Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987
Bubbl Morthens kom Inn (
(slnnskan popphsim moð mlklum
gauragandl og onn or okki Mlbug a*
flnna á honum. Hann var fyrstl fslonski
tónllstamaðurinn som fékk
platínuplötu fyrlr plötusölu og á þossu
ári hofur hann soH yflr 20.000 plfttur.
Því verður ekki neitað að það hefur gustað um Bubba
Morthens síðan hann hóf sinn opinbera tónlistarferil
með mikium fyrirgangi með plötunni ísbjarnarbiús 1980.
Miklar deilur spruttu um það hvórt textar hans vœru
„verkalýðsskáldskapur" eða argasti leirburður og oft-
lega hefur verið deilt um það hvort hann hafi slæm
áhrif á íslenskan æskulýð eða góð. Um tíma settu fíkni-
efni sinn svip á feril Bubba og ekki verður komið tölu
á þau skipti sem þvf hefur verið haldið fram að hann
sé nú endanlega búinn að vera. Ekki hefur Bubbi viljað
fallast á það og síðan hann fór í meðferð hafa vinsæld-
ir hans vaxið enn. Síðasta plata hans, Frelsi til sölu,
seldist í 12.000 eintökum fyrir jólin f fyrra og af henni
hafa selst rúm 5.000 eintök á þessu ári. Ekki var Bubba
öllum lokið eftir það, hann varð fyrsti íslenski tónlistar-
maðurinn sem fær platínuplötu fyrir plötusölu og nú
stefnir nýjasta plata hans, Dögun, á 20.000 eintaka
múrinn, en útgefandi plötunnar hefur dreift henni plöt-
unni sem geisladisk, kassettu og hljómplötu íyfir 15.000
eintökum í dag.
EGELT1STEKKIVIÐ PENINGA
Bubbi Morthens tekinn tali um plötusölu og sænska drauma
að má því spyrja spurninga
eins og hvort Bubbi Morth-
ens dagsins í dag sem selur
plötur í þúsundatali áöur en þær
koma út sé ekki oröinn nokkuð fjar-
lægur þeim Bubba Morthens sem
söng um poppstjörnuna blindu
með Utangarðsmönnum. Annað
sem menn velta vöngum yfir er
hið svokallaða Svíþjóðarævintýri
Bubba, en fyrir rúmu ári gerði hann
fimm ára samning um útgáfu á
þremur plötum í Svíþjóð og var
látið líklega sem hann ætti eftir
að slá í gegn þar ekki síður en
hór. Ekkert hefur þó bólað á plöt-
unum þremur og margir hafa gert
því skóna að sænska útgáfufyrir-
tækið sé ekki sátt við það sem
Bubbi hafi verið að taka upp; það
sé ekki nógu gott. Besta leiðin til
að fá svar við slíkum spurningum
er að spurja Bubba sjálfan og
blaðamaður gerði einmitt það; fór
f heimsókn til Bubba og Brynju
konu hans í glæsilegt timburhús
vestur í bæ, sem þau hafa verið
að gera upp. Blaðamaður tyllti sér
í eldhúsinu og þáði tebolla (því
miður Melroses) og síðan var aö
vinda sér í fyrstu spurninguna.
Bubbi, Frelsi til sölu hefur í dag
selst í17.500 eintökum og Dögun
á nær örugglega eftir að seljast
enn meira. Ert þú búinn aö selja
þig; hefur þú gengiö markaösöfl-
unum á hönd?
Nei, nei (hlær), markaösöflin eru
búrn að beygja sig fyrir mér.
Dögun stendur mun nœr Konu
tónlistarlega en Freisi til sölu. Var
þaö aö yflriögöu ráöi til aö auka
sölulfkur?
Nei. Upphaflega hugmyndin var
sú að gera plötu sem væri lík plötu
Bobs Dylans Blood on the Tracks.
Það breyttist síðan, þó ein-
hverntímann geri ég slíka plötu,
og hluti af því er sjálfsagt vegna
þess að ég vann Dögun með Tóm-
asi Tómassyni sem gerði með mér
Konu. Annars hefði ég veðjað á
rangan hest ef ég heföi ætlað að
gera formúlu-soiuplötu eftir Konu.
Kqna seldist ekki nema í 6.000
eintökum á einu ári. Það var því
ekkert að elta.
Ertu samt ekki aö eltast viö
söluna?
Nei, nei. Það eina sem mér
finnst gaman við þessa sölu er að
Grammið skuli aftur vera með
söluhæstu plötu ársins. Það er
minn stærsti metnaður í plötusölu
að Jón Ólafsson og Steinar verði
númer tvö og Grammið verði núm-
er eitt (hlær).
