Morgunblaðið - 20.12.1987, Page 45

Morgunblaðið - 20.12.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 síðan starfað undir sterkri stjóm Tryggva og sífeilt aukið umsvif sín. Fynr allmörgum árum gerðist hann meðeigandi minn í Dósaverk- smiðjunni og reyndist þar sem annars staðar traustur maður og ráðhollur. Hann var prúður í fram- komu og vakti virðingu starfsfólks- ins. A ánægjuleg samskipti okkar bar aldrei skugga. Tryggvi var kvæntur ágætri konu, Kristínu Magnúsdóttur frá ísafírði. Þau áttu saman tvö böm, Magnús framkvæmdastjóra Niður- suðuverksmiðjunnar ORA. Kona hans er Guðrún Beck. Þau eiga þijá syni. Dóttirin er Anna Lovísa meinatæknir. Hún er gift Heimi Sindrasyni tannlækni. Þeirra böm eru fjögur. Þótt Tryggvi væri orðinn roskinn maður hafði ég glatt mig við þá hugsun að við mundum eiga saman áhyggjulausa elli að lokinni önn daganna, en lokaþáttur hans var spunninn fyrr en nokkum varði. Yfír bjartri minningu leika geisl- ar 'sólar sem senn kemur úr suðurgöngu og yljar hvel norðurs- insv Eg þakká látnum vini ljúfa sam- fylgd.og samstarf. Aðstandendum votta ég dýpstu samúð. Jóhannes Ólafsson Á morgun verður borinn til mold- ar einn af frumheijum niðursuðu- iðnaðar á íslandi, Tryggvi Jónsson, niðursuðufræðingur og forstjóri ORA hf. í Kópavogi. Langar mig af hálfu sporgöngumanna hans í iðngreininni að minnast hins látna heiðursmanns með nokkmm orðum. Tryggvi Jónsson hóf ungur að ámm að afla sér þekkingar á niður- suðuiðnaði og var aðeins 17 ára er hann réðst til náms og starfs við niðursuðu í Svíþjóð og síðar í Dan- mörku. Spor Tryggva iiggja víðar í iðn- greininni. Eftir nám sitt og störf ytra við niðursuðu og niðurlagningu matvæla hvarf hann til íslands og var þá fyrsta verkefnið að vinna að uppsetningu niðursuðuverk- smiðju á íáafírði og var hann síðan forstöðumaður þeirrar verksmiðju ásamt öðmm fmmherja þessa iðn- aðar, Þorvaldi Guðmundssyni. Næsti áfanginn var stofnun niður- suðuverksmiðju í Kaupmannahöfn, sem Tryggvi átti með tveimur öðr- um íslendingum og sem þeir ráku saman fram að stríðsbyijun, er Tryggvi seldi meðeiganda sínum hlut sinn í verksmiðjunni og hélt heim áður en stríðið skall á. Um það leyti var Sölusamband ísl. fískframleiðenda að stofnsetja niðursuðuverksmiðju í Reykjavík og var Tryggvi fenginn til að kenna niðurlagningu síldar og að hafa umsjón með framleiðslunni þar. í Vestmannaeyjum vann Tryggvi einnig í verksmiðju SÍF við niður- suðu á humri og ýmsum físktegund- um. Einnig var hann tæknilegur ráðunautur við stofnun og starf- rækslu verksmiðjunnar Sfldar, sem hóf störf á Akureyri um svipað leyti. Svo var það árið 1951 að Tryggvi stofnaði með öðrum fyrirtækið Kjöt og rengi og ári síðar fyrirtækið ORA, Kjöt og rengi, með þeim Arn- ljóti Guðmundssyni og Magnúsi Brynjólfssyni, hálfbróður sínum. Þar hefur starfsvettvangur Tryggva verið síðan og rak hann fyrirtækið með stökum myndar- brag, enda dafnaði það og óx eins og kunnugt er, undir stjóm hans og nýtur trausts fyrir áreiðanleik í öllum viðskiptum. Mun einnig víst, að samstarf iðnrekandans við starfsfólkið var n)eð ágætum alla tíð. ORA hf. hefúr aðallega fram- leitt vörur á innanlandsmarkað en jafnframt talsvert til útflutnings. Á síðustu árum hefur Magnús sonur KIENZLE TIFAIMDI TÍMANNA TÁKN Tryggva haft á hendi dagiega stjóm fyrirtækisins en Tryggvi var þar einnig sjálfur að störfum allt til dauðadags. Tryggvi var einn þeirra sem stóðu að stofnun Sölustofnunar lag- metisiðnaðarins og var hann í stjóm samtakanna frá upphafí og þar til fyrir nokkrum ámm. Hann var fyrsti