Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
63
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Frábær
árangur
Leifturs!
Upp úr þriðju deild í lýrra og
nú beint upp í þá fyrstu
ÞAÐ var svo sannarlega
ástæða fyrir leikmenn Leifturs
,og þá fjölmörgu áhorfendur
sem fylgdu þeim til Reykja-
víkur, að fagna í gærkvöldi.
Leiftur vann þá Þrótt 2:1 í
síðasta leik sínum í 2. deildinni
og tryggði sér þar með sæti í
1. deild að ári. Stórkostlegur
árangur hjá Ólafsfirðingum
sem komu upp úr þriðju deild
ífyrra undir stjórn Óskars Ingi-
mundarsonar, höfðu þar stutt-
an stans, og eru nú komnir í
1. deild undir hans stjórn.
Sannarlega frábær árangur
sem seint verður leikinn eftir.
Leikurinn í gær var ekkert sér-
stakur enda of mikið í húfi til
að búast mætti við góðum leik.
Þróttarar voru heldur betri aðilinn
en þeim tókst ekki
Skúli Unnar að skora þrátt fyrir
Sveinsson að þeir fengju góð
skrifar færi til þess.
Steinar Ingimund-
arson skoraði fyrsta mark leiksins
á 18. mínútu. Hann komst inn fyr-
ir vöm Þróttar eftir góða sendingu
frá Róbert Gunnarssyni. Þorvaldur
Jónsson markvörður og fyrirliði
Leifturs bjargaði síðan tvívegis frá-
bærlega af tám Þróttara áður en
dæmd var vítaspyma á Leiftur.
Daði Harðarson tók spymuna en
Þorvaldur gerði sér lítið fyrir og
varði. Þetta var önnur vítaspyman
sem dæmd er á Leiftur í sumar og
Þorvaldur varði báðar.
Halldór Guðmundsson skoraði ann-
að mark Leifturs strax á 47.
mínútu. Óskar komst inn í sendingu
til markvarðar Þróttar, lék á hann
og gaf á Halldór sem spymti við-
stöðulaust efst í markhomið.
Pallegt mark.
Mínútu síðar minnkaði Sverrir Pét-
ursson muninn. Hann skoraði af
stuttu færi úr þvögu á markteig.
Þróttur sótti nú mikið en Leifturs-
menn áttu ekki í nokkram erfiðleik-
um að veijast máttleysislegum og
óskipulögðum sóknum þeirra.
Steinar komst í gott færi en Guð-
mundur varði vel og undir lokin
fengu Þróttarar tvö góð færi en
skutu langt framhjá í fyrra skiptið
og vamarmaður bjargaði seinna
skotinu í hom.
Áhorfendur á Þróttarvelli vora fjöl-
margir og flestir hvöttu Leifturs-
menn. Þeir bragðust heldur ekki
stuðningsmönnum sínum og unnu
frækilegan sigur og draumurinn,
sem flestir töldu aðeins draum,
rættist! Einn áhorfenda var svekkt-
astur yfir því að deildimar skildu
ekki vera fleiri því þá gæti Leiftur
haldið áfram að vinna sig upp.
Bestir í liði Leifturs vora Þorvaldur
markvörður, Róbert Gunnarsson,
Gústaf Ómarsson og Steinar Ingi-
mundarson en hjá Þrótti voru
Guðmundur markvörður og Kristj-
án Svavarsson bestir.
Maður leiksins: Þorvaldur Jónsson, Leiftri.
„Stórkostlegt" sagöi hetjan og
fyririiöinn Þorvaldur Jónsson
etta er alveg stórkostlegt",
sagði Þorvaldur Jónsson mark-
vörður og fyrirliði Leifturs á eftir.
„Við vissum að þessi leikur yrði
mjög erfiður og það kom á daginn.
Þetta var annar sigur okkar á úti-
velli í sumar og það var því á
brattann að sækja hjá okkur. Við
voram ákveðnir í að selja okkur
dýrt, lékum með hjartanu, og það
tókst.
Það var markmið okkar að halda
okkur í deildinni en ég sagði sjálfur
að það væra jafnir möguieikar að
komast upp og að falla. Enda kom
það á daginn því línumar skýrðust
ekki fyrr en nú í slðustu umferðun-
um.
Ég veit ekki hveijir koma með okk-
ur upp en Selfyssingar selja sig
dýrt á morgun," sagði Þorvaldur.
Því má bæta hér við að Selfyssing-
ar mega eiga von á miklum stuðn-
ingi Olafsfirðinga á leiknum gegn
víkingum á morgum. Stuðnings-
menn Leifturs höfðu varla lokið að
fagna sigri sinna manna í gær er
þeir hófu upp rausn sína aftur:
„Áfram Selfoss! Áfram Selfoss!"
