Morgunblaðið - 12.09.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
I
Samvinnuskólinn settur:
Háskólastig í
undirbúningi
SAMVINNUSKÓLINN á Bifröst
var settur í 70. sinn þriðjudag-
inn 8. september sl. og fram-
haldsdeild Samvinnuskólans í
Reykjavík verður sett 15. sept-
ember nk. Samvinnuskólinn
hefur tekið miklum stakka-
skiptum og starfar nú aðeins á
3. og 4. námsári framhalds-
skólastigsins, en inntökuskil-
yrði er almennt verslunarpróf
eða sambærileg menntun og
Samvinnuskólaprófið er nú
hliðstætt stúdentsprófi og veitir
inngöngu til háskólanáms.
í vetur stunda 112 nemendur
nám við Samvinnuskólann auk
þeirra sem þátt taka í starfs-
fræðslu skólans fyrir samvinnu-
hreyfinguna. í vetur verður m.a.
haldið áfram með sérhæfðar
námsbrautir fyrir starfandi versl-
unarstjóra, verkstjóra í fisk-
vinnslu, skrifstofustjóra og
tölvustjóra auk annarra styttri
námskeiða fyrir verslunar- og
skrifstofufólk.
í tengslum við þær miklu breyt-
ingar sem orðið hafa á skólaskipan
Samvinnuskólans setti stjóm Sam-
bandsins honum nýja reglugerð á
sl. sumri. Meðal þess sem nú er í
undirbúningi á vegum skólans er
ný framhaldsdeild sem mun veita
menntun í rekstrarfræðum á há-
skólastigi, en þessi starfsemi hefst
væntanlega að ári, segir í frétt frá
skólanum.
Síðasti geymirinn rís
Verið er að ljúka við að reisa hitaveitugeym- verði lokið fyrir áramót. „Síðan kemur glæsi-
anna á Öskjuhlíðinni og er unnið við síðasta legasta veitingarhús í Norður Evrópu ofna
geyminn af sex. Að sögn Jóhannesar Zoega á geymana og verður byijað á undirstöðum
hitaveitustjóra standa vonir til að verkinu í vetur.“
VEÐUR
Selfoss:
/ DAG kl. 12.00:
f r
f f f f
Heimild: Veóurstofa (slands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 12.09.87
YFIRUT á hádegi í gær: Hæð yfir Grænlandi, en lægðir aöallega
fyrir austan og sunnan land. Gætu þó verið nónast yfir Suðurlandi
á mánudag.
SPÁ: I dag verður austan- og noröaustanátt á landinu, víðast kaldi
eða stinningskaldi. Dálítil rigning verður á Suðaustur- og Austur-
landi og vestur með suðurströndinni, en smáskúrir á víð og dreif
á öðrum landshlutum. Hiti 8—12 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
SUNNUDAGUR: Noröaustlæg átt. Dálítil rigning við norðurströnd-
ina, skúrir austanlands og líklega vestur með suðurströndinni, en
þurrt vestanlands. Hiti 4—7 stig á annesjum norðanlands, en 8—11
stig sunnanlands.
MANUDAGUR: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og einhver
úrkoma víða um land, einkum um sunnanvert landið. Hiti 6—11 stig.
V; x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- -j o Hitastig:
10 gráður á Cels
stefnu og fjaðrirnar SJ Skúrir
Heiðskirt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * / * ’, ’ Súld '
/ * / * Slydda OO Mistur
Skýjað / * /
* * * —j- Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * j~<^ Þrumuveður
—
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að isl. tíma
Akureyri
Reykjavík
hitl veftur
9 ikýjaft
11 úrkomafgr.
Bergen
Helsinki
Jan Mayen
Kaupmannah.
Narsaarssuaq
Nuuk
Oaló
Stokkhótmur
Þórahöfn
12 akýjað
14 8kýjað
6 akúráa. klat.
18 hólfakýjaS
4 súíd é s. klst.
4 láttskýjaS
14 skýjað
16 akýjað
11 láttakýjað
Algarve
Amaterdam
Aþena
Barcelona
Berlfn
Chlcago
Feneyjar
Frankfurt
Giaagow
Hamborg
Laa Palmas
London
Loa Angeles
Lúxemborg
Madrfd
Mallorca
Montreal
NewYork
Paria
Róm
Vín
Waahington
Winnipeg
27 heiðaklrt
18 léttakýjað
30 heiðakfrt
27 léttskýjað
18 skýjað
14 þokumóða
24 þokumóða
14 súld
16 skýjað
18 akúr
30 heiðskirt
19 skýjað
18 þokumóða
14 alskýjað
28 heiðakfrt
27 mlatur
29 léttskýjað
14 skýjað
20 þokumóða
18 rlgn. é a. klst.
27 léttskýjað
21 rignlng
22 þokumóða
8 þokumóða
Búast við að 800 manns
fari á leikinn við Víking
Selfossi.
„ÉG Á EKKI von á öðru en það
verði um 800 manns á Valbjarn-
arvelli á morgun,“ sagði Stefán
Garðarsson formaður knatt-
spyrnudeildar Ungmennafé-
lags Selfoss, en þá leikur
Selfossliðið sinn þýðingarmesta
leik til þessa, um sæti í 1. deild
að ári.
„Við verðum komnir snemma á
völlinn til að láta okkar menn vita
um stuðninginn," sagði Stefán
Garðarsson. Sætaferðir verða á
leikinn frá Selfossi auk þess sem
menn fara á einkabílum enda er
Laugardalurinn innan seilingar
líkt og 1. deildarsætið að mati
margra Selfossbúa. Stefán sagði
að menn væru hóflega bjartsýnir
á sigur í leiknum en ef svo fer er
það mesta afrek knattspymu-
manna Selfyssinga til þessa.
— Sig. Jóns.
Borgarráð:
Skoðun launamála vís-
að tíl launamálanefndar
BORGARRÁÐ samþykkti að
visa tillögu borgarfulltrúa
minnihlutaflokkanna, um skoð-
un launamála starfsmanna, sem
vinna við umönnun og hjúkrun,
til launamálanefndar.
Vandi dagvistarstofnana
Reykjavíkurborgar vegna mann-
ekla var til umræðu á fundi
borgarstjómar 3. september
síðastliðinn. Var samþykkt að vísa
tillögu minnuhlutaflokkanna til
borgarráðs, sem nú hefur vísað
henni áfram til launamálanefndar
og starfsmannastjóra til meðferð-
ar við gerð kjarasamninga.
Að sögn Bergs Felixssonar
framkvæmdastjóra Dagvistar
bama vantar enn 80 starfsmenn
á dagvistarheimili borgarinnar og
em 11 deildir lokaðar af þeim sök-
um.
Nýr framkvæmdastjóri SH
Á STJÓRNARFUNDI Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í
gær sagði Ólafur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri framleiðslu-
mála, starfi sínu lausu, þai* sem
hann hefur gerst eigandi að
Hraðfrystihúisi Ólafsvíkur hf.,
Ólavík, ásamt fleirum. Hann
mun taka við rekstri fyrirtækis-
ins á næstunni.
í framhaldi þessa var sú breyt-
ing gerð á framkvæmdastjóm SH,
að Hjalti Einarsson, framkvæmda-
stjóri, verður framkvæmdastjóri
framleiðslumála og Sturlaugur
Daðason, verkfræðingur, fram-
kvæmdastjóri tækni- og eftirlits-
mála, jafnframt því sem
Innkaupadeild SH heyrir undir
----------------- 1 hans sUrfssvið. &UtiÉÍ