Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
félk í
fréttum
Giscard horfir áhugasamur á hnefaleikakappana.
Hnefaleikaunnandinn Giscard
Maðurinn hér á mjmdinni, þessi fullklæddi, er enginn annar en fyrrver-
andi forseti Frakklands, Valery Giscard D’Estaing. Hann hefur nú
að mestu dregið sig út úr stjórnmálabaráttunni - þó að hann sé annars
á besta aldri, aðeins 61 árs gamall - en hann hefur gaman af hnefa-
leikabaráttu, eins og sjá má. Myndin er tekin nú í síðustu viku í
frönsku Ölpunum þar sem forsetinn fyrrverandi dvelst í sumarfríi.
Rússarnir koma
Sovésk tíska hefur hingað til ekki verið ýkja áberandi í tískuheiminum,
en bráðum kann þar að verða breyting á. A þessarri mynd sést sovéski
tískuhönnuðurinn Vyacheslav Zaitsev ásamt einni sýningarstúlku sinni,
J)Tklæddri nýjustu vetrartískunni frá Moskvu. Einhveijum kann að finnast
þetta glænepjulegur klæðnaður fyrir rússneska veturinn, en Zaitsev er
ekki fyrst og fremst að stfla á innanlandsmarkað. Hann ætlar að halda
mikla tískusýningu í New York þann 27. október nk. og þá kemur væntan-
lega í ljós hvemig Vesturlandabúum hugnast hin rússneska tískuinnrás.
Vyacheslav Zaitsev og nýjasta línan frá Sovét.
Reuter
Gölturinn J.R. er sigursæll í kapphlaupum. u r
Gölturinn vann
Hlaupagarpurinn hér lengst til vinstri á myndinni, þessi lágvaxni með skögultennumar, heitir J.R., og er
samkvæmt heimildum okkar hraðskreiðasti villigöltur í öllu norðanverðu Þýskalandi, og eflaust þó að víðar
væri leitað. J.R. lætur sér þó ekki nægja að etja kappi við aðra gelti, heldur leyfir hann tvifætlingum líka að
spreyta sig gegn honum.
Myndin var tekin á árlegu svínakapphlaupi í Hamborg á dögunum, þar sem áhorfendur kepptu við J.R.
Gölturinn vann þó auðveldan sigur þar sem að helsti keppinautur hans hrasaði og datt.
Clint Eastwood ásamt Nancy Reagan.
Vinsæll
bæjarstjóri
Bæjarstjórinn í þorpinu Carmel í
Kalifomíu, hann Clint East-
wood, hefur verið nefndur af sumum
sem hugsanlegur forseti Banda-
ríkjanna í framtíðinni, og benda
þessir menn á yfirburðasigur Clints
í síðustu bæjarstjórakosningum í
Carmel, og á það að Clint hefur leik-
ið í miklu betri myndum en núverandi
forseti. Clint hefur hins vegar stað-
fastlega neitað því að hann stefni
hærra í bandarískum stjómmálum
en það að stjóma hinum friðsæla
5.000 manna bæ sem hann býr í.
Þrátt fyrir það virðast margir
frammámenn í Repúblíkanaflokkn-
um hafa tröllatrú á pólitísku segul-
magni leikarans vinsæla, og munu
bæði þeir George Bush og Bob Dole,
líklegustu forsetaframbjóðendaefni
Repúblíkana, hafa gert sér ferð til
Clints og beðið hann um að lýsa
formlega yfír stuðningi við sig. Clint
hefur brugðist vel og diplómatískt
við þessum ágangi, og segir að báð-
ir séu þeir Bush og Dole afbragðs-
menn, og að hann treysti sér ekki
til að segja um hvor þeirra sé hæfari
í forsetaembættið.
Síðasta
vígið
fallið?
urkha-hersveitimar bresku hafa
löngum verið frægar fyrir hreysti
sína og hugrekki. Hana skipa 800
úrvalshermenn, sem aðallega koma
frá Nepal. Það þótti tíðindum sæta
íægar að kona, Anne Whittaker,
gekk til liðs við Gurkhana á dögun-
um; en hún hefur verið sett aðstoð-
arforingi með agamál og stjómsýslu
á sinni könnu. Það má með sanni
segja að með þessu hafi eitt síðasta
vígi karlrembunnar failið. Hvað er
eiginlega eftir? FVímúrarareglan?
Reuter
Það verður ekki annað sagt en að hún Anne Whittaker taki sig vel út
í hópi Gurkha-hermanna.
COSPER
© PIB