Morgunblaðið - 20.12.1987, Síða 1
112 SIÐUR B/C
290. tbl. 75. árg._______________________________SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsíns
Jerúsalem:
Mestu óeirð-
ir frá 1976
MIKLAR óeirðir brutust út í
austurhluta Jerúsalem í gær er
ísraelskar lögreglusveitir hugð-
ust stöðva mótmælagöngu pal-
estínskra námsmanna í borginni.
Að sögn kunnungra eru þetta
mestu óeirðir í borginni frá árinu
,1976.
Víða kom til mótmæla í háskólum
og framhaldsskólum á vesturbakk-
anum er námsmenn söfnuðust
saman til að lýsa yfír andúð sinni
á framferði ísraelskra hersveita á
vesturbakkanum og Gaza-svæðinu
umdeilda, en undanfama 10 daga
hafa ekki færri en 16 palestínu-
menna verið felldir í óeirðum þar.
Pelíkanarnir umræddu.
Lávarðadeild
breska þingsins:
Hart deilt
um kyulíf
pelíkana
Lundúnum, Reuter.
LÁVARÐAR í efri deild breska
þingsins tóku sér nýlega hvíld
frá umræðum um hin hefð-
bundnu umfjöllunarefni deildar-
innar til þess að ræða kynlíf
pelíkana. Nánar tiltekið var um-
ræðuefnið það hvers vegna fimm
pelíkanar i St. James Park,
skammt frá þinghúsinu í West-
minster, fjölguðu sér ekki eins
og eðlishvötin gerir ráð fyrir.
Stodart lávarður af Leaston hóf
máls á þessum aðsteðjandi fjölgun-
arvanda pelíkananna, en það varð
til þess að annar lávarður fór með
pelíkanaljóð. Sá þriðji kvaddi sér
þá hljóðs og spurði hvaðan í ósköp-
unum fuglamir kæmu upphaflega
og sá fjórði kvartaði undan því að
Stodart væri farinn að endurtaka
sjálfan sig, því hann hefði fyrst
fært pelíkanana í tal fyrir 24 árum.
„Til þess að segja alveg satt —
eins og stjómmálamenn alltaf gera
— þá fór ég nú bara að tala um
pelíkanana til gamans fyrir jólin,"
sagði Stodart, en í bókinni „Who’s
Who“ em helstu áhugamál hans
sögð vera „fuglaveiðar og varð-
veisla kímnigáfunnar".
Bandaríkin:
Hart nýt-
ur mestra
vinsælda
demókrata
Washington, Reuter.
GARY Hart nýtur mestra vin-
sælda þeirra flokksmanna
Demókrataflokksins, sem
ákveðið hafa að gefa kost á sér
til embættis forseta Banda-
ríkjanna. Þetta kemur fram í
skoðanakönnun, sem birtist í
dagblaðinu Washington Post á
laugardag. 48 prósent að-
spurðra kváðust mundu kjósa
fulltrúa Demókrataflokksins,
færu kosningamar fram nú, en
33 prósent fulltrúa Repúblik-
ana.
Sjö menn hafa gefíð kost á sér
í forkosningum Demókrataflokks-
ins vegna forsetakosninganna á
næsta ári. Samkvæmt könnuninni
nýtur Hart fylgis 30 prósenta
skráðra félaga Demókrataflokks-
ins. Næstur á eftir honum kemur
blökkumannaleiðtoginn Jesse
Jackson með 20 prósenta fylgi.
Michael Dukakis, ríkisstjóri
Massachusetts, er í þriðja sæti.
Hinir ijórir njóta óverulegs fylgis.
Gary Hart tilkynnti í síðustu
viku að hann hefði ákveðið að taka
þátt í forkosningum Demókrata-
flokksins að nýju. Svo sem
alkunna er neyddist hann til að
draga sig í hlé í vor er uppvíst
varð um samband hans og sýning-
arstúlku nokkurrar, Donnu Rice.
Robert Dole, öldungadeildar-
þingmaður Repúblikanaflokksins,
hefur náð að draga verulega á
George Bush varaforseta. 44 pró-
sent flokksbundinna repúblikana
kváðust myndu styðja Bush en 35
prósent Dole. í fyrri könnunum
hefur Bush haft tvöfalt meira fylgi
en Dole. Dole lýsti því yfír í síðustu
viku að hann styddi samning risa-
veldanna um upprætingu meðal-
og skammdrægra kjamorkuflauga
en fram að því hafði Bush, einn
frambjóðenda Repúblikanaflokks-
ins, lýst yfir stuðningi við af-
vopnunarsáttmálann.
Sjö helstu iðnríki heims:
Yfirlýsing um efnahagsstefnu
Morgunblaðið/RAX
Ljós í skammdegi
Jólaljós lýsa upp í mesta skammdeginu. Á þriðjudaginn eru vetrarsólstöður og úr því fer sól að
hækka á lofti á ný.
Sögð væntanleg af Financial Times
Lundúnum og Waahington, Reuter.
AÐ SÖGN breska fjármálablaðs-
ins Financial Times hafa sjö
helstu iðnríki heims lagt drög
að sameiginlegri yfirlýsingu um
efnahagsmál, en í henni heita
ríkin nánari samvinnu í mótun
efnahagsstefnu sinnar. „Aðal-
efni draganna er skuldbinding
ríkjanna um samhæfingu efna-
hagsráðstafanna sinna, i því
skyni að eyða ójöfnuði í gjaldeyr-
ismálum heimsins.“ Ekki sist
mun þetta eiga við um utanríkis-
verslun, en mjög hallar á
Bandarikjamenn í þeim efnum.
Vöruskiptajöfnuður Japana og
Vestur-Þjóðveija er á hinn bóg-
inn hinn hagstæðasti og sagði
blaðið að ríkin hygðust stefna
að því að jafna hann.
í blaðinu var það haft eftir hátt-
settum embættismönnum, sem þátt
tóku í undirbúningi væntanlegrar
jrfírlýsingar, að undanfarna tvo
daga hefðu hefðu staðið ákafar
umræður um ágæti yfírlýsingarinn-
ar meðal jjármálaráðherra iðnríkj-
anna, en að samkomulag hefði
náðst að lokum.
í fjármálaheiminum hefur það
gengið fjöllum hærra síðustu daga
að fundur iðnríkjanna væri á næsta
leiti — jafnvel um þessa helgi.
Financial Times sagði að hin
fímm blaðsíðna langa yfirlýsing
kynni að vera gefín út „á næstu
dögum ef Bandaríkjaþing sam-
þykkti niðurskurð á fjárlögum.
Að sögn blaðsins er þessi yfírlýs-
ing til marks um þá nýju stefnu
ríkjanna sjö, að leggja áherslu á
beinar aðgerðir frekar en sam-
komulag um gengi eins og verið
hefur. Hins vegar benti blaðið á að
í yfirlýsingunni fælust engar skuld-
bindingar um ákveðnar, nýjar eða
tafarlausar aðgerðir af hálfu
Bandaríkjanna, Japans og Vestur-
Þýskalands.