Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 50 Minning: Friðrik Sigvrðs- son, Sauðárkróki Fæddur 22. maí 1917 Dáinn 5. september 1987 í hinu merka ritverki, Sögu Sauð- árkróks, sem út kom 1971, má lesa um þróun byggðarinnar frá því fyrsti íbúinn settist þar að og þar til kaupstaðarréttindi voru fengin 1947. Þá var farið að kalla Krókinn bæ og íbúana bæjarbúa. Þetta er hin fróðlegasta og skemmtilegasta lesning. Frásögnin er ljóslifandi og myndrík og nærri fer að maður skyrji aldaranda og andrúmsloft sem ríkjandi var á hveijum tíma. Og þá ekki síður afkomu íbúanna, kjör þeirra og hina daglegu lífsbar- áttu. Að skapa heilt bæjarfélag, leiða það til þroska, álits og trausts er ekki verk fárra manna. Það er verk íbúanna allra, þar sem hver heflr sitt hlutverk. Sumir veljast til forystu, aðrir vinna sín störf á hljóð- an og hógværan hátt. Þátttakendur í þessu starfl á Sauðárkróki hafa verið sl. 50 ár hjónin Friðrik Sig- urðsson og Brynhildur Jónasdóttir á Hólavegi 3. A sinn hátt hafa þau markað sín spor og eiga sinn þátt í þróun mannlífsins undir Nöfunum. Friðrik Sigurðsson fæddist að Steiná í Svartárdal, sonur hjónanna Ingibjargar Sigurðardóttur og Sig- urðar Jakobssonar. Alsystkini Friðriks eru Stefán og Jakob, bænd- ur að Steiná, Lilja, búsett á Akureyri og Pálmi og Sigríður bú- sett í Reykjavík. Hálfbróðir var Pétur Pétursson á Höllustöðum. Sjáifsagt hefur verið um að kenna landlægri fátækt að Steinárhjónin létu bamið frá sér fárra mánaða og var hann tekinn í fóstur að Valadal á Skörðum. Hjá hjónunum þar, þeim Guðríði Pétursdóttur og Friðriki Stefánssyni, ólst hann upp. Fóstursystkini hans voru þau Stef- án í Glæsibæ, Helga á Krithóli og Sigþrúður á Gili í Svartárdal. Var gott samband og kært með þeim systrum og Friðriki. Framan af voru störf Friðriks við akstur við vega- og hafnargerð, vinna á jarð- ýtum og um árabil var hann með bíla á vegum Kaupfélags Skagflrð- inga í akstri til Reykjavíkur og Akureyrar. Árið 1948 hóf hann störf á bifreiða- og vélaverkstæði KS og þar vann hann allt þar til yflr lauk. Þau Brynhildur og Friðrik hófu sambúð 1936 og á árinu 1937 sett- ust þau að á Sauðárkróki. Þeim fæddust tvö böm, Hólmfríður, f. 3. júlí 1937. Hún er gift þeim er þetta ritar og eiga þau þijú böm og þijú bamaböm. Drengur er hlaut naftiið Stefán Jónas fæddist í jan- úar 1941 en lést í desember sama ár. Frá árinu 1948 ólst upp hjá þeim Hildur Bjamadóttir, f. 8. febr- úar 1948. Hún er gift Bjama Thors; búa þau í Reykjavík og eiga þau þijú böm. Friðrik lét sig málefni samfélags- ins miklu varða. Hann var félags- málamaður, kom víða við og sinnti öllum málum sem honum vom falin ábyrgð á af kostgæfni og trú- mennsku og jafnan á þann veg að hann ávann sér meira traust sam- borgaranna sem þeir á einn og annan hátt fólu honum meiri störf. Hann var mikill og einlægur mál- svari jafnaðarstefnunnar og í fylkingarbijósti verkamanna á Sauðárkróki var hann í áratugi, eða þar til hann lét af formennsku í Verkamannafélaginu Fram árið 1966, en það hafði hann þá verið í 6 ár. Þar áður hafði hann verið í ýmsum trúnaðarstörfum félagsins frá því á 5. áratugnum. Á þessu tímabili sat hann mörg ASI-þing og ýmsa aðra þá fundi sem til- heyrðu. Hann hafði orð á sér sem harðsnúinn og snjall samningamað- ur, en