Morgunblaðið - 17.01.1988, Blaðsíða 37
MORGUNTBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988
37
Sjóefnavinnslan:
Vinnslu á
salti og kol-
sýru hald-
ið áfram
Jarðgufuvirkjun athuguð
Sjóefnavinnslan á Reykjanesi
mun halda áfram núverandi
framleiðslu á salti og kolsýru, að
sögn Jóns Gunnars Stefánssonar,
stjórnarformanns Sjóefnavinnsl-
unnar hf., en mun ekki ráðast í
neinar nýjar framkvæmdir eða
rannsóknir f bráð nema aðrir aðil-
ar komi inn í rekstur verksmiðj-
unnar. Hitaveita Suðurnesja, sem
nýlega keypti meirihlutaeign
ríkisins í fyrirtækinu, mun hugs-
anlega ráðast í jarðgufuvirkjun á
landi Sjóefnavinnslunnar í fram-
tíðinni, sem gæti orðið allt að 10
megawött að stærð, og gæti þjón-
að fleiri aðilum en Sjóefnavinnsl-
unni.
Sex manns, sem unnu við stjóm-
unar- og skrifstofustörf, hefur verið
sagt upp í Sjóefnavinnslunni, en að
sögn Jóns Gunnars koma þær upp-
sagnir ekki til framkvæmda fyrr en
eftir þijá til sex mánuði. Engum
starfsmanni sem vinnur að fram-
leiðslu hefur verið sagt upp. Stjóm
Sjóefnavinnslunnar verður líklega
sett undir Hitaveitu Suðumesja í
framtíðinni eða þá aðila sem myndu
taka að sér rekstur fyrirtækisins
ásamt Hitaveitunni. Engin ákvörðun
hefur þó verið tekin í þessu sam-
bandi.
Sjóefnavinnslan fékk yfirráð yfir
auknu landrými við yfírtöku Hita-
veitu Suðumesja, og er hugsanlegt
að reist verði jarðgufuvirkjun þar í
framtíðinni. Sjóefnavinnslan hf. hef-
ur nú leyfi til 5 megawatta virkjunar
á svæðinu, en iðnaðarráðherra getur
aukið þá heimild upp í 10 megaw-
ött. Til samanburðar má geta að
raforkuverið við Svartsengi er 6
megawött að stærð. Raforkufram-
leiðslan þarf ekki eingöngu að vera
bundin við þarfír Sjóefnavinnslunnar,
heldur ættu önnur fyrirtæki að geta
komið sér fyrir á svæðinu, og not-
fært sér þá orku sem hægt er að fá
þar með hagkvæmum hætti, sagði
Jón Gunnar.
Kaupf élag Svalbarðseyrar:
_
Abyrgðar-
mennirnir á
fund Guðjóns
B. Olafssonar
BÆNDURNIR átta, er gengust í
ábyrgð fyrir hönd Kaupfélags
Svalbarðseyrar á árunum 1984 og
1985, funduðu á Akureyri s.l.
föstudag og ákváðu að senda þijá
fulltrúa sína á fund Guðjóns B.
Ólafssonar forstjóra Sambands
íslenskra samvinnufélaga næst-
komandi þriðjudag.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hafa ábyrgðarmennimir farið
þess á leit við stjóm SÍS að Samband-
ið létti ábyrgðunum, sem nú nema
um 40 milljónum króna, af þeim.
Engin afstaða hefur hinsvegar verið
tekin af hálfu stjómar SÍS til máls-
ins. A síðasta stjómarfundi var þeim
Guðjóni B. Ólafssyni forstjóra Sam-
bandsins og Val Amþórssyni stjóm-
arformanni falið að leita leiða í máli
þessu og í framhaldi af því hafði
Guðjón samband við Tryggva Stef-
ánsson á Hallgilsstöðum fyrrverandi
stjómarformann í KSÞ og bauð þeim
til fundar nk. þriðjudag í Reykjavík.
Asamt Tryggva fara þeir Guð-
mundur Þórisson í Hléskógum og
Karl Gunnlaugsson fyrrverandi
kaupfélagsstjóri KSÞ á fundinn.
„Það er mikið ( húfí svo að maður
reynir allar mögulegar leiðir. Ég er
aðeins hóflega bjartsýnn, en geri
mér ekki glæstar vonir,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið
í gær.
AIIDI BIUIW
147 kaupa Audi eða BMW árgerð 1987 eða 1988. Staðgreiðsla.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Bíll - 4923“ fyrir 22. janúar.
Að teikna, mála
eða vefa mynd
Síðdegis- og kvöldnámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna.
Málun: Meðferð vatns-og olíulita. Myndbygging.
Teiknun: Undirstöðuatriði, blýantsteikning.
Myndvefnaður: Undirstöðuatriði, ofið á ramma.
Upplýsingar og innritun í dag og næstu daga.
Kennari: Rúna Gísladóttir, sími 611525.
KONUR
Við höldum áfram með hin vinsælu
námskeið í stofnun og rekstri fyrir-
tækja dagana 25. janúar til 30 janúar.