Á tónleikunum sem þú hólst f
íslensku óperunni á föstudag og
laugardag f byrjun mánaöarins
var áberandl að áhorfendur voru
í eldri kantinum. Hvar voru krakk-
arnir?
Ég var rosalega hrifinn af því
að fá fullt hús af áheyrendum á
þessum aldri, en ég hugsa að
krakkarnir séu ekki eins ánægðir
með það sem óg er að gera núna.
Þegar ég hélt tónleika til að kynna
Frelsi til sölu á sínum tíma þá var
aftur megnið af áheyrendum
krakkar. Krakkarnir hlusta þó á
mig, enda sá ég það þegar var að
árita plötur í Kaupgarði og Kringl-
unni einn dag fyrir skemmstu. Þá
hef ég líklega gefið 100 til 200 eig-
inhandaráritanir og áritanir á
plötur til krakka. Það var aftur á
móti dýrt inn á tónleikana í óper-
unni og krakkarnir hafa ekki nóga
peninga handa á milli. Ég vildi
gjarnan halda tónleika fyrir þau,
en ég get það ekki með þessari
hljómsveit, því Tómas þarf að fara
út. Þaö er síöan of iítiil tími til að
fara að setja saman aðra hljóm-
sveit því ég fer til Svíþjóðar stuttu
eftir áramót.
Til Sviþjóðar, segir þú. Er
Svíþjóðarævintýrið ekki búið að
vera allt hálf undarlegt?
Jú, víst hefur það all verið hálf
undarlegt og reyndar martröð í
bland. Ég fer þó út núna til aö klára
tvær plötur; til að klára Frelsiö og
gera síðan aðra plötu. Það stendur
einnig til að setja saman hljóm-
sveit og fara í framburðarkennslu
í ensku o.fl. Þaö á því að fara að
gera hluti af krafti.
Það sem hefur farið verst í mig
í þessu Svíþjóðarstússi er að þar
sem Imperiet, sem er aðalnúmeriö
hjá Mistlur, geröi fyrr á árinu stór-
samning við bandarískt fyrirtæki
og þurfti aö gera dýra plötu til að
fylgja þeim samningi eftir þá var
það látið ganga fyrir mér. Imperiet
þurfti reyndar aö taka aftur upp
megnið af plötunni vegna klúðurs
og í það fór sá tími ég ég átti að
nota til að vinna í hljóðveri sem
Mistlur á og sá útsetjari sem vann
með mér er einmitt í Imperiet og
hafði því ekki tíma i annað. Allt
þetta seinkaði allri vinnu við plöt-
una mína um 4-5 mánuði. í kjölfarið
á þessu fór ég út og fékk það í
gegn að ég fengi nýjan útsetjara
og upptökustjóra sem verður
líklegast Stefan Glaumann, sem
tók þátt í að gera Frelsiö og hefur
verið að gera afbrags hluti undan-
farið, en þó eru aðrir í sigtinu.
Utanförin er í framhaldi af þessu.
Samkvæmt samningnum viö
Mistlur ert þú bundinn þeim til
1990. Færö þú eitthvað út úr því
að vera samningsbundinn ytra?
Já, já. Ég hef enn trú á Mistlur
og ég veit að þegar fyrirtækið fer
að einbeita sér að mér þá fara
hlutirnir að ganga. Mig þyrstir þó
ekki í heimsfrægð, það er mikill
misskilningur. Það sem mig þyrstir
í er að ná meiri þroska í því sem
ég er að gera; að reyna aö komast
nær fullkomnuninni. Einnig langar
mig til aö fá til þess tækifæri að
vinna með þeim mönnum sem mig
langar; bestu mönnum á hverjum
stað. Þegar ég er að vinna með
Stefan er ég að vinna með einum
af þrem bestu upptökumönnum
Skandinavíu. Annað er að ég fæ
allt það sem ég bið um þegar ég
er að vinna í hljóðverinu. Eg hef
því tækifæri til að gera hluti í hljóð-
veri sem kannski kosta fimm til sex
milljónir hér heima og sem ég
gæti aldrei borgað sjálfur.
En ertu þá ekki kominn ansi
langt frá rótunum?
'~Nei, það held ég ekki. Því meiri
tíma sem ég fær í hljóöveri því
meira get ég lagt í það sem ég
er að gera og því betur sem ég
læri að þekkja sjáfan mig í hljóð-
verinu, því betur næ ég því fram
sem ég vil ná fram. Plata er ekki
slæm fyrir það eitt að það taki
langan tíma aö vinna hana. Vísast
myndi ég vinna plötu mun hraðar
ef ég þyrfti að borga hana sjálfur,
en þetta er ekki spurning um það.
Það hlýtur að vera draumur hvers
tónlistarmanns að hafa eins mik-
inn tíma í hljóðveri og hann telur
sig þurfa.
Er þá ekki hætta á þvi aö þú