Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987 Um ráðhús og flugstöð eftirHelga Baldursson Sunnudaginn 22. nóvember birt- ist í Morgunblaðinu, þriggja síðna grein með spurningum til Davíðs Oddssonar og svörum hans. Grein þessi er skrifuð í nokkuð borgarföðurlegum stfl, en var ágæt- lega fræðandi um mörg atriði, en nokkuð ábótavant í sumum. Ég yrði Morgunblaðinu þakklát- ur ef hægt væri að hafa annað viðtal við borgarstjóra okkar og fá greinargóð svör við þeim spurning- um og athugasemdum, sem koma fram hér á eftir. Aðalatriði málsins virðast eftir- farandi: 1. Er þörf fyrir húsið? 2. Er þörf fyrir bflastæðin? 3. Skaðast lífríki Tjarnarinnar? 4. Er staðsetning hússins að skapi Reykvíkinga? 5. Mun greiðsluáætlun stand- ast? 7. Er andstaða við ráðhúsið and- staða við Sjálfstæðisflokkinn? Er þörf fyrir húsið? Ómótmælanlegt er að Reykjavík- urborg hefur mikla þörf fyrir endurskipulagðan rekstur og mikil hagræðing yrði af því að þjappa öllum deildum borgarinnar saman á einn stað. Hægt væri að koma á mun meiri samvinnu milli deilda borgarinnar ef allar stofnanir henn- ar flyttu saman í nýtt skrifstofuhús- næði. Því verður að svara þessari spumingu játandi. Hitt er svo annað mál hvort þörf er fyrir ráðhús. Nefna má dæmi um hús, sem hefðu hentað ágætlega undir borgarstofnanir, og verið mun betur staðsett, og kostað brot af væntanlegum byggingarkostnaði, svo sem Vörumarkaðshúsið, Aust- urbæjarskólahúsið og jafnvel Morgunblaðshöllin sjálf. Öll þessi hús henta ágætlega og liggja mjög vel við umferð. An efa má nefna önnur hús í borginni, sem henta jafnvel eða betur. Þessi athugasemd er þó mark- laus, þar sem búið er að ákveða að byggja nýtt hús. Er þörf fyrir bílastæðin? Erfitt er án frekari upplýsinga að dæma um þetta en það er ein- falt reikningsdæmi hvort borgar sig að nota kjallarann hjá ráðhúsinu eða byggja nýtt hús. (Þar vil ég nefna Fjalakattarlóðina, sem var kjörin fyrir bílageymsluhús.) Borgarstjórnin verður þó að gæta þess í rekstrarútreikningi að greiða ber fyrir hvert bílastæði. Ekki má með neinum hætti láta yfirmenn borgarinnar fá ókeypis bílastæði fremur en aðra launþega í landinu. Skaðast lífríki Tjarnarinnar? Að öllum líkindum er svo ekki og öll rök hníga til þess að betur verði hugsað um Tjörnina hér eftir, þar sem ekki er lengur þörf á að láta hana drabbast niður — þar sem líklega hefur borgarstjórn ekki kappkostað mjög viðhald og endan- legan frágang Tjamarinnar vegna væntanlegrar byggingar sl. 40 ár. Er staðsetning ráð- hússins að skapi Reykvíkinga? Telja má víst að meirihluti Reyk- víkinga er á móti öllu raski við Tjömina. Okkur hefur tekist með samstilltri baráttu að veija Tjömina að mestu leyti í áratugi. Slysið, sem vofði yfír 1964 var ógnvænlegt og hefði borið Tjörnina og miðbæ Reykjavíkur ofurliði. Að fenginni reynslu er almenn andstaða við byggingar í Tjöminni vel skiljanleg — og í raun er óskilj- anleg sú gífurlega áhersla, sem sjálfstæðismenn í borgarstjóm hafa lagt á að byggja bara í Tjörninni. Ekki er vitað til að aðrir staðir * hafi verið skoðaðir í fullri alvöru svo sem við Sigtún, sem er fallegur staður og liggur mjög vel við um- ferðakerfi borgarinnar. Þetta er athyglisvert atriði, sem „Það er einlæg ósk mín að yfirstjórn borgar- innar taki þessi orð mín sem framlag til bygg- ingarinnar, en ekki sem marklaust andstöðu- hjal.“ er vert að velta fyrir sér, og þá aðallega sem kennslubókaratriði í þráhyggju. Hvað mun húsið kosta? Kjallaramir tveir munu verða ca. 7.600 m2 brúttó, en nýtanlegt flat- armál verður ca. 5.600 m2 Mismun- ur fer í ganga, veggi og tæknibúnað svo sem loftræstikerfi. Nýtanlegt rúmmál ca. 27.000 m3 Áætlað verð á fermetra brúttó er 33 þúsund kr. Áætiað verð á fermetra nettó er 45 þúsund kr. Dæmi nú hver fyrir sig hvort þessar tölur séu líklegar eða trúleg- ar, miðað við það að ekki var búið að vinna eitt einasta verkfræðilegt atriði þegar þessar tölur voru gefn- ar út. Góð aðferð til að fá svona kostnaðartölur er að skrifa nokkrar tölur á vegg og benda blindandi á eina þeirra. Þó er sýnu verra þegar kemur að útgáfu kostnaðartalna við ráð- húsið sjálft. Þar hefur enginn hugmynd um hve húsið verður stórt, þó halda menn að ekki komi til með að skakka