Morgunblaðið - 08.09.1987, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
65
fundi Verkamannasambandsins:
Ytir undir kröfur um
stofnun sambands
f iskvinnsluf ólks
- segir Hrafnkell A. Jónsson,
formaður verkalýðsfélagsins Árvak-
urs á Eskif irði
„ÞVÍ MIÐUR óttast ég það að varaformanni Verkamannasambands-
ins hafi, á síðustu dö^um sínum þar, tekist að ganga af Verkamanna-
sambandinu dauðu. Ég óttast að þetta séu lok Verkamannasambands-
ins í núverandi mynd,“ sagði Hrafnkell A. Jónsson, formaður
verkalýðsfélagsins Arvakurs á Eskifirði, en hann ásamt fulltrúum
10 annarra verkalýðsfélaga gekk af formannafundi Verkamanna-
sambandsins á sunnudag í mótmælaskyni við það að félagafjöldi
aðildarfélaga sambandsins skyldi ráða við atkvæðagreiðslu um kröf-
ur sambandsins I komandi samningum.
Hrafnkell sagði að það væru
einkum tvær ástæður fyrir út-
göngunni. í fyrra lagi væru fulltrú-
ar þeirra verkalýðsfélaga, sem
gengu út, trúlega í nánara sam-
bandi við fólkið í sínum félögum
og gerðu sér ljósa grein fyrir þeim
kröfum sem þetta fólk gerði. Það
væri rótgróin og almenn óánægja
á meðal fiskvinnslufólks og þegar
þeir gerðu kröfur um laun sem
væru nálægt því sem hægt væri
að framfleyta sér af, þá væru þeir
að koma á framfæri þeim kröfum
sem fólkið hefði sent þá með. Það
hefði viðgengist í kjarasamningum
undangenginna ára að miðað væri
við fiskvinnslufólk og iðnverkafólk
sem botn í verkalýðshreyfíngunni.
Vinnutími verkamanna í fiskiðnaði
hefði lengst um 14% fyrstu þijá
mánuði þessa árs og væri 61,8
stundir á viku og vinnutími kvenna,
sem ynnu í fískiðnaði utan höfuð-
borgarsvæðisins, hefði lengst um
10%. Ástæðan væri að það vantaði
fólk í fískiðnað vegna þess hve kjör-
in væru léleg og fólki byðist betri
kjör í öðrum atvinnugreinum. Þetta
ylli fólksflótta og stöðnun í þeim
byggðarlögum sem byggðu á fisk-
iðnaði.
„Hin ástæðan fyrir því að við
gengum af fundi er einfaldlega sú
valdníðsla, sem við teljum að vara-
formaður Verkamannasambandsins
hafí gert sig sekan um. Það er al-
gjört einsdæmi innan Verkamanna-
sambandsins að þetta ákvæði um
allsherjaratkvæðagreiðslu sé notað
og það þýðir einfaldlega það að
stóru félögin við Faxaflóann, sem
þama ásamt Einingu á Akureyri
stóðu að ákvörðun varaformanns-
ins, deila og drottna ef sú aðferð
er notuð,“ sagði Hrafnkell ennfrem-
ur.
Fulltrúar þessara verkalýðsfé-
laga gengu út af fundi Verka-
mannasambandsins: Bámnnar,
Eyrarbakka, verkalýðsfélags Akra-
ness, Bjarma, Stokkseyri, Stjöm-
unnar, Gmndarfirði, Árvakurs,
Eskifírði, Verkalýðs- og sjómanna-
félags Stöðvarfjarðar, Jökuls,
Ólafsvík, Aftureldingar, Hellis-
sandi, Snótar, Vestmannaeyjum,
Verkalýðsfélags Fljótsdalshéraðs,
Egilsstöðum, og Jökuls, Homafirði.
„Ég þori ekkert að segja um það
hvort þetta verður til þess að sam-
tök fiskvinnslufólks verði stofnuð,
en hitt er mér alveg ljóst að þessir
atburðir eiga eftir að ýta mjög und-
ir kröfur um að það verði gert. Ég
er enn þeirrar skoðunar að það sé
takmarkaður ávinningur í því fólg-
inn að sundra verkalýðshreyfing-
unni umfram það sem orðið er, en
það er ljóst að hreyfing eins og
Verkamannasambandið verður ekki
byggt upp ef einstakir aðilar innan
þess em tilbúnir til þess að ganga
framhjá því að félögin em mis-
öflug. Ég sé ekki annað en að þeir
sem nú veita sambandinu forstöðu
hafí markað þá stefnu að aflið eigi
að gilda og þá reikna ég með því
að smáfuglamir reyni að hópast
saman. Þing Verkamannasam-
bandsins er framundan og við
munum væntanlega sækja það
þing. Hvort þar verður tekist á um
líf og dauða sambandsins er stóra
spumingin," sagði Hrafnkell að lok-
um.
