Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
25
Ný bók eftir
Alistair MacLean
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
eftir Alistair MacLean og nefnist
hún Helsprengjan. Andrés
Kristjánsson þýddi.
I kynningu útgefanda á efni bók-
arinnar segir: „Ótrúlegir atburðir
eiga sér stað á Eyjahafi fyrir augum
Talbots skipstjóra og áhafnar hans,
sem eru þar í vísindaleiðangri á
skipi sínu. Neyðarkall berst til
þeirra — en of seint. Þeir horfa á
brennandi snekkju hverfa í öldurnar
og andartaki síðar hrapar flugvél í
hafið á sömu slóðum.
Er þetta tilviljun eða býr hér eitt-
hvað dularfullt að baki? Tvö stórslys
og aðeins ein skipshöfn til vitnis.
En Talbot skipstjóri er ekki allur
þar sem hann er séður. Með ýmsum
brögðum tekst honum að afhjúpa
sannleikann, skipulagt samsæri
hryðjuverkamanna og eiturlyfja-
smyglara sem gæti haft ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar.“
AliSDU mm R 1 Glöðarkerti 'h í úrvali fyrir m TOYOTA % ISUZU M DATSUN ^ MERCEDES BENZ ^ O.FL.
HELSPRENGJ
HÁBERG ”
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Húsfreyja í Húnaþingi er þriðja
bindi ceviminninga
Huldu Á. Stefánsdóttur.
í þessu bindi segir frá búskapar-
árum hennar á Þingeyrum í Húna-
vatnssýslu. Inn í þá frásögn fléttar
hún nákvæmar en hrífandi lýsingar
á sögu og umhverfi.
Þetta gerir ævisögu Huldu
Stefánsdóttur að bókmenntum í
fremstu röð, bókmenntum sem fólk
á öllum aldri les sér til óblandinnar
ánægju og fróðleiks.^k
Litríkt fólk er framhald
ceviminninga Emils sem komu
út í fyrra og nefndust Á misjöfnu
þrífast bömin best, en hún hlaut
einróma lof gagnrýnenda og
einstakar viðtökur almennings.
Lesendur Litríks fólks verða
margs vísari um aldarfar og eigið líf
höfundar á fjórða og fimmta ára-
tugnum. Stíll og frásagnarlist hans
gerir bókina að kjörgrip allra bóka-
unnenda..^.
Gullna flugan eftir Þorleif Fríðriksson
sagnfræðing er saga átaka í Alþýðuflokkn-
um og erlendrar íhlutunar um íslensk
stjómmál í krafti fjármagns. Hver voru
erlend ítök og áhrífþeirra á aðgerðir flokks-
forystunnar langt framyfirmiðja20. öldina?
Bókin byggir á óvéfengjanlegum gögnum og
segir sannleikann skýrt og skorínort. Þessa
bók má enginn Alþýðuflokksmaður láta
framhjá sér fara,-hvað þá andstæðingamir.
Systkinaröðin mótar manninn er
eftir sálfræðinginn dr. Kevin
Leman. Er það tilfellið að frum-
burðir séu frekjur, miðbörn þrætu-_
gjarnir leiðindapúkar og yngstu
börn ábyrgðarlausir ærslabelgir?
Systkinaröðin er brunnur upp-
lýsinga sem geta hjálpað þér að bæta
samskipti þín við aðra. Fyrir utan
að geyma uppeldislegar ráðleggingar
sem eru öllum foreldrum hollar og
gagnlegar er bókin bæði hlýleg,
fyndin og vel skrifuð.(
Dr. Kevin Leman
tíOGWOP1**'
DagHnnur
dýralæKnlr
Paddington bangsi birtist lesendum sínum á
ný í tveimur nýjum bókum. í annarri hjálpar
Paddington smáfólki að þekkja á klukkuna en í
hinni er hann á leið í sumarleyfi til FrakklandS.
Þegar sú bók er opnuð kemur svolítið óvænt í ljós
sem gerir hana ennþá meira spennandi. Um
Dagfinn dýralækni eru líka komnar tvær nýjar
bækur. Dagfinnur dýralæknir og sjóræningjarnir
er sérstaklega ætluð byrjendum í lestri en Dag-
finnur dýralæknir í Apalandi þeim sem lengra
eru komnir. Þetta eru bækur sem halda börnun-
um við efnið. ff
ÖRN OG ÖRLYGUR
SÍÐUMÚLA U108 REYKJAVÍK.
SÍM191-84866
SVONA GERUM VIÐ