meiru en ca. 1000 rúmmetrum (svipað og eitt 350 fermetra einbýlishús). Þar er giskað á að hver fermetri muni kosta ca. 100 þúsund kr. Ekki þori ég að giska á með hvað aðferð þessi tala var fengin, en hún hefur verið ævintýralegri en við kjallarann. Hver útsvarsgreiðandi í Reykjavík, sem greiðir útsvar að ráði, mun því greiða ca. 25.000 — í ráðhússkatt á næstu árum, ef áætlun borgarstjóra stenst, annars 50.000. Nema þá að borgarstjóri ætli að draga úr öðrum fram- kvæmdum sem þessu nemur! Mun greiðsluáætlun standast? Davíð vísar í viðtalinu til Eiffel- tumsins og óperuhússins í Sydney sem bygginga, sem byggðar voru í fullri andstöðu við vilja almenn- ings. Báðar þessar byggingar fóru langt fram úr áætluðum byggingar- kostnaði og var raunar bygging óperuhússins nærri því að stöðvast vegna gífurlegrar kostnðaaraukn- ingar og má telja víst að byggingar- kostnaður hafi verið vanreiknaður í upphafi til að komast svo langt að ekki yrði snúið aftur. Þessi að- ferð hefur oft verið notuð og mun verða notuð áfram. Ekki er vitað með neinni vissu hve mikið húsið mun kosta — þar sem það hefur ekki verið reiknað út. Ekki er hægt að reikna út bygg- ingarkostnað þess þar sem það eru ekki til neinar verkfræðilegr teikn- ingar af húsinu. Ekki er vitað um: steypumagn, járnamagn, milli- veggjamagn, raflagnaefnismagn, pípulagningaefnismagn, gólfefna- magn o.s.frv. Allar tölur, sem birst hafa em grófar ágiskanir, sem munu ekki eiga sér neinn stað í raunveruleik- anum þegar upp verður staðið. Hins vegar er ákveðið að byija til þess að ekki verði aftur snúið. Óþarfa asi og bráðlæti hefur kostað okkur óhemju íjárhæðir. Má þar nefna dæmi um flugstöðina í Keflavík, sem ætti að vera okkur næg refsing. Sóun og stjórnleysi hönnuða og algjört skipulagsleysi og teikningaskortur voru dýrkeypt þar. Skynsamlegast væri að: 1. Taka ákvörðun um byggingu, útlit og staðsetningu. 2. Láta fullteikna húsið í öllum smáatriðum (þótt það taki tvö ár). 3. Meðan verið er að teikna húsið ætti borgin að leggja peninga fyrir í byggingarsjóð t.d. í ríkis- skuldabréfum, eða á annan arðbæran hátt þannig að þegar teikningar verða til þá er fjár- mögnun tryggð. 4. Byggja húsið fullskipulagt á full- um hraða, þannig helst að loftpressa þurfi ekki að koma inn í bygginguna. 5. Meðan verið er að byggja húsið á að semja við innréttingaaðila um alla innréttingaþætti (út- boð). Ef farið væri á þennan hátt í bygginguna má telja víst að eitt til tvö hundruð milljónir munu sparast. Ef farið er í bygginguna á þann hátt, sem borgarstjóri okkar lýsir í viðtalinu, þá vil ég fullyrða að við megum teljast vel sloppin ef bygg- ingarkostnaður fer einungis 50% fram úr þeim 750 milljónum, sem nú er giskað á. Ég vil bjóða Davíð Oddssyni upp á veðmál. Ef byggingarkostnaður á núvirði við fullklárað ráðhús með bílastæðum og lóð mun verða minni en 1.000 milljónir þá skal ég greiða Reykjavíkurborg 50 þúsund krónur. Ef hann verður meiri þá mun Davíð greiða úr eigin vasa sömu upphæð til borgarinnar. Útreikningur þessi gæti farið fram t.d. í júní 1991, en þá ættu allar tölur að liggja fyrir. í raun finnst mér gífurlegt kæru- leysi og ábyrgðarleysi að ekki sé til verjanleg kostnaðaráætlun um bygginguna og víst er að þetta þætti ekki góð fjármálapólitík á öðrum vettvangi. Er andstaða við ráð- húsið andstaða við Sjálf stæðisf lokkinn? Slæmt er að sjá að svo virðist ætla að verða. Borgarstjóri hefur gert þetta mál alltof flokkspólitískt. Það er alls engin ástæða til þessa. Miklu æskilegra hefði verið að leita eftir breiðari grundvelli og taka sér ef til vill aðeins lengri tíma í undir- búning. Þessi skrifstofubygging er eign allra Reykvíkinga en ekki að- eins fylgismanna Davíðs Oddsson- ar. Reykjavík hefur verið ráðhúss- laus í 201 ár. Hún getur verið ráðhússlaus í 4 ár í viðbót — án þess að tjón hljótist af. Það er einlæg ósk mín að yfir- stjórn borgarinnar taki þessi orð mín sem framlag til byggingarinn- ar, en ekki sem marklaust and- stöðuhjal. Vilji okkar hlýtur að vera að fá fallegt, hagkvæmt og notadijúgt ráðhús Reykjavíkur. Höfundur rekur iðnfyrirtæki í Reykjavík. ANNAR KOSTUR efir Sigrúnu Eldjárn LeÍKHUf - Km. / ðjVCTfl' « l i í 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.