Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
Pólland:
Tveir Danir dæmdir
fyrir njósnastarfsemi
Varsjá, Reuter.
PÓLSKUR herdómstóll hefur
dæmt tvo Dani í níu og sjö ára
fangelsi fyrir njósnir. Danska
sendiráðið í Varsjá greindi frá
dómunum sl. laugardag.
Jens Ellekjær, 36 ára gamall
kaupsýslumaður, og Niels Hemm-
ingsen, 23 ára gamall námsmaður,
voru dæmdir í borginni Koszalin
og fékk Ellelq'ær þyngri dóminn.
Fulltrúar danska sendiráðsins
fengu ekki að fylgjast með réttar-
höldunum en voru þó kvaddir til
þegar dómurinn var kveðinn upp.
Að sögn pólsku fréttastofunnar
PAP báru tíu manns vitni gegn
Dönunum, sem hefðu játað á sig
allar sakargiftimar. Pólsk yfirvöld
segja, að Danimir, sem komu með
feiju frá Kaupmannahöfn 18. apríl
sl., hefðu tekið ljósmyndir af hem-
aðarmannvirkjum og haft í fómm
sfnum uppdrætti eða kort með stað-
setningu annarra bækistöðva
pólska hersins á Eystrasaltsströnd-
inni.
Ekki er enn ljóst hvaða áhrif
þetta mál hefur á samskipti Dana
og Pólveija en þau hafa verið frem-
ur stirð síðan upp komst í fyrra,
að danska sendiráðið í Varsjá mor-
■ ■■
ERLENT,
aði í hlustunartækjum. Poul Schlut- þessum mánuði en þeirri för var
er, forsætisráðherra Danmerkur, frestað vegna þingkosninganna í
haífði ráðgert að fara til Póllands í Danmörku, sem fram fara í dag.
IRA talinn undirbúa
nýja öldu hryðjuverka
Þrír grunaðir hryðjuverkamenn ákærðir
St. Andrew’s, frá Guðmundi Heiðari Frímannsayni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞREMENNINGARNIR, sem lög-
regla handtók fyrir rúmri viku
á landareign Toms King, Norð-
ur-íralandsmálaráðherra bresku
stjórnarinnar, voru ákærðir nú
um helgina fyrir að undirbúa
morð á ráðherranum. Lögreglan
telur að IRA, írski lýðveldis-
herinn, hafi verið að undirbúa
sprengjuherferð í Bretlandi og á
ársþingi breska íhaldsflokksins
, sem haldið verður i næsta mán-
uði í Blackpool.
Þremenningamir sem nú hafa
verið ákærðir, eru taldir vera með-
limir í írska lýðveldishemum. Hafi
þeir verið að undirbúa tilræði við
Tom King með því að athuga þær
öryggisráðstafanir sem viðhafðar
era við heimili hans. Þeir vora hand-
teknir fyrir rúmri viku og vora í
haldi í sjö daga samkvæmt heimild
í lögum gegn hryðjuverkum. Þeir
hafa neitað að ræða við lögregluna,
segjast vera írskir ríkissborgarar
og hafa gefið upp heimilsföng í
Dublin.
Leyniþjónustumenn hersins í
Ulster á Norður-Irlandi tjáðu lög-
reglunni fyrr í sumar að IRA væri
að skipuleggja morð á ráðherram í
ríkisstjóm Margaret Thatcher. Tal-
ið var að um svipaða herferð væri
að ræða og árið 1984 þegar IRA
tókst næstum að ráða hálfa ríkis-
stjómina af dögum í sprengjutilræði
í Brighton.
Lögreglan segist hafa fundið um
4.000 pund í reiðufé á einum þre-
menninganna, og bókun á hóteli í
Blackpool rétt fyrir ársþing íhalds-
flokksins. Lögreglan útilokar ekki
að fleiri félagar í IRA séu að und-
irbúa hryðjuverk í Bretlandi þessar
vikumar. I síðustu viku lýsti Danny
Morrison, leiðtogi Sinn Fein, stjóm-
málaarms IRA, yfir að önnur
sprenging á borð við þá í Brighton
myndi „þvinga Thatcher eða ekki
Thatcher að samningaborðinu. “
Thatcher var á ferð um Skotland
um helgina og aukinn öryggisvörð-
ur var um hana. Hún fór í árlega
heimsókn til drottningarinnar í
sumarleyfiskastalann í Balmoral
austur af Aberdeen.
——:^sS^eAB'
OOsSÖ \
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI50022
Bjargað úr bruna
Slökkviliðsmenn bjarga kornabarni út um glugga á brennandi
húsi í New Castle í Ohio í Bandaríkjunum í gær. Slökkviliðsmenn-
ir fundu tvö lítil börn, dreng og stúlku, i einu herbergja hússins.
