Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
Bjartsýnisverðlaun Bröstes afhent
Kaupmannahðfn. Frá Guðrúnu Ásgeirs-
dóttur fréttaritari Morgunblaðsins i
Danmörku.
Bjartsýnisverðlaun Bröstes
voru afhent á laugardag við há-
tiðlega athöfn í Ráðhúsinu í
Lyngby. Vegna flutnings fyrir-
tækisins úr Bröstes-gaarden á
Kristjánshöfn, Christianshavn,
til Lyngby fór afhendingin fram
svo seint á sumri og á nýjum stað.
Er þetta i 7. sinn sem verðlaunin
til bjartsýnna íslenskra lista-
manna eru afhent og hlaut þau
nú Guðmundur Emilsson hljóm-
sveitarstjóri og stofnandi fs-
lensku hljómsveitarinnar.
Athöfnin fór fram í bæjarráðs-
salnum í ráðhúsinu og blöktu fánar
íslands og Danmerkur við hún úti-
fyrir en inni var blómum raðað
saman í íslensku fánalitunum. Ráð-
húsið í Lyngby var byggt 1941 og
stendur í hjarta bæjarins og er klætt
grænlenskum marmara að utan.
Bæjarráðssalinn prýðir tréútskurð-
ur um sögu þorpsins sem bærinn
er vaxinn úr og stórt málverk eftir
prófessor Stig Brögger sem var list-
ráðunautur bæjarstjómar um langt
skeið. Gamla þorpskjamann má enn
fínna og þótt húsin séu endurbyggð
að innan halda þau fyrra útliti sínu.
Fyrstur talaði Peter Bröste for-
stjóri Bröste hf. Lýsti hann flutn-
ingnum frá Kristjánshöfn, staðar
sem hann kvað starfsmenn sakna,
en hér í Lyngby væri líka gott að
vera. Þakkaði forstjórinn borgar-
stjóra Lungby-Taarbæk fyrir að
vilja vera aðalræðumaður þessarar
hátíðarstundar og fyrir lánið á ráð-
húsinu en borgarstjórinn skildi vel
allar aðstæður enda væri hann fé-
lagi í söngkór sem kallaði sig
„Bjartsýnismennina".
Borgarstjórinn í Lyngby-
Frá afhendingunni, talið frá vinstri: Peter Bröste, Guðmundur Emilsson og eiginkona hans Valgerður
Jónsdóttir og Kai Aage Örnskov með ávísunina á milli sín.
Taarbæk, Kai Aage Ömskov, bauð
verðlaunahafann, Bröste-fyrirtækið
og gesti velkomna. Kvað hann
Bröste ganga á undan með góðu
fordæmi í viðleitninni að styrkja
unga listamenn og hvetja til dáða.
Borgarstjórinn taldi upp nefndar-
menn úthlutunamefndarinnar, þá
Gunnar Friðriksson, dr. Gylfa Þ.
Gíslason og Áma Kristjánsson og
fagnaði því að forseti Islands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, skuli vera
vemdari verðlaunanna. Þá las hann
upp nöfn þeirra sem fengið hafa
bjartsýnisverðlaunin frá upphafí,
1981, en þeir em Garðar Cortes,
Bragi Ásgeirsson, Þorgerður Ing-
ólfsdóttir, Helgi Tómasson, Ágúst
Guðmundsson og Kjartan Ragnars-
son. Þá lýsti Ömskov borgarstjóri
ferli Guðmundar Emilssonar. Hann
stundaði nám við University of
Rochester og lauk meistaraprófí í
hljómsveitar- og kórstjóm við Uni-
versity of Indiana og mun ljúka
doktorsprófí í tónlist þar. En bjart-
er kosturinn
KAYS
áii.\IAC
Ýfir 1000 síður.
Nýja vetrartískan á alla
fjölskylduna.
Búsáhöld - leikföng -
sælgæti - jólavörur -
o.fl. - o.fl.
Verðpr. lista erkr. 190.-
sem er líka innborgun
v/fyrstu pöntun.
(Kr. 313.- í póstkröfu.).
Utsalan í
fullum gangi.
(&IS.\1VG\lSSO\
HÓLSHRAUNI 2-SIMI 52866-PÓSTHÓLf= 410 HAFNARFlRDI
sýnisviðhorfið lýsir sér best í
stofnun íslensku hljómsveitarinnar
sem hefur gefíð Qölda ungra lista-
manna hið mikilvæga tækifæri til
að fá að spreyta sig. Fyrstu hljóm-
leikar hennar vom haldnir í október
1982 og hefur hljómsveitin farið í
hljómleikaferð til Svíþjóðar og hlot-
ið prýðilegar móttökur þar.
Afhenti borgarstjórinn Guð-
mundi Emilssyni verðlaunin, 30
þúsund danskar krónur, í geysi-
stórri ávísun og fögnuðu viðstaddir
ákaft. Guðmundur tók síðan til
máls og sagðist hugsa á þessari
stundu til dönskukennara síns sem
um leið var eftirlætiskennarinn og
lærður í Danmörku. Bjartsýnin
gæti komið mönnum í erfiðustu
aðstæður. Þakkaði listamaðurinn
Bröste, forseta íslands og úthlutun-
amefnd svo og fjölskyldu, vinum
og samstarfsmönnum á íslandi.
