Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 49

Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 49 Kristniboðar hafa leitast við að ná til unga fólksins, bæði í skól- um og í kristilegu æskulýðs- starfi. Kristniboðssam- bandið: KaffisaJa Kristniboðsfélag karla í Reykjavík efnir til hinnar árlegu kaffisölu sinnar í kristniboðs- húsinu Betaniu, Laufásvegi 13, sunnudaginn 13. september. Kaffisalan hefst um nónbil og stendur yfir til kl. tíu um kvöld- ið. Allur ágóði rennur til starfs Kristniboðssambandsins. Nú í sumar komu tvenn kristni- boðahjón heim frá Eþíópíu en þar hafa íslendingar starfað meðal Konsó-þjóðflokksins og víðar í rúm 30 ár. I Eþíópíu er nú sjálfstæð, lúthersk kirkja sem vex örar en nokkur önnur lúthersk kirkja í heiminum, þrátt fyrir ýmsa erfið- leika vegna stjómarfarsins í landinu. Önnur tvenn íslensk hjón starfa á vegum Kristniboðssambandsins í Kenýu, í Cheparería og í Kongolai. Þetta er á slóðum Pókot-þjóðflokks- ins í vesturhluta landsins. Hann er álíka fjölmennur og allir íslendingar og hefur löngum orðið útundan að því er varðar fræðslu og kristilega boðun. En þar hefur nú margt breyst til hins betra á liðnum árum. íslendingar og fleiri hafa bæði unn-' ið að því að breiða út fagnaðarerind- ið meðal fólksins og komið á fót skólum, m.a. með liðsinni Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Kristniboðamir hafa fijálsar hendur til starfa í Kenýu og væri hægt að gera miklu meira ef fé væri fyrir hendi. Hér heima vinnur Kristniboðssambandið kynningar- starf. Alls er gert ráð fyrir að samband- ið þurfi nokkuð á áttundu milljón króna til að sinna verkefnum sínum á þessu ári og vantar enn töluvert á að nóg hafi safnast. Eins og fyrr segir opna karlamir Betaníu um kaffileytið á sunnudag. Þeir bjóða alla vini kristniboðsins velkomna. (Fréttatilkynning) Madrigalar- arí Ný listasafninu MADRIGALARAR halda söng- tónleika i Nýlistasafninu sunnu- dagskvöldið 13. september kl. 20.30. Madrigalarar eru Hildig- unnur Halldórsdóttir, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Martial Nardeau, Sigurður Halldórsson og Sverrir Guðmundsson. Á efnisskránni verða m.a. verk eftir Thomas Morley, Josquin dés Prés, Juan Ponce, Orlandus Lassus, John Farmer og Hans Leo Hassler. Þ Ú ÞARFT EKKI LENGUR A Ð LEITA LANGT YFIR SKAMMT! í SKEIFUNNI 17 ER SÉRVERSLUN MEÐ TÖLVUVÖRUR, HUGBÚNAÐ OG SKRIFSTOFUVÉLAR. Allar helstu tegundir PC tölva. Margs konar hugbúnaður. Tölvuprentarar af mörgum gerðum, tölvuteiknarar, skjásíur, disklingar, tölvuborð, hljóðdeyfar ffyrir prentara, prentborðar, disklingageymslur. Ritvélar, reiknivélar, vasatölur. Ljósritunarvélar. Allt á einum stað. linDIID HUGBÚNAÐUR VKIKVD SKRIFSTOFUTÆKI SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175 Þekking . . u-.------- —a>-jcr»----- — : c mldas

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.