á þeim árum samdi hvert félag á heimavelli. Með síðustu verkum hans á vettvangi félagsins var að sækja um aðild að Alþýðu- sambandi Norðurlands og að félögin á Sauðárkróki sameinuðust um kaup á orlofshúsi að Illugastöðum. Friðrik sat löngum í stjóm Bygg- ingarfélags verkamanna, meðan það starfaði og var formaður þess um skeið. Sat síðar í stjóm verka- mannabústaða. Formaður Alþýðu- flokksfélagsins var hann um skeið og mun hafa setið allmörg flokks- þing fyrr á ámm. Fulltrúi starfs- manna í stjóm Kaupfélags Skagfírðinga var hann um skeið. Þá var hann einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Sauðárkróks og for- maður hans í eitt ár. Hann kom nálægt bæjarmálum um tíma og svo mætti lengur telja. Hann bjó yfir mikilli þekkingu og reynslu og það getur sá er þetta ritar borið um að gott var að fara í smiðju til hans, ræða málin og þiggja góð ráð ef vanda bar að höndum. Af þessum störfum — og raunar lífshlaupi sínu öllu hlaut hann traust og tiltrú. Hann var því markinu brenndur að telja ekki stundimar sem í þessi störf fóm eða heimta daglaun að kveldi. Segja má að ævistarf hans hafi verið aðhlynning og viðgerðir á búvélum skagfírskra bænda og við hin daglegu störf ávann hann sér ekki síður traust en við félags- málin. Af honum fór það orðspor um landið að hann læknaði kvilla í dráttarvélum og öðmm land- búnaðarverkfæmm öðmm mönnum betur. Fyrir þetta fékk hann sér- staka viðurkenningu — en það var nánast tilviljun að hans nánustu fengu um þetta að vita. Friðrik var í lægra meðallagi á vöxt og þéttvaxinn. Bjartur yfírlit- um, vel farinn í andliti, með einbeitt og ákveðið svipmót. Hann var snjall fundamaður, vel máli farinn, rök- fastur og gat verið mikill mála- fylgjumaður til sóknar og vamar hveijum þeim málstað sem honum þótti réttastur vera. Hin síðari árin fækkaði ferðum hans í ræðustól á mannafundum, en þeim mun meirar var eftir því hlustað hvað hann hafði til málanna að leggja. Hann hafði ríka réttlætiskennd og fljótur til vamar fyndist honum ómaklega að einhveijum vegið. Minning: Fædd 4. desember 1891 Dáin 31. ágúst 1987 Tengdamóðir mín, Ingveldur Sig- urðardóttir, lést í sjúkrahusinu í Keflavík 31. ágúst sl. á 96. aldurs- ári. Þessi öðlingskona hefur lokið lífsgöngu sinni. Hún verður borin til moldar í átthögunum undir Jökli í dag. Mig langar til að minnast Ing- veldar með nokkrum orðum. Hún fæddist á Öndverðamesi á Snæ- fellsnesi 4. desember 1891. Foreldr- ar hennar voru þau Guðrún Cýrusdóttir og Sigurður Gilsson. Ingveldur giftist Pétri Magnússyni sjómanni og bjuggu þau alla sína búskapartíð á Hellissandi, fyrst á Bakka, þá á Sæbóli en síðast á Staðarhóli. Pétur lést 23. febrúar 1937 aðeins 45 ára að aldri. Hann féll frá stómm bamahópi en þau áttu 8 böm. Böm Ingveldar og Péturs vom Sigurður, kvæntur Vigdísi Jóns- dóttur, búsettur í Keflavík; Hulda, gift Guðbrandi Magnússyni, en þau em bæði látin. Síðast áttu þau heima í Njarðvíkum. Næst í röðinni var Unnur, en hún er einnig látin; eftirlifandi maður hennar er Páll Sigurðsson í Njarðvíkum. Þá kemur Guðmundur, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, búsettur í Garði; Guð- flnna, gift Ólafi Guðmundssyni, búsett erlendis; Vigfús, kvæntur undirritaðri, búsettur á Hellissandi; Cýms, sem lést nokkurra mánaða