Morgunblaðið - 01.12.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR L DESEMBER 1987
59
Kristín Einarsdóttir
fólk var sammála um að ekki megi
dragast að sameina helstu þætti
umhverfismála í eitt ráðuneyti,
málaflokka eins og almenna náttúru-
vemd, mengunarmál og skipulags-
mál. Öll hin Norðurlöndin hafa
stofnað sérstök umhverfisráðuneyti.
Við kvennalistakonur lögðum ríka
áherslu á umhverfismálin í stjórnar-
myndunarviðræðunum í vor. Sú
ríkisstjórn sem mynduð var tregðast
hins vegar við og það getur orðið
afdrifaríkt fyrir umhverfisvernd og
skynsamlega nýtingu auðlinda.
Undanfarin ár og sérstaklega eft-
ir fund leiðtoga risaveldanna í
Reykjavík hafa íslendingar fylgst
með friðar- og afvopnunarmálum af
enn meiri áhuga en áður. Islending-
ar vilja að landið verði lýst kjarn-
orkuvopnalaust og telja vitfirrt
vígbúnaðarkapphlaup ekki leið til
friðar. Við kvennalistakonur fögnum
því að svo virðist sem utanrrh. hafi
verið að átta sig á þessu að undanf-
örnu. Hann tekur nú undir ýmislegt
af því sem Kvennalistinn og fleiri
hafa haldið fram. Þannig er því nú
slegið föstu að á íslandi megi ekki
staðsetja kjarnorkuvopn, hvorki á
friðar- né ófriðartímum, og á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna styður
ísland tillögur um stöðvun kjarn-
orkuvígbúnaðar. Þessi stefnubreyt-
ing er góðra gjalda verð og vonandi
bregða samstarfsflokkar í ríkisstjórn
ekki fæti fyrir þessi ánægjulegu
sinnaskipti. Þótt hugarfarsbreyting
hafi orðið hjá utanrrh. kvað við ann-
an tón í forsrh. hér áðan þegar hann
talaði um kjarnorkuvopnalaus svæði.
Hugmyndum þar að lútandi fann
hann flest til foráttu.
Afstaða íslands á alþjóðavett-
vangi skiptir miklu máli, en hitt er
þó mikilsverðara að við stöndum
þannig að málum á okkar eigin landi
að við leggjum lóð á vogarskál frið-
ar og afvopnunar. Áframhaldandi
hernaðarframkvæmdir víða um land
er ekki slíkt framlag. Við bíðum því
eftir stefnubreytingu utanrrh. einnig
á þessu sviði.
Kvennalistakonur tóku þátt í að
reyna að mynda ríkisstjórn sl. vor
eftir mikinn sigur í kosningum. Það
tókst ekki eins og alþjóð er kunn-
ugt. Við vildum ekki'starfa í ríkis-
stjóm þar sem kvennapólitísk
sjónarmið voru ekki virt. Það er
ekki nóg að fá fallega stóla til að
sitja í og fallega mynd á forsíður
dagblaðanna. Kvennalistakonur em
komnar til að hafa áhrif. Þær vilja
enga sýndarmennsku. Við viljum
aðra forgangsröð og aðrar áherslur.
Á það hefur ekki verið hlustað. Fög-
ur fyrirheit þeirra sem nú fara með
völdin hrökkva skammt því að at-
hafnirnar stefna I þveröfuga átt. Það
er ekki endalaust hægt að fara með
fólkið í landinu eins og tölur á blaði.
Góðir hlustendur. Þótt Kvenna-
listinn ynni góðan sigur í vor nægði
hann ekki til að knýja fram þær
breytingar sem við stefnum að. En
sá tími kemur. Þá mun vora I sam-
félaginu fyrir konur og börn og um
leið fyrir okkur öll.
Ég þakka áheyrnina. — Góða nótt.
Þar fást fjarstýrðir bilar af öllum gerðum og ( mörgum verðflokkum.
Jeppar — Pickup — Buggi — Rallí — og kappakstursbllar, með til-
heyrandi mótorum og fjarstýringu.
Bllstjórar frá 3ja til 95 ára, jafnt próflausir og með próf aka bílum frá
Tómstundahúsinu. Póstsendum — Góð aðkeyrsla, næg bilastæði.
avegi 164
simi
21901
ÞVOTTEKTA GÆÐI
é
í heimilistækjunum frá
AEG fara saman afköst,
ending og gæði.
Þvottavélarnar frá AEG
bera því glöggt vitni.
Vestur-þýsk gæði á þessu
verði, engin spurning!
AEGheimilistæki - þvi
þúhleypirekkihverjusem er
íhúsverkin!
AEG
Lavamat 980
★ Telur 5 kg af þvotti
★ Allt að 1200 snúninga vindu-
hraði pr. mín.
★ Hægt að stjórna vinduhraða
1200/950/850/650
★ Variomatic vinding sem tryggir
jafna vindingu.
★ Sérstaktullarþvottakerfi.
★ Sparnaðarrofi fyrir 2,5 kg eða
minna.
★ Stutt-kerfi (35-45 mín.) fyrir lítið
óhreinan þvott.
★ Stiglaust hitaval
★ Belgurogtromlaúrryðfríustáli.
★ „ÖKO kerfi“ sparar 20% þvotta-
efni.
IMý þvottavél frá AEG!
Verðkr. 47»440f staðgr.
Þessi þvottavél hefur alla þá
eiginleika sem góð
þvottavél þarf að hafa.
ALVEG
EJNSTÖK
GÆDI
Umboðsmenn
um land allt.
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lágmúla 9, sími: 38820