Drengurinn komst lífs af en stúlkan andaðist skömmu síðar.
Albanía:
Hægfara breytingar
NÚ VERÐUR eins og f öðrum
kommúnistaríkjum vart við um-
bætur í Albaníu, einangraðasta og
miðstýrðasta austantjaldslandinu.
Flokksleiðtoginn Ramiz Alia hef-
ur boðað gætileg frávik frá gömlu
stefnunni og .jákvæðar breyting-
ar á öllum sviðum“.
Balkanríkið með sínar tæpar 3
milljónir íbúa heldur engu að síður
fast við „ósvikinn marxisma“ og fyr-
irlítur byltingarkenndar tilraunir
Gorbachevs. En Alia, sem tók fyrir
tveimur árum við flokksleiðtogaemb-
ættinu eftir dauða hálfguðsins Enver
Hoxha, virðist sjá fram á nauðsyn
nýrrar efnahagsstefnu. í ræðum
sínum undanfarið segist hann sakna
þess að tillit sé tekið til lögmála hag-
fræðinnar. Hann hefur einnig varað
við ofstjórn og boðað verkafólki betri
kjör.
Hingað til hefur stefnan verið sú
að laun allra væru sem líkust en nú
er byijað að innleiða bónuskerfi og
stighækkandi launataxta í þeirri von
að stöðnuð framleiðslan taki við sér.
Einnig er bændum nú heimilað að
rækta garðinn sinn til eigin nota.
Full áhersla er þó lögð á að allar
breytingarnar séu í anda sósíalismans
andstætt þvi sem er að gerast í Sov-
étríkjunum „sem eitt sinn gátu talist
sósialísk".
í nýlegri þingræðu leiðtogans kom
i ljós að breytingamar era fyrst og
fremst til komnar vegna litillar olíu-
og krómframleiðslu undanfarið og
slæmrar greiðslustöðu landsins. Alia
kenndi helst um lélegri stjómun og
litlum aga. Auk þess hefði miklu fé
verið varið til tækjakaupa en gamal-
Ramiz Alia flokksleiðtogi í Al-
baníu.
dags framleiðsluhættir há fjárhag
landsins hvað mest.
Einn helsti samstarfsmaður Alias,
Foto Cami, hefur ennfremur hvatt til
þess að menn láti skoðun sína í ljós
og hætti að treysta á að flokksforyst-
an taki allar ákvarðanir. Fjölmiðlar
landsins eru einnig orðnir gagnrýnni,
þeir flytja nú æ fleiri fréttir af kauðs-
hætti í fyrirtækjunum og slæmum
anda á vinnustað.
Annað sem bendir til stefnubreyt-
ingar í Albaníu án þess að um
kúvendingu sé að ræða eins og i
Sovétríkjunum er það að Ramiz Alia
vitnaði í síðustu ræðu sinni einungis
þrisvar sinnum ( forvera sinn Hoxha.
Áður var hver fullyrðing rökstudd
með tilvitnunum í fræði meistarans.
Deilt um frumu-
flutninga úr fóstri
Er siðferðilega veijandi að
nota heilafrumur úr fóstri eftir
fóstureyðingu og flytja þær yfir
i sjúklinga með Parkinsons-veiki
eða aðra alvarlega sjúkdóma í
miðtaugakerfi? Þetta var ein af
umdeildustu spurningunum á al-
þjóðlegu þingi 3.500 heilasér-
fræðinga i Búdapest á dögunum.
Á slðustu mánuðum hafa nýma-
hettufrumur verið græddar t heila
Parkinsons-sjúklinga, en menn
greinir á um ágæti þess að nota
frumur úr fóstram til þessa, auk
þess sem að alltaf er hætta á bak-
slagi, þó allt gangi vel I fyrstu.
Athygli manna beinist fyrst og
fremst að siðferðilegum og sál-
fræðilegum vandkvæðum þessa Er
rétt að nota fósturfrumur í læknis-
fræðilegum tilgangi? Breytist
afstaða manna til fóstureyðinga?
Siðferðisnefnd sænska læknafé-
lagsins hefur komist að þeirri
niðurstöðu að nota megi fóstur á
þennan hátt enda fátt sem mæli
gegn því hjálpa 20.000 Svíum á
þennan hátt.
Svíar era einna lengst komnir I
þessum rannsóknum og hafa allar
niðurstöður lofað góðu. Læknar
vona þó að hægt verði að framleiða
taugafrumur á rannsóknarstofunni,
svo komast megi hjá þeim siðferðis-
vanda sem notkun fósturframa
hefur í för með sér.
(Heiraild: Svenska Dagbladet)