Morgunblaðið - 17.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.01.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B 13.tbl. 76. árg. Færeyjar: Brennu- vargnrinn enn á f erð Þórshðfn í Færeyjum, frá Snorra Hall- dórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í LBÐINNI viku lét brennuvargur- inn í Færeyjum til skarar skríða eina ferðina enn og hefur ekki tekist að hafa hendur í hári hans. 1 þetta skiptið var það húsnæði Bílaveiðufélagsins í Havnardölum, sem varð fyrir barðinu á illvirkjan- um, en verr hefði getað farið, þvi í sama húsi voru miklar birgir fisks, sem flattur var í haust. Brennuvargurinn fór upp á loftið þar sem félagið er með fundarsal og kveikti þar í borðum og stólum. Til allrar hamingju var svo kalt og rakt innandyra að eldurinn náði ekki að magnast. Hefði hann gert það er hætt við að eldurinn hefði breiðst út til kjallarans, en þar voru fískbirgð- imar. Byggingin var tryggð fyrir jafnvirði tæplega einnar og hálfrar milljónar íslenskra króna. Að undanfömu hefur gengið far- aldur eldsvoða í Færeyjum og er óhugur í fólki vegna þessa. Er svo komið að menn treysta sér vart til þess að skilja hús eftir mannlaus af ótta við að brennuvargurinn fari á kreik, en lögreglan er engu nær um málið. Israel: * Utlagarnir hóta sjálfs- morðsárásum Ksara í Líbanon, Tel Aviv. Reuter. EINN fjögurra Palestínumanna sem ísraelar ráku úr landi hótaði að hann og félagar hans myndu leggja í sjálfsmorðsárás gegn ísrael ef þeir fengju ekki að snúa til síns heima. Shimon .Peres, ut- anríkisráðherra ísraels, sagði í sjónvarpi í ísrael á föstudagskvöld að ísraelsmenn þyrftu að hefja samningaviðræður um herteknu svæðin hið fyrsta. Mennimir fjórir sem fluttir vom til Líbanon á miðvikudag hótuðu því á fundi sem þeir héldu í Ksara í Líbanon, að þeir muni grípa til hefndaraðgerða ef þeir fá ekki að fara aftur til ættjarðar sinnar. Tak- ist það ekki sögðust þeir myndu gera svifdrekaárás á ísraelskar herbúðir eða smygla sér inn í landið sem „mennskar sprengjur" með sprengi- belti um sig miðja. í yfirlýsingu sem mennirnir fjórir hafa sent til Rauða krossins segir að þeir muni neyta allra bragða til að komast til Pal- estínu. Peres sagði í ísraelska sjónvarpinu að samningaviðræður yrðu að hefjast þrátt fyrir óeirðirnar á hemumdu svæðunum. „Eina leiðin til að binda enda á óeirðimar er með samningum við Jórdani,“ sagði Peres, en ítrekaði að skilyrði fyrir viðræðum væri að friður ríkti á hernumdu svæðunum. Sjötíu særðust og einn var skotinn til bana þegar til óeirða kom við A1 Aqsa-moskuna í Jerúsalem á föstu- dag. Hafa því 38 látist síðan óeirðim- ar hófust á herteknu svæðunum í desember byijun. Sett var útgöngu- bann á fjórtán flóttamannabúðir á herteknu svæðunum í gær og herinn hafði uppi mikinn viðbúnað. STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Markaðurinn: Uppsveifla siglir í kjöl- far jákvæðra hagtalna New York, Reuter. MIKILL uppgangur hefur verið á fjármálamörkuðum heimsins eftir að hagtölur nóvembermánaðar voru birtar í Bandarikjunum á föstu- dag. Bandaríkjadalur hefur hækkað í verði og í framhaldi af því hækkuðu hlutabréf víða um heim í verði auk þess sem bandarisk rikisskuldabréf hafa styrkst mjög i sessi. Samkvæmt hagtölunum minnkaði viðskiptahalli Bandaríkjanna um 25% í mánuðinum. Útflutningur Bandaríkjanna jókst um 9,4% í nóvember og nam 23,8 milljörðum Bandaríkjadala, sem er nýtt met, en rekja má þessa aukningu til lækkandi gengis dals- ins að undanfömu. „Viðskiptahall- inn byijaði að lækka í fyrra og hann mun lækka enn frekar á þessu ári,“ spáði John Wilson, aðalhag- fræðingur Bank of America í San Francisco. Óttast var að ef þróun viðskipta- hallans yrði ekki snúið við í nóvember myndi dalurinn falla enn frekar. Það hefði síðan væntanlega haft í för með sér hærri vexti. Eftir að Bandaríkjastjórn urðu gleðitíðindin Ijós spáðu sérfræðing- ar hennar því að útflutningur mynda aukast enn frekar og að vöxtur í efnahagslífi, sem staðið hefur undanfarin sex ár, myndi halda áfram þrátt fyrir bakslagið sem varð síðastliðinn október þegar verðbréf féllu allsnarlega í verði og dalurinn með. Ekki þótti heldur spilla fyrir að verðbólga í Banda- ríkjunum jókst ekkert í síðasta mánuði þrátt fyrir að ýmsar blikur væru á lofti. Dalnum vegnaði vel á gjaldeyris- mörkuðum og hefur ekki yerið jafnhár í verði gagnvart vestur- þýska markinu í tvo mánuði. Ekki voru þó allir jafnbjartsýnir á ástand mála og sagði Joachim Zimmermann, yfírmaður gjaldeyr- isdeildar Berliner Bank AG, að ekki væri komið sumar þó einhver hefði eygt svölu á flugi. Var álit hans að vissulega væri hér um góð tíðindi að ræða, en engan veginn í líkingu við það sem fjármálamenn æsktu. Kosið á Haítí í dag Port-Au-Prince, Reuter. HENRI Namphy forseti herfor- gerðist 29. nóvember á síðasta ingjastjórnarinnar á Haíti ári þegar 30 borgarar voru skotn- skoraði á fólk að neyta atkvæð- ir er þeir voru að kjósa í Port-Au- isréttar síns í kosningunum sem Prince. Herinn er í viðbragðsstöðu eiga að fara fram i landinu i um allt land og í sjónvarpsávarpi dag. á föstudag skoraði Namphy á Ottast er að gripið verði til of- þjóðina að taka þátt í kosningun- beldis á kosningadaginn líkt og um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.