Morgunblaðið - 26.11.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 26.11.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987 Jón Þ. Árnason: - Lífríki og lífshættir CXXII Spurningin er: Hvert er upphaf þeirrar speki, að því betur verði stjómað, þeim mun fleiri, sem hafí hendur um stjómvöl? Áratugum áður en grænt varð tízkulitur á hinu pólitíska flimt- leikasviði höfðu ýmsir framsýnir áhugamenn um líf- og náttúru- vemd hafízt handa og vakið athygli á afleiðingum, sem nálega 200 ára vélrænt efnahagstrúboð hafði haft í för með sér. Þó var, og er, aðaláherzla ætíð lögð á að leita orsaka og brjóta til mergjar. Lífvemdarfólk hefír og ávallt leitazt við að örva til hugsunar Ulú það, sem óumflýjanlegt yrði, ef ekki tækist að kæfa ofsatrú á almætti manneskjunnar yfír nátt- úruríkinu og lögmálum þess. Enga lífsvon telur það göfugri og eiga rétt á sér nema þá, sem rek- ur rætur í hina óbifanlegu stað- reynd, að manneskjan hafí alltáf verið, sé og verði þegn í náttúru- ríkinu, en ekki herra þess. Efnahagshyggja ógnar náttúruvernd Lífvemdarfólk hefír því alltaf gert kröfuna um róttæka hugar- farsbyltingu og afdráttarlaust afturhvarf frá efnahagshyggju marxista og markaðsmanna að meginmáli. M.a. af þeim sökum hefír það ekki fallizt á að almenn andúð á brotnum flöskum og ryðguðum dósum við þjóðvegi, fjúkandi pappírs- og plastrusli á víðavangi, ærandi bflaskrölti og rafknúnu poppglammi á almanna- færi væri einber hégómi. Það hefír hins vegar álitið að slík óbeit, ein og sér, gæti ekki skipt sköpum. Samt sem áður ber hún umönnun og ræktarsemi við nánasta um- hverfí lofsvert vitni, ef og þegar heiðarlegt hugarfar býr að baki, og ættu raunar að vera sjálfgefíð mál. Lofsvert hlýtur þetta viðhorf að verða að teljast fyrst og fremst af þeirri ástæðu, að í óreiðuheimi efnahagshyggjunnar þykir það fjarri því að vera sjálfsagt. Þar er það reyndar talið standa í vegi framfara og vera þungur baggi á atvinnurekstri. Hvort tveggja má til sanns veg- ar færa, ef viðtekinn skiiningur mengun og -fordómum svo og stéttahagsmunum. Þar með hefír hún aðeins átt spönn ófama til að gerast bein ógnun við þróttm- ikið lífríki og heilbrigða lífshætti. Knýjandi nauðsyn Eins og af eðli máls leiðir, og hér að fram hefír lauslega verið drepið á, skilur hafsjór á milli vinstrihneigðra umhverfíssam- taka og lífvemdarfólks. Annað væri enda óhugsanlegt. Vinstrisinnar bera sig að von- um ákaflega illa undan afleiðing- um áróðurs síns og athafna, en mega hins vegar ekki til þess hugsa að hróflað verði við fordóm- aklastri sínu og heilaspunakerf- um. Þeir ímynda sér enn, að öll veraldleg viðfangsefni leysist auð- hvimleið og hvatvís fyrirbæri í mannvitsbrekkunni, gæti hann sér að skaðlausu leitað álits þýzka hagvísindamannsins Wilhelm Röpke (f. 1899), sem mér er ekki kunnugt um, að hafi verið orðaður við ótímabæra svartsýni. í bók sinni, „Jenseits von Angebot und Nachfrage", (Erlenbach-Zúrich 1958), kemst hann þannig að orði: „Dýpsta kýli menningar okk- ar hefir búið um sig í hinni andlegu/trúarlegu kreppu, sem hefir herpzt í bijósti sérhvers einstaklings og aðeins verður sigrazt á í sál einstaklingsins sjálfs. Um aldarskeið höfum við, með sífellt örvæntingar- fyllri hætti, gert tilraun til að komast af án Guðs og að hefja manneskjuna, vísindi hennar, list hennar, tækni hennar og Guðsfirðarríki hennar, já Guð- leysisriki hennar í eigin sjálfs- upphafningu, upp í hásæti hans.