Morgunblaðið - 20.12.1987, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987
Tryggvi Jónsson
forstfóri
Fæddur 14. september 1914
Dáinn 11. desember 1987
Tryggvi Jónsson, forstjóri Niður-
suðuverksmiðjunnar ORA hf. í
Kópavogi, lést 11. þ.m. ágjörgæslu-
deild Borgarspítalans. Utför hans
fer fram frá Dómkirkjunni kl. 13.30
nk. mánudag, þann 21. desember.
Tryggvi Jónsson var fæddur á
Drangsnesi við Steingrímsfjörð
þann 14. september 1914 og var
því liðlega 73 ára þegar hann lést.
Foreldrar hans voru Jón Brynj-
ólfsson, kaupmaður, og Lovísa
Jónsdóttir. Tryggvi ólst upp hjá
móðurforeldrum sfnum allt frá
bamæsku, þeim Jóni Jónssyni og
Önnu Ámadóttur, sem gengu hon-
umj foreldra stað.
Átta ára að aldri flutti Tryggvi
til Akureyrar, þar sem hann stund-
aði venjubundið nám og lauk því
með gagnfræðaprófí frá Mennta-
skóla Akureyrar. Aðeins átján ára
hleypti Tryggvi svo heimdraganum
og hélt til Svíþjóðar, þar sem hann
kynnti sér niðursuðu og niðurlagn-
ingu á síld. En allt frá bemsku
hafði Tryggvi unnið á sumrin við
síldarsöltun, þar sem hann kynntist
m.a. Svíum, sem hér voru mikið á
þeim árum. Hann byijaði hjá
Ameln-bræðrum í Gravama, þar
sem hann dvaldi í eitt ár. Þá flutti
hann sig til annars fyrirtækis, til
frekara náms. Það fyrirtæki hét
Hállers og Co., en þar kynnti hann
sér niðursuðu á humri og rækju.
Þegar hér var komið var Tryggvi
vissulega orðinn allvel í stakk búinn
til að takast á við þau verkefni sem
hugur hans stóð til. Þó setti hann
ekki strax stefnu á heimaslóð, held-
ur hélt til Danmerkur og hóf þar
störf hjá P. Lykkeberg, við niður-
suðu á sjólaxi.
Síðla kvölds 1935 kom Tryggvi
svo heim til íslands eftir þriggja
ára dvöl í Svíþjóð og Danmörku við
störf og nám, reynslunni ríkari og
vel menntaður í sinni grein. Það
þótti því vel við hæfí að hann tók
að sér forstöðu nýstofnaðrar niður-
suðuverksmiðju vestur á ísafírði.
Hér virðist þó útþránni ekki full-
nægt, því eftir ársdvöl á ísafírði
hélt Tryggvi aftur til Danmerkur,
þar sem hann stofnaði Niðursuðu-
verksmiðjuna Vinco ásamt þeim
nöfnum Jóni Helgasyni, kaugmanni
og Jóni Kristjánssyni. Á Isafírði
kynntist Tryggvi eftirlifandi konu
sinni, Kristfnu, dóttur Magnúsar
Magnússonar, kaupmanns þar og
Helgu Jónsdóttur.
Þau Tryggvi og Kristín eignuðust
tvö böm, Magnús, framkvæmda-
stjóra í ORA. Hann er fæddur 1940,
kvæntur Guðrúnu Beck, en þeirra
böm eru Tryggvi, fæddur 1963,
Eiríkur, fæddur 1966 og Magnús,
fæddur 1975; og Önnu Lovísu,
meinatækni, gift Heimi Sindrasyni
tannlækni. Þeirra böm em Kristín,
fædd 1968, Sigríður, fædd 1970,
Frosti, fæddur 1975 og Guðrún,
fædd 1981.
Þegar stríðið braust út fór
Tryggvi að hugsa til heimferðar og
seldi sinn hlut í dönsku verksmiðj-
unni.
Eftir heimkomuna hóf hann störf
hjá Niðursuðuverksmiðjunni SÍF og
varð síðan forstjóri hennar frá 1944
og gegndi því starfi til 1952. Árið
1951 stofnaði Tryggvi fyrirtækið
Kjöt og rengi hf. ásamt Amljóti
Guðmundssyni og ári síðar ORA
hf. með Ámljóti og Magnúsi J.
Brynjólfssyni. Síðan runnu þessi
fyrirtæki saman í eitt, ORA — Kjöt
og rengi hf., og varð Tryggvi strax
forstjóri fyrirtækisins.
Þeir eru fáir sem ekki kannast
við Tryggva í ORA, svo þekkt er
hans fyrirtæki nú orðið. ORA-
niðursuðuvömr em þekktar um allt
land og engan veit ég sem ekki
hafði ánægju af að eiga viðskipti
við Tryggva Jónsson í ORA. En sem
Rótarýfélaga þekkti ég Tryggva
best. Hann var stofnfélagi í Rótarý-
klúbbi Kópavogs og alla tíð virkur
í starfi. Þó hann sæktist aldrei eft-
ir virðingarstöðum þá vann hann
ýmis trúnaðarstörf fyrir klúbbinn
og ávallt af stakri samviskusemi.
Má þar nefna jólamerkjaútgáfuna,
sem gaf góðar tekjur er nýttar vom
til líknar- og menningarstarfa á
vegum klúbbsins.
