Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 30

Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 Böndin berast að varaf or setanum Belgrad, Reuter. DAGBLOÐ í Júgóslavíu skýrðu frá þvi í gær, að upp hefði komist um yfirhylmingu í mesta fjármálahneyksli í landinu frá þvi kommún- istar komust þar til valda fyrir 42 árum. Snýst málið um stórfyrirtæki í landbúnaðarframleiðslu, Agrokomerc, en það má heita gjaldþrota. Vegna þess getur svo farið, að 3,5 milljónir kjúklinga verði hungur- morða ef stjórnvöld hlaupa ekki undir bagga með fóðurkaupum. Dagblaðið Vecemje Novosti í Sem eru valdamiklir í Bosníu. Síðar Belgrad sagði, að öryggislögreglu- dró hann það til baka og kvaðst hafa menn hefðu lagt hald á upptökur í húsakynnum svæðisútvarps í Bosníu og kæmi þar fram ýmislegt, sem tengdi Hamdija Pozderac, varafor- seta Júgóslavíu, við hneykslið. Hefur nafn hans raunar áður verið nefnt í þessu sambandi og einnig bróður hans, sem er háttsettur í flokknum. Fikret Abdic, forstjóri Agroko- merc, sem er með umfangsmikinn rekstur í sjálfstjómarlýðveldinu Bosníu-Herzegovínu, gaf út mark- lausar skuldaviðurkenningar fyrir 860 milljónum dollara og hélt því fram í fyrstu, að hann hefði gert það í samráði við þá Pozderac-bræður, verið einn í ráðum. Abdic er nú í fangelsi ásamt átta öðrum starfs- mönnum fyrirtækisins. Belgrad-blaðið Politika Ekspres sagði í gær, að varaforsetinn hefði viðurkennt, að hann hefði vitað um fölsku skuldaviðurkenningamar frá því í apríl sl. en þagað um þar til hneykslið varð opinbert í ágúst. Agrokomerc er nú svo gott sem gjaldþrota og á ekki lengur fyrir fóðr- inu ofan í kjúklinga og annan fénað og því horfír nú svo, að 3,5 milljónir kjúklinga svelti í hel komi ríkið ekki til hjálpar. Jóhannes Páll páfi í Bandaríkjunum: Páfi berorður um homma o g alnæmi Miami, Reuter. JÓHANNES Páll páfi II. ræddi í gær í leiðtoga bandarfskra gyð- inga og voru hvorirtveggju ánægðir með viðræðumar. Páfi reyndi ekki að leita málamiðlana i útimessu, sem haldin var í Miami í Bandaríkjunum, og sagði að kaþ- ólikkar þyrftu að fara að kenning- um kirkjunnar i einu og öllu. Hellirigning var þegar útimessan, sem 250 þúsund menn sóttu, og varð að stytta hana um hálftíma. Páfi kom til Bandaríkjanna á fimmtudag og tóku Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Nancy kona hans á móti honum. Jóhannes Páll sagði við blaðamenn í flugvél sinni á leið frá Páfagarði að hommar ættu samúð skilda. Páfi var óvenju berorður: „Þeir eru hvorki utangarðsmenn, né úrhrök ... eins og allir, sem þjást, eiga þeir heima innan kirkjunnar ... réttara sagt þeir eru kirkjunni hjartfólgnir." Hann kvaðst hafa miklar áhyggjur vegna sjúkdómsins alnæmis og sagði „skelfilegt“ að í borginni San Franc- isco skyldu þrír til fjórir menn láta lífið daglega asf völdum sjúkdómsins. Páfi hyggst messa í borginni San Antonio í Texas. Þar voru reistir feiknlegir tumar, sem hrundu á fímmtudag. Tumamir voru rúmlega 50 metra háir og er tjónið talið nema ^óram milljónum króna. Unnið verð- ur dag og nótt við að laga tumana þannig að messan geti farið fram á sunnudag. Gert er ráð fyrir að 500 þúsund manns verði við messuna. Reuter Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, ræðir hér við (frá vinstri) Vitas Gerulaitis tennisleikara, George Bush, varaforseta Bandarikjanna, Wilhelm Wachmeister, sendiherra Svía, og tennis- stjörnuna fyrrverandi, Björn Borg. Borg og Bush kepptu við Gerulaitis og