Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 50
50 mÖrGUNBLAÐH)7 ÞIU£JUDAGUR8?SEPraMBER 1987 Háskólinn á Akureyri settur 1 fyrsta sinn HÁSKÓLINN á Akureyri var settur í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Akureyrarkirkju á laug- ardaginn. Kennsla hófst síðan í gærmorgun á tveimur brautum, iðnrekstrarfræðum og hjúkr- unarfræðum. Fyrsta skólaárið verða nemendur alls 47 talsins, 13 í hjúkrunarfræðum og 34 i iðnrekstrarfræðum. Fjölmennt var í kirkjunni við setningarathöfnina og fluttu þar ávörp Haraldur Bessason forstöðu- maður háskólakennslunnar á Akureyri, Birgir ísleifur Gunnars- son menntamálaráðherra, Sverrir Hermannson og Ingvar Gíslason • fyrrverandi menntamálaráðherrar, Halldór Blöndal formaður háskóla- nefndar menntamálaráðuneytisins, Gunnar Ragnar forseti bæjarstjóm- ar, Stefán G. Jónsson námsbrautar- stjóri í iðnrekstrarfræðum og Margrét Tómasdóttir námsbrautar- stjóri { hjúkrunarfræðum. Þá söng Kristján Jóhannsson við undirleik Bjöms Steinars Sólbergs- sonar, Normans H. Dennis og Atla Guðlaugssonar. Gunnar Ragnars forseti bæjar- , stjómar afhenti skólanum fyrir hönd bæjarins 500.000 krónur til bókakaupa og Jóhannes Sigvalda- son stjómarformaður KEA afhenti skólanum sömu leiðis fyrir hönd KEA 100.000 krónur til bókakaupa og gaf skólanum málverk. Áður unar út á landsbyggðina, sem sýndi að slíkt er áhrifarík byggðastefna. Hann fagnaði því sérstaklega að Haraldur Bessason skyldi hafa tek- ið við stöðu forstöðumanns háskóla- kennslu á Akureyri með meira en 30 ára starfsreynslu við Man- itoba—háskóla sem væri einn hinna þekktari háskóla. Sverrir lagði áherslu á mikilvægi menntunar á tækni— og tölvunar- sviði og taldi brýnt að háskóli á Akureyri sinnti sem best þörfum atvinnulífsins. Eins og áður sagði verða fyrsta árið einungis kenndar hjúkrunar- og iðnrekstarfræði við háskólann en nefndir vinna að því að kanna grundvöll fyrir kennslu í í matvæla- fræði og viðskiptafræði og uppi em hugmyndir um kennslu í sjávarút- vegsfræðum. Námsskrá námsbrautar í hjúkr- unarfræði við Háskóla íslands hefur verið höfð til grundvallar við skipu- lagningu námsins í hjúkrunarfræð- um en þó hafa verið gerðar nokkrar breytingar þar á. Námið í iðnrekstrarfræðu m er í samræmi við námsskrá Tækniskóla íslands og er reiknað með að nám- ið taki þijár annir og að þeim loknum útskrifist menn sem iðn- rekstrarfræðingar. Rætt hefur verið um að tengja í framtíðinni kennslu í viðskiptafræðum við háskólann þannig iðnrekstrarfræðunum að nemendur geti haldið áfram námi í rekstrarhagfræði annnaðhvort beint eftir próf eða þá síðar eftir nokkurra ára þátttöku í atvinnulíf- inu. Skólinn verður í vetur til húsa á tveimur stöðum, skrifstofur og kennslustofa í húsnæði tæknisviðs Verkmenntaskólans á Akureyri og tvær kennslustofur í íþróttahöllinni handan götunnar. Frá setningu háskólans á laugardaginn höfðu Menningarsjóður og Mennta- málaráð ákveðið að gefa skólanum allar bækur sem þeir höfðu gefið út og enn voru fáanlegar. Sverrir Hermannsson fyrrver- andi menntamálaráðherra taldi að stofnun háskóla á Akureyri myndi marka dýpri spor í menningarsögu