gamall; og yngstur var Herbert en hann dó úr bamaveiki aðeins 8 ára. Skammt var stórra högga á milli þegar Ingveldur missti yngsta son sinn og eiginmann með aðeins tveggja ára millibili. En hún var dugleg og kjarkmikil kona sem efld- ist við hveija raun. Þó að erfitt væri að framfleyta stórri fjölskyldu réðst hún nokkm seinna í að byggja sér lítið hús með aðstoð sonanna og nefndi það Hrönn. Hún batt mikla tryggð við það. Við Vigfús, sonur Ingveldar, stofnuðum heimili okkar á Gimli, í næsta húsi við hana, árið 1956. Honum var alltaf umhugað um móður sína, enda eina barn hennar s'em átti heima á Sandi. Við byggð- Fráfall Friðriks bar skyndilega að og óvænt. Hann var búinn að fá rækilega aðvömn. En eigi að síður var það snöggt og sárt. Og hans er saknað — og sorgin er sár. En minningamar sem við eigum em góðar. Þær hugga og verma okkur sem emm á bakkanum héma meg- in. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Haf þú þökk fyrir ailt og allt. Jón Karlsson um við Hrönn og fluttumst svo til Ingveldar tveim ámm seinna. Við héldum heimili með henni í 18 ár. Tengdamóðir mín reyndist mér afskaplega vel og var mikill styrkur að henni við uppeldið á bömum okkar, Þeim þótti mjög vænt um hana og vildu allt fyrir hana gera. Hún var þeim ekki bara amma held- ur einnig góður félagi. Ingveldur var hlédræg en ákaf- lega tryggur vinur. Hún var sein- tekin en ef henni líkaði vel við fólk tók hún því vel og vildi allt fyrir það gera. Þó hún væri hlédræg var hún félagslynd og tók mikinn þátt í starfsemi Leikfélags Hellissands hér fyrr á ámm og lék oftar en einu sinni aðalhlutverkið í leikritum þess, — jafnvel þó hún þyrfti að syngja. Ingveldur starfaði hjá Hrað- frystihúsi Hellissands í áratugi og var nálægt áttræðu þegar hún lét af störfum. Þar vann hún við hand- flökun og stóð karlmönnunum ekki að baki. Hún var einkar samvisku- söm og ósérhlífín. Árið 1978 fluttist Ingveldur til Unnar, dóttur sinnar og tengdason- ar í Njarðvíkum. Þar dvaldist hún um skeið á meðan dóttir hennar lifði. Það var henni mikið áfall þeg- ar hún féll frá. Hún bjó áfram um tíma hjá Páli tengdasyni sínum. 1985 fór hún á sjúkrahúsið í Keflavík og var þar til hinstu stund- ar. Þegar góður vinur fellur frá er margs að minnast og þakka. Ing- veldur hafði margt að gefa öðmm og var traustur lífsfömnautur. Hún fékk hægt andlát að kvöldi síðasta dags ágústmánaðar og fylgdi sól- inni til viðar. Hennar bíður nú hvíla í nýjum heimi. Megi góður Guð blessa minningu tengdamóður minnar. Guðrún Guðlaugsdóttir Útför tengdamóður minnar, Ing- veldar Sigurðardóttur, fer fram í dag frá Ingjaldshólskirkju. Lokið er langri og starfsamri ævi dugnað- arkonu. Hún fæddist að Öndverðamesi á Friðrik Sigurðsson er allur. Að morgni sl. laugardags barst sú fregn um litla bæinn við Skaga- Qörð, að hann hefði orðið bráð- kvaddur í Reykjavík, þar sem hann var staddur á ferðalagi. Friðrik var fæddur þ. 22. maí 1917 og var því réttra 70 ára er dauðinn kvaddi dyra. Ætt hans og uppvexti munu aðrir lýsa er betur kunna frá að segja, en hér á Sauðár- króki stóð heimili hans og Bryn- hildar Jónasdóttur, konu hans og hér varði hann starfsdegi sínum. Lengst af var hann starfsmaður Kaupfélags Skagflrðinga, eða í rúm fjömtíu ár. Nú þann 1. september sl. var liðið 41 ár frá