Wachmeister í tennis og fóru þeir fyrrnefndu með sigur af hólmi i viðureigninni. Reuter Erich Honecker, leiðtogi Austur-Þýskalands, leggur blómsveig að múrnum umhverfis fangabúðir nasista i Dachau i minninga þeirra, sem þar létu lífið. Nasistar hnepptu Honecker í fangelsi í heimsstyij- öldinni síðari. Líbanon: Palestínu- menn o g shítar semja um frið Sídon, Reuter. Fylkingar palestinumanna og shíta múslimir náðu i gær sam- komulagi um að binda enda á átök fylkinganna tveggja við flóttamannabúðir í Beirút og í Suður-Líbanon. Með þessu samkomulagi er lokið þrigja ára átökum fylkinganna. Fulltrúar Palestínumanna og shíta, drúsa og sunni-múslima náðu sam- komulaginu á fundi í gær. „Við gjörum lýðum ljóst að hér með er bundinn endi á átök í Beirút og Suður-Líbanon um aldur og ævi,“ sagði í tilkynningu sem birt var að afloknum fundinum. Samkvæmt samkomulaginu munu Palestínumenn fara frá flóttamannabúðum nærri Sidón og Ain Al-Hilweh-búðunum, þar sem mikill fjöldi fólks hefur haldið til. Þá var einnig ákveðið að hefja end- urbyggingu á búðum, sem skemmst hafa í bardögum hinna stríðandi fylkinga. Hefur sérstakur sjóður verið stofanaður til að standa straum af þessu. Mun Arababanda- lagið hafa stjóm sjóðsins með höndum. Honecker farinn frá Vestur-Þýskalandi: Vonir um betri sam- skipti þýsku ríkjanna Austur-Berlín, MUnchen, Reuter. ERICH Honecker, leiðtogi Aust- ur-Þýskalands, kom í gær til Austur-Berlínar eftir fimm daga heimsókn til Vestur-Þýskalands, að þvi er austur-þýska fréttastof- an ADN greindi frá. Honecker flaug frá Riem-flug- velli í Miinchen til Schönefeld-flug- vallar. Honecker ræddi við Helmut Kohl kanslara f Bonn og fór til nokkurra borga í Vestur-Þýska- landi, þar á meðal fæðingarbæjar síns, Neunkirchen. Austur-þýska dagblöð birtu í gær ummæli Honeckers í Neunkirchen um að þar að kæmi að minni gæsla yrði við landamærin milli_ Austur- og Vestur-Þýskalands. í Neues Deutschland, málgagni austur- þýska kommúnistaflokksins vom orð Honeckers birt undir fyrirsögn- inni „Raunveruleiki og landamæri". Honecker sagði orðrétt á fímmtu- dag: „Ef við verðum samstiga í anda yfírlýsingarinnar frá Bonn mun sá dagur rísa að landamærin sundra okkur ekki heldur sameina, eins og landamæri Austur-Þýska- Ingvar Carlsson í Washington: Sáttir við ósætti um málefni Nicaraeiia Wauhinrrfnn Rantor Washington, Reuter. SVÍAR og Bandaríkjamenn hafa komist að samkomulagi um „að vera ósammála" um ástand mála í Nicaragua, að því er Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í Wshington á fimmtudag. Carlsson ræddi við Ronald Reag- an Bandaríkjaforseta á miðvikudag og sagði hann á hádegisverðarfundi að Svíar væm enn andvígir því að Bandaríkjamenn legðu skæmliðum, sem hafa barist gegn sandinista- stjóminni í Nicaragua frá árinu 1981, lið. „Okkur kom saman um að vera ósammála um Nicaragua," sagði Carlsson. Hann kvaðst aftur á móti hafa orðið var við ánægjulega þróun í friðarátt í Mið-Ameríku í viðræð- um sínum vestan hafs. Átti hann þar við loforð Reagans um að fara ekki fram á fjárstuðning við skæm- liða á þingi fyrr en úrslitafrestur, sem kveðið er á um í friðaráætlun forseta fimm Mið-Ameríkuríkja, rennur út 30. september. Hann minntist þó hvergi á það að George Shultz hefði á fímmtudag lýst yfír því að stjómin ætlaði að fara fram á það á Bandaríkjaþingi að skæmliðum í Nicaragua yrði veittur 270 milljóna dollara Qár- stuðningur einhvem tímann eftir 30. september. Svíar hafa veitt stjóm Nicaragua fé og styðja þeir friðaráætlunina heilshugar, að sögn Carlssons. Hann sagði að hlutleysisstefna Svía hefði oft og tíðum leitt til ágreinings við stórveldin: „En við leggjum áherslu á að Svíar fylgja sjálfstæðri stefnu og gildir þá einu um það hvert málefnið er.