Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 51

Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 51 vandlega á tillögur hans. Ekki sótti Friðrik eftir félagslegum frama né metorðum, en maðurinn var allur þeirrar gerðar, að samferðamenn leituðu til hans og fólu honum trún- aðarstörf. Friðrik Sigurðsson var alla ævi jafnaðarmaður, í þess orðs bestu merkingu. Þeir sem minni máttar voru eða höfðu orðið undir í lífinu áttu sér jafnan málssvara þar sem hann var, og munu þau tilvik vera fleiri en allur almenningur veit um þar sem hann tók svari þeirra, er honum fannst hallað á. Samstarfsmenn Friðriks Sig- urðssonar hjá Kaupfélagi Skagfirð- inga sakna nú vinar í stað. Þeir eru áreiðanlega fleiri en undirritaður, sem leitað hafa álits hans á verkefn- um líðandi stundar, og þegið holl ráð sem báru merki þeirrar mann- legu hlýju og skilnings á högum annarra er einkenndi jafnan afstöðu Friðriks til manna og málefna. Samfylgdinni er lokið. Sá er þetta ritar þakkar Friðrik áratuga sam- starf og vináttu, sem hvergi bar skugga á. Megi sá er ræður heimkomu og heimanför veita fjölskyldu Friðriks Sigurðssonar styrk sinn á þessum erfiðu stundum. Þorkell Guðbrandsson Lífsins ljós hefur slokknað. Hann afí er dáinn. Um stund ríkir ringul- reið í sálu minni og tómleiki í tilverunni. Ótal spumingar koma fram á varimar en engin fást svör- in. Að einmitt skuli vera komið að sem tvær dætur hennar bjuggu, en báðar féllu þær frá skömmu síðar. Unnur 1980 og Hulda 1985. Var það mikið áfall aldraðri móður. Þakkir eru skyldar til Páls Sig- urðssonar, sem annaðist tengda- móður sina lengi af mikilli nærgætni á heimili sínu þar til hún fékk hjúkrun á sjúkrahúsi Keflavík- ur, en þar hefur hún notið hlýleika og umhyggju hjúkrunarfólksins síðastliðin ár. Við aðstandendumir kveðjum nú Ingveldi með söknuði og hryggð en þökkum um leið forsjóninni fyrir að hafa fengið að njóta samfylgdar við hana svo vel og lengi. Trú henn- ar á eilífð og endurfundi við ástvini sína og eiginmann sem hélt sömu leið fyrir 50 árum, vekur hjá okkur traust til framtíðardrauma um æðri tilveru. Hvíl í Guðs friði. Ólafur Guðmundsson Ingveldur Sigurðardóttir fæddist á Öndverðamesi 4. desember 1891, dóttir Sigurðar Gilssonar formanns þar og Guðrúnar Cyrusdóttur ljós- móður. Þau eignuðust sex böm, þijá syni og þijár dætur. Flest voru bömin fædd á Öndverðamesi. Þau vom Danilius skipstjóri, búsettur á Hellissandi, giftur Sveindísi Hans- dóttur, Guðbjöm S. Bergmann, giftur Guðrúnu Kristjánsdóttur, þau bjuggu lengst á Hellissandi, Helgi S. Bergmann listmálari, búsettur í Reykjavík, Sólveig, búsett í Reykjavík, Anna var yngst, nú gift Áka Kristjáni Jensen, búsett í aðskilnaði milli okkar nafnanna núna. Á miðvikudagsmorguninn í síðustu viku kom hann til okkar. Hann var að fara til Reykjavíkur ásamt fleirum úr íjölskyldunni að jarðarför mágs síns. Þegar hann kvaddi okkur Hóffý og Stefán Frið- rik með kossi, eins og hann var vanur, hvarflaði ekki að okkur að hér væmm við að kveðjast í hinsta sinn. Það var kominn ferðahugur í hann eins og alltaf þegar hann fór eitthvað og engin veikleikamerki að sjá. En tilveran er fljót að skipta um svip og á laugardaginn var hún orðin allt önnur. Eftir sitja í huganum dásamlegar minningar sem gott er að geta yljað sér á þegar kuldinn sækir á mann. Þær getur enginn tekið frá manni. Eins lengi og ég man eftir afa mínum man ég eftir glaðljmdum og hlýjum vini sem kenndi mér svo mikið og margt um staðreyndir lífsins. Alltaf hafði hann tíma fyrir mann hvenær sem maður leitaði til hans, sem ekki var sjaldan. Hann var indæll