Meðal efnis: Frumkvöðullinn, stofn-
áætlun, markaðsmál, fjármál, forrn
fyrirtækja, bókhald. Námskeiðiðfer
fram íkennslusal Iðntæknistofnunarí
Keldnaholti..
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Rekstrartæknideild.
FRAMTIÐARMUSIK - BILAÞVOTTAVELAR
Þessar bilaþvottavelar þvo og bonbera bila a ca. 5
mínútum.
Þessar sjálfvirku bílþvottavélar eru framleiddar af
Kleindienst í Vestur-Þýskalandi, langstærsta fram-
leiðanda bílaþvottavéla í heiminum.
Við erum umboðsmenn KLEINDIENST á íslandi og
þegar eru komnar í notkun nokkrar vélar og fleiri á
leiðinni. Bak við hverja vél þurfa að vera ca. 1200
bílarásvæðinu.
Gísli Jónsson & Co hf.
Sundaborg 11, simi 686644
Hef flutt
læknastofu mína á Suðurgötu 12, Reykjavík.
Tímapantanir virka daga kl. 15.00-17.00í
síma 621 776.
Sérgrein: Geðlækningar.
Halldóra Ólafsdóttir.
Hef fíutt
stofu mína á Suðurgötu 12, Reykjavík.
Tímapantanir virka daga kl. 15.00—17.00 í
síma 621 776.
Viðtalsmeðferð: Einstaklings-, hjóna- og hópmeðferð.
Hulda Guömundsdóttirf
félagsráðgjafi.
Hef fíutt
læknastofu mína á Suðurgötu 12, Reykjavík.
Tímápantanir virka daga kl. 15.00-17.00 i
síma 621775.
Sérgrein: Geðlækningar.
Högni Óskarsson.
Hef fíutt
læknastofu mína á Suðurgötu 12, Reykjavík.
Tímapantanir virka daga kl. 15.00—17.00 í
sima 621 776.
Sérgrein: Geðlækningar.
Ingvar Kristjánsson
__________MRC Psycb._______
Hef fíutt
læknastofu mína á Suðurgötu 12, Reykjavík.
Tímapantanir virka daga kl. 15.00-1 7.00 í
síma 621 776.
Sérgrein: Geðlækningar.
Oddur Bjarnason.
N0RRÆNA LISTAMIÐSTÖÐIN
(Nordiskt Konstcentrum) óskar eftir að ráða:
UpplýsingafulltrúaogaðalritsljóraSlKSIfrá l.júlí 1988.
Upplýsingafulltrúinn hcfur nicð alla höndum alla upplýsingamiðlun á
vegum listamiðstöðvarinnarþarmcð talinöll úlgáfumál nemaútgáfu
sýningarskrár.
A undanfömum árum hefur miðlun upplýsinga um listasöfn færst rnjög
í aukana og cr frckari vöxtur fyrirsjáanlcgur á þvt sviði.
Aðalritstjóri listatímaritsins SIKSI annast útgáfu þcss í samráði vtð liu
ritstjóra á Norðurlöndunum. í tímaritinu cr einkum fjallað um samtima-
list.
Krafist er yfirgripsmikillar þekkingar á listasögu, cinkum nútímalista-
sögu. Viðkomandi þarf að þckkja vcl til prcntiðnaðarins og vera fær að
tjá sigjafnt i ræðu sem riti. Þeir sem hafa rcynslu af svipuðum störfum
munugangafyrir.
Umsækjcndur þurfa að hafa gotl vald á sænsku, norsku eða dönsku.
Samskiptamál stofnunarinnar er sænska.
Norræna listamiðstöðin cr i stöðugri þróun. Miðstöðin gcngst fyrir sýn-
ingum, cinkuni á norrænni nútímalist og má þar ncfna tvíæringinn
BOREALIS.gcfurúttímaritiðSIKSI.annaslrckstur 12 vinnustofaá
Norðurlöndum, og skipulcggur ráðstcfnur og fyrirlcstra. Þá rckur ntið-
stöðin eigin bóka- og skjalasafn svo og listaverkasafn.
Norræna listamiðstöðin cr í Sveaborgskammt fyrir utan Hclsinki. Stað-
an cr vcilt til (jögurra ára. Laun samkvæmt launaflokki A19 (byrjunar-
laun 6.465 finnsk mörk á mánuði), hámarkslaun með starfsaldufs-
hækkunum 8.786 finnsk mörk á mánuði. Bústaður scm fylgir stöðunni
er til reiðu í Svcaborg. Styrkur vcgna brottflutnings og staðaruppbót cr
grcidd þeim starfsmönnum sem ekki eru búsettir í Finnlandi.
Umsóknirþurfaaðhafa borist Norrænu listamiðstöðinni í sióasta lagi
þann 15.2 1988. Þærskal senda: Nordiskt Konstcentrum, Svcaborg,
SF-00l90Hclsingfors. Nánari upplýsingar vcila Birgitta Lönnell for-
stöðumaðurogGertrud Sandqvist upplý’singafulltrúi í síma 90358-0-
668-143.