Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
i 62
tuém
FOLX
IÞROTTIR HELGARINNAR
Baráttan um Evrópu-
sætið í algleymingi
Úrslitaleikur bikarkeppni kvenna í dag kl. 17
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Lelkir U j T Mörk u j T Mörk Mörfc Stig
VALUR 17 4 4 0 16 : 6 6 2 1 14: 4 30: 10 36
FRAM 17 4 2 2 18 : 11 5 2 2 15: 10 33: 21 31
ÍA 17 5 0 4 19 : 17 4 2 2 17: 13 36: 30 29
ÞÓR 17 5 2 2 21 : 12 4 0 4 11 : 17 32: 29 29
KR 17 5 1 3 18: 9 2 3 3 10: 11 28 : 20 25
KA 17 2 2 4 10 : 9 3 3 3 8: 8 18: 17 20
ÍBK 17 2 3 4 8 : 12 3 2 3 14: 18 22 : 30 20
VÖLSUNGUR 17 1 2 6 10: 16 3 2 3 10: 16 20: 32 16
VÍÐIR 17 1 3 4 11 : 14 1 5 3 7: 19 18: 33 14
FH 17 2 3 3 8: 10 1 1 7 10: 23 18: 33 13
UFRANK McLintock, verður heið-
ursgestur á lokahófí félags 1.
deildarleikmanna í knattspymu í
Broadway annað kvöld. Mclintock
var fyrirliði Arsenal-liðsins þegar
það var upp á sitt besta, og varð
bæði deildar- og bikarmeistari vet-
urinn 1970-71. McLintock er nú
aðstoðarframkvæmdarstjóri hjá
v Millwall.
MFRWRIK Friðriksson, mark-
vörður Fram og varamarkvörður
landsliðsins í knattspymu, heldur
utan til náms um áramót og leikur
því ekki með Frömurum næsta sum-
ar. Þeir leita nú að eftirmanni
Friðriks. Heyrst hefur að áhugi sé
meðal Framara á að fá Guðmund
Baldursson til baka en hann stend-
ur nú í marki nýkrýndra íslands-
meistara Vals. Annar er einnig
nefndur til sögunnar, enginn annar
en Bjarni Sigurðsson landsliðs-
markvörður sem nú leikur með
Brann í Noregi. Bjarni lýkur námi
sínu þar í vor, en hefur enn ekki
-f ákveðið hvort hann kemur heim þá
eða leikur áfram ytra.
UFORRÁÐAMENN handknatt-
leiksdeildar Breiðabliks eru ekki
sérlega hrifnir af þeim samningi
sem Iþróttasamband íslands gerði
á sínum tíma við Flugleiði. Blikar
taka þátt í Evrópukeppni í vetur
og leika á næstunni heima og heim-
an gegn danska liðinu HIK. Nú
hefur komið í ljós að farmiði með
ÍSÍ-afslætti til Kaupmannahafnar
og til baka kostar 20.650 krónur
(en þess má geta að PEX-miði kost-
ar 19.030!). Blikum fannst þetta
heldur hátt og komust að því hjá
danska liðinu að þeir borga Flug-
leiðum 12.880 krónur fyrir miðann
frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur
og til baka!
MVÍKINGAR mæta ensku liði í 1.
umferð Evrópukeppninnar í hand-
bolta. Þegar seinni leikurinn fer
fram hér heima, 4. október, verða
báðir markverðir Víkinga illa ijarri
góðu gamni. Krislján Sigmunds-
son verður starfs síns vegna á
vörusýningu í London og Finnur
Thorlacius verður í fríi í Brasilíu.
Það þarf því að kalla á Sigurð
Jensson, markvörð 2. flokks í leik-
inn. Þess má þó geta að Kristján
íhugar nú að koma heim á leikdag,
degi fyrr en hann áætlaði, og koma
því beint af flugvellinum í leikinn!
MRJARNI Felixson, íþróttafrétta-
maður sjónvarps, mun sýna leik
Noregs og íslands í Evrópukeppni
landsliða í knattspymu beint frá
Noregi 23. þessa mánaðar, eins og
við sögðum frá í gær. Bjarni lætur
ekki þar við sitja fyrst hann verður
kominn yfír hafíð, því nú heyrum
við að hann ætli að sýna leik Breiða-
bliks og HIK í Evrópukeppninni í
handbolta beint. Hann fer fram
laugardaginn 26. september.