íslands en menn gætu nú séð fyrir. Hann riíjaði upp yfirlýsingu sem hann gaf á sínum tíma um stuðning við háskólakennslu á Akureyri þeg- Morgunblaðið/Gylfi ar hann var iðnaðarráðherra. Þegar hann varð menntamálaráðherra gafst honum síðan kostur á að vinna að framgangi málsins. Sverrir lýsti reynslu annarra þjóða af flutningi framhaldsmennt- Halldór Blöndal formaður háskóla- nefndar menntamálaráðuneytisins: Orðið hef- ur sigrað Margrét Tómasdóttir námsbrautar- stjóri í hjúkrunarfræðum: Mikill heiður fyrir hjúkrunarfræðina Nú er mikil stund. Háskólinn á Akureyri er stórt orð fyrir okkur sem byggjum þennan bæ og þenn- an fjörð. Akureyri og Eyjafjörð og raunar Norðurland. Ég hef fyrir satt, að Þórarinn Bjömsson skólameistari og Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi ' hafi fyrstir tekið sér orðið í munn á opinberum vettvangi. Síðan hef- ur það borist víða og æ fleiri hafa tekið undir: Háskólinn á Akureyri skal rísa. Og nú er það að verða að veru- leika. Hér í dag er Sverrir Hermannsson, sem gaf þá yfirlýs- ingu fyrsta í sæti menntamálaráð- herra, að svo skyldi verða, og ég þakka honum, forvera hans Ingv- ari Gíslasyni og öllum þeim öðrum sem vel hafa unnið að þessu máli. Hafi þeir heila þökk fyrir. Önnur deild hins nýja háskóla er á hjúkrunarsviði. Að það skyldi vera mögulegt með þeim myndar- brag, sem ég trúi að þar verði á, ber vott því merkilega innra starfi sem unnið er við sjúkrahúsið á Akureyri. Hjúkrunardeildin mun breikka grunn sjúkrahússins og sjúkra- húsið gæða deildina lífi og af því samstarfi munu spretta nýjar hugmyndir, nýjar hugsjónir. Hin deild háskólans er á sviði iðnrekstrarfræði. Fer hógværlega af stað en mjór er mikils vísir. Þetta nám er hugsað fyrir þá sem standa fyrir fyrirtækjum, eru í eigin rekstri, og aðsóknin sýnir að þörfin er brýn. Það mun einnig gefa réttindi til frekara háskólanáms og er verið að vinna að slíkri útfærslu. Við vitum að mikill húsnæðis- kostnaður háir mörgum í háskóla- námi og slíkur hörgull er á húsnæði hér á Akureyri að utan- bæjamemendur við framhalds- skólana eða háskólann eru margir hveijir í stökustu vandræðum. Þetta og þó auðvitað sú staðreynd umfram allt að við Akureyringar viljum sem einn maður standa á bak við háskólann hefur valdið því að við höfum nú bundist sam- tökum um að styðja uppbyggingu háskólastarfs á Akureyri. Fyrsta verkefnið verður bygg- ing hjónagarðs fyrir nemendur háskólans á Akureyri. Hafínn er undirbúningur að formlegri fé- Halldór Blöndal lagsstofnun, sem verður auglýst og öllum opin. Undir þessa yfirlýs- ingu hafa skrifað 33 einstaklingar úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins til að staðfesta viljann fyrir verk- inu. Ég vil sem formaður háskóla- nefndar þakka samstarfsmönnum mínum og öllum sem við höfum leitað til, háskólanefndinni á Ak- ureyri og og ótal einstaklingum um leið og ég færi starfsmönnum háskólans ámaðaróskir að þeim megi vel famast í hinu nýja og ábyrgðarmikla starfi. Ég óska nemendum skólans til hamingju og ég vil fyrir hönd okkar þingmanna þessa kjördæm- is ítreka þessar ámaðaróskir allar. Orðið hefur