Morgunblaðið - 20.12.1987, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 20.12.1987, Qupperneq 48
 PyklwakejM Þar vex sem vel er sáð! SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 VEM) í LAUSASÖLU 55 KR. Magnús Jónsson veðurfræðingur: Mestar lík- urágræn- um jólum Frostlaus desember í fyrsta sinn síðan mælingar hófust MAGNÚS Jónsson, veðurfræð- ingur, sagði í samtali við Morgunblaðið að mestar líkur væru á grænum jólum sunnan- lands. „Jólin verða að öllum líkindum hvorki rauð né hvít, heldur græn,“ sagði Magnús. „Það er víða farið að grænka sunnanlands, þar sem á annað borð hefur náð að sölna. Það hefur verið frostlaust í Reykjavík allan þennan mánuð og það hefur ekki gerst síðan mæling- ar hófust hér fyrir rúmlega einni öld. Það hefur heldur ekki komið frost niður við jörð síðan aðfara- nótt 1. desember sl. og það er mjög óvenjulegt. Það er tveggja til fímm stiga hiti um sunnanvert landið og tveggja til fímm stiga hiti fyrir norðan," sagði Magnús. Morgunblaðið/Bjami Eiríksson Björgunarsveitafélagar standa við kerti og blómaskreytingar á bjargbrúninni fyrir ofan Flauganef í Látrabjargi til að minnast af- reksins sem þar var unnið fyrir 40 árum. Standandi, þriðji frá vinstri, er Bjarni Sigurbjörnsson frá Hænuvík en sá skeggjaði er Ásgeir Erlendsson vitavörður á Látrum. Látrabjarg: Minningarathöfn um björgunarafrek Látrabjargi, frá blaðamanni Morgunblaðsins, Huga Ólafssyni. FÉLAGAR úr björgunarsveit- um við Patreksfjörð minntust í gær björgunarafreksins við Látrabjarg fyrir 40 árum með athöfn á bjargbrúninni þaðan sem sigið var niður eftir skip- brotsmönnum af enska togar- anum Doon. Kveikt var á 12 kertum til að minnast skipbrotsmannanna 12 sem komust af og 12 björgunar- manna sem sigu niður eftir þeim á Flauganef í miðju Látrabjargi. Þá var einnig komið fyrir þremur blómaskreytingum á bjargbrún- inni til að minnast skipveijanna þriggja sem fórust með Doon. Það voru félagar úr björgunar- sveitinni Blakki frá Patreksfírði, slysavarnadeild Unnar á Patreks- fírði og Bræðrabandinu í Rauða- sandshreppi sem stóðu að þessari athöfn, en félagar úr síðastnefndu sveitinni tóku þátt í björguninni við Látrabjarg á sínum tíma. Tveir björgunarmanna tóku þátt í at- höfninni, þeir Ásgeir Erlendsson, vitavörður á Látrum, og Bjami Sigurbjömsson frá Hænuvík, en hann er einn eftirlifandi af þeim flómm sem fóm niður í §öm að enska togaranum. t Flugleiðir: Eldsneytískostnaður hækkaði um 35—40% í ár KOSTNAÐUR Flugleiða vegna eldsneytis hefur hækkað verulega á þessu ári. 1 október síðastliðnum var hann 35—40% hærri en á sama tíma í fyrra. Hlutfall eldsneytiskostnaðar af heildarútgjöld- um Flugleiða í október var 15%, en var 12% i október i fyrra. Eldsneyti er einn helsti einstaki kostnaðarliðurinn hjá fyrirtækinu og hefur mikil áhrif á rekstur þess. Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða sagði í samtali við Morg- unblaðið að þrátt fyrir að verð á eldsneyti hafí lækkað aðeins síðustu vikumar væri ekki víst hvert framhaldið yrði. Flugleiða- menn vonuðust til að lækkunin yrði til þess að eldsneytisverð yrði það sama og fyrir ári. Flugleiðir fluttu 275.000 far- þega á Norður-Atlantshafsleiðinni frá síðustu áramótum til 12. des- ember síðastliðnum eða 12% fleiri en á sama tíma í fyrra. Félagið flutti 302.000 farþega í Evrópu- fluginu, sem er 21,8% aukning, og 264.708 farþega innanlands, eða 6,4% fleiri en í fyrra. Umtalsverð aukning var einnig í leiguflugi og ber þar hæst Grænlandsflugið. Heildarfjöldi farþega Flugleiða frá áramótum til 12. desember var yfír 800.000. Ekki sagði Sigurður Helgason að afkoma félagsins væri í sam- ræmi við farþegaaukninguna. Um 30% hækkun á kostnaði innanlands og hækkun ísiensku krónunar gagnvart bandaríkjadollar hefðu haft veruleg áhrif á afkomu félags- ins. Fjögur nefndarálit um .kvótafrumvarpið: Líkur á að gildis- tíminn verði 3 ár Sjávarútvegsnefnd efri deildar Alþingis skilaði fjórum nefndarálit- um um kvótafrumvarpið svokallaða, sem afgreitt var úr nefndinni í gær. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks mynduðu meirihluta en fulltrúar Alþýðuflokksins, Alþýðubandalags og Kvennalista skiluðu séráliti. Fundi meirihluta nefndarinnar Iauk um klukkan 14 í gær og í áliti hans er gert ráð fyrir að gildistími frum- varpsins verði 3 ár í stað 2 eða 4 ára. Formlegum fundi nefndarinnar lauk um hádegisbilið í gær og ski- luðu þá Karvel Pálmason Alþýðu- flokki, Skúli Alexandersson Alþýðubandalagi og Danfríður Skarphéðinsdóttir séráliti. Karvel, sem jafnframt var formaður nefnd- arinnar, sagði að hans álit yrði í meginatriðum samhljóða þeim breytingartillögum sem hann og Matthías Bjamason formaður sjáv- arútvegsnefndar neðri deildar lögðu fram í nefndunum. Meirihluta nefndarinnar skipuðu Guðmundur H. Garðarsson og Halldór Blöndal frá Sjálfstæðisflokki og Jóhann Ein- varðsson og Stefán Guðmundsson frá Framsóknarflokki. Búist var við að kvótafrumvarpið yrði tekið fyrir á fundi efri deildar Mikil ölvun í borgmni LÖGREGLAN í Reykjavík átti annríkt aðfaranótt laugardags- ins. Ölvun var mikil í heimahús- um en ástandið í miðborginni var gott borið saman við undanfarn- ar helgar, að sögn Sigurbjörns Ásgeirssonar varðstjóra. 10 rúður voru brotnar víðs vegar um borgina, þar af 3 í Fellaskóla, ein í Austurstræti 20 og ein í íkom- anum í Aðalstræti. Sigurbjöm sagði að alls hefðu 40 manns gist fanga- geymslumar og er útilokað að hýsa fleiri. í gær. Skúli Alexandersson hafði boðað breytingartillögu við frum- varpið, sem gerir ráð fyrir að skiptingu milli norður- og suður- svæðis verði breytt og Breiðaflörður verði tekinn með í norðursvæði. Alþingi: Húsnæðislög- in samþykkt NEÐRI deild Alþingis afgreiddi síðdegis í gær sem lög frumvarp um Húsnæðisstofnun ríkisins. Frumvarpið var samþykkt með 26 samhljóða atkvæðum en þing- menn Borgaraflokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Neðri deild hafði áður afgreitt málið úr deildinni en vegna prent- villu sem slæðst hafði inn í þingskjal við vinnslu þurfti frumvarpið að fara til neðri deildar á ný til einnar umræðu eftir afgreiðslu efri deild- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.