BARÁTTAN um sœti í UEFA-
keppninni á nœsta ári er nú í
algleymingi. Það eru Skaga-
menn og Þór frá Akureyri sem
eiga möguleika á að tryggja sér
þetta sæti. Liðin eru jöfn að
stigum en Skagamenn hafa
hagstæðara markahlutfall,
eins og sjá má á stöðutöflunni
hór til hliðar, og Þór verður því
að fá fleiri stig úr ieikjum dags-
ins. Fallbaráttan ereinnig mikil
og á þeim vígstöðvum eru það
FH, Víðir og Völsungur sem
eigast við.
Síðasta umferð 1. deildar verður
leikinn í dag og hefjast allir
leikimir klukkan 14. Valsmenn eru
orðnir íslandsmeistarar og þeir taka
á móti Völsungum að Hlíðarenda
og er það mjög mikilvægur leikur
fyrir Húsvíkinga. Þeir verða helst
að fá stig en geta þó sloppið þó
þeir tapi. Þeir hafa 16 stig og eru
með 12 mörk í mínus.
Víðir tekur á móti KR og ef heima-
menn vinna þann leik verða þeir
komnir með 17 stig og dugar það
þeim ef Völsungur tapar en ekki
ef jafnt verður að Hlíðarenda, nema
Víðir vinni með þriggja marka mun.
Skagamenn leika við KA á Akur-
ejrri og það verður örugglega vel
fylgst með leik FH og Þórs í Kapla-
krika því úrslit leilq'anna skera úr
um hvort ÍA eða Þór leika í UEFA-
keppninni á næsta ári.
Fram og Keflavík leika á Laugar-
dalsvelli og er það eini leikurinn sem
skiptir engu máli hvað varðar stig
því bæði liðin hafa að engu að keppa
nema fá fleiri stig.
BikarúrslK kvenna
Valur og Akranes leika til úrslita í
bikarkeppni kvenna á Valbjamar-
velli í dag klukkan 17. Skagastúlkur
unnu Val í sfðasta leik liðanna og
tryggðu sér þar með íslandsmeist-
aratitilinn og munu bæði lið hafa
fullan hug á að vinna þennan leik.
Það vita allir hversu spennandi 2.
deildin hefur verið í sumar og á
morgun lýkur henni. Þá leika
Víkingur og Selfoss á Laugardals-
velli, Einheiji og UBK á Vopnafírði,
KS og ÍR á Siglufírði og ÍBÍ fær
ÍBV í heimsókn.
Leikur umferðarinnar er viðureign
Víkings og Selfoss en það lið sem
vinnur kemst upp í 1. deild að ári.
Sund
Um helgina fer fram keppni í 3.
deildinni í sundi og verður keppt á
Siglufírði.
HANDKNATTLEIKUR / VESTUR—ÞÝSKALAND
Groswallstadt spáð meistaratitli
VESTUR—ÞÝSKA1. deildin í
handbolta, „bundesligan" svo-
kallaða, er hafin. Á fimmtu-
dagskvöld fór fram fyrsti leikur
deildarinnar í ár, Dortmund
mætti THW Kiel, og sigraði
Dortmund óvænt 22:20. í dag
og á morgun fara síðan fram
aðrir leikir fyrstu umferðar. Þá
leikur meðal annars Gummers-
bach úti gegn Schwabing,
Grosswaldstadt gegn Lemgo,
> Dússeldorf mætir Milberts-
hofen og Essen fær Nurnberg
í heimsókn.
Tíunda keppnistímabil deildar-
innar með núverandi sniði er
nú að hefjast. Aldrei hafa liðin þurft
að greiða jafn mikla peninga í laun
og í vetur og einnig
Frá keyptu sum þeirra
Jóhannilnga leikmenn fyrir mikl-
Gunnarssyni ar fúlmjr. Talið er
ÍÞýskaiandi að lejkmenn Qg
þjálfarar deildarinnar kosti félögin
fjórtán litlar 10 milljónir marka,
sem samsvarar rúmum 215 milljón-
um íslenskra króna. Til dæmis
eyddu nýliðar deildarinnar, Wallau
Massenheim, 250 þúsund mörkum
í kaup á nýjum leikmönnum — sem
eru tæpar 5,8 milljónir íslenskar.
