Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 51

Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987 51 nsEan igiaisái tansar ke .jwtajtiu: ifisrai miMii Birgir Isleifur Gunnarsson menntamálaráðherra: Þjóðfélag okkar kallar á aukna menntun og þekkingu Góðir Akureyringar, aðrir gestir. „Ofurlítið ævintýri gerist hér í salnum í dag.“ Þannig byrjaði Sig- urður Guðmundsson, skólameistari á Akureyri, ræðu sína árið 1928, þegar hann brautskráði fyrstu stúd- entana frá Menntaskólanum á Akureyri. í ræðu sinni vék hann síðar að þeirri andstöðu sem hug- myndin um Menntaskóla á Akueyri hafði mætt. Andstæðingum skólans svaraði skólameistari með heilræði, sem fólst í gömlu spakmæli: „Ef þú hefír heilan hug, mun sjálft lofa sig, ef vel er, enda mun sjálft lasta sig, ef illa er.“ Menntaskólinn á Akureyri hefur sjálfur lofað sig og nú hvarflar það ekki að nokkrum manni að efast um tilverurétt menntaskólans. Hér í Akureyrarkirkju í dag er enn að gerast ofurlítið ævintýri. Upphaf kennslu á háskólastigi á Akureyri er óneitanlega nokkur við- burður í skólasögu okkar íslend- inga. Hér er farið af stað með tvær námsbrautir, hjúkrunarfræði og iðnrekstrarfræði, en nefndir vinna að því að kanna grundvöll fyrir kennslu í matvælafræði og við- skiptafræði. Þá eru uppi hugmyndir um kennslu í sjávarútvegsfræðum. Mjór er mikils vísir. Það er ekki langt síðan mönnum þótti sjálf hug- myndin um háskólakennslu á Akureyri eða hvar sem er utan Reykjavíkur fráleit. Ég er sann- færður um að innan skamms mun Háskóli á Akureyri festast í sessi með sama hætti og menntaskólinn hér. Við skulum þó gera okkur fulla grein fyrir því að fámenni þjóðar- innar og fjárhagsleg geta setur miklum hugsjónum á vettvangi skólastarfs, háskólastigs sem ann- ars, verulegar skorður. Við getum ekki vænst þess að búa við jafn öflugt og gróskumikið háskólalíf og nágrannaþjóðirnar, þar sem margir sjálfstæðir kennslu- og rannsóknarháskólar starfa. Við hljótum að sníða okkur stakk eftir vexti. Skipulag háskólakennslunnar á Akureyri tekur mið af þessu. Kennslan hér verður einkum við það miðuð að veita nemendum haldgóða menntun á þeim vettvangi sem beinlínis varðar íslenskt þjóðlíf og íslenska atvinnuhætti, menntun sem á að standa jafnfætis sambæri- legri menntun í öðrum háskólum eða skólum á háskólastigi. Að því er rannsóknaþáttinn snertir er þörf á mikilli aðgát. Sá þáttur er kostn- aðarmestur í starfí hvers háskóla og því ríður á að rannsóknarstarf- semin í landinu sé skipulögð á þann hátt að ekki sé um tvítekningu að ræða og kröftunum sé ekki dreift um of. Það kallar á samvinnu og gott skipulag. Þjóðfélag okkar í dag kallar á aukna menntun og aukna þekkingu á öllum sviðum. Eg sé því fyrir mér að háskólakennsla á eftir að vaxa mjög í landinu á næstu árum og hún á eftir að færast í vaxandi mæli út fýrir veggi Háskóla íslands og til ýmissa annarra skóla. Reynd- ar er þetta þegar staðreynd því að nám á háskólastigi, nám sem gerir kröfur til þess að nemendur hafi lokið stúdentsprófí eða sambæri- legrí menntun, fer vaxandi og æ fleiri skólar taka upp slíka mennt- un. Ég nefni Kennaraháskólann, Tækniskólann, Bændaskólann á Hvanneyri og Samvinnuskólann, auk þess sem listaskólar eins og Tónlistarskólinn í Reykjavík, og Myndlista- og handíðaskólinn