Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 35

Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 35 Nýjung í skólastarfi: Skólagæsla fyrir yngstu nemenduma Tveir kennarar í stærstu bekkjunum KENNSLA er nú hafin í öllum grunnskólum á Akureyri. Ekki hefur enn tekist að fá kennara í allar stöður við suma skólana. Helsta nýjung' í skólastarfinu er skólagæsla fyrir yngstu börnin, en hún er nú við alla skólana á Akureyri. Fjöldi nemenda við grunnskól- ana á Akureyri er svipaður nú og á síðasta vetri. Þá voru þeir um 2.550 en samkvæmt bráða- birgðatölum teljast þeir um 2.570 nú við upphaf skólaárs. Þrátt fyrir þetta eru dálitlar breyting- ar á stærð skóla, en þar er hvort tveggja um að ræða að fólk hef- ur flust milli hverfa í bænum og skipulagsbreytingar hafa orðið á skólum og skólasvæðum. Þannig fækkar nemendum við Oddeyr- arskólann nokkuð en fjölgar að sama skapi við Gagnfræðaskól- ann og Glerárskóla. Þetta stafar af því að nú hefur verið hætt að kenna 7.-9. bekk við Oddeyrar- skóla, en nemendur skiptast á hina skólana eftir búsetu. Nem- endum fækkar nokkuð við Lundarskóla en fjölgar allmikið við Síðuskóla, enda hefur mest byggst í grennd við hann á und- anförnum árum. Síðuskóli er nýjasti grunnskól- inn á Akureyri. Þar eru um þessar mundir teknar í notkun fjórar nýjar kennslustofur og í desember er áætlað að tilbúið verði húsnæði, meðal annars með aðstöðu fyrir stjórn skólans. Enn vantar kennara Jón Baldvin Hannesson skóla- stjóri sagði að ekki væri allt fengið Aðalfundur MENOR um helgina: Rættum fyrirhugaða listahátíð á Norðurlandi MENNINGARSAMTÖK Norð- lendinga, MENOR, halda aðal- fund sinn að Laugalandi í Eyjafirði dagana 12. og 13. sept- ember. Meðal annars verður þar fjallað um væntanlega listahátið á Norðurlandi. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun MENOR gangast fyrir ráð- stefnu þar sem rædd verða tvö mál. í fyrra lagi verður fjallað um kjör og aðstöðu listamanna á Norð- urlandi og stöðu þeirra varðandi úthlutun úr opinberum sjóðum. Framsögu um það mál hefur Guð- mundur L. Friðfinnsson rithöfund- ur. í öðru lagi verður rætt um fyrirhugaða listahátíð á Norður- landi, sem haldin verður vorið 1988, en þar hafa framsögu alls sex full- trúar mismunandi listgreina. Þessari sýningu er meðal annars ætlað að sameina krafta listamanna og áhugamanna um listir á Norður- landi og efla norðlenska menningu. Aðalfundurinn hefst að Lauga- landi klukkan 10 að morgni laugar- dags. Formaður MENOR er Haukur Ágústsson. með þessu, enn vantaði kennara að skólanum svo hann gæti starfað af fullum krafti. Hann sagðist þurfa að fá kennara í hálfa aðra til tvær stöður, í smíðum og heimilis- fræðslu. Engin viðbrögð hefðu orðið við auglýsingum um þessi störf. Víðar skortir kennara. í Glerár- skóla hefur orðið að fella niður tónmenntakennslu og aðrar greinar að hluta, meðal annars eðlis- og samfélagsfræði í 8. bekk. Páll Bergsson yfirkennari sagði að þetta kæmi sér afar illa og því verr sem til þess væri hugsað að unglinga- deildir skólans væru nú fjölmennari en áður. Auk þessa má nefna að ekki er enn ljóst hvort takast mun að fá dönskukennara að Gagn- fræðaskólanum, en Sverrir Pálsson skólastjóri kvaðst ekki vera búinn að gefa upp alla von. Skólagæsla, nýjung i skólastarf inu Helsta nýjung í skólastarfinu í vetur er skólagæslan, en hún er við alla skólana á Akureyri þar sem yngstu bömunum er kennt. Nú gefst þeim kostur á að dveljast í skólunum annaðhvort frá klukkan 8-12 að morgni eða 13-17 síðdegis. Með þessu móti geta foreldrar þess- ara bama náð a.m.k. hálfum vinnudegi og vandi margra þeirra með gæslu leysist að hluta. Reynt var að fá fóstrur til að annast gæslu þessa, en það mun þó ekki hafa tekist nema að litlu leyti. Skóla- gæsla var reynd í tveimur skólum í fyrra og þótti takast vel, eða eins og Benedikt Sigurðsson