V erðtilboð Krossanesverksmiðjunnar:
„Verður vonandi til
að menn samþykki
fnálst loðnuverð
- segir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ
„VIÐ erum ánægðir með frumkvæði Krossanesmanna og teljum
þetta verðtilboð vel þess virði að skoða það nánar,“ sagði Sveinn
Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, er hann var spurður um viðbrögð útvegsmanna við
verðtilboði Krossanesverksmiðjunnar á Akureyri í loðnu, og
greint var frá í frétt Morgunblaðsins á sunnudag. Þar er gert
ráð fyrir að verksmiðjan greiði 3.000 krónur á hvert tonn fyrir
fyrsta farm, 2.500 krónur fyrir annan farm og síðan 1.800 til
2.000 krónur fyrir hvert tonn eftir ferskleika hráefnisins og
sagði Sveinn Hjörtur, að hér væri um að ræða mun betra verð,
en það sem Þjóðhagsstofnun hefði reiknað út að meðalverk-
smiðja gæti borgað.
Sveinn Hjörtur taldi að með
þessu verðtilboði Krossanesverk-
smiðjunnar væri komin ákveðin
viðmiðun, sem hugsanlega gæti
haft áhrif á ákvörðun yfirnefndar
varðandi loðnuverð. „Ef til vill og
vonandi verður þetta til að ýta
undir að menn samþykki fijálst
loðnuverð, sem við höfum að-
hyllst, enda sýnir þetta glögglega
að greiðslugeta verksmiðjanna er
mjög misjöfn," sagði Sveinn
Hjörtur.
Ákveðið hefur verið að fjalla
um mál þetta á stjómarfundi
Síldarverksmiðja ríkisins í þessari
viku en talsmenn verksmiðjanna
vildu ekki tjá sig um málið fyrr
en að loknum þeim fundi. Bene-
dikt Valsson, hagfræðingur hjá
Þjóðhagsstofnun og oddamaður í
yfímefnd, kvaðst heldur ekki geta
sagt um hvort þetta tílboð Krossa-
nesverksmiðjunnar kæmi til með
að hafa áhrif á loðnuverðsákvörð-
un, en næsti fundur í yfímefnd
hefur verið boðaður á morgun,
miðvikudag.
Haustnámskeiöin hefjast 14. sept.
Gestakennari Kramhússins og jafnframt aöal danskennari vetrarins
er Bandaríkjamaöurinn Cle’ H. Douglas. Hér er á ferðinni víöfrægur
og fjölmenntaöur danshöfundur og listdansari.
Viö bendum sérstaklega á eldfjörugt námskeiö hans í Afrocarabian
jassdönsum, sem er mjög aðgengilegt fyrir alla sem vilja ná mýkt
í líkamann — meö ómótstæðilegri danstónlist.
Leikfímí fyrir alla:
• Gamla, góða leikfimin fyrir byrjendur og framhaldshópa. Léttir tímar og púltimar.
• Dansleikfimi fyrir þá sem vilja mikia hreyfingu — með sveiflu. Ljósi punkturinn
í skammdeginu.
• Rólegir teygjutímar. Áhersla lögö á mýkt, slökun og öndunaræfingar. Sérstaklega
ætlaö þeim sem þjást af streitu.
Timar viö allra hæfi frá morgni til kvölds. Hádegistimar: — Sértímar fyrir konur,
sértímar fyrir karla. Einnig getum viö skipulagt tíma fyrir sérhópa.
Önnur námskeið Kramhússins:
• Leikiist fyrir börn og unglinga. Námskeiö sem þroskar og styrkir sjálfsímyndina.
• Leikir, dans og riðþmi fyrir börn frá 4 ára aldri. Ath! Þessir timar eru á laugardögum.
Á sama tíma bjóöum viö upp á foreldraleikfimi. Heilsubætandi stund fyrir alla fjölskylduna.
• Rock’n’ Roll. Læröu aö tjútta hjá meistara tjúttsins: Diddu Rokk.
• Dansspuni. Vinsælt námskeiö fyrir þá sem vilja öðruvísi útrás.
. . . og síðast en ekki síst:
• Nútímadans, ballet, stepp, jassdans og Afrocarabian jass hjá Cle’ H. Douglas.
Gæöa námskeiö fyrir byrjendur og framhaldshópa. Ath! Sértímar á nútimadansi fyrir
þá sem eru lengra komnir á laugardögum frá kl. 14.00—16.00.
Allt þrautreyndir þjálfarar.
kSRAm
HÚ5I&
Innritun hafin! Símar: 15103 og 17860. Pantid strax!
-f-o+^x >*f-5
S _
- s
s
s