Morgunblaðið - 01.12.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
31
starfi dagvistarheimilis er fólkið,
sem er þar innan dyra, og sam-
skipti þess við bömin. Vel útbúið
dagvistarheimili er lítils virði ef
ekki fást starfsmenn, sem vilja og
hafa þekkingu til að vinna við skap-
andi uppeldisstarf með börnunum.
Mikil breyting á starfsmanna-
haldi er óheppileg fyrir börnin og
nú á síðustu árum hefur reynst
erfitt að manna allar stöður.
Það vantar fleiri fóstrur á vinnu-
markaðinn og annað starfsfólk með
góða reynslu af umönnun bama,
sem okkur bauðst til starfa hér
áður fyrr, er ekki nógu margt til
að brúa bilið.
Það er mikið af frábæm starfs-
fólki, sem vinnur á bamaheimilun-
um í dag, ekki skal það vanþakkað,
en það hefur orðið breyting í þétt-
býli, sem greinilega hefur haft áhrif
á vinnumarkaðinn.
En hvað er til ráða?
Heyrði ég einhvem nefna laun?
Laun og atriði tengd kjarasamn-
ingum hafa verið endurmetin hjá
sveitarfélögum og ríki og bætt inn-
an ramma, sem grunnsamningur
BSRB og ASÍ gefa svigrúm til, en
ekki dugað.
Það er kannski bjartsýni að setja
fram þá margþvældu tillögu um að
lægstu launataxtar hækki nú
ríflega við næstu kjarasamninga,
en hinir bíði.
Gæti það orðið þjóðarsáttin árið
1988?
En það er fleira til verðmætt en
laun.
Eitt af því mikilvægasta sem
bam lærir á dagvistarheimili er að
öðlast trú á sjálft sig í samskiptum
við aðra. Það þarf líka að öðlast
jákvætt hugarfar til þess að læra
meira.
í vinnusálfræði nútímans em
þetta líka atriði, sem mest er lagt
upp úr, að mannauður sé virkjaður
en ekki bældur. í könnunum hefur
komið fram að meðal helstu atriða
sem valda flótta úr þessum störfum,
er lítil virðing fyrir uppeldis- og
umönnunarstörfum.
Þetta er miður. Hvar em foreldr-
ar bamanna. Hvers vegna heyrist
ekki í þeim?
Fleiri atriði má bæta og er verið
að reyna að bæta, eins og símennt-
un starfsmanna, sem er mikils virði
fyrir starfíð. Gmnnmenntun má og
bæta. Fóstmmenntun þarf að vera
á sama stigi og menntun gmnn-
skólakennara. Það hafa aðrar þjóðir
gert og er sjálfsagt að fósturskóli
sé deild í kennaraháskóla.
Menntun annarra starfsmanna
er líka mikilvæg. Þar mætti fara
leið sem aðrir hafa og farið þ.e.
menntað millistétt til starfa á dag-
vistarheimili og þar gætu fjöl-
brautaskólar komið inn og einnig
þarf að tryggja stöðu eldri starfs-
manna, sem hafa farið í gegnum
námskeið, sem haldin hafa verið
um árabil.
Betri menntun er semsagt svarið
við vandanum, að mínu mati, enda
er mikilvægi málsins svo mikið að
annað sæmir ekki menningarþjóð,
sem er þegar allt kemur til alls
bamvinsamleg. Þarf bara að sýna
það í verki.
Þetta er orðið lengra en ætlað
var í byrjun og mörgu samt sleppt,
en að lokum dreg ég saman það
sem ég vil leggja áherslu á með
þessum skrifum, þ.e.
— að fólki sé ljós sú staðreynd að
foreldrar yngri bama vinna að stór-
um hluta utan heimilis,
— að hvetja til málefnalegrar um-
ræðu um þessi mál,
— að lög um dagvistarheimili fyrir
böm verði endurskoðuð,
— að stjórnvöld leggi fram skýrari
stefnumörkun um málefni bama,
— að menntunarmál starfsmanna
dagvista verði endurmetin,
— að málefni barna varða okkur
öll.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Dagvistar barna tjá Reykjavíkur-
borg.
Ysta lag, hvítt, úr 100% bóm- Lag, sem dreifir hita Lag,semtekurviðraka. Lagaf litium kúlum, sem end-
ull sem krumpast ekki. ogþrýstingi. urvarpa hita og nudda.
Hvíld fyrir bakið
á meðan þú sefur
Dýnan lagar sig eftir þunga líkamans, gefur
vel eftirogermjúk.
BAY JACOBSEN*
Dýnan nuddar líkamann á meðan þú sefur Með Bay Jacobsens heilsudýnu og kodda.
og viðheldur eðlilegum líkamshita. sefur þú værar og hvílist betur.
Bay Jacobsens heilsudýnan og koddinn hafa fengið frábærar
viðtökur um allan heim, ekki síst hér á landi.
Getur þú hugsað þér að gefa einhverjum betri og værari svefn í jólagjöf? Kannski sjálfum þér?
Bay Jacobsens heilsudýnan dregur verulega úr bak- og vöðvaverkjum á meðan þú sefur, þannig að þú hvílist betur og
vaknar hress og úthvíldur. Verð kr. 5750 - dýna, kr. 2450 - koddi.
HREIDRID
Víií'
Grensásvegi 12
Simi 688140-84660
Postholf 8312 - 128 Rvk
Sendum í póstkröfu.
Skilafrestur á dýnum og koddurn seldum
eftir 1. desember er til 15. janúar 1988.
I
%
m
BAHKktÖRT
1115 0000 0003 3081
R
»9
7I^S 9955-iOOé !2To53^5
JÓH!KA jóhahhsoóttir
uues*úr Or/89
Notkun bankakorta eykur öryggi allra í
tékkaviðskiptum. Við ábyrgjumst tékka að
upphæð allt að 10.000 krónum - sé banka-
korti framvísað.
Á bankakortinu eru tvö öryggisatriði sem
þurfa nauðsynlega að koma heim og saman
þegar tékki er innleystur, til þess að við-
komandi banki eða sparisjóður ábyrgist
hann:
1. Rithandarsýnishorn.
2. Númer bankakortsins.
Meiri ábyrgð mecI bankakorti
- því máttu treysta!
<
LL
<
□
3
Alþýðubankinn,
Búnaðarbankinn,
Landsbankinn,
Samvinnubankinn,,
Útvegsbankinn,
Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.