Morgunblaðið - 26.11.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987
17
Sonur Sigurðar
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur: Guðlaug Richter.
Myndir: Þorvaldur Þorsteinsson.
Hönnun kápu: Teikn. Setning:
G.R. Prentverk: Oddi hf. Útgef-
andi: Mál og menning.
Bókin er tilraun ungs höfundar
til þess að lýsa lífí æskumanna á
þjóðveldisöld, og óhætt er að óska
honum til hamingju, svo frábærlega
hefur til tekizt. Það er eins og Is-
lendingasögumar gömlu faðmi
mann að sér á ný, og illa er ég
svikinn ef þessi bók kveikir ekki
fróðleiksfúsum unglingum þrá eftir
að kynnast sagnaheimi, sem, því
miður, er að glatast þjóðinni. Ég
er þakklátur fyrir það, að það er
kona sem gerir þessa tilraun, kona
sem skilur, að það er ekki sama,
hvað að bömum er rétt. Hér takast
á ljós og myrkur, og það er lesanda
engin gáta með hvom höfundur
heldur.
Sögusviðið hefst að Gmnd, höfð-
ingjasetri Sigurðar mjögsiglanda.
Hann var þá nýfallinn í vopnaskaki
á írlandi. Inn á sviðið em leiddir
drengir tveir: Þorsteinn sonur As-
dísar húsfreyju og Gijótgarður
sonur Heiðar ambáttar. Þorsteinn
var alinn í lokrekkju frúar og er
hann hafði aldur til var honum kom-
ið í fóstur til Onundar frænda síns,
drengurinn skyldi læra þar vopna-
burð, leiki og háttu heldri manna.
Gijótgarður „skauzt inní ættir
landsins" undir grjótvegg, hlaut
menntun við hlið vinnuhjúa, bar
viðkvæmt, hrifnæmt hjarta, en
hafði auk þess hlotið í vöggugjöf
meiri fráleik á fæti en aðrir menn.
Höfundur gleymir ekki stflbragði
gömlu meistaranna að gera grein
fyrir sögunni með táknum eða
draumum í upphafi. Guðlaug lætur
seiðkonu lesa auðnu drengjanna úr
fossúða, og er á söguna líður magn-
ast martraðardraumar.
Þeir em ólíkir drengimir. Annar
veit, að þeir em bræður, það hafði
hann lært af hljóðskrafi við móður
sína, niður við læk, og orðum Ás-
dísar frúar: „Þú hefur augun hans
Sigurðar bónda míns.“ Hann sér
aðeins sjálfan sig, metur ambáttar-
soninn ekki meir en tryggan hund.
Þar kemur sögu, að höfðingjasyn-
imir taka að reyna með sér hver
sé mestur, og til hestaats er stofn-
að. Ekki gat ég varizt því að
minnast alls fjaðrafoksins í sumar,
er Hrafn Gunnlaugsson kvikmjmd-
aði slíkt atriði við Gullfoss. Höfund-
ur nótar hér merar tvær bundnar
á streng' við á. Kannski var þetta
gert svona, ég hestaunnandinn hefi
hvergi rekizt á slfka lýsingu í göml-
um ritum. Hitt minna meramar
mig á, öskrandi stelpur við veggi
danssala, er það var í tízku, að ölóð-
ir strákgemlingar héldu það hetju-
legt að pota með hnefum í andlit
annarra gemlinga_á „skemmtun-
um“. En sleppum því. Þorsteinn
verður höfðingjasyni að bana, og í
helli við Úlfúðames máttu þeir
hírast bræðumir. Þar lærði Gijót-
garður: „Ég er hræddur við vopn
og menn og Þorsteinn er hræddur
við myrkrið." Hér finnst mér höf-
undur segja í raun allt um áhrif
mótunar, slípunar þeirra hæfíleika,
er böm bera með sér til jarðar. Af
sama sæði urðu þeir til, en hversu
ólík var ekki mótunin. Annar skyldi
drottna og ríkja með afli og styrk
Guðlaug Richter
vopna, hinn lærði auðmýkt og hlý-
leik af náttúmnni og streðandi fólki.
Og er að tafls lokum kemur, þá er
hrokinn í valnum, en drenglyndið
heldur móti sólríkum dögum að
Brúsastöðum.
Sagan er frábærlega sögð, hröð
— skemmtileg og göfgandi. Hér er
auðsjáanlega kominn fram höfund-
ur sem kann þau tök, er skipa
honum í fremstu röð, er nú skrifa
fyrir íslenzka æsku. Til hamingju
Guðlaug.
Prófarkalestur höfundar er mjög
vel unninn og allt prentverk til
sóma.
Myndir Þorvaldar fullar dulúð og
spennu eins og þessari bók hæfir.
Hafi útgáfan kæra þökk fyrir að
rétta svo góða bók móti æskufólki.
í HINUM RAUÐA, MJÚKA POKA
LEYNIST HÖFUGUR KAFFI — ILMUR
Jíem£d
selur brag á '•
sérlivern dagr
l hvcrt skipti, sem þú opriur rauðu
pokanrt frú Merrildjinnur þú
strux, hvernig kaffiannunin
breiðist út urn eldhúsið.
Annanin vekur eftirvœntingu
um bruRðnott or ilmandi
kaffi. sem kitlar bruRð—
laukanna or keirnurinn
varir lengur / munninum
en þú att uð venjust.
Merrild—r æðak affi,
sem bruRð er af,
enda frarnleitt úr
bestu fúunleRum
kaffibaunurn frú
Brasiliu, Kólutnblu
or Mið—Arneriku
<1
pók
]góð bók
Jón SteinarGunnJa
Bókin sem fjallað hefur verið um í fréttatimum og á forsiðum dag-
blaða. Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta^éttarlögmaður gagnrýnir
meðferð Hæstaréttar á sex málum þar sem reynir á nokkur mannrétt-
indaákvæði stjórnarskrárinnar.
Þagnarmúrinn um Hæstarétt rofinn.
HeiðAjv
LAppÐ
a jfolt1
Nú kynnimi við Ijúffenga lambakjöts-
rétti í hádeginu á sunnudögum
SUNNUDAGUR 29. NÓV.
Kryddlcgiö lambainnlceri meó rósarkáli. fylltum
tómötum ogbasilikumsósu.
Marsipanrjómais.
SUNNUDAGUR 6. DES.
Heilstciktur lambavöóvi meö sveppum. grœnu
blómkáli og hunangssósu.
Gráfikjurjómaís.
SUNNUDAGUR 13. DES.
Innbakaöur lambavöövi meö blómkáli, gulrótum
og mintsósu.
Holtsrjómais.
Verð kr. 695,- fyrir fullorðna
og kr. 350,- fyrir börn.
Njótið hádegis á Holti með allrifjölskyldunni.
ÉSSlli I
BERGSTAÐASTRÆTI37