eru með kennslu sem telst vera á há- skólastigi og nú er ákveðin kennsla í tölvufræðum á háskólastigi í Verzlunarskóla íslands. Þessi þróun hefur orðið á allra síðustu árum, en þó eru engin lög í gildi um há- skólastigið, aðeins um einstaka skóla. I stefnuyfírlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar er kveðið á um undirbúning löggjafar Birgir ísl. Gunnarsson um háskólastigið og að því verður unnið í menntamálaráðuneytinu á næstunni. Þá er nú og unnið að undirbúningi lagafrumvarps um háskólakennslu á Akureyri og setja þarf síðan reglugerð í kjölfar þeirr- ar lagasetningar. A það hefur verið bent að nauð- synlegt sé að tryggja samstarf skóla þar sem fram fer kennsla á háskóla- stigi. T.d. þarf að tryggja ákveðnar lágmarkskröfur til náms, sem býður upp á ákveðna lærdómstitla. Ég hef því fyrir nokkrum dögum ritað skól- um þar sem fram fer kennsla á háskólastigi eða áform eru uppi um slíka kennslu og óskað eftir því að þessir skólar tilnefni fulltrúa í sam- starfsnefnd háskólastigsins. Sú nefnd á að vera vettvangur fyrir umræður um mál sem snerta skól- ana í sameiningu eða háskólastigið almennt, hún á að beita sér fyrir samvinnu um úrlausn sameigin- legra viðfangsefna og vera stjóm- völdum til ráðuneytis um mál á verksviði sínu. Hugsjónin um háskóla á Akur- eyri hefur nú ræst. Nú tekur við barátta fyrir því „að gera úr honum þjóðnýtan skóla og dugandi, sem vinni þjóð og landi margvíslegustu hamingju, gagnsemi og heilsubót," svo að enn sé vitnað í fyrstu skóla- slitaræðu Sigurðar Guðmundsson- ar. Ég efast ekki um að Norðlend- ingar og Akureyringar hafa mikinn metnað fyrir hönd þeirrar háskóla- kennslu sem hér er að hefjast. Það er eðlilegt og heilbrigt viðhorf og ég fullvissa ykkur um að í mennta- málaráðuneytinu emm við sama sinnis. Við viljum að háskólakennsl- an á Akureyri vaxi og dafni í framtíðinni, verði menningar- og menntalífí þjóðarinnar og ekki síst Norðlendinga lyftistöng. Ég þakka þeim sem fyrir hönd menntamálaráðuneytisins hafa unnið að undirbúningi háskóla- kennslunnar á Akureyri. Ég óska starfsliði skólans og nemendum til hamingju og ég óska Akureyringum og Norðlendingum til hamingju með þann áfanga sem nú hefur náðst í menningar- og menntalífí hér um slóðir. Margrét Tómasdóttir í dag er hjúkrunarfræðingum kennt að safna upplýsingum um ástand sjúklings við komu, greina hjúkrunarþörf, setja fram áætlun og framkvæma hjúkrunarmeðferð og síðast en ekki síst að meta árangur af hjúkrunarmeðferð. Eðli hjúkrunar gefur til kynna að hjúkrunarfræðingar verða að þekkja störf og oft á tíðum að sameina krafta þeirra Qölmörgu faghópa sem við störfum með í heilbrigðiskerfínu, svo einstaklingamir fái þá allra bestu þjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjóðfélagið á kröfu á því að mennta- stofnanir útskrifí vel menntað, hæft starfsfólk fyrir heilbrigðiskerfið í dag og fyrir óvæntar þarfír þjóðfélagsins í framtíðinni. Kæru nemendur og kennarar. Það þarf kjark og áræði til að mæta til leiks í nýstofnaðan háskóla, fyrsta námsárið; nýjan skóla sem hefur hvorki skapað sér nafn né hefðir. Það er von mín og trú að við getum í sameiningu unnið hér gott starf fyrir okkar þjóðfélag. Höfum í huga að nútfðin er fortíð framtíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.