sigrað. Háskólinn á Akureyri er orðinn að veruleika. Um skáldið á Sigurhæðum sagði Einar Benediktsson: Frá heiminum til hólmans bjóstu brú og hámennt orðsins reiddir þú í bú. Það eru ámaðaróskir mínar til Háskólans að hið sama verði um hann sagt. Það er mikill heiður fyrir fræði- grein sem hefur verið kölluð elsta listgreinin og yngsta vísindagreinin að vera valin sem ein þeirra greina sem opna þennan nýja háskóla okkar íslendinga. Hjúkrunarfræði sem vísindagrein lítur á manninn í heild sinni, stuðlar að heilbrigði einstakl- ingsins, fjölskyldu og þjóðfélagsins. Nú á haustönn hefja 13 nemendur nám hér í hjúkrunarfræði, 12 í fullu námi og 1 í hlutanámi. Kennsla hefst í eftirtöldum greinum: Hjúkrun og hjúkrunarsögu kenni ég. Efnafræði þar sem kennarar eru Sigurður Bjarklind, Ingimar Frið- riksson, Pétur Reimarsson, Ingólfur Kristjánsson, Ólafur Þorsteinsson, Ásbjöm Dagbjartsson og Stefán G. Jónsson. Líffærafræði þar sem kennarar eru Gauti Amþórsson, Þor- kell Guðbrandsson, Halldór Baldurs- son, Ólöf Regina Torfadóttir, Jónas Franklin og Aðalgeir Arason. Al- menn félagsfræði þar sem kennari er Hermann Óskarsson og Heim- spekileg forspjallsvísindi þar sem kennari er Þröstur Ásmundsson. Það er til mikið af hæfileikafólki hér norð- an heiða. Námsskrá námsbrautar í hjúkrun- arfræði við Háskóla íslands er lögð til grundvallar þegar nám hér er skipulagt en unnið hefur verið að breytingum á námsskrá í samráði við aðila innan námsbrautar í hjúkr- unarfræði og aðrar deildir Háskóla Islands. Felast þær einkum í því að gera kennslu í efna- og eðlisfræði markvissari undanfara náms í grein- um svo sem lífeðlisfræði, lífefnafræði og lífærafræði. Einnig verður náms- efni í líffærafræði endurskipulagt þar sem í byijun er lögð áhersla á frum- ulíffræði og lífeðlisfræði. Vil ég þakka Jóhanni Axelssyni prófessor við Háskóla fslands sér- staklega fyrir mikinn áhuga og aðstoð við endurskipulagningu þessa. Við þetta tækifæri fínnst mér skylda mín að greina frá þeim mikla velvilja sem Fjórðungssjúkrahús Ak- ureyrar hefur sýnt hjúkrunamámi hér. Má þar nefna aðgang að bóka- safni og lesaðstöðu fyrir nemendur. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í þjóðfélaginu hefur breyst mikið síðustu áratugi. Umhverfí okkar og allar aðstæður hafa breyst. í bók Steingríms Matthíassonar héraðs- læknis hér á Akureyri, Hjúkrun sjúkra: hjúkrunarfræði og lækninga- bók, sem gefin var út 1923 segir svo þegar fjallað er um móttöku sjúkl- inga á sjúkrahús: „Böðun og þvottur sjúklinga við aðkomu. Oft eru sjúkl- ingar mjög óþrifalegir, svo að ekki er viðlit með einni laugun, að fá þá nægilega hreina. Við laugunina notar hjúkrunar- konan naglabursta á hendur og fætur sjúklingsins, sker neglumar, nuggar með burstanum öil óhreinindi og notar grænsápu. Að öðru leyti notar hún grisjuklúta til að þvo líkamann úr sápuvatni og sömuleiðis hárið. Yfir legubekk við laugarkerið er breidd rekkjuvoð; þar er sjúklingur- inn lagður á, þegar hann er tekinn upp úr lauginni, og þurrkað í skyndi og síðan vafinn í ullarbrekán." Til- vitnun lýkur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.