Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
fclk í
fréttum
Loftvarnarbyssa
gefin í þakklætisskyni
Nú í sumar afhentu Land-
helgisgæslan og Vamarliðið
Seyðfírðingum loftvamabyssu úr
oliuskipinu E1 Grillo, sem sökk í
Seyðisfjarðarhöfn í febrúar 1944
eftir loftárás Þjóðvetja.
E1 Grillo var rúmlega 7000
rúmlesta olíuskip, sem notað var
sem eldsneytisbirgðaskip fyrir
skip Bandamanna í heimsstyijöld-
inni síðari, og var það vopnað
einni ^ögurra þumlunga fall-
byssu, fjórum eldflaugum, og
fyirum 20 mm Oerlikon loftvama-
byssum. Það var svo um morgun-
inn 10. febrúar, árið 1944, að
þijár Focke Wulfíf flugvélar þýska
flughersins vörpuðu fímm
sprengjum að skipinu þar sem það
lá fulllestað við festar, og spmngu
þær fyrir framan stefni skipsins.
Fjörutíu og átta manna áhöfn var
á E1 Grillo, en henni tókst að
komast úr skipinu áður en það
sökk.
Sfðan þá hafa kafarar farið
margar ferðir niður að skipjnu,
og bjargað hlutum af því. Árið
1952 dældu fslenskir aðilar þeirri
olíu sem eftir var úr flakinu, en
þá fundu kafarar djúpsprengjur
og skotfæri á þilfari skipsins.
Kafarar Landhelgisgæslunnar
könnuðu skipsflakið sumarið
1972, og aftur árin 1982-’83, þá
með aðstoð Vamarliðsins, og voru
þá 3 djúpsprengjur teknar og
sprengdar í Loðmundarfírði. Það
var síðan í mars 1985 að kafarar
og sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar og Vamarliðsins
fjarlægðu þær 21 djúpsprengju
sem eftir vom í E1 Grillo, og
brenndu þær í landi.
Það var sfðan ákveðið að færa
Seyðfirðingum eina loftvama-
Frá afhendingu loftvamabyssunnar - frá vinstri: Þorvaldur Jó-
hannsson, bæjarstjóri; Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar; McVadon, aðmíráll; og Jónas Hallgrímsson,
forseti bæjarstjórnar.
Nokkrir Seyðfirðingar skoða loftvaraabyssuna úr E1 Grillo.
byssuna af E1 Grillo í þakklætis-
skyni fyrir samstarf og gestrisni
þeirra við Landhelgisgæsluna og
Vamarliðið. Byssan náðist í sept-
ember 1985, og var sfðan hreinsuð
og lagfærð á Keflavíkurflugvelli.
Eins og áður sagði var hún svo
færö Seyðfírðingum til eignar nú
fyrr á þessu ári, og er ekki að efa
að Seyðfírðingar kunna vel að
meta þennan minningargrip um
þennan einstæða atburð úr sögu
kaupstaðarins, sem loftárásin á
E1 Grillo er.
Reuter
Michael Jackson veifar til aðdáenda sinna við komuna til Japan.
Michael-æði
íJapan
Michael Jackson virðist vera á góðri leið með að leggja heiminn
að fótum sér eftir útgáfu nýjustu skífunnar sinnar, „Bad“.
Platan hefur selst geysilega vel, en Michael ætlar nú að láta kné
fylgja kviði, og fara í tónleikaferð um heimsbyggðina. Hann byijar
í Japan og ætlar að vera þar í heilan mánuð, en þetta er í fyrsta
skipti sem kappinn heimsækir aðdáendur sína þar. Fréttir herma að
þetta verði umfangsmestu og dýmstu tónleikar sem Japanir hafí
nokkum tíma séð, og er þá tónleikaferð Madonnu þar nú á dögunum
ekki undanskilin.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Michael steig út úr flugvélinni
á Narita-flugvelli í Tokyo á miðvikudaginn. Hann virðist vera hinn
ánægðasti, enda virðist honum vera að takast að endurheimta titilinn
„stærsta poppstjama í heimi", sem hann var tvímælalaust fyrir nokkr-
um ámm í kjölfar metsöluplötunnar „Thriller", og metsölutónleika í
Bandaríkjunum.
JAPANSKAN,
SÆNSKAN EDA
AMERÍSKAN BÍL
PYSKAN,
NIPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUMÁ LAGER:
kúplingar,kveikjuhluti;bremsuhluti,
STARTARA, ALTERN ATORA, SÍUR, AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
ÍSLEIFUR JÖNSSON
Bolholt 4 • Sírrur: 36920 - 36921