Nefndi hann sérstaklega meðstjóm-
armenn sína í fslensku hljómsveit-
inni, Ásgeir Sigurgestsson, Sigurð
I. Snorrason og dr. Þorstein Hann-
esson. Þá færði hann einnig Atla
Heimi Sveinssyni sérstakar þakkir
fyrir verk hans sem hér var fmm-
flutt.
Peter Bröste forstjóri minntist
vináttu og gestrisni margra á ís-
landi. Það þarf meiri bjartsýni að
búa þar en t.d. hér í Danmörku.
Þá flutti Gunnar Friðriksson for-
maður úthlutunamefndar ávarp og
talaði um verðlaunin frá upphafí
og bað Guðmund Emilsson vel að
njóta.
Félagar úr íslensku hljómsveit-
inni léku nú verk Atla Heimis sem
hann hafði samið fyrir þetta tæki-
færi en á boðskorti er hann kynntur
sem íslenskur vinningshafi Nor-
rænu tónskáldaverðlaunanna. Anna
Guðný Guðmundsdóttir lék á píanó
og maður hennar, Sigurður E.
Snorrason, á klarinett. Em ungu
hjónin gott dæmi um unga tónlist-
armenn í íslensku hljómsveitinni og
hafa bæði verið með frá upphafi,
hún á skrifstofu og hann í stjóm.
Vom Önnu Guðnýju og Valgerði
Jónsdóttur eiginkonu Guðmundar
Emilssonar færðir blómvendir og
viðstöddum boðið til veitingasalar.
Verðlaunahafinn Guðmundur
Emilsson sagðist í viðtali vera mjög
þakklátur Peter Bröste og öllum
öðmm sem stæðu að verðlaunaaf-
hendingunni og liti hann á hana sem
mikinn heiður. „Trúlega átta sig
fáir á því“, sagði Guðmundur, „hve
slík viðurkenning er þýðingarmikii.
Ég fann strax að fólk staldraði við
og spurði um starf mitt af meiri
og einlægari áhuga en áður er frétt-
ist um val úthlutunamefndar
snemma í vor. Það vakti spum og
verð ég nú að svara. Ég hlýt að
fagna því að fá viðurkenningu að
utan en allra best hefði mér þótt
að sú upphefð hefði komið að heim-
an. Þar með er síst verið að
vanþakka hlut Bröste en íslensk
fyrirtæki mættu taka hina dönsku
kollega sína til fyrirmyndar. í fram-
haldi af því bendi ég á tugi mikil-
hæfra listamanna heima á íslandi
sem vinna sitt starf í kyrrþey og
ættu margfaldlega skilið verðlaun,
ekki síst frá löndum okkar. Ég tók
ungur ákvörðun um starfssvið mitt
og er langt frá takmarkinu enn.
Konan mín, Valgerður Jónsdóttir,
styður mig með ráðum og dáð og
hefur þurft að fara margs á mis
vegna aðstæðna allra. Hún er
„músík-terapisti" sem er lítt þekkt
starfsvið heima og mun hún opna
einkamóttöku í sinni grein í haust
í Reykjavík," sagði Guðmundur að
lokum.
Eru þeim hjónum færðar heilla-
óskir í von um frekari frama á
tónlistarbraut.
Ullariðnaður:
Gengisfelling leys-
ir engan vanda
- segir Víglundur Þorsteinsson, formaður FÍI
„Ullariðnaðurinn þarf tekju-
aukningu sem er varanlegri en
gengisfelling getur veitt honum,
enda er felling gengis bara eins
og morfinsprauta, áhrifin eru
ekki varanleg,“ sagði Víglundur
Þorsteinsson, formaður Félags
íslenskra iðnrekenda.
Rætt hefur verið um það undan-
farið að ullariðnaðurinn sé mjög illa
staddur vegna innlendra kostnaðar-
hækkana og eina ráðið til að bjarga
fyrirtækjum sé gengisfelling, allt
að 30%. „Gengisfelling leysir engan
vanda, heldur verðum við að vinna
að vörubróun og endurhönnun, sem
getur komið ullariðnaðinum aftur í
fyrri stöðu,“ sagði Víglundur. „Nú
eru fyrirtæki í ullariðnaði að vinna
að ýmsum athugunum og það kem-
ur í ljós á næstu dögum og vikum
hvemig til tekst. Gengislækkun
hefur hins vegar ekkert gott í för
með sér og hefur aldrei haft. Ég
hef alltaf átt erfítt með að skilja
hveijir gætu hagnast á því og von-
andi muna íslendingar enn hvemig
ástandið var þegar gengissig og
gengisfelling var daglegt brauð,“
sagði Víglundur Þorsteinsson,
formaður Félags íslenskra iðnrek-
enda.
Tarkett parket er mest selda parket á íslandi
JL HARÐVIÐARVAL HF.
HARÐVIÐARVAL
KROKHALSI 4, SIMI 671010.