Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 25 takmarkalaus. Hann skattlagði alla, kristna sem heiðna, rændi hof heiðinna manna og varð sér hvarvetna út um fé. Af þessu varð hann auðvitað óvinsæll, lýð- urinn reis upp og rak hann úr embætti, en hermenn Konstatin- usar komu honum til hjálpar og settu hann aftur í stöðu erkibis- kups. Svo fór þó að lokum, að nýr keisari tók við völdum. Æstir íbú- ar Alexandríu hugðu nú á hefndir. Tóku Georg og tvo nánustu og gráðugustu samstarfsmenn hans höndum og stungu þeim í dý- flissu. Liðu svo 24 dagar án þess nokkuð væri gert. Brast þá lýðinn þolinmæðin, dýflissan var brotin upp og þeir þremenningar teknir, myrtir og síðan var farið með þá í sigurgöngu um borgina, áður en þeim var fleygt í sjóinn. Aríarnir litu upp frá þessu á heilagan Georg sem píslarvott, er hann hafði fallið fyrir hendi heið- ingjanna, og var hann kanóniser- aður skömmu síðar. Aríamir sameinuðust seinna öðrum kristn- um söfnuðum og fluttu vemdar- dýrling sinn með sér. Þeir hinir voru í fyrstu á báðum áttum hvemig ætti að meðhöndla heilag- an Georg, en með tímanum féll allt í Ijúfa löð og um 600 árum eftir Krist var heilagur Georg orð- inn fyrsta klassa dýrlingur. Krossferðinar urðu tli að auka frægð hans því hann átti að hafa barist með Guðfrey af Bouillon í orrustunni um Antiokkíu og sagt var að hann hefði birst Ríkharði ljónshjarta fyrir orrustuna við Acre, sem boðberi sigurs. Varð heilagur Georg upp frá því vemd- ari riddara og vopnaburðar. Ekki er að efa það, að til em margar miðaldafrásagnir af hei- lögum Georg, og gætu verið skemmtilegar aflestrar, en hér er aðeins minnst á þessar tvær. Það er reyndar aðeins til að vekja at- hygli á myndinni fögru, sem Pistucci hefír gert og sjá má á myntinni. I myntsafni Seðlabankans og Þjóðminjasafnsins við Einholt 4 í Reykjavík eru til margir peningar með mynd Pistuccis, bæði frá Bretlandi, eynni Mön og ríkjum, sem eru eða hafa verið í konungs- sambandi við Bretland. Safnið er opið á sunnudögum milli klukkan 2 og 4. Starfsemi Myntsafnarafélags- ins er nú hafín að nýju, eftir sumarfríið. Kvöldfundir eru á fímmtudögum milli klukkan 20 og 22 í félagsheimilinu á Amt- mannsstíg 2. Vetrarstarf Myntsafnarafélags íslands er hafið með kvöldfund- um, sem eru alla fimmtudaga kl. 20—22, á Amtmannsstíg 2. Á morgun er svo fyrsti uppboðs- og skiptafundurinn, og hefst klukkan 14.30 í Templarahöllinni. Þeir, sem vilja kynnast starfi félagsins eru velkomnir bæði á kvöld- og skiptafundina. Metsölublað á hverjum degi! Tvibokur tvíbakaðar - nýbakaðar nákvæmlega eíns og tvíbökur eiga að vera. FRÁBÆRT VERÐTILBOÐ Á LJÚFFENGUM HELGARMAT! Rauðvínslegin lambalæri. Kryddlegin lambalæri og sérlega meyrt og Ijúffengt lambakjöt sem þið getið kryddað eftir eigin smekk. -Náttúruafurð sem bráðnar uppi í manni. HAGKAUP SKEIFUNNI KRINGLUNNI KJÖRGARÐI AKUREYRI NJARÐVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.