Morgunblaðið - 17.01.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988 ■
23
Unnur á siglingu undan Tyrklandsströndum.
Sérstök tilfimiing aö
beisla náttúruöfhn
„SIGLINGAR eru geysilega
skemmtileg íþrótt og sérlega hent-
ug fjölskylduíþrótt því allir fjöl-
skyldumeðlimir geta iðkað hana
saman," sagði Unnur Steingríms-
dóttir, eina konan á námskeiði
Siglingaskólans í hafsiglingum.
Það er alveg sérstök tilfinning að
beisla náttúruöflin, það er örfandi
og hvetur til dáða," sagði Unnur.
Hún kvað siglingamar minna sig
einna helst á skíðaiðkun, þeim fylgdi
mikil útivera og nauðsynlegt væri
að klæða sig vel. „Maður verður að
vera viðbúinn ýmsum aðstæðum,
veðrabrigði eru snögg og það er fljótt
að verða kalt. Samt er það misskiln-
ingur hjá mörgum að hættulegt sé
að sigla við strendur íslands vegna
þess að hér sé svo hvasst. Þvert á
móti þá er oft ekki nægilega hvasst."
Unnur sagði að nú stæði yfír nám-
skeið í hafsiglingum en til að mega
taka þált í því þyrftu menn að hafa
tekkHsvokallað 30 tonna próf. „Það
má líta á þetta hafsiglinganámskeið
sem framhald af 30 tonna námskeið-
inu fyrr í haust. Hér lærum við til
dæmis meiri siglingafræði, auk sigl-
ingareglna, veðurfræði og skyndi-
hjálpar. Þetta er afskaplega
skemmtilegt námsefni og mér finnst
nauðsynlegt að læra þessa hluti til
að hafa fulla ánægju af siglingunum.
Það veitir mikilvæga öiyggiskennd
að vita að maður á að geta bjargað
sér þó eitthvað komi fyrir úti á sjó.
Það er til dæmis grundvallaratriði
að geta siglt eftir korti og kynnt sér
aðstæður fyrirfram."
Að sögn Unnar útskrifast nemend-
ur af hafsiglinganámskeiðinu með
réttindi til að sigla á meðan heyrist
í radíóvita af skútunni. Með þessi
réttindi geta nemendur til dæmis
siglt til Færeyja. Að loknu námskeiði
í hafsiglingum er hægt að fara á
námskeið í úthafssiglingum sem veit-
ir réttindi til að sigla um úthöfín.
Að því loknu geta menn tekið siglin-
gatíma og þegar ákveðinn fjöldi
Morgunblaðíð/Svérrir
Unnur Steingrímsdóttir.
slíkra tíma er að baki er tekið loka-
próf sem veitir alþjóðleg réttindi.
Lokaprófið er verklegt og próf-
dómari er frá Englandi.
Unnur hefur nokkra siglinga-
reynslu að baki því í sumar tók hún
þátt í verklegu siglinganámskeiði
auk þess sem hún ferðaðist til Tyrk-
lands með fjölskyldu sinni, leigði þar
skútu og sigldi í tvær vikur. „A nám-
skeiðinu í sumar sigidum við mest á
svæðinu frá Akranesi til Keflavíkur.
Við vorum yfirieitt 8 tíma á sjó í
senn en í lokaprófinu var sigit stans-
laust í sólarhríng. Mér faimst sérlega
gaman að sigla hér fyrir utan því
ég sá landið og borgina frá allt öðru
sjónarhomi en ég á að venjast."
Unnur taldi að aðalkúnstin við sigl-
ingamar væri að leggja úr höfn og
leggja að hafnarbakka því minni
vandi væri að stjóma seglunum úti
á sjó.
„Ég vil eindregið hvetja þá sem
áhuga hafa á sigiingum til að sækja
þessi námskeið. Þeir verða ekki fyrir
vonbrigðum," sagði Unnur að lokum.
Skútur úr stein-
steypu o g stáli
„HJÁ mér eru siglingar aðalá-
hugamálið enda hef ég verið
viðloðandi þær frá því ég var 11
ára gamall,“ sagði Öm Tryggvi
Johnsen.
Öm var einn þeirra sem sem tóku
þátt í verklega námskeiðinu í sumar.
„Við sigldum á skútu sem er í eígu
kennarans okkar, Benedikts Alfons-
sonar. Skútan er um 23 fet að lengd,
með káetu-og svefnplássi fyrir Qóra.
Hún telst meðalstór því flestar skút-
*umar hér á landi eru á mlinu 21 tíl
27 fet að lengd.“
Að sögn Öms em skútumar
smíðaðar úr ýmsum efnum. „Þessar
skútur eru úr tré, plastefnum, álí og
jafnvel steinstejrpu eða stáli. Þær eru
framleiddar vlða, tíl daemís Í.Frakk-
landi og Ítalíu en eiga það yfirieítt
sameiginlegt að vera dýrar. Það er
því fjarlægur draumur hjá mér að
eignast skútu." ■
Öm sagði að talsvert væri um það
að fólk'fetti skútur sem það geymdi
erlendis. Gjaman væru það höpar
sem skifntust á um að sígla í sumar-
leyfum. „Mér finnst þó Iftið vit í öðru
Morífunbta/bð/8verrir
Örn Tryggvi Johnsen.
en að geyma skötuna sína hér heima
ættí maðíur að nýta hana sem best,“
sagði Öra að iokum.
Texti:
Helgi Þór Ingason.
PORTÚGAL-FATNAÐUR
Kaupmenn innkaupastjórar
Verðum með sýningu á kvenfatnaði og karlmanna-
buxum. Sumar- og vetrartískan 1988.
Sýningin verður haldin í Hótel Alfa, Lissabon, frá
5. febr. nk. til 20. febr. nk.
Allir þeir sem áhuga hafa hafi samband við CARUN-
inportacao - exportacao, lda. Av. Miguel Bombarda,
133- 8 drt. 1000 Lisboa Portugal.
Telex 42094 avlis p- og 64329 mtu p.
Á íslandi gefur upplýsingar Daníel Ámason í síma
28448 á skrifstofutíma.
í Jeep Scrambler árgerð ’83 og Suzuki Fox SJ410 árgerð ’85
ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar á Grensásvegi 9
þriðjudaginn 19. janúar kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA.
m^^m^mmmm^mmmmam^amamammmmmmmaammamammma
FUNAI
HQ 6400 myndbandstœki með
forritanlegri fjarstýringu
JAPÖNSK HÁGÆÐATÆKITROÐFULL
NÉ BÉTRAVERÐ
Kr. 30.500.- stgr.
cr
h-