Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987 73 Laufey Sigfinns- dóttir - Minning í dag, þriðjudaginn 1. desember, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfírði tengdamóðir mín, Laufey Sigfínnsdóttir. Mig langar til að senda henni örfá kveðjuorð og þakka henni sam- fylgdina í rúm 30 ár. Þar af bjuggum við í sambýli í um 15 ár, án þess að nokkum tíma bæri skugga á okkar sambúð. Þó var sambúðin í húsinu frekar eins og eitt heimili en tvö, því mikið var sameiginlegt. Við reyndum alltaf að hjálpa hvor annarri og oft var hlaupið niður á neðri hæðina ef góð ráð þurfti frá þeirri sem eldri og reyndari var. Laufey var dagfarsprúð kona sem ekki lét mikið yfír sér og aldr- ei hallmælti nokkrum manni, hún reyndi alltaf að bera í bætifláka fyrir aðra, ef á einhvem var hallað svo hún heyrði. Hún gerði ekki víðreist um ævina. Þó fór hún aust- ur til æskustöðvanna með dóttur sinni og tengdasyni fyrir nokkmm ámm og hafði mikið gaman af. Besta skemmtun hennar var að spila á spil og áttu þau hjón kunn- ingja sem oft komu til þeirra á kvöldin til að spila og var þá stund- um spilað langt fram á nætur og oft glatt á hjalla. Laufey Sigfínnsdóttir var fædd á Seyðisfírði 26. september 1913, dóttir hjónanna Jóhönnu Gunn- laugsdóttur og Sigfínns Jónssonar, sem þar bjuggu í Bræðraborg á Vestdalseyri. Hún flutti með for- eldrum sínum til Hafnarfjarðar 13 ára að aldri og átti heima í Hafnar- fírði alla sína tíð eftir það. Hún vann þó um 'tíma á Landakoti og dvaldi þá í Reykjavik. Laufey gift- ist 11. maí 1935 Kristjáni Guð- mundssyni og hófu þau búskap á Linnetsstíg 10, en fluttu fljótlega á Austurgötu 46, þar sem þau bjuggu í tæp 20 ár. Þau eignuðust 6 böm, fimm syni og eina dóttur, sem er yngst. Einn son sinn, Gunnar, misstu þau af slysförum árið 1968, þá 31 árs að aldri og var þeim það mikið áfall. Það voru ekki stór húsa- kynnin á Austurgötu 46, eða „Hólnum", eins og húsið var nefnt í daglegu tali, en öllum mun þeim hafa liðið vel þar og þar hafði Lauf- ey móður sína hjá sér síðustu æviár hennar. Þegar ég kom í þessa fjölskyldu höfðu þeir Kristján og Garðar, elsti sonurinn, sem þá var unnusti minn, hafíð byggingu á húsi í Grænukinn 7. Þau fluttu í það hús árið 1956 og þar áttum við eftir að búa í sam- býli þangað til orðið var of þröngt um okkur á efri hæðinni og bömin fóm að stækka. Það var mikill sökn- uður hjá bömum okkar eftir að við fluttum, að geta ekki lengur farið niður á neðri hæðina til ömmu og afa. Mann sinn missti Laufey árið 1980, eftir það bjó hún ein í Grænukinn 7, þar til hún fyrir tæpu ári fór á hjúkrunarheimilið Sólvang. Þá hafði hún átt við vanheilsu að stríða undanfarið ár, meðal annars fengið tvisvar mjög skæða lungna- bólgu. Á Sólvangi leið henr.i vel og hafði mjög góða umönnun og viljum við aðstandendur þakka hjúkmnar- fólkinu á Sólvangi fyrir hvað vel var hugsað um hana. Hafí tengdamóðir mín þökk fyrir allt, Guð geymi hana í landi eilífs ljóss og friðar. Bömum og öllum ættingjum votta ég dýpstu samúð. Ásta Jónsdóttir Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð til hennar ömmu. Allt í einu var sem stór skuggi liði yfir tilhlökkun mína til jólanna og að koma heim og hitta vini og ætt- ingja eftir árs vem í fjarlægu landi. Hún amma, sem ég hafði haldið aðfangadagskvöld með frá fæð- ingu, var ekki lengur í þessum heimi. Ég hafði aldrei hugsað svo langt að hún amma gæti verið horf- in næst þegar ég kæmi heim. Þó vissi ég að hún hafði oft átt við mikil veikindi að stríða og verið mjög langt leidd, en alltaf hafði hún unnið sigur á veikindunum og náð sér aftur. Þó hafði hún verið orðin mjög lasburða, sérstaklega þetta síðsta ár, og var kannski sjálf farin að þrá að komast yfír í eilífðar- landið og hitta afa, soninn sem hún hafði misst og aðra ástvini. Því miður get ég ekki fylgt henni ömmu minni í hennar síðustu ferð, en ég sendi henni mínar hinstu kveðjur og þakka henni fyrir allt. Öllum ættingjunum votta ég dýpstu sam- úð. Jón Halldór Leiðrétting í minningargrein um Gerhard H. Schawabe hér í blaðinu, á sunnu- dag, brenglaðist frásögnin á einum stað. Eftir að hann hafði starfað við rannsóknir í háskólanum í Kön- ingsberg, lagði hann land undir fót og starfaði í tvo áratugi í háskólum og öðrum vísindastofnunum í Chile, Japan, Kína, Taiwan og á íslandi. Þá féll niður í greininni heimilis- fang ekkju hins látna; sem er 32, River Road, Port Sorell Tas. 7307, Australien. Leiðrétting í LÍTILLI afakveðju til Óskars Sig- urgeirssonar frá afa- og langafa- bömum hér í blaðinu síðastl. fimmtudag. Þar