Að minnsta kosti íjórir leikmenn
verða settir í bann vegna þess að
þeir fengust ekki lausir frá þeim
félögum sem þeir voru. Scwhabing
og Essen misstu bæði tvo landsliðs-
menn til annarra félaga; bæði
félögin standa hins vegar fast á
sínu og sleppa mönnunum ekki og
verða af 100.000 þúsund mörkum
hvort fyrir vikið. Það má með sanni
segja að stjómun á 1. deildarliðun-
um sé í erlendum höndum, því 10
af 14 þjálfurum deildarinnar eru
útlendingar. Þar af eru 3 Júgósla-
var, 2 Rúmenar, 1 Ungveiji, 1
Pólveiji, 1 Tékki, 1 íslendingur og
í fyrsta sinn sovéskur þjálfari —
enginn ófrægari en Klimov, sem
verið hefur aðstoðarþjálfari sovéska
landsliðsins sem tók við liði Mil-
r bertshofen. Með honum kprn
leikmaðurinn kunni Gagín; örvliént
skytta. Það má segja að með komu
þeirra sé nýr kafli í vestur þýskum
íþróttum hafínn, en Gagin er fyrsti
sovéski handboltamaðurinn sem
fær að leika í vestur-Evrópu.
Undanfarið hafa margir sérfræð-
ingar velt fyrir sér möguleikum
liðanna í vetur. Flestir þeirrar skoð-
unnar að meistarar að þessu sinni
verði Grosswallstadt. Tíu af íjórtan
þjálfurum í deildinni eru sömu skoð-
unar. Sterk staða Grosswallstadt
hjá sérfræðingum byggist öðru
fremur á því að liðið hélt öllum
sínum sterkustu leikmönnum frá
því í fyrra, og bætti að auki við sig
þremur landsliðsmönnum, tveimur
vestur-þýskum og einum tékknesk-
um, hinum heimsfræga Barda, sem
staðið hefur í marki Dukla Prag
og landsliðsins. Fyrir í markinu var
Roch, fyrrum landsliðsmarkvörður
Þjóðveija. Sem sé valinn maður í
hveiju rúmi hjá liðinu, samtals 14
landsliðs- eða unglingalandsliðs-
menn hjá þessu eina frægasta
félagsliði Evrópu. Markmið félags-
ins eru skýr í vetur: við ætlum að
vinna deild, bikar og Evrópukeppni
bikarhafa, segja forráðamenn þess.
Lítum nú nánar á liðin þar sem
íslensku leikmennimir eru fremstir
í flokki.
Dusseldorf
Hjá Dusseldorf leikur sem kunnugt
er Páll Ólafsson og hefur hann ver-
ið ein aðal drifijöður Iiðsins á
undirbúningstímabilinu í haust. Páll
leikur greinilega mun stærra hlut-
verk en á síðasta keppnistímabili
þar sem hann lék nær eingöngu í
vöm. Landsliðsmaðurinn Schöne
yfirgaf félagið, og gekk til liðs við
nýliðana Wallau Massenheim. Að
öðru leyti er liðið nær óbreytt, en
reyndur leikmaður úr 2. deild kom
í stað Schöne. Ég er þeirrar skoðun-
ar að liðið sé síst slakara en í fyrra,
og liðsheildin sennilega sterkari. I
fyrra hafnaði liðið í 6. sæti, og
ætti nú að geta barist um sæti 4
til 6. Helsta vandamálið er að fáir
áhorfendur koma á heimaleiki liðs-
ins, þannig að þeir leika á „hlutlaus-
'uih" •vélíi'hfeim,a^fy•fir., En á útivelli
er liðið sterkara þó ótrúlegt sé.
Dusseldorf var þriðja sterkasta
útiliðið í fyrra.
Lemgo
Liðið Lemgo, sem Sigurður Sveins-
son leikur með, er spáð svipuðu
gengi og á síðasta keppnistímabili,
en þá lenti liðið í 9. sæti. Skipt
hefur verið um þjálfara hjá féiag-
inu, en árangurinn á undirbúnings-
tímabilinu hefur ekki verið sem
bestur. Margir æfíngaleikir tapast,
en hafa ber í huga að nýr þjálfari
þarf ákveðinn tíma til að koma
sínum hugmyndum á framfæri
þannig að kannski smellur þetta
allt saman á réttum tíma. Reyndur
markvörður gekk til liðs við Lemgo,
sá heitir Niemeyer, og lék á sínum
tíma með Ólafí H. og Axel Axels-
syni hjá Dankersen! Auk þess fékk
liðið ti! sín atar sterkan homamann
frá Hameln. Lemgo er afar erfitt
heim að sækja og nær ósigrandi á
heimavelli sínum. En árangur liðs-
ins undanfarin ár á útivelli er ekki
til að hrópa húrra fyrir. Haldi
Lemgo sínu striki á heimavelli og
styrkst á útivelli ætti liðið að geta
lent í 6.-9. sæti deildarinnar. Sérs-
taklega ef Siggi Sveins verður jafn
góður og hann hefur verið undan-
farin ár.
