Morgunblaðið - 10.10.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.10.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1987 Landsfundur Borgaraflokksins eftir Þóri Lárusson Dagana 24.-26. september var fyrsti landsfundur Borgaraflokks- ins haldinn í Reykjavík. Aðeins 5 mánuðir eru liðnir frá stofnun hans og þvi nauðsynlegt að staðfesta með þessu þingi stefnu hans og setja flokknum starfsreglur. Eins og segir í stjómmálaálytun „er landsfundur lokaatriði í verkefna- röð, sem staðið hefur nær óslitið frá kosningum 25. apríl sl. Gengið hefur verið frá stofnun félaga „Borgaraflokksins í öllum kjör- dæmum landsins og kjörnar félags- og kjördæmastjómir um land allt.“ Þar sem stefnuskrá flokksins var vandlega frágengin við framboð, fyrir aðeins 6 mánuðum, var ekki búist við neinum stórvægilegum breytingum, miklu fremur skerpt á ýmsum áherzluatriðum, og upphaf- leg stefnuskrá nær óbreytt. Borgarafundurinn Að kvöldi 24. september var haldinn opinn borgarafundur sem sóttu um 400 manns. Formaður landsfundamefndar, Júlíus Sólnes, setti fundinn og séra Gunnar Bjömsson flutti hugvekju. í ræðu Alberts Guðmundssonar skýrði hann frá tildrögum þess að hann hvarf úr Sjálfstæðisflokknum og vegna hvers Borgaraflokkurinn varð til. Hann minntist einnig á að núverandi ríkisstjóm væri barin saman af ótta við Borgaraflokkinn. Þá benti hann á kosningaloforð stjómmálaflokkanna. Að verðbólga yrði sambærileg við það sem hún er í nágrannalöndum okkar, að vömverð lækkaði, að kaupmáttur hækkaði, að vextir lækkuðu og að skattar lækkuðu. Efndimar em hinsvegar aukin verðbólga, hækk- andi vömverð, hækkandi vextir, skattar hækkaðir og að fyrirtæki greiði hærri skatta. Hann taldi það alvarlegt að Sjálfstæðisflokkurinn hótaði stjómarslitum ef ákveðinn 33 manna stuðningshópur flokksins missti af væntanlegum yfirráðum yfír einum af þremur þjóðarbönkun- um. Hann benti einnig á að Borgaraflokkurinn væri nútíma flokkur sem þekkti köllun sína og vildi sinna framfömm á sviði þekk- ingar og vísinda. Hann benti einnig Þórir Lárusson „Þessi landsfundur hef- ur styrkt mjögf stöðu flokksins til að takast á við þau verkefni sem bíða úrvinnslu. Hann hefur gefið nýrri for- ystu ákveðin fyrirmæli og skapað henni far- veg. “ á að fmmatriði í stefnuskrá flokks- ins „mildi og mannúð" á þann hátt að flokkurinn vildi hlynna að öldr- uðum og sjúkum. Að lokum sagði hann: „Borgaraflokkurinn er flokk- ur með framtíð. Unga fólkið em kyndilberar nýrra tíma. Lands- fundurinn framundan er okkar fyrsti landsfundur. Með honum er- um við að leggja einskonar hom- stein framtíðarstarfa, Guð leiði okkur á réttar brautir, landi og þjóð til blessunar. Eftir ræðu Alberts sátu þing- menn fyrir svömm í um það bil klukkustund. Eftir það vom fijálsar umræður, er margir fundarmenn nýttu sér. Landsfundur Fyrir fundinn lá að setja flokkn- um skipulagsreglur. Höfuðeinkenni þeirra em, að hinn almenni flokks- maður hefur bein áhrif á val forystu flokksins og í stefnumótun hans, en ekki fulltrúa „lýðræði". Of langt mál yrði að taka fyrir allar ályktan- ir þingsins, enda þær frekar stað- festing á 6 mánaða gamalli stefnuskrá flokksins en að þar hafi nokkm verið breytt. Einkum spunn- ust umræður um stefnu flokksins í svokölluðu fóstureyðingamáli. I samþykktri ályktun þingsins segir svo: „Borgaraflokkurinn stuðli að þvi að takmarkanir við fóstureyð- ingar verði hertar eins og auðið er og almenn fræðsla um friðhelgi lífs efld.