Hreykinn af strákunum
Eg er auðvitað í sjöunda himni
og virkilega hreykinn af strák-
unum, þeir hafa lagt sig alla fram
um að ná árangri í sumar og nú
hafa þeir uppskorið eins og til var
sáð,“ sagði Óskar Ingimundarson
þjálfari Leifturs að leikslokum í
gær.
„Áhorfendur hafa stutt vel við bak-
ið á okkur og þessi árangur er líka
mikið þeim að þakka. Við voram
ef til vill lakari aðilinn í leiknum í
kvöld en eftir að við komumst í 2:0
vörðumst við vel. Það var markmið
okkar að halda okkur í deildinni en
nú eram við komnir upp!,“ sagði
Óskar.
Það er ljóst að Leiftursmenn leika
mestan hluta næsta keppnistímabils
á malarvelli, sem er reyndar mjög
góður, en að sögn óskars gæti
hugsast að grasvöllurinn yrði tilbú-
inn síðari hluta næsta sumars.
Óskar sagði að ekki væri farið að
ræða hvort hann yrði áfram með
liðið og ekki heldur hvort einhveijir
menn yrðu fengnir norður til Ólafs-
fjarðar til að styrkja liðið í fyrstu
deildar baráttunni.
Fyrsta deild!
Ólafsfirðingar fögnuðu inni-
lega á Þróttarsvæðinu við
Sæviðarsund í gærkvöldi er
þeir tryggðu sér sæti í 1.
deildinni á næsta ári. Árang-
ur þeirra er ævintýri líkastur,
liðið sigraði í 3. deild í fyrra
og staldraði því aðeins eitt
ár við í annari deild. Að ofan
fagna nokkrir stuðnings-
manna liðsins, til hliðar er
einkennandi mjmd: Óskar
Leifturs-þjálfari yfir Guð-
mundi Þróttarmarkverði eftir
annað mark Ólafsfirðing-
anna. Hér að neðan er
Þorvaldur Jónsson, fyrirliði
Leifturs.
Morgunblaðið/Bjarni
KORFUKNATTLEIKUR
IMaumt tap
gegn Dönum
Islenska landsliðið í körfuknattleik tapaði öðram leik sínum
í Evrópukeppninni í körfubolta í gærkvöldi. Nú voru það
Danir sem höfðu betur, þeir unnu 76:73 eftir að staðan í
leikhleí hafði verið 41:38. Danir skoruðu þriggja stiga körfu
11 sekúndum fyrir leikslok eins og á Norðurlandamótinu í
fyrra. Okkar menn reyndu þriggja stiga skot en það mis-
tókst. Draumurinn er þó ekki búinn því ef við vinnum Sviss
með fímm stigum í dag þá komumst við áfram. Valur Ingi-
mundarson átti stórleik, skoraði 26 stig og Birgir Mikaelsson
gerði 16 stig og Jóhannes Kristbjömsson lék frábærlega í
vöminni. Frakkar unnu Syisplepdinga ,1,04^8 „
HANDKNATTLEIKUR
Svissneskt lið
vildi Ið Jakob
Jakob Jónsson, KA-maður á Akureyri, fékk á dögunum
tilboð um að koma til Sviss og leika með einu af bestu
félagsliðunum þar í landi. Ekkert verður hins vegar af för
hans þangað. Tímabil félagaskipta í Evrópu er liðið. Hann
gæti því ekki skipt nema með undanþágu frá félagi sínu og
HSÍ, „og KA menn vilja ekki leyfa mér að fara. Það er
auðvitað skiljanlegt og ég verð að sætta mig við það,“ sagði
Jakob í samtali við Morgunblaðið. Liðið sem gerði honum
tilboð heitir BSV Bem og lenti í öðra sæti svissnesku 1.
deildarinnar í fyrra að sögn Jakobs. Liðið tekur þátt í Evrópu-
^^afhafa í vetur-Iá i níU*nábn.;ú.>í4 i tllsvdö s
FRJALSIÞROTTIR
Einar 5. á
stigamótinu
Einar Vilhjálmsson varð í fímmta sæti í spjótkasti á loka-
móti Grand Prix-mótanna í Brassel í gærkvöldi og í
sama sæti í stigakeppninni. Hann varð því 4.000 dollurum
ríkari í gær, en það era rúmlega 150.000 krónur. Einar vann
í gærkvöldi þijá úrslitamenn frá HM í Róm, kastaði 77,56
metra. Rússinn Yevsyukov kastaði 84,02 og varð þriðji að
stigum. Tom Petranoff kastaði 83,24 og varð stigahæstur.
Heimsmethafínn Jan Zelezny kastaði 79,26 og varð fjórði
að stigum, tveimur á undan Einari. Evrópumeistarinn Tafel-
meier kastaði 78,16, Bretinn Hill 77,54, en hann varð annar
fið,stigum, og Syíinn.Borglund 77,52.
^nr nirr iTnsnvio ;nr,j.3c míurJ niinuósnnlisl