Gummarsbach
Kristján Arason og félagar í Gum-
mersbach hafa verið sannfærandi á
undirbúningstímabilinu. Liðið lék
langt undir getu á síðasta keppn-
istímabili en lenti þrátt fyrir það í
3. sæti deildarinnar og leikur í IH-
F-keppninni á þessu ári. Sannleik-
urinn er nefnilega sá að
Gummersbach hefur á að skipa sjö
jafnsterkum leikmönnum og sleppi
þeir við meiðsli er liðið helst talið
geta ógnað veldi Groosswallstadt í
vetur. Það mun að miklu leyti velta
á því hvort Kristján Arason leikur
jafn vel og gegn íslenska landsliðinu
á dögunum (átta mörk), og með
íslenska liðinu gegn Essen (níu
mörk), hvort frægasta félagi Evr-
ópu, Gummersbach, tekst að verða
þýskalandsmeistari í ár. Lla
Kristján Arason hefur leikið mjög
vel í haust í æfíngaleikjum. Jóhann
Ingi spáir að það velti mikið á Kristj-
áni hvort liði Gummersbach takist að
velgja Grosswallstadt undir uggum.
Essan
Hvað með Vestur-Þýskalandsmeist-
arana undanfarin tvö ár? í liði
meistaranna leikur sem kunnugt
er Alfreð Gíslason. Framkvæmda-
stjóra liðsins tókst ekki að halda
liðinu saman eins og hann hafði
lofað þjálfaranum því tveir af bestu
mönnum liðsins í fyrra, landsliðs-
mennimir Springel (skoraði 80
mörk í fyrra og var jafnframt einn
besti vamarmaður deildarinnar)
Rauin (40 mörk í fyrra) yfirgáfu
félagið. Þar með er sagan aðeins
hálfsögð því í haust meiddust síðan
þrír af sjö fastamönnum í liðinu það
illa að þeir missa 10 fyrstu leikina
í deildarkeppninni. Frægastur þess-
ara er Jochen Fraatz, sem af
mörgum er talinn einn besti hand-
knattleiksmaður heims (140 mörk
á síðasta keppnistímabili) en hann
sleit liðbönd í hné. Essen verður
' því að fetiila upp hálfgerðu varaíiði
í upphafí móts, og það veltur mikið
á því hvemig Alfreð Gíslason leik-
ur, hvort Essen nær að halda í við
betri lið deildarinnar, þar til hinir
slösuðu leikmenn koma inn í liðið
að nýju. Búast má við því að Alfreð
verði tekinn úr umferð úr hveijum
leik og verður þá fátt um fína
drætti í sóknarleik Essen-manna.
Þrátt fyrir að útlitið sé dökkt hjá
liðinu vonast leikmenn þess til að
beijat um 3.-5. sæti í deildinni.
Bjami og Sigurjón í 2. deildinni
í norður-hluta 2. deildar leikur sem
kunnugt er Bjami Guðmundsson
með Wanne Eickel, en einmitt þang-
að skiptu tveir Essen-leikmenn,
Rauin og Springel. Bjami hefur
verið máttarstólpi Wanne undanfar-
in ár og undirstrikar val hans sem
eins besta homamanns Þýskalands
í Handball-Magazine á dögunum
getu Bjama. Takist liðinu að hala
inn nokkur stig áður en fyrrum
Essen-leikmennimir tveir geta farið
að spila á liðið góða möguleika á
að vinna sig upp í 1. deild.
í suður-hluta 2. deildar leikur Sig-
uijón Sigurðsson, fyrrum leikmaður
Hauka, og markakóngur íslands-
mótsins í fyrra, með Schutterwald.
í spjalli við þjálfara hans á dögunum
kom fram að Siguijón hefði tekið
miklum framfömm, en samt sem
áður vænti félagið ekki of mikils
af honum á fyrsta keppnistímabil-
inu. Hann leikur mikið í hægra
hominu, og hefur auk þess sýnt
mikið öryggi í v'taköstum í æfinga-
leikjum liðsins. Schutterwald er
talið vera með sterkasta liðið í suð-
ur-hluta 2. deildar, þannig að ekki
er ólíklegt að Siguijón leiki í 1.
deild að ári, ásamt Bjama.
Eins og undanfarin ár ætla ég að
reyna að spá um röð liðanna í 1.
deild, og spá mín er eftirfarandi:
1. Grosswallstadt, 2. Gummers-
bach, 3. Milbertshofen, 4. Kiel, 5.
Essen, 6. Dússeldorf, 7. Dormagen,
8. Lemgo, 9. Wallau, 10. Dort-
mund, 11. Göppingen, 12. Hof-
weier, 13. Numberg, 14.
-iSchWábirig. vdteiTÁ i