“ Er hér um örlitla áherzlu- breytingu að ræða. 13 málefnanefndir lögðu niður- stöður fyrir fundinn þar sem ítrekuð er stefna flokksins. í stjómmála- ályktun segir svo m.a.: Borgaraflokkurinn lítur á það sem meginhlutverk sitt að standa með einstaklingnum í baráttu hans í þjóðfélaginu og gegn kerfínu, sem víða reynist andstætt þörfum og beinum hagsmunum almennings. Borgaraflokkurinn leggur þunga áherslu á hallalausan ríkisbúskap í góðæri og jafnframt að ríkisvaldið gangi á undan með góðu fordæmi. Einn versti blettur á íslensku þjóðfélagi í dag er gífurlegt launa- misrétti. Gegn því vill Borgara- flokkurinn vinna af alefli. Þriðja stórverkefnið í íslenskum stjóm- málum er að vinna gegn því þjóð- félagsmeini sem flest í alþekktu skattamisrétti. Borgaraflokkurinn vill byggja landið allt, eftir því sem landkostir bjóða upp á. Borgaraflokkurinn er nýtt afl í íslenskum stjómmálum, sem á sér þó dýpri sögulegar rætur en al- mennt er látið í veðri vaka. Borgaraflokkurinn varð til á örlaga- stundu. Hann er kominn til að vera. Hann verður brjóstvörn einstakl- ingsins hvar sem hann má. Hann vill leggja rækt við íslenska tungu og trausta þjóðmenningu. Virðing Borgaraflokksins fyrir lífi varð landskunn á fyrstu dögum hans. Borgaraflokkurinn vill reisa baráttu sína á kristilegum siðgæðisgrunni þar sem æðsta takmark í mannleg- um samskiptum er kærleikur í verki. Segja má að tæknilega hafí fund- urinn gengið vel þó vissulega hafi verið ýmsir annmarkar þar á, en þá verður að taka tillit til þess að þetta er fyrsti landsfundur flokksins og margt af þeim sjálfboðaliðum, jafnt þeim sem stjómuðu honum og aðrir er lögðu hönd á plóginn, hafa ekki fengist við slíkt áður. Lokaorð Þessi landsfundur hefur styrkt mjög stöðu flokksins til að takast á við þau verkefni sem bíða úr- vinnslu. Hann hefur gefíð nýrri forystu ákveðin fyrirmæli og skap- að henni farveg. Ég vil að lokum þakka öllum þeim fjölda sjálfboða- liða störf þeirra og fjölmiðlum fyrir flutning þeirra af fundinum, sér- staklega þakka ég Morgunblaðinu fyrir að senda sinn hæfasta blaða- mann á vettvang, en hann sat nær allan fundinn og birti frásögn af honum. Höfundur er formaður félags Borgaraflokksins í Reykjavík. BHMR: Rökin fyrir uppsögnum á Orkustofnun léttvæg BANDALAG háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna metur léttvæg rökin fyrir uppsögnum starfs- manna Orkustofnunar segir i fréttatilkynningu frá samtökun- um. Uppsagnimar séu vegna hugsanlegra skerðinga á fjárveit- ingum á næsta ári, þó iðnaðarráð- herra sjái fram á aukin verkefni stofnunarinnar á næstu árum. Þá hafi ekki verið gætt lögbundinnar tilkynningarskyldu til stéttarfé- laga og vinnumálaskrifstofu Félagsmálaráðuneytis. í fréttatilkynningunni segir enn- fremur: „BHMR, sem eru heildarsam- tök háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna, mótmæla harðlega þesssum vinnubrögðum og fela stjóm samtak- anna að standa vörð um hagsmuni starfsmanna, enda varðar niðurstaða þessa máls mikilvæg starfsréttindi allra félagsmanna BHMR. Jafnframt mótmælit BHMR þeim einstæða atburði að vinnuveitandi réki úr starfí stjómarmann í heildar- samtökum launþega og áskilur sér allan rétt til aðgerða". Lambakjötið er Ijúffengur matur. Það er á mjög góðu verði í KRON verslunum núna. Úrval af lambakjöti í allskonar rétti. Frampartar Marinerað kjöt Læri Úrbeinað kjöt Lærissneiðar London lamb Hryggur Hangikjöt Kótilettur Saltkjöt Svið KKN ✓ i Kauptu inn hjá KRON, það er hagstætt. v/Norðurfeli v/Stakkahlíð Stórmarkaður, v/Tunguveg v/Dunhaga Skemmuvegi v/Furugrund, Kóp. Kaupstaður í Mjódd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.