Morgunblaðið - 01.12.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
47
J6n Sigurðarson forstjóri. MorgunbiaÆið/Bjami stjóm nýja Álafoss hf. á fyrsta fundi sínum. Frá vinstri Sigurður Helgason stjómarformaður, Jón Sigurðarson forstjóri,
Gestur Jónsson varamaður i stjóm, Valur Amþórsson, Guðjón B. Ólafsson og Bryiyólfur Bjarnason. Á myndina vantar dr.
Gylfa Þ. Gíslason.
Nýr Álafoss tekur til starfa í dag:
Markmiðið er hærra verð fyrir
betri og eftirsóknarverðari vöru
ALAF0S3 H.F,
Jón Siguróarson
forstjóri
Aóalsteinn Helgason
aöstoóarforstjórl
SKIPURIT PR. 1.12.1987
Ingl Bjömsson, frkvstj. f jármála markaösmál
Áml Ámason, forstööum.banddeildar Jón H. Guömundsson, forsf.m. vefnaóar Ánnann Sverrlsson forstöóum. fatadelldar
■ i i i
Guðjón
KrisÖnsson
veitem.stj.
Þórir
Jóharmesson
verksm.stj.
sölum.
Einar Jón
Eyland Haraldsson sftlum.
voritsavstj. verfcsm.stj.
Kristinn Amþórsson,
delldarstjóri ullarþvotti
Steinar Jónasson,
verst.stj. Álafossbúóar
dótturfyrírtæki
30. nóvember 1987
Skipurit hins nýja fyrirtækis 1. 12. 1987.
- segirJón
Sigurðarson
forstjóri
NÝTT ullariðnaðarfyrirtæki,
sem orðið er til við sammna Ála-
foss hf. í Mosfellsbæ og Ullariðn-
aðardeildar Sambandsins á
Akureyri, tekur til starfa í dag.
Fyrirtækið heitir Álafoss hf. og
verða aðalstððvar þess á Akur-
eyri. Forstjóri fyrirtækisins er
Jón Sigurðarson, sem verið hefur
foratjóri Iðnaðardeildar Sam-
bandsins siðan 1985 og aðstoðar-
forstjóri er Aðalsteinn Helgason,
en hann hefur verið aðstoðar-
framkvæmdastjóri Ullariðnaðar-
deildar Sambandsins undanfarin
tvö ár. Hlutafé nýja Álafoss hf.
verður 700 miltjónir krona og á
Framk væmdasj óður helming
þess, en Samband islenskra sam-
vinnufélaga hinn helminginn.
Starfsmenn hins nýja fyrirtækis
verða um 550 manns, en um 140
manns í gömlu fyrirtækjunum
tveimur, á Akureyri og í Mos-
fellsbæ, hefur verið sagt upp
störfum vegna samrunans.
Jón Sigurðarson forstjóri sagði á
fundi með fréttamönnum, þar sem
starfsemi hins nýja fyrirtækis var
kynnt, að forgangsverkefni yrði
markviss uppbygging og skipulag
markaðsmála í helstu viðskiptal-
öndunum. „í því felst meðal annars
að ná hærra verði erlendis og við
höfum trú á að það sé hægt með
sameiginlegu átaki og samstilltum
vinnubrögðum," sagði Jón. Hann
sagði að ein af meginástæðum fyr-
ir slæmri afkomu ullariðnaðarins
undanfarin ár hefði verið óeðlileg
innbyrðissamkeppni fslenskra fram-
leiðenda, sem leitt hefðu af sér
verðstríð og undirboð. Við samrun-
an verða engar breytingar á
markaðssvæðum en mikilvægustu
svæðin eru Bandaríkin, Sovétríkin,
Vestur-Evrópa og Japan. Til að
mæta vaxandi kröfum neytenda og
viðskiptavina verður lögð mikil
áhersla á hönnun og vöruþróun,
samhliða markvissum markaðsað-
gerðum erlendis.
Jón sagði að stefna hins nýja
fyrirtækis væri í stuttu máli að
hafa á að skipa hæfara og jákvæð-
ara starfsfólki en keppinautamir,
að bjóða sérstæða vöru sem gefur
hátt verð, að veita betri þjónustu
og meiri vörugæði en keppinautam-
ir, að hafa lægstan mögulega
kostnað og að vera gott íslenskt
iðnfyrirtæki, virkur þáttakandi í
þjóðarframleiðslunni og góður
vinnuveitandi.
Yfirlýstur tilgangur fyrirtækisins
er m.a. að bæta hag eigenda með
öflugri markaðsfræðslu og fram-
leiðslu á vönduðum fatnaði og
öðmm vömm úr ull og öðmm trefja-
efnum, jafnt gerfiefnum sem
náttúmlegum. Hagnaðarsjónarmið
munu ráða ríkjum frá upphafi, en
hagnaðurinn mun fyrst og fremst
ráðast af markaðsstarfi en ekki
framleiðslumagni.
Höfuðstöðvarnar á Ak-
ureyri
Höfuðstöðvar hins nýja Alafoss
verða á Akureyri og fyrst um sinn
verða aðalskrifstofumar til húsa hjá
Iðnaðardeild Sambandsins í Glerár-
götu 28, en ætlunin er að aðalskrif-
stofan flytjist fljótlega í verksmiðj-
una á Gleráreymm.
Banddeild fyrirtaekisins verður í
verksmiðjunni að Álafossi í Mos-
fellsbæ. Þar verður öll framleiðsla
og sala á bandi og að auki lítil skrif-
stofa því tengd. Prjón og sníðsla
verður einnig til húsa á Álafossi
eins og verið hefur hingað til.
