Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987
B 53
Réttlætið getur tekið
á sig margar myndir
Til Velvakanda.
Varla er það í frásögur færandi
þó ég eigi dóttur og tengdason,
búsett í Englandi. Þau hafa búið
þar við nám og störf í mörg ár.
Ég hef látið það eftir mér og þeim,
að senda þeim við og við dagblaða-
pakka. Við tveggja kg. mörkin
breytist burðargjaldið undir þau svo
ég miða sendinguna jafnan við það.
Fyrir þó nokkru fór ég sjálf með
pakkann á pósthúsið. Mér og búr-
vigtinni minni hafði orðið það á að
pakkinn var slök 100 gr fram yfir
tvö kg. Afgreiðsludaman kvað mig
þurfa að borga næsta gjald fýrir
ofan. Það fannst mér harður dómur
því ég fann fyrir því, að ég, sem
er þó póstmeistaradóttir utan af
landi, hefði örugglega talið það
skyldu mína að fóma lögboðinu,
sem að engin brigð vom borin á,
að vísu fyrir alla þá fyrirhöfn sem
var því fylgjandi að rífa pakkann
upp til að taka úr honum hálft
Morgunblað, nú eða þá að borga
undir 80 gr sem kílóavís. Þama
datt ég algjörlega í bólið hjá kaup-
manninum sem sagt var um að
sagt hefði: „Rétt skal vera rétt og
knappt þó.“
Því sting ég nú niður penna að
fyrir fáum dögum var t annað sinn
snarlega varist innan við borðið hjá
pósti. Eg var að senda þessum sömu
bömum mínum íslensku síma-
skrána. Þau eiga tvær dætur, sjö
ára og fjögurra ára. Ég stakk því
með í pakkann „100 ára afmælið"
og „Geitumar þrjár“. Þessu pakka
ég kyrfilega inn og styrki með
límbandi, merki það svo sem prent,
minnug þess að undir það kostar
minna en annan vaming. Ég gat
ekki farið sjálf með pakkann og sá
sem það gerði vissi ekki neitt um
innihaldið. En eins og fyiri daginn
varð mér á í messunni. Ég klippti
ekki af umbúðunum á hominu á
pakkanum eins og ég vissi þó að
átti að gera. Sendimanni var bent
á þetta og hann spurður hvort bréf
væri í pakkanum. Um það hafði
hann enga hugmynd. „Ég finn að
það er bréf í pakkanum," segir sá
þefvísi starfsmaður og þreifar
eflaust á „Geitunum þremur“.
Ég var aftur minnug þess að
ekki má vera einn stafur skrifaður
á snepil innan í því sem merkt er
sem prent. Þess vegna fylgdu tvö
sendibréf, bæði á sama heimilisfang
og pakkinn og með sama föður-
nafni og á honum því þau voru til
litlu teipnanna á heimilinu. Það
dugði samt ekki því að mín megin
lenti yfirbótin, því meira en 500 kr.
kostaði undir sendinguna.
Réttlætið sjálft getur tekið á sig
margar myndir eftir þessu að
dæma. Sjálf hefði ég ekki látið
minn sagnaranda ráða, jafnvel þó
ég hafi í margan máta staðið hann
að meiri nákvæmni en þessi hafði.
Ég hefði svo sannarlega á póstaf-
greiðslu þeirri, sem föður mínum
var trúað fyrir, hreinlega klippt
homið af pappímum fyrir sendand-
ann.
Hann er vonandi að falla úr gildi
málshátturinn „Enginn ætlar öðr-
um það sem hann ekki gerir sjálf-
ur.“
Jónina Jónsdóttir
Kisa er
týnd
Nokkur orð um málfar
Grábröndótt læða tapaðist frá
Baldursgötu 12 í Reykjavfk fyrir
þremur vikum. Hún sást síðast við
Þórsgötu 7, mánudaginn 5. októ-
ber. Hún gegnir nafninu Táta og
var með gula hálsól og með merki-
spjaldi þegar hún hvarf. Það myndi
létta af okkur miklum áhyggjum
ef einhver gæti frætt okkur um
afdrif hennar lifandi eða dauðrar.