félagi sem bar virðingu fyrir skoðunum og vilja annarra. Hann var raunsær og trúði á sann- girni og tillitssemi. Eg man eins og gerst hefði í gær allar stórkostlegu veiðiferðimar sem ég fór með honum. Hann kom alltaf ánægður heim, sama hvemig veiddist. Slíkar samverustundir gleymast aldrei. Ég stend í mikilii þakkarskuld við afa minn sem mér þykir sárt að geta ekki endurgoldið svo neinu nemi. Ég man eftir þeirri stundu þegar ég kvaddi hann áður en ég hélt til náms erlendis sumar- ið 1981. Það var erfíð stund og ég man að hann felldi tár. Það er er- fítt að lýsa tilfínningum á slíkri stundu. Hugur minn er fullur þakk- lætis og virðingar fyrir að hafa fengið að njóta nærvem hans. Megi góður Guð varðveita minningu hans um ókomna framtíð. Elsku amma og aðrir ættingjar og vinir. Sameinumst og styrkjum hvort annað í minningunni um góð- an dreng sem við elskuðum öll. Friðrik Jónsson Leiddu mína litlu hendi Ijúfi Jesú þér ég sendi bæn frá mínu bijósti snjáðu. Blíði Jesú að mér gáðu. Hann var sorglegur laugardags- morgunninn 5. september þegar mér var sagt að langafí minn væri dáinn. Það eru margar góðar og skemmtilegar minningar sem ég á um hann og get rifjað upp. Oft fór- um við í bfltúra saman bæði langa og stutta og þá töluðum við um margt skemmtilegt. Svo fórum við að veiða og hann gaf mér öngla og fleira veiðidót. Við slógum alltaf garðinn hans saman og þá var gam- an hjá okkur. Fleiri minningar bæði stórar og smáar gæti ég rifjað upp. En núna þegar langafí er farinn er gott að eiga þær til að hugsa um. Til langömmu og langafa er alltaf gott að koma og núna biðja ég og Birgir Óli, bróðir minn, góðan Guð að vera hjá elsku langömmu. Jón Brynjar + Bróöir okkar, ÍSLEIFUR JÓHANNSSON frá Sœbóli í AAalvík, lést f Landspítalanum 10. september. Ingibjörg Sturludóttir, Sigurður Sturluson. t Móðir mín og tengdamóðir, SIGRÚN SIGURBJÖRNSDÓTTIR, Hátúni 4, lést í Borgarspítalanum að kvöldi 9. september. Aðalheiður Erla Jónsdóttir, Lárus Jónsson. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SÖLVA ÓLAFSSONAR fyrrverandi kaupmanns, Hringbraut 99, Keflavfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna á deild 11-G og gjörgæsludeild Landspítalans. Sigrfður Þorgrímsdóttir, Þurfður Sölvadóttir, Bergsveinn Alfonsson, Sigrfður Gunnarsdóttir, Rúnar Þórmundsson, Linda Björk Bergsveinsdóttir, Matthfas Matthfasson, Sölvi Þór Bergsveinsson, Bergsveinn Alfons Rúnarsson. Reykjavík. Öll eru þessi systkini og makar þeirra nú dáin nema Helgi, Anna og hennar maður. Þau Sigurður og Guðrún fluttust til Ólafsvíkur og hófu þar búskap. Sigurði féll ekki dvölin þar og flutt- ist til Hellissands og stundaði þar sjómennsku meðan heilsa og aldur leyfði en Guðrún bjó áfram í Ól- afsvík með bömum sínum og stundaði að nokkru verslun og ljós- móðurstörf af miklum dugnaði. Ingveldur giftist Pétri Magnús- syni 27. maí 1912. Hann var fæddur 3. maí 1892. Hann stundaði ýmis smíðastörf og sjómennsku. Pétur var öðlingsmaður og mátti segja að allt léki í höndum hans. Þau hófu búskap á Staðarhóli á Hellis- sandi. Þau eignuðust átta böm, sex komust til fullorðinsára. Þau em Sigurður A., giftur Vigdísi Jóns- dóttur, búsett á Hringbraut 60, Keflavík, Hulda, gift Guðbrandi Magnússyni, voru búsett í Ytri Njarðvík, nú bæði dáin, Unnur gift Haraldi Dalmann málarameistara, síðan bjó hún með Páli Sigurðs- syni, þau bjuggu í Ytri Njarðvík, Unnur er nú dáin, Guðmundur, gift- ur Gunnhildi Jónsdóttur, þau búa í Ásgarði í Garði, Guðfínna gift Ól- afí Guðmundssyni forstjóra söluum- boðs Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna í Bretlandi, þau em búsett í Grimsby, Vigfús, giftur Guðrúnu Guðlaugsdóttur, þau em búsett á Hellissandi, tveir synir þeirra, Cyms og Herbert, dóu ungir. Þau Pétur og Ingveldur vom mjög samhent í starfí og uppeldi sinna efnilegu bama. Ingveldur var afburða hraust og dugleg kona. Auk heimilisstarfa stundaði hún utan heimilis öll þau störf sem völ var á, oft til síðustu daga áður en hún fæddi böm sín. Árið 1937 missti hún mann sinn, Pétur, eftir erfiða sjúkdómslegu. Þótt það væri mikið áfall hélt hún áfram búskap með bömum sínum sem fóm að heiman til sjálfsbjargar jafnóðum og þau höfðu aldur til en lengst mun yngsti sonur hennar, Vigfús, hafa búið á heimili móður sinnar. Ingveldur stundaði vinnu við frystihús Hellissands til áttræð- isaldurs, jafnan við fiskflökun og var svo kappsöm að fáir munu hafa staðið henni á sporði. Þegar tillit er tekið til þess að á bemskuámm hennar var lífsbaráttan svo hörð að öll böm vom Iátin vinna sem þau höfðu getu til, skila svo fullum vinnudegi til áttatíu ára aldurs auk heimilisstarfa, þá skila slíkir ein- staklingar æmum arði í íslenskt þjóðarþú. , iíiHesj Á yngri ámm tóku þau hjón þátt í félagslífí Hellissands. Þá er ég var 10 ára var haldin álfabrenna og álfadans á Hellissandi. Pétur var álfakonungur og Ingveldur álfa- drottning. Ég minnist þess hve þessi ungu hjón vom glæsileg þá er þau leiddu skrúðgönguna í gegnum plássið og bæði sungu þau mjög vel. Frá Hellissandi fluttist Ingveldur hingað til Njarðvíkur og dvaldist hjá Unni dóttur sinni og Páli Sig- urðssyni í 10 ár og naut hjá þeim mjöggóðrar umhyggju og ástúðar. Síðustu tvö og hálft ár dvaldist hún á sjúkrahúsi Keflavíkur. Ingveldur var mjög eðlisgóð kona og annaðist vel um böm sín og heimili, alltaf jafn glöð þótt erfíð- leikar steðjuðu að. Hún var trúuð og innrætti bömum sínum það lífsöryggi sem trúin veitir. Mér er sagt að eftir að flestar æviminningar vom sökum aldurs horfnar í djúp tímans, hafí í huga hennar lifað sönglög, ljóð og kvæði er hún flutti til síðasta dags. Nú er ævisól hennar hnigin til viðar, en við trúum því að hennar trúuðu og starfsglöðu sálar bíði verkefni á þroskabrautum hins eilífa lífs. Karvel Ögmundsson Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og út- för móður minnar, tengdamóöur, systur og mágkonu, ÞÓRDÍSAR STEFÁNSDÓTTUR, Holtagerði 48, Kópavogi. Edda G. Rlkbarðsdóttir, Brandur St. Guðmundsson, Stefán Kj. Rfkharðsson, Ríkharð Ottó Rikharðsson, Ásthildur Þorvaldsdóttir, Brynhildur Stefánsdóttir, Kristinn Júlfusson, Margrét Stefánsdóttir, Arndfs Stefánsdóttir, Sigurður Jónsson, Guðrún Stefánsdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR FINNBOGADÓTTUR, Hlfð, Djúpavogi. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Skjólgarðs á Höfn fyrir alla aðhlynningu við hina látnu. Svanhvft Ragnarsdóttir, Ófeigur Pétursson, Hrefna Ragnarsdóttir, Axel Sölvason, Bogi Ragnarsson, Erla Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐJÓNS KLEMENZSONAR laaknls. Kær kveðja. Margrét Hallgrfmsdóttir, Margrét J. Guðjónsdóttir, Ólafur Marteinsson, Auðbjörg Guðjónsdóttir, Guðmundur Arnaldsson, Hallgrfmur Guðjónsson, Ragnheiður Haraldsdóttir, Guðný Védfs Guðjónsdóttir, Ólafur Marel Kjartansson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og vináttu viö andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JÓHANNSDÓTTUR frá Gestsstöðum. Guðmundur Gunnarsson, Þórhlldur Jónasdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Sigurgeir Eirfksson, Guðrún Gunnarsdóttir, Inglmar Sveinsson, Sesselja Gunnarsdóttir, Einar Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.