í verksmiðjunni á Gleráreymm á
Akureyri verður vefnaðarfram-
leiðsla fyrirtækisins, auk fatafram-
leiðslu. Ullarþvottastöðin verður að
Dynskógum í Hveragerði þar sem
Ullarþvottastöð SÍS hefur verið til
húsa. Ullarverlsun Álafoss verður
áfram að Vesturgötu 2 í Reykjavík.
Ákveðið var að halda nafni Ála-
foss á fyrirtækinu og sagði Jón að
fyrir því liggju haldgóð rök. Nafnið
væri vel þekkt í helstu viðskiptal-
öndunum sem tákn fyrir gott
ullarvömfyrirtæki. Auk þess myndu
sparast milljónir, ef ekki milljóna
tugir við að þurfa ekki að auglýsa
og kynna nýtt fyrirtækisheiti á
mikilvægum erlendum ullarvöra-
mörkuðum. Þá væri auðvelt að bera
nafnið fram á erlendum tungum.
Sérfróðir erlendir markaðsráðgjaf-
ar hefðu talið Álafoss-nafnið
vænsta kostinn í þessum efnum,
bæði hvað varðar spamað í auglýs-
EKKI samdist um kaup Sovét-
manna á ullarvörum frá íslandi
i viðræðum fulltrúa ullariðnað-
ardeildar Sambandsins og
Álafoss við væntanlega kaup-
endur i Moskvu. Sovésku aðil-
arnir biða eftir fjárveitingum
til kaupanna, sem munu vera
væntanlegar um miðjan de-
sember. Nauðsynlegt er fyrir
íslenska ullarframleiðendur að
fá fram töluverðar verðhækk-
anir hjá Sovétmönnum, að sögn
inga- og kynningarkostnaði og
einföldun í markaðs- og sölumálum.
Jón sagði ennfremur að auk þess
yrðu önnur vöraheiti notuð áfram,
eins og til dæmis Icewool, Hekla
og Lopi og færi notkun þeirra eftir
markaðsþörfum og svæðum.
Stórfyrirtæki með um
550 manns í vinnu
Fyrirtækið verður stærsta ullar-
vinnslufyrirtæki landsins með um
Aðalsteins Helgasonar, aðstoð-
arforstjóra Álafoss h.f.
Sovétmenn lýstu yfir áhuga
sínum á kaupum á ákveðnum gerð-
um af fatnaði í viðræðunum, að
sögn Aðalsteins, en sögðust ekki
geta ákveðið magn eða rætt verð
fyrr en íjárveitingar liggja fyrir en
það ætti að geta orðið um miðjan
desember. Ekkert hefur verið
ákveðið um frekari viðræður, og
bíða íslensku fulltrúamir nú eftir
að heyra frá Sovétmönnum.
550 manns í vinnu. Jón sagði að
hins vegar hefði verið óhjákvæmi-
legt að segja upp um 140 starfs-
mönnum vegna samranans, um 60
manns á Álafossi og um 80 manns
á Akureyri. Úr Alafosshlutanum
væri um að ræða marga úr stjóm-
unarstörfum, en á Akureyri vom
fleiri úr hópi iðnverkafólks.
„Það var sárt, en þó óhjákvæmi-
legt, að þurfa að afþakka þjónustu
stórs hóps af góðu fólki, sem vann
hjá hinum gömlu fyrirtækjum,"
sagði Jón. „Vandinn var hins vegar
sá, að bæði fyrirtækin hafa verið
rekin með vemlegum halla að und-
anfömu og valkosturinn var því sá
að sameina og skera um leið niður
yfirstjómarkostnað eða að annað
tveggja eða bæði fyrirtækin hefðu
þurft að leggja niður starfsemi, með
hörmulegum afleiðingum fyrir alla
þá sem starfa að ullariðnaði hér á •
landi."
Helstu stjómendur hins nýja Ála-
foss hf. era, auk Jóns og Aðalsteins
þeir Ingi Bjömsson framkvæmda-
stjóri fjármála, Ámi Ámason
forstöðumaður banddeildar, Jón
Heiðar Guðmundsson forstöðumað-
ur vefnaðardeildar, Ármann Sverr-
isson forstöðumaður fatadeildar,
Guðjón Kristinsson verksmiðjustjóri
banddeildar, Þórir Jóhannesson
verksmiðjustjóri vefnaðardeildar,
Jón Haraldsson verksmiðjustjóri
fatadeildar, Einar Eyland verksmið-
justjóri fatadeildar, Kristinn
Amþórsson forstöðumaður Ullar-
þvottastöðvar og Steinar Jónasson
verslunarstjóri Álafsossbúðarinnar.
í stjóm hins nýja fyrirtækis eiga
sæti Sigurður Helgason, stjómar-
formaður, sem jafnframt er stjóm-
arformaður Flugleiða hf., Valur
Amþórsson, varaformaður, sem er
kaupfélagsstjóri KEA og stjómar-
formaður SÍS. Meðstjómendur em
Bryi\jólfur Bjamason fram-
kvæmdastjóri Granda hf., Guðjjón
B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins
og dr. Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi
ráðherra.
Aðalsteinn kvaðst vera nokkuð
bjartsýnn á að Sovétmenn vildu
kaupa ullarvömr héðan, en sagði
að töluverð verðhækkun yrði að
nást fram: „Miðað við verðið sem
er núna á þessu ári í þessum við-
skiptum skiptir eiginlega engu máli
hvort við emm þama eða ekki.“
Ef samið er upp í rammasamning
þjóðanna gæti verið um viðskipti
að verðmæti um 190-220 milljónir
íslenskra króna að rasða, að sögn
Aðalsteins.
Viðræður um ullarkaup Sovétmanna:
Enn óvíst hvort samningar
munu nást um viðunandi verð