar Luxingshe hafa
dvalið hér á landi að undanförnu á
vegum Ferðaskrifstofunnar Sögu
og KÍM til að kynna nýjungar í
ferðamálum í Kína og ræða sam-
vinnu þessara aðila. Á undanförh-
um tíu árum hefur KÍM efnt til
nokkurra almennra ferða til
Kínverska alþýðulýðveldisins og
síðastliðinn vetur tókst samvinna
með félaginu og Ferðaskrifstofunni
Sögu um Kínaferðir. Er stefnt að
því að bjóða fjölbreytt úrval ferða
þangað, svo sem viðskiptaferðir,
fræðsluferðir skemmtiferðir og
hvíldardvalir.
Kínaferðin nú í haust hefst 16.
október nk. og verður flogið til
Beijing um London. Fyrstu íjóra
dagana verður dvalið í Beijing en
þaðan flogið til hinnar fomfrægu
borgar Xi’an þar sem silkileiðin
hófst á miðöldum og nýlega hafa
þar verið grafnir miklir leirherir úr
jörðu. Dvalið verður tvo daga í borg-
inni og því næst flogið til Chonqing,
þar sem dvalið verður í fjóra daga
og fom Búddahof og náttúrufegurð
við Yangtze fljótið skoðuð. Þá verð-
ur haldið með ferju niður Yangtze
fljót áleiðis til Wuhan en ferð þessi
er eitt að því eftirsóknarverðasta í
Kínaferðum og komast færri að en
vilja. Á ferjunni verður dvalið í þrjá
daga og tvær nætur.
Frá Wuhan verður flogið til Gu-
angzhou og síðan, hinn 1. nóvem-
ber, verður farið lil eyjunnar
Hainan, sem er á svipaðri breidd-
argráðu og Hawaii-eyjar þar sem
eilíft sumar ríkir. Þar verður dvalið
í fímm daga og að því loknu verður
flogið aftur til Guangzhou og dval-
ið þar næsta dag. Síðan verður farið
með lest til Hongkong og dvalið þar
í tvo daga. 9. nóvember verður svo
flogið til íslands um Londcm og
komið heim 10. nóvember. Áætlað
verð á ferðinni miðað við lágmark
25 þáttakendur er um 145 þúsund
krónur. Fullt fæði er innifalið með-
an dvalið er í Kína. íslenskir
fararstjórar verða tveir og þar af
annar mæltur á kínversku.