lagmetisframleiðahdinn, sem ég hafði kynni af, er ég hóf að starfa við þau mál, og minnist ég margra funda með Tryggva um hgsmunamál iðnaðarins bæði í ORA og annars staðar og áhugi hans og velvilji var ætíð hinn sami á málefn- um iðngreinarinnar. Var og sam- vinna okkar eins og best varð á kosið, enda var Tryggvi sanngjam í mesta máta og samvinnuþýður. Minnumst við þess félagar hans í Sölustofnun lagmetis, að hann lagði ávallt gott til mála og talaði af raun- sæi og þekkingu. Er skemmst að minnast mjög ánægjulegs sam- starfs er við áttum á síðustu vikum við útgáfu á sögu lagmetisiðnaðar- ins. Ég votta Kristínu, eftirlifandi konu Tryggva Jónssonar, Önnu Lovísu, Magnúsi og fíölskyldum þeirra innilega samúð á skilnaðar- stundu. Rafn A. Signrðsson Við andlát afa okkar, Tryggva Jónssonar, forstjóra, var sem tfminn. stöðvaðist eitt augnablik. Minning- amar tóku að streyma gegnum huga okkar allra með miklum hraða. Myndir frá liðnum árum, minningar um orð og atburði, minn- ingar sem' vekja söknuð. Afí Tryggvi var mjög heimakær maður. Alltaf hefur verið tekið á móti okk- ur opnum örmum á Einimelnum. Hann afí, sem var alltaf svo glað- ur, alltaf svo jákvæður, hann talaði við okkur eins og við værum menn með mönnum, hvort sem um var að ræða stjómmál eða önnur dæg- urmál. Afí hóf aldrei umræðu á því sem hann var ekki vel að sér í. En bæri eitthvað nýtt á góma, vildi afí ávallt tileinka sér þá þekkingu, þannig að ekkert reyndist of ný- tískulegt fyrir hann. Afí átti auðvelt með að tala við alla, hvort heldur um var að ræða böm eða fullorðna. Sérstaklega hændust böm að hon- um, og má með sanni segja, að hann hafí verið afi allra þeirra bama sem hann kynntist. Hann varðveitti bamið í sálu sinni alla ævi og núna em bömin vfsast farin að fíykkjast til hans, þótt annars staðar sé. Jólin voru afa ávallt kær. Alla tíð lagði hann sig allan fram um að gera þau sem hátíðlegust. Alltaf höfum við verið hjá afa og ömmu á aðfangadagskvöld og átt þar ynd- islega kvöldstund með allri fjöl- skyldunni. Og nú, þegar jólin nálgast eigum við eftir að fínna fyrir vissum tómleika og söknuði, en vitum jafnframt að afí heldur sín jól með okkur þótt hann sé horf- inn okkur sjónum. Á hveiju sumri fómm við í veiði- ferðir með afa og ömmu. Sá afí um þessra ferðir að mestu leyti og eig- um við eftir að sakna þeirra gleði- stunda, sem við áttum með honum, bæði við veiðina og á kvöldin, er við töluðum saman. Brá hann þá upp mörgum skemmtilegum veiði- sögum, sem hann hafði upplifað í gegnum tíðina. Og þó að sama sag- an heyrðist tvisvar, var alltaf sem hann segði hana í fyrsta skipti, af slíkri innlifun sagði hann frá. Em þessar samvemstundir dýrmæt endurminning, sem aldrei mun gleymast. Ökkur auðnaðist einnig að kynn- ast afa á vinnustað, þ.e.a.s. fjórum eldri bamabömunum. Hefur það reynst okkur góður skóli að hafa unnið með honum. Allt 'sem hann gerði var jafnan mjög vel unnið. Hann var með eindæmum skipu- lagður og skarpskyggn. Hann var mjög duglegur og mætti telja á fíngmm annarrar handar þá daga sem hann vantaði í vinnu, enda vann hann fram á síðasta dag. Hvort heldur var á vinnustað eða annars staðar þá gerði afí sér aldr- ei mannamun. Það er erfítt að setjast niður og skrifa um þann sem manni þykir svo vænt um, en minningar um góðan afa og vin deyja aldrei. Stórt skarð hefur verið höggvið, sem aldr- ei verður fyllt, en líf hans og reynsla gáfu okkur svo margt sem við munum búa að alla ævi. En orð Khalil Gibran veita manni styrk á erfíðri stundu: „Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þin.