stendur: sumir spurðu hvort amma yrði alltaf ein, aðrir hvemig hún kæmist til Guðs. Hér varð misritun. Hér átti að standa: hvemig hann kæmist til Guðs. Þetta leiðréttist hér með. Blómastofa Friöfinm Suðurtandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opi^ öll kvöld tll kl. 22,- éínnig um helgar. Skreytingar vi6 öll tilefni. /‘ Gjafavörur. Ragnhildur Ófeigsdóttir, höfundur ijóðabókarinnar Andlit í bláum vötnum, stendur í miðið og við hlið hennar Elísabet Cochran, hönnuð- ur bókarinnar. Björg Einarsdóttir, formaður útgáfufélagsins Bókrúnar, afhendir þeim fyrstu eintökin. Andlit í bláum vötnum Ljóðabók eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur BÓKRÚN hefur sent frá sér ljóðabókina Andlit i bláum vötn- um eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur. Ragnhildur er Reykvíkingur. Hún lauk BA-prófí í félagsfræði í Bandaríkjunum árið 1980. Andlit í bláum vötnum er önnur bók henn- ar. Árið 1971 kom út hjá Almenna bókafélaginu ljóðabókin Hvísl og ljóð eftir Ragnhildi hafa birst í blöð- um og tímaritum og í nokkrum ljóðasöfnum. Andlit í bláum vötnum, sem höf- undurinn tileinkar móður sinni, Ragnhildi Ásgeirsdóttur, er 73 ljóð. Hluti þeirra eru eins konar harm- ljóð, sprottin af reynslu vegna dauða hennar. í ljóðum sínum leitar höfundurinn svara við því hvert sé eðli guðdómsins og flest eru ljóðin í bókinni með erótísku ívafí. Elísabet Cochran hefur hannað útlit bókarinnar, setning og umbrot annast Leturval, en Grafík filmu- vinnu og prentun og Félagsbók- bandið sá um band. Andlit f bláum vötnum er í litlu upplagi og hluti þess tölusettur og áritaður af höf- undi. (FréttatUkynmng) Lregsteinar MARGAR GERÐIR Mamorex/Gmít Steinefnaverksmiöjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður Ölafur L. Jóhanns- son — Minningarorð Fæddur 20. júní 1951 Dáinn 6. október 1987 Sonur minn, Ólafur Lárus Jó- hannsson, oftast kallaður Óli, er látinn. Óli fæddist í Hafnarfírði 2. júní 1951, ýngstur bama okkar hjón- anna Soffíu Bjömsdóttur og Jóhanns Ólafssonar, málara. Hann ólst upp í Hafnarfirði ásamt systk- inum sínum, Elísabetu og Bimi, og var hann, þótt hár yrði í lofti, ávallt litli bróðir. Átján ára gamall fluttist hann til Danmerkur. Vann hann ýmis störf, mest fékkst hann við að mála, en auk þess ók hann vöruflutninga- bifreiðum með vörur til útlanda. Hér á Suður-Jótlandi var hann þeg- ar kallið kom. Hann var og vildi vera íslending- ur og ríkisborgararétti sínum hélt hann og var stoltur af sínum íslenzka passa. Sem drengur var Óli mjög dug- legur að teikna og fékk mörg verðlaun fyrir. Fullorðinn hélt hann áfram að mála og hélt margar sýn- ingar á myndum sínum og fékk góða dóma. Óli kvæntist danskri stúlku, Tove Witte, og eignuðust þau 3 drengi, Bjame 15 ára, Mikael 12 ára og Erik 10 ára, sem nú sakna föður síns. Hann var góður faðir og það var mikið á þau lagt þegar Mikael veiktist af blóðsjúkdómi sem hefur kostað margar langar legur á sjúkrahúsum, þá sýndi Óli minn hvað í honum bjó, því marga nótt og margan dag vakti hann yfír drengnum sínum. Nú er Mikael kominn yfír það versta og er í dag frískur. Síðasta ár var Óla mínum erfítt, var hann á sjúkrahúsi svo mánuðum skipti og sagði hann oft við mig, bara ég væri kominn til pabba, en pabba sinn missti hann 30. apríl 1981, og missti hann mikið við frá- fall hans, en nú er elsku drengurinn minn búinn að fá ósk sína uppfyllta. Hann bað mig um að skila kveðju til allra ættingja og vina á íslandi. Ég bið svo góðan guð að vera með drengjunum hans og móður þeirra. Guð geymi drenginn minn. Soffía V. Björnsdóttir, Broager, Danmörku. Veiðiferðin eftir Sven Nordqvist KOMIN ER út ný bók hjá Ið- unni sem heitir Veiðiferðin og er eftir sænska barnabókahöf- undinn Sven Nordqvist. Þor- steinn frá Hamri þýddi. í fréttatilkynningu frá Iðunni segir m.a.: „I bókinni segir frá karlinum honum Pétri og kettinum hans Brandi sem sjaldan láta sér leiðast. Þó kemur sá dagur að Pétur er verulega stúrinn. En Brandur deyr ekki ráðalaus, hann beitir ýmsum brögðum og brellum til að lokka félaga sinn til leiks og hver veit nema dagurinn fái óvæntan endi.“ SVEFNOG Bókum svefn SETBERG hefur gefið út bókina Svefn og svefnleysi eftir Reidun Ursin í þýðingu Arngríms Thorlacius. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Bók þessi er fyrst og fremst ætluð almenningi. Hún er skrifuð fyrir fólk sem vill fræðast um eigin líkamsstarfsemi og langar að vita hvað það getur sjálft gert til að öðlast góðan nætursvefn." SHARP MYNDBANDSTÆKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.