Morgunblaðið - 01.12.1987, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.12.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987 35 Bára Gestsdóttir, verslunarstjóri, I Iðnum höndum. Þroskahjálp: Sérverslun með list- muni fatlaðra opnuð LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp hafa opnað verslunina Iðnar hendur að Laugavegi 20b. Þar verða á boðstólum listmunir og ýmsar aðrar vörur sem fram- leiddar eru á vernduðum vinnu- stöðum og öðrum stofnunum fyrir fatlaða. I Iðnum höndum verður einkum lögð áhersla á ýmsar handunnar vörur, svo sem ofin teppi og mottur, skraut- muni, leirvörur, kerti og þess háttar, en einnig leikföng úr tré og trévörur til heimilishalds. Á vinnustöðum fatlaðra eru framleiddar ýmsar vörur og nytja- hlutir sem notaðir eru dags daglega. Þar má nefna plastmöppur og ann- an vaming frá Múlalundi, tölvu- kapla og rafmagnsvörur frá Órtækni, kústa og aðrar tágavörur frá Körfugerð Blindrafélagsins, kerti frá Heimaey og fleira. Einn tilgangurinn með stofnun verslun- arinnar er að kynna hvers fatlað fólk er megnugt. Með verslunarrekstrinum ér einnig ætlunin að þróa framleiðslu á vinnustofum fatlaðra. I verslun- inni er hægt að koma nýjungum á framfæri og laga eldri vörur að óskum kaupenda. Verslanir með þessu sniði eru reknar víða í ná- grannalöndunum, en Iðnar hendur er sú fyrsta sem opnuð er hérlendis. Verslunarstjóri er Bára Gests- dóttir. Verslunin verður fyrst um sinn opin frá klukkan 13 til 18 alla virka daga, sem og árdegis á laug- ardögum. Ríkisspítalar: Nýtt símkerfi tekið í notkun næsta vor Núverandi kerfi þolir ekki álagið RIKISSPITALARNIR fá innan tíðar nýtt símkerfi. Áætlað er að nýja kerfið verði tekið í notkun næsta vor. Fjárveitingar til stofnunarinnar vegna símkerfis- ins nema á þessu ári 12 milljónum auk heimildar til niðurfellingar tolla og aðflutningsgjalda. Sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir 23 milljóna króna fjárveitingu vegna símkerfisins á næsta ári. Að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar forstjóra Ríkisspícalanna er núver- andi símkerfí stofnunarinnar alltof lítið og hefur ástand þessara mála verið óviðunandi undanfarin 2-3 ár. Um númerið 91-29000 er gefið samband til flestallra sjúkrastofn- ana Ríkisspítalanna auk skrifstofu stofnunarinnar. 3-4 konur vinna við símvörslu á skiptiborði og hefur kerfíð 53 línur út í bæ og 500 línur innanhúss. Mörg dæmi eru þess að fólk þurfi að eyða dijúgum parti úr degi, einkum á skrifstofutímum, við að reyna að ná sambandi við stofnanir eins og Landsspítalann, Blóðbankann, Rannsóknastofu Há- skólans og skrifstofur Ríkisspítal- anna. Að sögn Davíðs er ástandið jafnan verst frá klukkan 11-14 og kvaðst hann vilja beina því til fólks sem á erindi við stofnunina að það reyni að hringja utan þess tíma. Akveðið hefur verið að endurtaka danslaga- keppnina í tengslum við gömlu dansana á Hótel Borg og verða að þessu sinni veitt vegleg peningaverðlaun. KEPPNISFYRIRKOMULAG: Þátttakendur skuhi senda lögin til keppninnar á nótum, útsett fyrir eitt hljóöÉæri eöa laghnu meó bóksta&hljómum. Eánrág er gott aó láta hljómsnækhi meö upptöku lagsins fylgja, til þess aö útsetjari Cái betri hugmynd um hvemig höfúndamir hugsa sér flutning laganna (hraða, áhershi oiL). Lögum þeim sem syngja skal þarf aö fylgja sönghæfúr texti á góöu málL Senda má tíl keppninnar lög, sem harfa við alla heföbundna gamla dansa, vals, tangó, nd, polka, vienarkrus, skottí o.sirv . Lögúi skuhi merkt meö dulnefiii tónskálds og textahöfúndar, en fylgja skal rétt nafit og lieinúlisfang í lokuöu umslagL Sérstök dóinnefnd skipuö þremur tónlistarmönnum velur lögrn til keppninnar. VaL in veröa allt að 25 lög til flutnings. Keppnin fer fiam á Hótel Borg á sunnudagskvökium og veröa leikin 5 lög hvert kvökL Af þeim komast 2 lög i undanúrslit þar sem valin veröa 5 bestu lögúi sem keppa síöar til úrslha. Geátir greiða atkvæöi um lögin og þeirra atkvæöi ráöa aigjörlega vaK laganna, sem fii verölaun. Stefiit er aö því aö 10 efstu lögin verði gefin út á hljómplötu. Lögin sendist í lokuðu umslagi merlctu: Danslagakeppnin á Hótel Borg, pdstbox 670, 121 Reykjavík, c/o Birgir Hrafnsson. Verðlaun FYRSTU ONNUR 30.000,00 ÞRIÐJU AS E A Cylinda þvottavélar^sænskar og sérstakar Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind- ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu- og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein- kenna ASEA. Gerðar til að endast. /FOnix ábyrgð í3ár /FQniX Hátúni 6A SÍMI (91)24420 SÉRTILBOÐ ASEA Cylinda 11000 Verðáður kr. 44.990 Afsláttur kr. 7.000 Nústaðgr. kr. 37.990 Ath. tilboðið gildir aðeins í stuttan tíma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.