Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
29. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna:
Ámi Sigfússon kjörinn
formaður sambandsins
ARNI Sigfússon var kjörínn
formaður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna á þingi sambands-
ins í Borgarnesi um helgina. í
atkvæðagreiðslu á þinginu fékk
Arni 170 atkvæði en mótfram-
bjóðandi hans, Sigurbjörn
Magnússon, fékk 145 atkvæði.
Alls kusu 318 af 334 sem höfðu
kosningarétt.
Mjög hörð kosningabarátta var
háð bæði fyrir þingið og á þinginu,
sem stóð frá föstudegi til sunnu-
dags og setti hún svip sinn á þingið
á ýmsan hátt. Þannig var þingið
það fjölmennasta sem haldið hefur
verið og greinilegt að margir sóttu
það aðeins vegna kosninganna.
Þrátt fyrir þetta var mikill fjöldi
ályktana afgreiddur á þinginu og
talsverðar umræður urðu um
skýrslu starfshóps undir stjóm
Gunnars Jóhanns Birgissonar, sem
gert hafði úttekt á störfum Sjálf-
stæðisflokksins með sérstöku tilliti
til starfsemi SUS. I starfshópnum
voru fyrir utan Gunnar, Elín Hirst,
Eva Georgsdóttir, Guðmundur
Magnússon, Jóhann Baldursson,
Hjörtur Nielsen, Kristján Jónsson,
Laufey Johannessen, Olafur Garð-
arsson, Steinn Logi Bjömsson og
Þóra Gunnarsdóttir. Auk þess
mættu á fundi Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, Halldóra Vífílsdótt-
ir, Kjartan Gunnarsson og Ólafur
Þ. Stephensen.
Fýrir þingið hafði verið dreift
bráðabirgðaskýrslu starfshópsins
sem bar nafnið „Við verðum víst
að skaffa fleiri róluvelli“, en á þing-
inu var lögð fram endanleg skýrsla
Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna í Hótel Borgarnesi.
sem bar yfirskriftina „Ungir sjálf-
stæðismenn og Sjálfstæðisflokkur-
inn“. Efni þessarar skýrslu hefur í
aðalatriðum verið rakið í Morgun-
blaðinu.
Ósammála um gildi
skýrslunnar
Þingfulltrúar vom ekki sammála
um gildi skýrslunnar eða hvort rétt
væri að ræða þessi mál á þessum
vettvangi. Ólafur Helgi Kjartansson
skattstjóri og bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á ísafirði talaði
m.a. gegn skýrslunni og í samtali
við Morgunblaðið sagðist hann telja
að öll gagnrýni varðandi ynnra starf
Sjálfstæðisflokksins ætti heima í
flokknum sjálfum en ekki á opin-
berum vettvangi.
Ólafur sagðist ekki hafa tekið
afstöðu til skýrslunnar sem slíkrar
heldur vakið athygli á að of mikið
hefði verið gert af því eftir síðustu
kosningar að ráðast á einstaka for-
ustumenn flokksins. Það gengi ekki
að sjálfstæðismenn væm þeir fyrstu
Morgunblaðið/Þorkell
sem snem baki við fomstumönnun-
um heldur yrði að standa að baki
þeim mönnum sem kosnir væm til
forustu. Menn gætu hinsvegar haft
sínar skoðanir og ættu að setja þær
fram en það ætti að gerast á flokks-
vettvangi.
Bein og skipuleg sam-
skipti við félögin
Að loknum umræðum um skýrsl-
una og almennum stjómmálaum-
Yfir 300 fulltrúar sóttu þing SUS.
Morgunblaðið/Theodór Þórðarson
ræðum héldu frambjóðendumir til
formannsembættisins ræður. Ami
Sigfússon lagði áherslu á það í sinni
ræðu að þrátt fyrir að málefnaleg
staða SUS væri góð væm tengsl
fomstu samtakanna við félögin
væri nægilega mikil. Hinsvegar
væri nú meiri gmndvöllur en oft
áður fyrir sjálfstæðisstefnunni hjá
ungu fólki og það afl sem byggi í
ungu fólki yrðu samtökin að virkja.
Ami sagði að félagar í SUS væm
að þrýsta á að stjómin vakni.
Ami sagði að koma þyrfti á bein-
um og skipulögðum samskiptum við
aðildarfélögin, en einnig þyrfti SUS
að breikka málefnagmndvöll sinn
og láta til sín taka mál eins og
dagvistunarmál og húsnæðismál
sem brynni á ungu fólki.