“ í beinu framhaldi af þessu telur hinn mikilsvirti vísindamaður, að menn megi vera þess fullvissir, fengið að njóta sín með mestu ágætum. Það er leikur, sem felst í að hafa skipti á fyrirgreiðslu nú gegn fyrirgreiðslu seinna, og í þeirri íþrótt er leyfílegt, reyndar óhjákvæmilegt, að beita nýjustu auglýsingatækni. „Pólitíkin hefir drabbast niður á austurlenzkt skransölutorg," segir dr. Herbert Gruhl (f. 1921), fyrrverandi sam- bandsþingsmaður Kristilega Lýðraeðisflokksins í Vestur- Þýzkalandi (í bók sinni, „Das irdische Gleichgewicht", Dússeld- orf 1982), „þar sem öll brögð og sálfræðilegar brellur spilafalsar- ans eru taldar leyfílegar.“ Þegar þjóðir og ríki lúta stjóm- arfari og stjómskipan, þar sem þannig er í pottinn búið og jafn- vel með ennþá ömurlegri hætti, heyrir engum einsdæmum til, að vandkvæði, sem öllum em óþægi- leg á að líta, séu tekin af dagskrá í bezta bróðemi, eins og venjulegt er, þegar kosningar vofa yfír. Þá er aðeins spjallað um það sem er vinsælt og skoðanakannanir leiða í ljós að sé áhugavert um stundar- sakir. AFTURGANGA Hagvaxtarapinn missir vitið, þegar vel vegnar; og kjarkinn, þegar á móti blæs. Uppskera efnahagshyggju Gagnkvæmar Alræði Billjónir mútur meðalheimskunnar áfloti er lagður í orðin framfarir og at- vinnurekstur, sem nú og Iöngum áður hafa táknað alla mannlega starfsemi og mannleg umsvif, er þaulefla tól og tækifærí til sfvax- andi eyðslumáttar og hraðteknari stundargróða án þess að gefa beri gaum að framfærsluþoli lands og hafs. Þó að barátta sundurleitra og sértækra hópa fyrir umhverfís- vemd sé yfirleitt góðra gjalda verð svo langt sem hún nær, þá er ofætlun að búast við að hún valdi nema stað- og tímabundnum umskiptum eins og að framan er látið að liggja. Ástæðan er áug- ljós. Athaftiasemin beinist nær eingöngu að afleiðingaratriðum og leiðir þess vegna orsakir óhæf- unnar að mestu hjá sér. Hún er raunalega oft haldin vandræða- legum tvíveðrungi eins og allt annað, sem skortir rótfestu. Bar- áttan hefír ennfremur víða reynzt afar viðnámslöt gegn vinstri- veldlega með tilstuðlan tækninnar og „réttlátri" skiptingu tekna og eigna. Lífvemdarfólk ber sízt á móti því, að afleiðingar hugsunarleysis og skammsýni séu víða orðnar þungbærar eða óbærilegar, og sums staðar óbætanlegar. Það bendir auk þess á, að ástand og horfur séu tvímælalaust uggvæn- legar og algerlega fordæma- lausar, og verði brátt óviðráðan- legar nema til gagnsóknar komi á grunni gjörbreyttrar lífssýnar og hugarfars. Það telur m.ö.o. alla reynsluþekkingu, raunar ver- aldarsögu okkar aila, hafa stað- fest óhagganlega, að vitundin ákvarði og ráði örlögum efnis- heimsins, en ekki öfugt eins og markaðsmenn og marxistar hafa gizkað á — og trúa. Ef einhver skyldi ætla að fram- anritað sé einungis ertni af hálfu einhverra „svartagallsrausara" eða „heimsendaspámanna" við að einn góðan veðurdag muni steypast yfír flest okkar eins og holskefla það, sem fyrst nú sé aðeins fáum ljóst. „Þessi örþrifa- tilraun," bætir hann við, „hefír skapað heim, þar sem manneskjan sem andleg/siðferðileg.lífvera fær ekki þrifízt, en það þýðir blátt áfram, að hún getur einfaldlega ekki lifað í honum til lengdar undir neinum kringumstæðum þrátt fyrir sjónvarp, bflabrautir, skemmtiferðalög og þægileg hfbýli." Á skransölutorgi Wilhelm Röpke fjallaði líka eitt sinn um „listina að múta múgn- um“. Síðan það var hefír einnig sú list þróazt með ólíkindum ört og sífellt nálgazt fullkomnunina (hér á ég ekki við „the perfect crime" eins og gefur að skilja). Lýðræðið hefír orðið að flokka- ræði eða „samkeppnislýðræði", þar sem lög markaðarins hafa Það gerðist ekki fyrst um ára- mótin 1970/1971 að lífvemdar- fólk tók að beita sér fyrir lffsháttabyltingu og gjörtæku aft- urhvarfí til þaulhugsaðrar lífsspeki. í baráttu þess hefír höf- uðáherzla ávallt verið lögð á að leita og fínna orsakir eins og þeg- ar