Gott væri ef fólk í nágrenninu vildi
athuga í kjallara eða geymsluskúra
sína ef ske kynni að hún hafi lok-
ast inni. Fundarlaun. Upplýsingar
hjá Jóhönnu í síma 25859, Ingólfí
í síma 29300 eða Kattavinafélaginu
í símum 14594 eða 76206.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 13 og 14,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma þvi ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höf uðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér i
Hállfiiniim.
Til Velvakanda.
Einhvern tímann mæltist Jón
Helgason prófessor frá Rauðsgili
til þess 1 lok erindis, sem hann
flutti í útvarp, að menn færu ekki
að hafa eftir sér orðatiltækið „að
reikna með“ og sagðist þó ekki
geta ætlazt til, að allt væri rétt
eftir sér haft. En þetta orðatiltæki,
sem nú er að verða svo mjög
ríkjandi í máli manna, vildi hann
ekki hafa f sfnu máli.
„Upp rís andlegur líkami", segja
ýmsir kennimenn, þegar þeir varpa
rekum að kistu látins manns og
munu þeir með því telja sig leið-
rétta þá fráleitu hugsun, að hinn
látni maður muni síðar rísa upp úr
gröf sinni. En hvað er „andlegur
líkami?" — Hann er nokkuð sem
er ámóta óhugsanlegt og upprísan
úr gröfinni. Þar er aðeins um að
ræða vandræðaorðatiltæki, sem
ekki getur staðizt málfræðilega.
„Af jörðu ertu kominn, að jörðu
skaltu aftur verða, og af jörðu
skaltu aftur upprísa", getur hins
vegar vel staðizt, ef önnur eru höfð
i huga.
Veðurfræðinga vildi ég svo
spyija, hvort ekki væri eins rétt að
segja krepja og slydda, krapaél
og slydduél. Væri ekki Ííka alveg
nóg að segja él, í staðinn fyrir snjó-
él. Það virðist Njáli hafa þótt, þegar
hann fór að reyna að hughreysta
fólk sitt á Bergþórshvoli, þegar bær
hans var þar að brenna. — En hér
ætti ég lfídega að nema staðar og
biðjast afsökunar á afskiptasemi
minni. En él finnst mér naumast
geta táknað annað en þurrakafald
eða hagl. Þ.J.
ORLOFSLAND - ORLOFSHUS
Félagasamtök í Reykjavík vilja selja 10 hektara sumarbústaða-
land í Biskupstungum ásamt sumarbústað. Eignin ertil sölu
í einu lagi eða niðurskipt í fleiri sumarbústaðalóðir. Á svæðinu
liggur vegur og vatnslögn.
Óskað er eftir tilboðum í eignina og seljandi áskilur sér rétt
til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu undirritaðs.
Tilboðum skal skilað í pósthólf 349,121 Reykjavík.
efé/ag
bókagerðar-
manna
H verfisgötu 21,
sími28755.
SLÖNGUKRANAR
UTANHÚSS
-I
.. ; %
Auöveldir i uppsetningu.
Ath. Þeir tæma sig aó lokinni notkun og þvi engin
hætta á frostskemmdum.
Lengdir 40 og 60 cm með færanlegu handfangi (barna-
öryggi) eða með föstu handfangi. Innbyggður ein-
streymisloki. Platan utanhúss er úr ryðfrýju stáli, rörið
úr kopar. Ekkert viðhald.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
. I é HEILDSALA — SMÁSALA
W VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
MÉNMÍ LVNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
r v
BESTI
KOSTURINN!
Nýja ökumanns
húsið er
þekkt fyrir
þægindi og
vandaðan frágang
NÝJA LÍNAN - FORCE II
Nýtt ökumannshús í sérflokki, öflugri mótor en
sparneytnari og samhæfður gírkassi með fjölda
hraðastiga.
Eigum íáeina vel útbúna traktora,
á mjög hagstæðu verði.