Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
49
/c.
Stærsta hótelkeðja heims kemur nú til íslands.
Hún færir Reykjavík þá frábæru aðstöðu og pjónustu sem Holiday Inn hótelin eru þekkt
fyrirum allan heim.
Okkar einstaka tölvuvædda bókunarkerfi, Holidex, gerir yður kleift að
bóka gistingu í sérhverju hinna 1700 Holiday inn hótela um
allan heim.
í Holiday inn hótelinu, sem er staðsett nálægt
miðbæ Reykjavíkur og liggur vel við vaxandi
viðskiptahverfi borgarinnar, erfrábærveitingastaður,
kaffistofa og vínveitingastaður er á efstu hæð,
með útsýni yflr borgina, sjóinn og sveitina í kring.
umhverflð er sérlega vel fallið til veisluhalds,
móttaka og ráðstefna. Petta er gististaðurinn í
viðskiptaferðum eða skemmtiferðum. Og lykill yðar
að heiminum.
Holiday inn ReyKjavfk, sigtún 38,105 Reykjavlk, simi 91 - 689000.
UoöM
'V$VN*
Minning:
SteindórJ. Briem
Vinningstölurnar 5. september 1987.
Heildarvinningsupphæð: 4.875.788,-
1. vinningur var kr. 2.446.748,- og skiptist hann á milli 4ra
vinningshafa, kr. 611.687,- á mann.
2. vinningur var kr. 730.000,- og skiptist hann á milli 500
vinningshafa, kr. 1.460,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.699.040,- og skiptist á milli 10.619 vinn-
ingshafa, sem fá 160 krónur hver.
Upplýsinga-
simi:
685111.
omo,
frá Melstað
Að koma heim af erlendri grund,
þykir mér ævinlega fagnaðarefni.
Landið heilsar með sínu tæra fjalla-
lofti, sem maður kann eflaust betur
að meta eftir að hafa verið fjarver-
andi, þó um stundarsakir sé. En
ekki eru það ævinlega góðar fréttir
sem mæta manni við heimkomuna
og svo fór að þessu sinni, en einn
samferðamaður var horfínn úr
þessu jarðlífí. Þeim fækkar ört sam-
starfsmönnum mínum frá fyrri
árum.
Hér er kvaddur Steindór J.
Briem, hann var fæddur 3. septem-
ber 1913 sonur þeirra mætu hjóna
frú Ingibjargar og séra Jóhanns
Briem prófasts að Melstað í Mið-
fírði.
Að Melstað liðu hans yngri ár í
samneyti við foreldra og systkini,
þaðan átti hann bjartar minningar
sem hann sagði mér frá á góðum
stundum.
Steindór gerðist starfsmaður
Löggildingastofunnar 1953 og
starfaði hér um nær 30 ára skeið,
þar til hann lét af störfum vegna
aldurs.
Á hveijum vinnustað er ómetan-
legt að hafa slíkan starfsmann.
Hann var að öllu leyti mjög vandað-
ur maður, hógvær og orðvar,
snyrtimenni svo af bar, en alla tfð
var hann sérstaklega hlédrægur,
þó gat hann verið þéttur fyrir ef
því var að skipta. Þessir eðlisþættir
hans höfðu góð áhrif á samstarfs-
mennina, enda var hann ávallt vel
metinn af þeim.
Á árum áður ferðuðumst við
Steindór saman víða um lands-
byggðina starfsins vegna í slíkum
ferðum kynnast menn náið, við
ræddum margt saman, hann sagði
mér ýmsar sagnir af mönnum og
mannlífí nyrðra frá uppvaxtarárum
sínum, var það bæði fræðandi og
skemmtilegt á að hlýða. Einnig
voru það aðrir þættir sem ég kynnt-
ist þá, sem eru góðir í slíkum
ferðum, það var svo gott að þegja
með honum, þögnin sem hann skap-
aði er ólýsanleg, á þannig stundum
færðist svo mikil ró jrfír hugann
að maður varð sem óþreyttur.
Kynni mín af þessum sómamanni
voru ætíð eins og best varð á kos-
ið. Ég vissi að hann var ekki allra,
því var ég stoltur af að teljast til
vina hans.
Aldrei held ég að það hafí skyggt
á okkar samband að ég varð hans
yfirmaður, hann var alltaf hinn
sami trausti vinur og samstarfs-
maður, sem lét ekki sitt eftir liggja
ef hann mögulega gat.
Eftir að Steindór lét af störfum,
kom hann oft til okkar hér á Lög-
gildingastofuna, hljóðlátur gekk
hann inn og var fagnað þar. Eftir
að hann veiktist fækkaði komum
hans til okkar, höfðum við þá síma-
samband og var stutt síðan ég átti
tal við hann í síma og hvatti hann
til að koma í heimsókn, sem hann
sagðist myndi gera fljótlega.
Steindór var tvíkvæntur, fyrri konu
sína missti hann eftir fárra ára
hjónaband, þau eignuðust dótturina
Ingibjörgu sem búsett er í Dan-
mörku.
Seinni kona hans var Sigríður
Sigtryggsdóttir sem látin er fyrir
nokkrum árum, eftir erfíð veikindi.
Þau eignuðust tvö börn, Val-
gerði, sem var alla tíð föður sínum
mikil stoð, og Jóhann, sem fórst í
flugslysi 1981, mikill efnispiltur
sem var sárt saknað af foreldrum
og öllum sem honum kynntust.
Segja má að Steindór hafi ekki far-
ið varhluta af sorg heimsins, en
velkomin
til Holiday inn
Reykjavík.
Lykli yðar að 1700 Holiday Inn
hótelum um allan heim.
með trú og viljastyrk tókst honum
að komast yfír raunir þessar, þó
eflaust væri þar margt dulið, því
aldrei var hann orðmargur um sitt
einkalíf.
Nú er hann horfinn á braut, vin-
ir fagna honum efíaust á ströndu
þess ókomna.
Ég votta dætrum hans og systk-
inum mína samúð.
Við samstarfsmenn hans þökkum
honum liðin samveruár.
Sigurður Axelsson
X-Jöfðar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!