Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
63
VELVAKANDI
SVARAR ( SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
iur i/WHi UJrW'Ull
Hvalveiðar og al-
þjóðleg samskipti
Til Velvakanda.
Það var ekki mikil framsýni eða
stórhugur í ákvörðun ríkisstjómar-
innar að halda áfram hvalveiðum.
Alþjóðlegt samstarf og samvinna
er fáum þjóðum eins mikilvægt og
íslensku þjóðinni á tímum vaxandi
alþjóðlegra vandamála svo sem of-
nýtingar náttúruauðæfa, loftmeng-
unar, mengunar í sjó, kjamorkuúr-
gangs og vígbúnaðar, allt mála sem
krefjast samvinnu og samningsvilja
margra þjóða svo hægt sé að leysa
þau.
Við íslendingar höfum notið góðs
af því í mörgum tilfellum að náðst
hefiir samkomulag á alþjóðlegum
vettvangi.
Á Alþingi íslendinga var sam-
þykkt að hætta hvalveiðum um
óákveðinn tíma. Þessi samþykkt var
gerð fyrir fáum ámm og það eru
ekki allir sem hafa gleymt henni.
í stað þess að leita að smugum
í smáa letri samninga hvalveiðiráðs-
ins eigum við að sýna stórmennsku
og hætta hvalveiðum og vinna okk-
ur aftur upp í áliti því sem við
hingað til höfum haft, sem þjóð sem
stendur við samninga og sýnir sann-
gpmi. Hvalveiðar eru okkur svo
lítilvægar fjárhagslega að það er
engin skynsemi í því að fóma virð-
ingu landsins og mun meiri
smunum fyrir þetta mál.
ilg skora á ríkisstjómina að
breyta ákvörðun sinni og hætta
hvalveiðum strax. Það er enginn
minkunn í slíkri afstöðubreytingu,
þvert á móti, þeir yrðu menn af
meiri.
Hörður Kristinsson
Þessir hringdu
Fyrirspurn til
Ríkissjónvarpsins
Kona í Fossvoginum hringdi:
„Hvenær ætla forráðamenn
Ríkissjónvarpsins að breyta
tímasetningu barnaefnis? Það
er alveg forkastanlegt að stilla
bamatímum markvist inn á
matartímann frá kl. 18.30 og
framundir kl. 20. Það er ekki
möguleiki að koma matartímum
þannig fyrir að útivinnandi fólk
og böm þess geti snætt saman.
Margir hafa látið vanþóknun
sína í ljós á þessari undarlegu
tilhögun. En allt virðist óbreytt
þótt jafnframt sé mikið rætt um
nauðsyn þess opinberlega að
fjölskyldan eigi stundir saman
og matartíminn er ein af þeim
fáu sem gætu gefíð bömum
tækifæri á að blanda geði við
foreldrana."
Gallajakki
Gallajakki með grænu fóðri
gleymdist í biðskýli við Stíflusel
fyrir nokkm. Jakkinn var í
hvítum plastpoka og er merktur
HÞ í fatamerkinu. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hafa
samband við Erlu í síma 76499.
Vasahnífur
Rauður vasahnífur með lykli
tapaðist fyrir skömmu. Fianandi
vinsamlegast hringi í síma
75051.
ATTU
GÓÐAN STAÐ FYRIR
ÓDÝRAN KLÆÐASKÁP?
IMú getum við haft hlutina í röð og
reglu — skápar með plastfilmum
Sjálfsagður hlutur
eða misþynmng?
Til Velvakanda.
í gær varð ég vitni að því að lítil
böm vom til neydd að anda að sér
lofti sem ég vissi að var blandað
ammoníaki, formaldehýði, benspýr-
en, akróleini, blásým, brennisteins-
vetni, köfnunarefnisoxíði, fenóli,
kolsýrlingi, kresóli, pýridíni, bens-
en, acetaldehýði og fjölda annarra
eiturefna. Kona sem þessu olli virt-
ist gera það eins og ekkert væri
sjálfsagðara og ekki var annað að
sjá en bömin tækju við óþverranum
eins og hveiju öðm daglegu brauði.
Flytjum ekki inn fél-
agsleg vandamál
Ég gat ekki gripið í taumana og
þótt ég hefði getað það og gert það
þá hefði það eflaust mælst illa fyr-
ir og verið talið dónalegur sletti-
rekuskapur.
Þannig var mál með vexti að
fólkið sem um ræðir var til hliðar
við mig í umferðinni í bíl með alla
glugga lokaða og eiturloftið átti
upptök sín í sígarettu sem konan
svældi yfír bömunum.
Og hvað á að vera að hugsa út
í efnafræði þó að menn brenni sér
tóbak rétt við nefíð á næsta manni,
bami eða ekki bami? Og hvað kem-
ur það yfírleitt öðmm við?
Það er nefnilega bara verið að
„fá sér smók“ ...
Faðir
Til Velvakanda
P.S. skrifar:
Nú heyrast þær raddir meðal iðn-
rekenda að það þurfi að flytja inn
erlent vinnuafl og hafa þeir talað
um að fá Norðurlandamenn í
skamman tíma. Er lítið við því að
segja því þeir em þjóðfélagslega
og menningarlega líkir okkur og
ættu því að aðlaga sig vel að hátt-
um hér. En nú er búið að stofna
fyrirtæki sem á að veita erlendu
fólki atvinnu hér á landi — ekki
aðeins Norðurlandabúum, heldur
fólki úr fjarlægum löndum, gerólíkt
okkur á öllum sviðum, þjóðfélags-
lega sem menningarlega. Em þessir
menn, sem að þessu fyrirtæki
standa, blindir á þá hættu sem slíkt
getur valdið. Við sjáum hvemig
félagsleg vandamál hrannast upp á
hinum Norðurlöndunum og í Þýska-
landi við innflutning gerólíkra
menningarstrauma. Menning ís-
lendinga verður í hættu, öfgahópar
spretta upp, sundmng mun verða
meðal þjóðarinnar. Megi kraftar
Guðs og manna forða okkur frá
þeirri heimsku að flytja inn gerólíkt
afl en fyrir er í landinu.
• i i’í I i n s
Fura — eik — hvítt
H 200 B. 95
D. 54 cm.
Fura — eik — hvítt
H. 200 B. 142
D. 54 cm.
U.860,-
Fura — eik — hvítt
H. 200 B. 96
D. 58 cm.
RennihurAir
Fura — eik
H. 200 B. 144
D. 58 cm.
RennihurAir
19.760 •
Og margar aðrar gerðir.
Útborgun er 30% og að sjálf-
sögðu máttu greiða hana með
Visa og Euro.
Sendum í póstkröfu um allt land.
húsgagiKNiöllin
0
17. r1=i f3TTl I
REYKJAVlK