Morgunblaðið - 12.09.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
Göngnr hafnar
í Mývatnssveit
Útskálakirkja.
NVSV:
Útskálakirkja kynnt
Á VEGUM Náttúruverndarfé-
lags Suðvesturlands verður
Útskálakirkja „lesin“, þ.e. Sigur-
bergur H. Þorleifsson mun
sunnudaginn 13. september kl.
15.30 kynna sögu kirkjunnar og
nánasta umhverfi hennar.
Útskálakirkja er talin annað elsta
hús á Suðumesjum. Sigurbergur
mun einnig geta atburða er kirkj-
unni tengjast og kynna þá kirkju-
muni er hún hefur að geyma og
svara spumingum. Þátttökugjald
er ekkert og eru allir velkomnir.
íbúar höfuðborgarsvæðisins geta
nýtt sér ferðir Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur til að komast til og frá
staðnum.
Mývatnssveit.
FARIÐ var í fjársmölun í Graf-
arlönd og Herðubreiðarlindir
síðastliðinn þriðjudag. Þar fund-
ust 47 kindur. Voru þær fluttar
til byggða á bíl. Fyrstu göngur
í önnur leitarsvæði Mývetninga
hófust á föstudag, og laugardag
og réttað verður á sunnudag.
Þess má geta að einn gangna-
maður, sem nú fer í göngur,
verður áttræður í næsta mánuði.
Það er Jón Pétur Þorsteinsson,
bóndi í Reykjahlíð. Jón fór í sínar
fyrstu göngur 11 ára og síðan á
hveiju ári. Það fer því að nálg-
ast 70 ár sem hann er búinn að
fara í göngur.
Kartföluuppskera virðist ætla að
verða með allra besta móti hér í
Mývatnssveit í haust og eru margir
þegar búnir að taka upp. Einn kart-
öfluræktandi byrjaði að taka upp
kartöflur um miðjan júní og var
spretta þá orðin mjög þokkaleg.
Fððu f rost
hjá ESSO!
Mætum frosti með ESSO
þjónustu og ESSO frostlegil
Jafnvel þótt þú gerir ekkert annað fyrir bílfnn þinn skaltu ganga úr skugga um frostþol
vélarinnar. Það er öryggisatriði sem gæti reynst dýrt að gleyma.
Renndu við á næstu bensfn- eða smurstöð ESSO og fáðu málið á hreint.
Okkar menn mæla frostþolið fyrir þig og bæta ESSO frostlegi á kælikerfið ef með þarf.
Rétt biandaöur ESSO frostlögur veitir fullkomna vernd gegn frosti. Einnig ryöi og tæringu allra
málma sem notaðir eru í kælikerfum bensín- og dfsilvéla.
ESSO FROSTLÖGUR - MARGFÖLD VERND!
Olíufélagið hf
Betjaspretta er víða með eindæm-
um góð og hafa margir tínt ber að
undanförnu.
Silungsveiði hefur verið frekar
rýr í Mývatni í sumar. Vegna þessa
ástand ákvað stjórn Veiðifélags
Mývatns um síðustu mánaðamót
að alfriða vatnið fyrir allri veiði.
Það er um einum mánuði fyrr en
undanfarin ár. Talið er að mikið
hafi komist upp af andarungum á
Mývatni í sumar, enda tíðarfar og
önnur skilyrði með hagstæðasta
móti.
Heyskapur gekk yfirleitt með
afbrigum vel hér í sumar. Gras-
spretta var mjög góð þótt þurrkar
væru til baga, einkum framan af.
Verkun heyja var með besta móti.
Dæmi eru til að sumir luku heyskap
á hálfum mánuði og hirtu síðustu
baggana seinni partinn í júlí. Mega
menn muna tímana tvenna í þeim
efnum. Ekki eru mörg ár síðan
heyskap lauk hér í Mývatnssveit í
október.
Krislján.
Pétur Friðrik sýnir
málverk í Holyday Inn
PÉTUR Friðrik listmálari hefur
opnað sýningu á 30 vatnslita- og
olíumálverkum í sýningarsal i
kjallara Holyday Inn, hins nýja
hótels, að Sigtúni 38 í Reykjavík.
Myndimar hefur hann málað á
undanförnum fjórum árum og hafa
fæstar þeirra komið fyrir almenn-
ingsjónir fyrr.
Pétur Friðrik hefur haldið fjölda
einkasýninga frá því hann hélt sína
fyrstu málverkasýningu í Lista-
mannaskálanum árið 1946, þá 17
ára gamall. Pétur Friðrik stundaði
komungur nám við Myndlista- og
handíðaskólann í tvo vetur og var
þijá vetur við nám í myndlist í
Kaupmannahöfn.
Pétur Friðrik listmálari.
Morgunblaðið/Bjami
Á myndinni eru talið frá vinstri: Einar Sigurðsson, háskólabókavörð-
ur, dr. Sigmundur Guðbjamason háskólarektor, John M. Harrington,
sendiherra Kanada á íslandi og Jón H. Bergs aðalræðismaður
Kanada á íslandi.
Háskólinn fær
veglega bókagjöf
HÁSKÓLA íslands hafa verið
gefnar um eitt hundrað bækur
um kanadísk málefni og voru
bókakaupin fjármögnuð af
kanadíska utanríkisráðuneyt-
inu.
Kanadíski sendiherrann á ís-
landi, John M. Harrington, sem
hefur aðsetur í Osló, afhenti há-
skólabókaverði, Einari Sigurðs-
syni, bækumar formlega í
aðalbyggingu Háskóla íslands við
Suðurgötu. Við afhendinguna vom
viðstaddir háskólarektor, dr. Sig-
mundur Guðbjamason og aðalræð-
ismaður Kanada á íslandi, Jón H.
Bergs.
Kanadíski sendiherrann sagði
við þetta tækifæri að bókagjafír
sem þessi væru ætlaðar til að auka
þekkingu annarra þjóða á Kanada.
Bækumar Ijalli meðal annars um
kanadískar bókmenntir, sögu,