því hann hóf þar störf, og vann hann því fyrir- tæki jafnan af fágætri trúmennsku. Hafði hann óskorað traust jafnt yfirmanna sem samstarfsfólks, og er það ef til vill skýrasti votturinn um álit annarra starfsmanna fé- lagsins á honum, að þegar þeir fengu í fyrsta skipti rétt til að kjósa fulltrúa til setu í stjóm kaupfélags- ins, hlaut hann yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Var hann síðan endurkjörinn til þess hlutverks eins lengi og reglur starfsmannafélags- ins leyfðu. Friðrik tók þess utan virkan þátt í félagsstarfi kaupfélagsins, var um skeið deildarstjóri stærstu félags- deildarinnar, Sauðárkróksdeildar, og fulltrúi hennar á aðalfundum félagsins í fjölda ára. í félagsstarfí var Friðrik ákaflega tillögugóður og réttsýnn. Honum lá ekki hátt rómur, og margorður var hann ekki, en þegar hann talaði hlustuðu menn Snæfellsnesi 4. desember 1891 og því hátt á 96. aldursári er hún lést í sjúkrahúsi Keflavíkur 31. ágúst sl. Hún var elst 6 bama Sigurðar Gilssonar og Guðrúnar Cýrusdóttur, sem bjuggu á Sandi og í Ólafsvík, þar sem Guðrún var ljósmóðir og kaupkona fádæma dugleg eins og hún átti kyn til, en frá foreldmm Cýrusar kom stór ættbálkur dug- mikils fólks undir Jökli. Af systkinum Ingveldar em tvö á lífi, Helgi Bergmann, málari, og Anna, gift Áka Jenssyni, Reykjavík. Hún fluttist ung að Hellissandi og reisti þar bú með manni sínum, Pétri Magnússyni, 1912, og bjó þar allan sinn búskap til 1978, er hún fluttist til dóttur sinnar og tengda- sonar í Ytri Njarðvík. Þau eignuðust 8 böm, misstu tvo drengi á bams- aldri en sex komust til fullorðinsára, Sigurður, pípulagningamaður í Keflavík, kvæntur Vigdísi Jóns- dóttur, Guðmundur, pípulagninga- maður í Garði, kvæntur Gunnhildi Jónsdóttur, Guðfínna, gift Ólafi Guðmundssyni í Grimsby, Eng- landi, og Vigfús, sjómaður á Sandi, kvæntur Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Látnar em tvær dætur, Hulda er var gift Guðbrandi Magnússyni, og Unnur er var gift Páli Sigurðssyni, báðar í Ytri-Njarðvík. Afkomendur Ingveldar og Péturs munu nú um 80 og telja fjóra ættliði. Það var venjulegt hlutskipti þeirra sem byggðu íslensk sjávar- þorp á fyrstu áratugum þessarar aldar að eiga atvinnu sína og af- komu alla undir sjávarafla, en lífsbaráttan var hörð og starfsdagur langur hjá konum og körlum. Ing- veldur og Pétur vom engin undan- tekning hvað þetta snerti, en auk starfa við sjávarútveg var Pétur sá hagleiksmaður að hann var sístarf- andi við að aðstoða nágranna sína, og var einhver fyrstur manna til að rafvæða heimili með vindraf- stöðvum. Ingveldur var einhver röskasti starfskraftur sem tók hendi til fisk- verkunar og flakaði á við hvern annan í frystihúsi staðarins fram að áttræðisaldri. Það kom mér, ókunnugum, á óvart að heyra hve stóran þátt þau hjónin höfðu átt í menningarlífí sem þróast gat í fámennu samfélagi með uppfærslu og leik þeirra beggja í flölda sjónleikja og einnig var lestr- aráhugi þeirra óstöðvadi. Pétur féll fyrir hvíta dauðanum, langt um aldur fram 1937. Eftir það bjó Ingveldur með bömum sínum, en síðast ein á Sandi, þar til hún fluttist til Njarðvíkur, þar U ÍSLEIFUR JÓNSSON Bolholt 4 • Símar: 36920 — 36921 Ingveldur Sigurðar- dóttirfrá Hellissandi -I i ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.