Ein af æðstu viðurkenningum
Rótarý er Paul Harris-orðan, en
hana hlaut Tryggvi 1984, einn
fyrstur félaga í Rótarýklúbbi Kópa-
vogs.
Skapgerðareinkenni Tryggva
Jónssonar vom róleg yfírvegun,
milt brosið bar með sér hlýju og
mannkærleika, sem hann átti í svo
ríkum mæli. Við Rótarýmenn í
Kópavogi höfum misst einn okkar
allra besta félaga, enda verður
skarð hans vandfyllt. En mestur er
að sjálfsögðu missir konunnar hans,
bamanna og bamabamanna, sem
við sendum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu Tryggva
Jónssonar.
Guttormur Sigurbjömsson
ORA-Kjöt og Rengi hf., verður til
moldar borinn mánudaginn 21. des-
ember. Sem starfsmaður hans í
hartnær 33 ár vil ég að leiðarlokum
koma á framfæri þökkum mínum
og fjölskyldu minnar fyrir þá heppni
að fá að starfa undir hans stjóm.
Eins má koma fram að margir voru
þeir starfsmenn ásamt mér sem
notið hafa hans góðu ráða og dáða
í lífsins basli sem og sést af því hve
margir halda sambandi þó að þeir
hafí horfíð til annarra starfa. Eins
ef maður rakst á einhvem af tilvilj-
un leyndi sér ekki af hvaða hug var
spurt hvemig Tryggvi hefði það.
Um lífshlaup Tiyggva og spor í
atvinnusögu íslands munu eflaust
mér ritfærari menn skrifa, en ekki
get ég látið vera að taka upp orð
Gests Fanndal á Siglufírði við mig
í sima: „Þar missti ísland góðan
þegn.“
Að endingu verð ég svo að koma
að hve þægilega mér varð við er
ég frétti að Tryggvi fengi legstað
í Fossvogskirkjugarði, á ská a móti
ORA yfir voginn. Mun það eflaust
hjálpa til í framtíðinni að geta Iitið
út um gluggann og hugsað: Hvað
hefði Tiyggvi nú ráðlagt? En skól-
inn er úti, kennarinn farinn og svo
er að sjá hvemig okkur auðnast að
nýta lærdóminn. Samstarfsfólk í
verskmiðjunni hefur beðið mig að
koma á framfæri samúðarkveðjum
til fjölskyldunnar og þökkum fyrir
samstarfíð. Veit ég að þar er af
heilum hug mælt því Tryggvi var
vinsæll vinnuveitandi.
Hvíli hann í friði, hann Tryggvi
minn og þakkir fyrir allt.
Gunnar Richardson
Elskulegur tengdafaðir minn er
látinn. Þessi orð heyra menn oft á
öldum ljósvakans án þess að skeyta
því mikilli hugsun. Það gegnir hins
vegar öðru máli þegar hinn látni
stendur mönnum nær. í fjarska
virðist svo ofur eðlilegt að menn
deyi, þVí það er ekkert líf án dauða
og enginn dauði til án lífs. Þessum
staðreyndum fær enginn breytt. En
þrátt fyrir þessa vitneskju verðum
við sem eftir lifum alltaf jafn undr-
andi þegar dauðinn knýr dyra hjá
nánum vinum og ættingjum.
Mitt í undirbúningi hátíðar ljóss
og hlýju slokknar ljós og kólnar,
mitt f þeim undirbúningi sem mest
eftirvænting fylgir, eftirvænting
gleði og helgi. Fregninni um andlát-
ið fylgir sársauki og harmur sem
smýgur í gegnum merg og bein.
Mitt í treganum vakna síðan marg-
ar áleitnar spumingar, spumingar
sem enginn fær svarað nema sá
einn sem öllu ræður. En flestar eru
spumingamar þó þeirrar náttúru,
að við stöldram við og hugsum um
lífíð og tilveruna út frá öðra og
stærra gildismati en hið daglega
amstur gefur tilefni til.
Það era svo óteljandi minningar
sem sækja á hugann þegar ég
Hámarksþœgindi fyrir lágmarks- g
verð. Hann er ioksins kominn stóllinn
sem sameinar þessa ivo kosti.
Þessi stóll styður vel við bakið og
gætir þess að þú sitjir rétt. Hann er j
með léttri hœðastillingu, veltanlegu
baki og fimm arma öryggisfœti.
Þetta er gœðastóll á góðu verði.
Þetta er góð jólagjöf.
ALLT í EINNI FERÐ
Hallarmúla 2 Sími 83211
Að kvöldi 1. janúar bjóðum við gestum
glcesilegan þríréttaðan kvöldverð í veitinga-
salnum Teigi.
Tekið verður á móti gestum með fordrykk í
anddyri hótelsins kl. 19:00, við undirleik
félaga úr lúðrasveitinni Svaninum.
Glcesilegur þríréttaður kvöldverður þar sem
boðið er uþp á val milli þriggja forrétta,
fjögurra aðalrétta og tveggja eftirrétta
Kristinn Sigmundsson syngur fyrir nýársgesti
við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Við hljómborðið situr Jónas Þórir.
Verð kr. 4.700
Nánari upplýsingar og borðapantanir í síma
689000.
Verið velkomin