“ Barnabörnin Leiðrétting Nafn Guðmundar Amfínnssonar fulltrúa hjá ríkissaksóknara misrit- aðist í frétt um sakavottorð í blaðinu í gær (stóð þar Guðjón). — Biðst blaðið velvirðingar á þessum mistökum. Lokað Lokað vegna jarðarfarar TRYGGVA JÓNSSONAR forstjóra, frá hádegi mánudaginn 21. desember. Niðursuðuverksmiðjan Ora hf. Lokað Skrifstofa okkar verður lokuð e.h. mánudaginn 21. des. vegna jarðarfarar TRYGGVA JÓNSSONAR, forstjóra. Sölustofnun lagmetis. Lokað Lokað verður eftir hádegi mánudaginn 21. desember vegna jarðarfarar TRYGGVA JÓNSSONAR forstjóra. Dósagerðin hf., Vesturvör 16-2Q. LOKAÐ Vegna jarðarfarar Tryggva Jónssonar, forstjóra, verður lokað mánudaginn 21. desember frá kl. 13.00. Solnaprent sf., Kirkjusandi, v/ Laugarnesveg. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓNA ODDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, verður jarösungin frá Reynivallakirkju í Kjós þriðjudaginn 22. des- ember kl. 14.00. Ragnhildur Guðbjörnsdóttir, Ólafia Guðbjörnsdóttir, Dóra Gúðbjörnsdóttiur, Jón Guðbjörnsson, Guðlaug Guðbjörnsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Inga Guðbjörnsdóttir, Svavar Guðbjörnsson, Haraldur Hálfdénarson, Móses Guðmundsson, Njáll Sveinbjörnsson, Þórdfs Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR SK. GUÐLAUGSSON fyrrv. forstjóri, Hvassaleiti 8, Reykjavfk, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. desember kl. 16.30. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Björn Johnsen, Margrét Guðmundsdóttir, Guömundur Sk. Johnsen, Sturla B. Johnsen, Guðrfður Edda Johnsen. t Eiginmaður minn, tengdafaöir, afi og langafi, EGILL FR. HALLGRfMSSON fyrrverandi verkstjóri, Bragagötu 38, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. des. kl. 13.30. Helga Jónsdóttir, Guðbjörg Egilsdóttir, Róbert Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra er auösýndu okkur samúö og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa, HAFSTEINS SIGURÐSSONAR, Smáratúni, Þykkvabœ. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks deildar A5, Borgarspítal- anum. Guð blessi ykkur öll. Sigurjóna Sigurjónsdóttir, Friðsemd Friðriksdóttir, Heimir Hafsteinsson, Sœrún Sæmundsdóttir, Friðsemd Hafsteinsdóttir, Jón Thorarensen, Sighvatur Borgar Hafsteinsson, Una Sölvadóttir, Kristborg Hafsteinsdóttir, Nói Sigurðsson, Sigrún Linda Hafsteinsdóttir, Eyjólfur Reynisson, Bryndfs Asta Hafsteinsdóttir, Rúner Karlsson og barnabörn. t Þökkum innilega hlýhug og samúö við andlát og útför föður okk- ar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR SIGURÐSSONAR frá fsafirðl. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunar- og starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavik. Sigrfður Sigurðardóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurðsson, Katrfn Sigurðardóttir, Guðrún Þ. Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson, Tryggvi Friðlaugsson, Garðar Einarsson, Mildrid Sigurðsson, Gfsli Bjarnason, Ólafur E. Einarsson, Hanna Ósk Jónsdóttir, barnabarnabörn. barnabörn og t Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim sem sýndu mér samúð og veittu stuðning vegna veikinda og andláts eiginkonu minnar, GUNNHILDAR ÁRNADÓTTUR, Bólstaðarhlfð 5, ReykJavfk. Sérstakar þakkir fær starfsfólk meðgöngudeildar Landspítalans deild 23,b og starfsfólk gjörgæsludeildar Landsspítalans. Guðbjörn Þorsteinsson. Legsteinar MARGAR GERÐIR Mmorex/Gmít Steinefnáverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjöröur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.