Morgunblaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
69
Kort með málverki Louisu Matthíasdottur.
Ný listaverkakort
frá Listasafni Islands
ÚT ERU komin hjá Listasafni
Islands fjögur ný litprentuð kort
með eftirprentunum af verkum
íslenskra myndlistarmanna.
Eftirtalin listaverk eru á kortun-
um: Bátur á heimleið, 1966, eftir
Gunnlaug Scheving, Uppstilling,
eftir Jón Stefánsson, Fólk í lands-
lagi, 1978, eftir Louisu Matthías-
dóttur og íslandslag, 1944, eftir
Svavar Guðnason.
Litprentanimar eru límdar á
tvöfalt karton, 16x22 cm að stærð,
og fylgir þeim umslag.
Áður hefur Listasafnið gefið út
um 70 litprentuð kort í sömu stærð
og eru þau flest fáanleg í safninu.
Útflutningsleyfi til Bandaríkjanna:
Stjórn SH harm-
ar vinnubrögð við-
skiptaráðherra
Akvörðun tekin gegn vilja framleið-
enda, segir í samþykkt sljórnar SH
SKYRTUR
ULPUR
BUXUR
FRAKKAR
I f lestum bestu
herrafatabúðum
landsins.
■maII/m
■ ■ IVIIXVI
STJÓRN Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hefur samþykkt
ályktun þar sem hörmuð eru þau
vinnubrögð viðskiptaráðherra að
veita sex nýjum aðilum leyfi til
útflutnings á freðfiski til Banda-
rikjanna án þess að gefa samtök-
um framleiðenda áður tækifæri
til að fjalla um það.
í samþykkt stjómar SH segir
meðal annars að ákvörðun þessi sé
tekin gegn vilja frameliðenda og sé
lítt skiljanleg í ljósi þess árangurs,
sem íslensku sölufyrirtækin hafa
náð í markaðsstarfsemi í Banda-
ríkjunum undanfama áratugi.
Ennfremur segir í ályktuninni að
stýrkleiki heildarsamtaka framelið-
enda felist einkum í að þau geti
tryggt keupendum stöðugt framboð
og haldið uppi nauðsynlegu gæða-
eftirliti. Öflug sölufyrirtæki í
nálægð við markaðinn hafi bolmagn
til að reka markaðsstefnu og geti
fjármagnað nauðsynlegt birgðahald
þegar stýra þurfi framboði. Samein-
aðir hafi íslendingar jrfir nægilega
miklu og fjölbreyttu framboði að
ráða til að vera leiðandi þáttakend-
ur í verðmyndun og þar með skilað
framleiðendum og þjóðarbúinu í
heild hæstu verðum. Þau auki einn-
ig þjónustustigið og komist þannig
betur inn á markaðinn en seljendur
sem fjær standa, segir í samþykkt
stjómar SH.
Þar segir ennfremur að samtök
ljölmargra frameleiðenda með fyr-
irtæki í helstu markaðslöndunum
hafi haft bolmagn til að stunda
viðamikla vöruþróun sem kosti mik-
ið fé. Slík heildarsamtök tryggi
öllum framleiðendum stórum sem
smáum hvar sem er á landinu sömu
þjónustu á sama verði. Loks er á
það bent í ályktun stjómar SH, að
nýir framleiðendur hafí haft fijáls-
an aðgang að samtökunum og þeirri
þjónustu og þekkingu sem þau hafí
byggt upp undanfama áratugi.
EINSTOK
GREIÐSLU
<
cn
'jr.
O
KJOR
Innfluttir loðfeldir kosta frá 49 þús. krónum.
Dœmi um greiðslutilhögun; útborgun 15 þús. og
eftirstöðvar lánaðar til 6-8 mánaða.
Skinnfóðraðir leðurjakkar kosta frá 38 þús. krónum.
Dæmi um greiðslutilhögun; útborgun 10 þús. og
eftirstöðar lánaðar til 3-6 mánaða.
EGGERT
feldskeri
Efst á Skólavöröustígiumi,
sími 11121.
Greiðslukort - afborganir.