Ami sagði einnig í ræðu sinni
að fomsta SUS hefðu viðhaft ein-
kennileg vinnubrögð fyrir kosning-
amar sem miðuðu að því að minnka
sína möguleika til að ná kjöri.
SUS samviska
flokksins
Sigurbjöm Magnússon sagði í
sinni ræðu að SUS hefði á undan-
fömum ámm oft veitt ríkisstjómum
Sjálfstæðisflokksins gagnrýnið að-
hald og verið í hlutverki samvisku
flokksins. Hann sagðist leggja
áherslu á að SUS rækti þetta hlut-
verk sitt áfram og léti í ljós skoðanir
á störfum og stefnu núverandi ríkis-
stjórnar. SUS gerði þær kröfur til
þessarar ríkisstjómar að hún næði
árangri í efnahagsmálum. Fari
verðbólgan af stað væri allt starfíð
unnið fyrir gíg. Einnig væri þess
krafíst að engir nýir skattar verði
lagðir á og jafnvægi í ríkisbúskapn-
um yrði náð með samdrætti í
ríkisútgjöldum eins og ungir sjálf-
stæðismenn hefðu margoft bent á.
Og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
hafí fomstu um sölu ríkisfyrirtækja
og sett verði lög um einokun og
hringamyndun svo nokkuð væri
nefnt.
Sigurbjörn sagði að sala ríkis-
fyrirtækja væri í samræmi við
jákvæða byggðastefnu ungra sjálf-
stæðismanna en kjaminn í þeirri
stefnu væri öflugt atvinnulíf sem
fengi að blómgvast og byði ungu
og duglegu fólki upp á vellaunuð
störf.
Sambandsleysi við
kjósendur
í stjómmálaályktun sem þingið
samþykkti segir ma. að tap Sjálf-
stæðisflokksins í síðustu alþingis-
kosningum hafi að mestu leyti mátt
rekja til stofnunar Borgaraflokksins
og ljóst sé að orsakir uppgagns
Borgaraflokksins vom aðrar og
meiri en deilur um einstaklinga.
„Greinilegt er að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ekki það samband við
kjósendur sína og nauðsynlegt er.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að
ná upp sínum fyrri styrk og verða
sameiningartákn allra borgaralegra
afla þarf að verða grandvallarbreyt-
Kosningamar hristu
upp í sambandinu
- segir Sigurbjörn Magnússon, sem
beið lægri hlut 1 formannskjöru SUS
„VIÐ sjálfstæðismenn höfum
þennan hátt á þegar við kjósum
okkur foi-ustu og ég held að hér
hafi faríð fram heiðarlegt var
og við fengið góðan formann.
Ég lagði áherslu á að hvernig
sem færi gengjum við samstæðir
frá þessu þingi og ég hvatti
stuðningsmenn mína til að fylkja
sér um hinn nýkjörna formann,"
sagði Sigurbjörn Magnússon
framkvæmdastjóri við Morgun-
blaðið eftir að úrslit í formanns-
kjöri SUS lágu fyrir.
Sigurbjöm sagði að í kosninga-
baráttunni hefðu báðir frambjóð-
endur barist af hörku og til hins
ýtrasta en hann myndi beita sér
fyrir því að þær ífíngar og flokka-
drættir sem orðið hafa jafni sig.
Sigurbjrön vildi einnig koma á
framfæri þakklæti til sinna stuðn-
ingsmanna.
„Ég held að sambandið hafí haft
mjög gott af því að fara í gegnum
kosningar," sagði Sigurbjöm enn-
fremur. „Þetta hefur hrist upp' í
okkar kerfi, þar sem ekki hefur
verið kosið um formann í samband-
inu í 10 ár, og fært aukinn kraft í
öll félögin og ég er viss um að þetta
á eftir að verða sambandinu lyfti-
stöng.“
Sigurbjörn sagði að kosningarnar
hefðu settu mark á þingið og mál-
efnavinnan sjálfsagt borið þess
merki. Þó hefði verið ályktað í öllum
málaflokkum og góðar tillögur sam-
þykktar, þám. sérstök skilaboð til
ríkisstjórnarinnar og tillögu um
einkavæðingu. „Málefnin komust
því vel til skila og við þurfum ekki
að bera kvíðboga fyrir framtíðinni,"
sagði Sigurbjöm Magnússon.
Morgunblaðið/Theodór
Vilhjálmur Egilsson fráfarandi formaður SUS óskar Árna Sigfús-
syni til hamingju með sigurínn í formannskjörinu.