“ Iands og Póllands sameina." Honecker sagði í gær að heim- sókn sín hefði borið árangur og hefði brjóstvit og raunsæi fengið að ráða. Honecker fór til fangabúða nasista í Dachau á síðasta degi þessarar fyrstu heimsóknar aust- ur-þýsks leiðtoga til Vestur-Þýska- lands. Sagði hann í yfirlýsingu að enn mætti bæta samskiptin milli ríkjanna. Orð Honecekers um landamæri þýsku ríkjanna hafa vakið vonir um að gaddavírsgirðingamar, sem liggja eftir þeim, verði teknar niður Fréttaskýrendur segja að Honecker hafí unnið pólitískan sigur er hann fékk vestur-þýsk yfirvöld til að við- urkenna austur-þýska alþýðulýð- veldið. Við brottför sína sagði Honecker: „Landamærin em ekki eins og þau eiga að vera vegna þess að þýsku ríkin em í Atlants- hafsbandalaginu annars vegar og Varsjárbandalaginu hins vegar." Friedhelm Ost, talsmaður vest- ur-þýsku stjómarinnar, fagnaði yfírlýsingu Honeckers og sagði að hún væri í samræmi við viðræður hans við Kohl kanslara. Haft var eftir heimildarmönnum í því ráðu- neyti, sem fer með málefni þýsku ríkjanna, að hyggja þyrft gaum- gæfílega að ummælum austur- þýska leiðtogans. Vopnaðir verðir gæta landamæ- Júgoslavía: Salmonella í samlokum Novi Sad, Júgoslavíu. TÆPLEGA eitt þúsund Júgosla- var fengu salmonella-eitrun eftir að hafa borðað samlokur, sem fyrirtæki í borginni Novi Sad framreiddi, að því er júgoslav- nesk heilbrigðisyfirvöld greindu frá á fimmtudag. Sagði að 625 þeirra, sem fengu eitrunina, hefðu þurft að leita læknis- aðstoðar. Þetta er versta tilfelli af matareitrun í Júgoslaviu í tuttugu ár, sögðu heilbrigðisyfírvöld. ranna og hafa þeir fyrirmæli um að skjóta á hvern þann, sem reynir að komast yfír þau. Að auki er gaddavírsgirðing á landamærunum. Markmið Kohls er að koma því til leiðar að dregið verði úr viðbúnaði við landamærin. Ost vildi ekkert um það segja hvort ummæli Honeckers um landa- mærin væru vísbending um að landamæravörðum yrði bannað að beita skotvopnum eins og stjómin í Bonn krafðist. Á undanfömum 25 ámm hafa 188 manns látið lífíð á landamæmnum. Franz Josef Strauss, forsætisráð- herra Bæjaralands, tók á móti Honecker í Munchen. Sagði hann að eygja mætti von í orðum Honec- kers. Aftur á móti væri bjöminn ekki unninn fyrr en á hefði reynt. Beirút: Var Schmidt keyptur laus? Beirút, Reuter. TÍMARITIÐ Ash-Shiraa, sem gefið er út í Beirút, sagði í gær að Vestur-Þjóðveijinn Alfred Schmidt, sem látinn var laus úr gislingu í vikunni, hefði verið keyptur laus fyrir lausnargjald samsvarandi áttatíu milljónum íslenskra króna. Blaðið segir að landi Schmidts, Rudolf Cordes, kunni að verða látinn laus fyrir svipað gjald. „Lausn Schmidts var árang^ur samnings um greiðslu tveggja millj- óna dala lausnargjalds til ræningj- anna. Annar vestur-þýskur gísl, Rudolf Cordes, verður látinn laus á næstu dögum fyrir svipaða upp- hæð,“ sagði blaðið, sem er í tengslum við ýmsar róttækar hreyf- ingar í Líbanon. Þýskalandsstjóm og vinnuveit- endur Schmidts hjá Siemens-fyrir- tækinu hafa þvertekið fyrir að hafa greitt lausnargjald fyrir hann. Stjómin stendur fast á því að hann hafi verið leystur úr haldi án skil- yrða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.