Morgunblaðið - 22.11.1987, Síða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Morgunblaðið/Sverrir
Rokk, popp, blús og jass
Tónleikaför á fimmtudegi
Haukur og Megas á Borginni.
Grafík i Duus.
Tíbet Tabú i Casablanca.
Solid Silver í Hart rokk kaffi.
Það heyrast oft raddir sem
kvarta yfir því, ekki að
ófyrirsynju, að ekki sé til
tónleikastaður við hæf i í
Reykjavík. Tónlistarmenn
láta það þó ekki á sig fá
og halda tónleika á þeim
stöðum þar sem hægt er
að koma inn nokkrum
manni. Síðasta fimmtu-
dagskvöld voru enda
tónleikar á fimm stöðum
það sem gaf að líta sex
hljómsveitir, sem léku
flestar gerðir tónlistar;
rokk, popp, blús og jass.
Oðru fremur sýnir það
gróskuna í tónlistarlífinu í
Reykjavík og víst er að
ekki er sagt frá einhverj-
um af þeim tónleikum sem
um kvöldið voru.
ITónabæ komu fram Rauðir
fletir og Óþekkt andlit, í
Hart rokk kaffí Solid Silver,
hljómsveit Bobby Harrison,
í Casablanca hljómsveitimar E-X
og Tíbet Tabú, í Duus Grafík og
á Borginni Tríó Guðmundar In-
gólfssonar, fyrst eitt sér, en í lokin
með Hauki Morthens, Megas og
Bubbi Morthens.
í Hart rokk kaffí lék hljóm-
sveit Bobby Harrison blúsblendið
rokk og kynnti efni af væntan-
legri plötu Bobbys. Allir hljóð-
færaleikarar eru framúrskarandi,
en samt sem áður náði sveitin
ekki vel saman þetta kvöld og í
þeim lögum sem undirritaður
heyrði var útkoman á köflum
grautarleg.
í Casablanca var E-X í miklum
ham og kynnti lög af plötu sem
Pétur söngvari sveitarinnar lofaði
(hótaði?) að út kæmi stuttu eftir
áramót. Á eftir E-X kom Tíbet
Tabú sem hélt sína fyrstu opin-
beru tónleika þetta kvöld. Tíbet
Tabú er þétt og þau lög sem undir-
ritaður heyrði hengu vel saman
en nokkuð skortir á að þau séu
eftirminnileg og frumleg.
Grafík lék í Duus, eins og áður
sagði. Grafík hefur fengið mikla
umfjöllun og lofsamlega í fjölmiðl-
um, en Duus tónleikamir vom
greinilega ekki nægjanlega vel
kynntir.
Á Hótel Borg var margt um
manninn á jass og blús kvöldi tríós
Guðmundar Ingólfssonar. Tríóið
er afbragðs gott og sveiflan góð.
Eftir að tríóið hafði lokið leik
sínum, kom fra_m Bubbi Morthens
með gítarinn. Á eftir Bubba kom
síðan Megas og á eftir Megasi
kom tríóið aftur á svið og þá sem
undirleikarar fyrir Hauk Mort-
hens. Eini hreinræktaði blúsinn
sem heyrðist þetta kvöld var frá
Bubba, en hann lauk sínum tón-
leikaskerf með tveim fyrirtaks
blúsum eftir Leadbelly. Ekki var
blúsinn þó langt undan hjá tríóinu
og Hauki, enda vora þeir að flytja
blúsaðan jass. Haukur var fram-
úrskarandi, og ekkert venjulegt
tríó sem studdi hann. Hann sýndi
á sér sínar bestu hliðar og hafði
áheyrendur í hendi sér. Þeir vora
og vel með á nótunum og þekktu
flestöll þau lög sem flutt vora ef
marka mátti fagnaðarlæti við
upphaf þeirra. í lok tónleikanna
bauð Haukur Megasi á svið og
sungu þeir saman með sveiflu Lóu
litlu á Brú og When the Saints
við mikinn fögnuð.
Fimmtudagar eru orðnir mikill
annatími fyrir þá sem hafa áhuga
á tónlist og þrek til að koma sér
á tónleikastað. Ekki væri og verra
ef þeir sem um tónlist fjalla bijóti
odd af oflæti sínu og geri meira
af því að fara á tónleika, enda
er það þar sem í ljós kemur hvað
spunnið er í hijómsveitina eða
söngvarann. Ekki er öllum hljóm-
sveitum lagið að leika á tónleikum
og þar skilur á milli þeirra hljóm-
sveita sem eitthvað er spunnið f
og hinna sem lifa og deyja í hljóð-
ven' Árni Matthfasson