skólastjóri Bamaskóla Akureyrar sagði: „Við kjósum að gera þetta með formleg- um hætti nú svo það verði regla í stað tilraunar." í skóla hans er einn- ig sú nýbreytni að allir nemendur hafa samfelldan skóladag. Nemend- ur í 4., 5. og 6. bekk fá þá hádegishlé og neyta nestis í skólan- um. Nestið hafa þeir með sér að heiman en geta fengið mjólk eða jógúrt í skólanum. Samkennsla — tveir kennarar í sama bekk Nokkuð er og um það í grunn- skólum á Akureyri að tveir eða fleiri kennarar kenni stórum bekkj- um, með meira en 30 nemendum. Þessi samkennsla hefur nokkuð verið reynd áður og þykir gefa góða raun, eínkum er með þessu móti unnt að sinna betur en ella sér- þörfum nemenda. Þetta er einnig háð því að húsnæði henti til þess, en kennslustofur í hinum nýrri skól- um eru að jafnaði stærri og rúmbetri en í hinum eldri. Morgunblaðið/HBj Stjórnendur Súlnabergs, f.v.: Gunnar Karlsson hótelstjóri, Haukur Tryggvason veitingastjóri og Kristján Jónasson yfirkokkur. Kaffitería KEA 25 ára: Súlnaberg opnað eftir gagngerar breytingar Gestir fá kaffi úr frægnstu kaffivél landsins, kaffívél nýja útvarpshússins SÚLNABERG, kaffitería KEA, var opnuð á fimmtudag eftir miklar breytingar. Breytingarn- ar voru gerðar í tilefni af 25 ára afmæli staðarins. Kaffítería KEA var sett á stofn 28. júlí 1962, og starfaði fyrst á vegum Kjötbúðar KEA. Kaffiterían var einn af fyrstu veitingastöðum landsins með þessu afgreiðsluformi. Gunnar Karlsson hótelstjóri KEA segir að „Terían“ hafi fljótt orðið vinsæl og telur að þar hafi fyrst og fremst ráðið sú nýlunda að gest- ir gátu fengið heimilismat beint úr pottunum, án biðar. Kaffiterían var stækkuð árið 1965 og rekstur hennar falinn Hót- Úr Súlnabergi eftir breytingarnar. Stærri-Árskógskirkja: Hátíðarguðsþjón- usta á sunnudag Hátíðarguðsþjónusta verður i Stærri-Árskógskirkju næstkom- andi sunnudag í tilefni þess að á þessu ári eru liðin 60 ár frá vígslu kirkjunnar. Guðsþjónustan hefst klukkan 14. Sóknarpresturinn, séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir, sér um messugjörð ásamt nokkrum af fyrr- verandi prestum safnaðarins. Kirkjan var vígð 5. júní 1927. Að undanfömu hefur verið unnið að endurbótum á kirkjunni, meðal annars skipt um þak og hún máluð að innan. el KEA. Hún var aftur stækkuð og endurbætt árið 1976 og nafni henn- ar breytt í Súlnaberg. Eftir þær breytingar voru sæti fyrir 120 manns á staðnum og hefur því fyrir- komulagi verið haldið þar til nú. Eftir endurbætumar nú er Súlna- berg aftur orðið einn af nýtískuleg- ustu veitingastöðunum af því tagi. Sætafjöldi er sá sami og áður, en salurinn allur opnaður og lýstur upp. Hin hefðbundna kaffíteríulína hefur verið brotin upp í einingar til að flýta afgreiðslu. Ný húsgögn eru á staðnum, svo og allar innréttingar og tæki. Tækjakostur er með því nýjasta og besta sem þekkist, að sögn Gunn- ars hótelstjóra og er vonast til að matreiðsla og geymsla matarins verði sem best. Hann segir að áfram verði lagt kapp á að bjóða gestum góðan heimilismat, auk úrvals sér- rétta frá grillinu, samkvæmt nýjum sérréttamatseðli. Einnig sagði hann að á boðstólum væri úrval annarra veitinga. Akureyri óskar eftir fólki á öllum aldri til að bera út Morgunblaðið strax og það kemur íbæinn. „Hressandi morgunganga" Hafið samband! Hafnarstræti 85, Akureyri, sími 23905. VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ! Við erum fluttir í nýtt húsnæði v/Laufásgötu VIÐ EIGUM Á LAGER: Handfærabúnað • línubúnað • togveiðibúnað • rækjuveiðibúnað • og margt fleira HÖFUM UMBOÐ FYRIR: Hampiðjuna, Vélsmiðjuna Odda, Plastein- angrun, J. Hinriksson, Fram (keðjur), Moririn (net), Engel (flotvörpurog net). HF 3r v/Laufásgötu, Akureyri, sími 96-26120. Strandvegi 77, Vestmannaeyjum, sfmi 99-2975. SuAurtanga, ísafiröi, sfmi 94-3500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.