er getið, einkum með hliðsjón af að núlifandi kynslóðir standa augliti til auglitis við ástand og úrlausnarefni, sem aldrei fyrr hafa verið viðfangsefni mann- kynssögu. Lífvemdarfólk hefír, í megin atriðum á sama hátt og Konrad Lorenz, rakið dauðasyndir mannkyns gegn náttúmríkinu í heild og margítrekað: Að umhverfisvemd innan þröngra og staðbundinna marka nær ekki lengur nema ákaflega óverulegum og skammgóðum árangrí; hnatt- feðm, hnitmiðuð og frávikalaus allsherjarstjómun er þvl það, sem allt veltur á og koma verð- ur. Alvörumál Flestum ábyrgum framrýnum og yfírleitt öllu raunsýnisfólki ber nú orðið saman um, að mannkyn- ið lifí og skrimti við tímaþröng, sem þegar gefí ærin tile'ni til örvæntingar. Við stjómvöl erður hvergi komið auga á fory u, er megnar að vekja rökstudd .onir um að takast kunni að bijótast út úr þessari tímaþröng og nýta þá möguleika, sem þó enn verða að teljast vera fyrir hendi til við- náms. Þess vegna er brýnt að vekja enn og aftur athygli á þeirri stað- reynd, sem lífsnauðsyn býður að hafa efst í hugum og hjörtum alls hugsandi fólks, nefnilegaað ríkjandi heimsástand er án nokk- urs efa aigeríega fordæmalaust: 1. Aldrei fyrr en nú hefir móðir jörð haft neitt nálægt því jafn ógnvænlegan mann- fjölda á framfæri sínu — og hann vex um 216.000 líkami á sólarhring. 2. Aldrei fyrr en nú hefir sérhver einstaklingur gert ósvífnari og eigingjarnari kröf- ur til náttúruauðæfa jarðar. 3. Aldrei fyrr en nú hefir mannkynið haft vald yfir stór- virkari tækni til náttúrurán- skapar — og beitt af hugsunarsnauðara ofurkappi. 4. Aldrei fyrr en nú hefir þótt gæfulegt að líða meirihluta meðalheimskingja að ráða ör- lögum rikja og þjóða. 5. Aldrei fyrr en nú hafa herrar heims verið úrræða- lausari andspænis skyldugum verkefnum, vitað minna og ver- ið siðlausari. 6. Aldrei fyrr en nú hefir tortíming vofað yfir sjálfum hornsteinum lífríldsins; — loft, mold og vatn eru þegar úrvinda af völdum efnahagshyggju, eina höfuðskepnan, sem ekki lætur bugast er eldurinn. Við þetta er ekki út í bláinn að bæta, að vegna sívaxandi skýrslnaframleiðslu, óteljandi álitsgerða nefnda og nefnda- nefnda, endurreistra þjóð- hagsspáa á mánaðarfresti og hinna nær óendanlega mörgu koll- steypumöguleika, hefír sérhver ný forspá orðið undanfara sínum flóknari og illskiljanlegri. Og al- veg sérstaklega á allrasíðustu árum hafa fleiri og fleiri þjóð- hagsspár orðið hreint og beint hlægilegar. Þess konar spám hef- ir fíölgað í svipuðu hlutfalli og efnahagsráðunautum, sem oftast álíta sér skylt að skila línuritum, er teiknuð hafa verið eftir for- skrift „stjómmálamanna" — og boða þvi stöðugt vaxandi eyðslu- mátt, meiri „kjarabætur". Ýms rök hníga í þá átt, að nið- urstöður hinna flokkslegu vinnu- bragða muni verða æ fíær veruleikanum í framtíðinni. Enda þótt héðan í frá verði unnt að leggja traustara mat á stöðu mála og rás tímans af þeirri miskunnar- lausu ástæðu, að takmörk vaxtar, sem um aldarfíórðungsskeið hafa verið sýnileg, eru nú orðin áþreif- anlegog örlæti jarðar hefír náð hámarki, þá er óvíst að flokks- málamenn taki upp þá nýbreytni að læra af reynsiunni. Líklegast er að fyrst um sinn a.m.k. verði haldið áfram að reikna upp og fram i óbilandi trú á að aukið peningamagn í umferð þýði vax- andi auðlegð. Nú, í upphafí heímskreppu, sem sennilega verður langvarandi, ef ekki endalaus, „auðgast" mann- kynið um nálægt jafnvirði kr. 400.000.000.000 í peningapappír- um alls kyns á sólarhring eða um kr. 146.000.000.000.000 - eitt hundrað fíörutíu og sex billjónir króna - á árinu 1987. Samt sem áður kvarta allir um peningaleysi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.